Vikublaðið


Vikublaðið - 05.07.1996, Blaðsíða 1

Vikublaðið - 05.07.1996, Blaðsíða 1
Félagi ffélagi tilsjá bls. 2 Verkefni Ólafs Ragnars, verkefni vinstrimanna leiftari Mannvinur í stjórnmálum: 100 ára afmæli Katrínar Thoroddsen bls. 4 - 5 Þátttökuhag- kerfið og ný vinstristjórn- mál: Tony Blair skrifar grein í miftopnu Sumargjöf ríkisstjórnar- innar: Náms- maður kvittar fyrir í miftopnu Vitringarnir þrír bls. 11 - Sjá kosningaúrslit bls. 7, leiðara bls. 2 og kosningabaráttuna í máli og myndum bls. 8-9 ... ' Guðrún Helgadóttir, vara- þingmaður Alþýðubanda- lags Má vera að Sjálf- stæðisílokkurinn hafi veikt sjálfan sig „Eg held ekki að kjörið í sjálfu sér muni hafa pólitísk áhrif, öðru vísi en þau að auð- vitað munar mikið um Olaf Ragnar Gríms- son alls staðar. Hann er fyrirferðarmikill maður. En fólk kýs allt öðruvísi í forseta- kosningum en í öðrum kosningum. Oll flokksbönd riðlast," segir Guðrún Helga- dóttir, varaþingmaður Alþýðubandalagsins, í samtali við Vikublaðið um möguleg póli- tísk áhrif þess að Ólafur Ragnar Grímsson var kjörinn forseti Islands. „Þetta breytir þó ekki hinu að það má vera að Sjálfstæðisflokkurinn hafi veikt sjálfan sig með ýmsu því sem hann gerði og sagði fyrir og eftir kosningarnar. Það er síðan misskiln- ingur að kjör Ólafs sé merki um breytingar í íslenskum stjórnmálum almennt. Félags- hyggjufólk var áður búið að komast að því að allt er hægt, ekki síst í borgarstjórnar- kosningunum síðast. Það þarf ekki forseta- kosningar til svo að félagshyggjufólk viti þetta. Eg sé því ekld neinar vísbendingar út úr þessum kosningum aðrar en þær að þjóð- in vill fá að velja sjálf hvem hún vill sem for- seta,“ segir Guðrún. Finnur Ingólfsson, við- skipta- og iðnaðarráðherra Engin pólitísk skila- boo í sigri Ólafs „I sigri Ólafs Ragnars felast nákvæmlega engin pólitísk sldlaboð. Þá ályktun má meðal annars draga af skoðanakönnum, því á sama tíma og Ólafúr Ragnar fékk yfir 40% fylgi þá kom fram að fylgi stjórnmálaflokka til vinstri fengu sömu eða lakari útkomu en áður. Staða þeirra flokka sem mest tala um samstarf er með öðmm orðum lakari en ver- ið hefur,“ segir Finnur Ingólfsson ráðherra úr röðum Framsóknarflokksins í samtali við Vikublaðið, aðspurður um hugsanleg póli- tísk áhrif þess að Ólafur Ragnar Grímsson, fyrram formaður Alþýðubandalagsins, hafi verið kjörinn forseti lýðveldisins. „Það er því útlokað að_ lesa einhver póh- tísk sldlaboð út úr kjöri Olafs Ragnars. Það sigraði enginn stjómmálaflokkur og enginn þeirra varð fyrir áfalli. Það sýndi sig í fylgi einstakra ffambjóðenda að engin flokks- bönd héldu né heldur fjölskyldubönd. Fólk mótaði sína afstöðu fyrst og ffemst eftir því hvaða fólk var í ffamboði. Hitt era ótvírætt merkileg tíðindi að einstaklingur sem gegnt hefur trúnaðar- og ábyrgðarstörfum í stjómmálum skuli hafa verið kjörinn og fengið þetta mikla fýlgi. Burtséð ffá fýlgi As- geirs Ásgeirssonar á sínum tíma þá hafa menn talið að þjóðin vildi ekki fá stjóm- málamann í þetta embætti,“ segir Finnur. Sjá einnig bls. 5. Ólafur Ragnar Grímsson, fýrrum formaður Alþýðubandalagsins, var 29. júní síðastliðinn kjörinn forseti Islands með yfirgnæfandi atkvæðamun ffamyfir keppinauta sína. Þúsundir Islendinga hylltu Ólaf Ragnar og Guðrúnu Katrínu Þor- bergsdóttur konu hans við heimili þeirra daginn eftir kjörið í bh'ðskap- arveðri. Athöfhinni stýrði Ami Gunnarsson fýrram þingmaður Al- þýðuflokksins. Ólafúr Ragnar er doktor í stjóm- málaffæðum. Hann var lengi lektor og prófessor við Háskóla Islands. Hann kom inn á þing sem varaþing- maður 1974-1978, envarð þingmað- ur ffá 1978 dl 1987 ogafturffá 1991. Hann var fjármálaráðherra 1988 til 1991 og formaður Alþýðubandalags- ins 1987 til 1995rMeðáT"ánnárfá' trúnaðarstarfa er formennska fýrir alþjóðlegu þingmannasamtökin Parliamentarians for Global Action ffá 1984. Ólafur Ragnar tekur við embætti 1. ágúst næstkomandi og flyst fjöl- skylda hans þá til Bessastaða. Á næst- unni mun skrifstofa forseta íslands flytjast úr Stjórnarráðshúsinu að Sól- eyjargötu 1. Davíð Oddsson forsæt- isráðherra greindi ffá kaupum ríkis- sjóðs á fasteign þessari daginn eftir forsetakjör. Til kaupanna er nýtt heimild í fjárlögum um kaup á hús- næði undir „aðalskrifstofúr ráðu- neytanna.” \V\RE mH7 m 5522

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.