Vikublaðið


Vikublaðið - 30.09.1994, Blaðsíða 11

Vikublaðið - 30.09.1994, Blaðsíða 11
VIKUBLAÐIÐ 30. SEPTEMBER 1994 11 The Paper ★★1/2 Sýnd í Háskólabíó Leikstjóri: Ron Howard Aðalhlutverk: Michael Keaton, Marisa Tomei, Glenn Close Sumar myndir eru framúrskar- andi góðar og aðrar eru af- spyrnulélegar. Svo eni það miðl- ungsmyndirnar, myndir sem eru gerðar einungis til afþreyingar og hafa lítið til brunns að bera umfram það að vera stundargaman. Leikstjórinn Ron Howard (Backdraft, Splash) hefur að að mestu gert slíkar myndir hingað til og nýjasta mynd hans, The Paper, er engin undantekning þar á. Það er lítið af óvæntum uppákom- um í handritinu sem skrifað er af öðr- um fagmanni afþreyingarmiðilsins, David Koepp, en handritin hans (t.d. Jurrasic Park, Carlito's Way) hafa gert sitt gagn án þess að skara fram úr að neinu leyti. David skrifar handritið ásamt blaðamanninum Stephen Ko- epp (skyldmenni?) sem hefur eflaust hjálpað til við að endurskapa það and- rúmsloft sem rt'kir á stórum fjölmiðli eins og dagblaðinu sem myndin fjallar um. Samkvæmt túlkun félaganna ríkir mikið öngþveiti í kringum slíka út- gáfu, fólk er ýmist á barmi taugaáfalls eða haldið ofsóknaræði þegar ringul- reiðin er sem mest og það vílar ekla fyrir sér að vaða yfir hvert annað til að ná settu takmarki. Þessi rauði þráður myndarinnar um stressið sem fylgir blaðaútgáfu er mjög vel heppnaður og það er gaman að horfa á keppinautana Keaton og Close þjösnast eins og eiturnöðrur á slagæð hvors annars. En því miður hafa Koepp og Koepp kosið að bæta inn í myndina hinum ýmsu sögu- kimutn sem gera ckki annað en að trufla atburðarásina og eru æði leiði- gjarnir og klisjukenndir. Þannig hefði algerlega mátt sleppa kaflanum um veikindi Robert Duvall og uppgjör hans við dóttur sína sem verður svo að engu þegar upp er staðið. Og Marisa Toinei virðist hafa þann eina tilgang að vera þrándur í götu eiginmanns síns, Michael Keaton, og hefði mátt annað hvort gerbreyta persónu henn- ar eða þá að gera hana veigaminni. Svo er atriðið með Duvall og bíla- stæðanefndarmanninnum hreinn óþarfi og hindrar framrás sögunnar ffemur en nokkuð annað. Myndin „The Paper“ staðfestir trú núna á því að Ron Howard sé afþrey- ingarleikstjóri í húð og hár enda er fólki hollast að halda sig við það sem það gerir best. Myndin heldur athygli manns meðan á henni stendur, er skeinmtileg á köflum en gleymist fljótt eins og góðum afþreyingar- myndum sæmir. Jimmy Hollywood ★ Sýnd í Laugarásbíó Leikstjóri: Barry Levinson Aðalhlutverk: Joe Pesci, Christian Slater, Victoria Abril Maðurinn sem svara skal til saka fyrir þessa mynd nefn- ist Barry Levinson, sem er ábyrgur fyrir leikstjórninni og hand- ritinu. Levinson þessi hefur gert ýmsa ágæta hluti um dagana og má segja að ferill hans hafi náð hápunkti með myndinni Avalon sem stendur auð- veldlega upp úr þeim hópi mynda sem hann hefur sent ffá sér. Síðan þá hefur ekki mikið virðingarvert sprottið úr hans smiðju, síðasta mynd hans, Toys, rann gjörsamlega út í sandinn og tókst meira að segja að gera fyndnasta mann veraldar, Robin Williams, þreytandi. Til þess að ferill hans kæmist aftur á réttan kjöl hefði Jimmy Hollywood því þurff að vera framúrskarandi vel heppnuð. En þrátt fyrir ágæta grunn- hugmynd er hún sígilt dæmi um mynd sein nær sér sjaldan á flug, og í þeim undantekningartilvikum sem hún kemst af jörðinni brodendir hún hið snarasta. Joe Pesci leikur atvinnulausan leik- ara sem þjáist af ólæknandi bjartsýni og hefur ekki verið jafn vannýttur síð- an í hryðjuverkinu „The Super“. Þeg- ar honum gengur illa að fá hlutverk í bíómyndum ákveður hann að segja glæpum stríð á hendur og gerist sjálf- skipaður dórnari og verndarengill. Þarna reynir Levinson að beita fyrir sig háðsádeilu út í þjóðfélagið en yfir- völd hafa jú einmitt tilhneigingu til að vera meira í nöp við slíka verndar- engla heldur en glæpamennina sjálfa, að því er virðist á köflum. Þessi ádeila er mjög veik, mann- kertið sem Pesci túlkar er svo naut- heimskt að það tekst aldrei að skapa neina samkennd með honum. Að auki er hann ekkert sérstaklega spaugileg- ur svo mér er spurn hvert steffit var með þennan karaktcr. Það er ekki hægt að segja mikið annað um Christian Slater í þessari mynd en að hann sé til staðar. Persón- an sem hann leikur er sannkallaður lofthaus sem þjónar engmn tilgangi öðrum en þeim að vera uppfylling í tómlegt handritið. Það er auðséð að Victoria Abril líð- ur eins og álfi út úr hól í þessari mynd, hún hefur sýnt stórgóðan leik í mynd- um eftir spænska leikstjóran Pedro Almodovar en hér er hún óttalega heft og kauðsleg, enda er efniviðurinn sem hún fær til að spinna úr ekki ýkja merkilegur. I lokin reynir Levinson að skopast að sannleiksgildi kvikmyndarinnar í lidu atriði með Harrison Ford en þeg- ar þar að kemur er maður orðinn svo pirraður á myndinni að sú viðleitni fykur út í veður og vind og maður gengur hálf svekktur út úr salnum að lokinni sýningu. Sagt með niviid Höfundar: Hjörtur Gunnarsson og Þuríður Hjartardóttir

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.