Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.2005, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.2005, Blaðsíða 6
6 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 12. febrúar 2005 Þ egar ekið er austur á þjóðvegi eitt og farið fram hjá Hvolsvelli ligg- ur láglend sveit á hægri hönd. Fáa grunar að í gamalli og lág- reistri kirkju á Krossi nærri sjó leynist gersemi íslenskrar menningarsögu. „Leynist“ er kannski fullmikið sagt því að gripurinn er stór og áberandi og hefur verið í allra augsýn frá árinu 1650 og hann er vandlega merktur. Þetta er altaristafla sem ekki hefur ratað á Þjóðminjasafnið og hef- ur því ekki verið sýnd og sundurgreind á veg- um þess né annarra sem hafa rannsakað og vakið athygli á íslenskum menningarverðmæt- um. Önnur ástæða fyrir því hve hljótt er verið um þessa merku mynd er hugsanlega sú að hún er dönsk eða öllu fremur dönsk-íslensk. Hér verður því haldið fram að altaristaflan á Krossi í Austur-Landeyjum sé trúarleg túlkun á voðaverkum sem unnin voru 23 árum fyrr en taflan var sett upp í kirkjunni, Tyrkjaráninu í Vestmannaeyjum árið 1627. Til þess að komast að þeirri niðurstöðu þarf að þræða sig áfram eftir vísbendingum sem myndin býr yfir. Gefendurnir Undir altaristöflunni á Krossi er málað á fjöl með skýrum og stórum stöfum þvert yfir: Denne Tafle Haffuer Clavs Eyjolffsson och Niels Clementsson forærid til Kross Kirkie Vdi Land Eijen. A° 1650: Þessa altaristöflu hafa Kláus Eyjólfsson og Níels Klemensson gefið til Krosskirkju í Landeyjum árið 1650. Þetta er fágætur skírleiki og ætti að auð- velda skilning á töflunni. Gefendurnir eru þekktir, einkum Kláus sem var gildur bóndi í Hólmum í Landeyjum og lögréttumaður í hálfa öld. Þekktastur er hann þó fyrir ritverk sitt sem lesið hefur verið á Íslandi í hartnær þrjú hundruð ár. Það er frásögn af Tyrkjaráninu í Vestmannaeyjum sem hann skrifaði nánast á vettvangi, eins og blaðamaður, eftir lýsingu danskra flóttamanna frá Eyjum, kaupmanns, skipstjóra og fylgdarliðs, sem björguðu sér á árabátum til lands við illan leik. Auk þess fór hann til Eyja skömmu eftir ránið, sá vettvang- inn og talaði við fólk sem komst undan. Lýsing hans er víðast hröð og vafningalaus en Kláus vissi þó vel í hvaða samhengi hann lifði. Frá- sögn hans af vígi annars prestsins í Vest- mannaeyjum, séra Jóns Þorsteinssonar, sem jafnframt var frændi hans, er í helgisögustíl og einna líkust píslarsögu Krists. Í lokin jafnar Kláus Tyrkjaráninu við eyðingu Jerúsalem og í tveim af elstu afskriftum sögunnar endar hún á hugleiðingu um refsingarhrís guðs og iðrun mannsins. Níels er enginn huldumaður heldur. Hann er nefndur nokkrum sinnum í bréfabók Brynjólfs biskups Sveinssonar þar sem hann er að send- ast með bækur fyrir biskup og selur honum alt- arisflösku úr silfri. Níels var kaupmaður á Eyr- arbakka og í Vestmannaeyjum, hann skipulagði varnir eyjanna eftir Tyrkjaránið og stjórnaði endurbyggingu Landakirkju eftir að Tyrkir brenndu hana til grunna í herferð sinni, gaf og sjálfur fé og búnað til kirkjunnar. Af ofansögðu er ljóst að báðir gefendur alt- aristöflunnar á Krossi voru vel heima í trúar- táknum og trúarlegum frásögnum og að báðir tengdust Tyrkjaráninu með skýrum hætti. Höfum það í huga í áframhaldandi túlkun á töflunni. Myndefnið Altaristaflan á Krossi er þrískipt eins og al- gengt var um aldir, en tréverkið er gróft og út- skurðarlaust. Miðmyndin sýnir upprisu Krists. Á vinstri væng er hinn þjáði Kristur, „smer- tensmanden“ sem Danir kalla. Eftir lok mið- alda var þetta orðið fágætt myndefni en svipað stef gekk í endurnýjun lífdaganna á dögum Kristjáns konungs fjórða. Konungurinn var á morgunbæn í Rothenborgarhöll í Norður- Þýskalandi 8. desember árið 1625 þegar honum birtist sýn: Kristur sitjandi með þyrnikórónu, með brotinn reyrstaf í hendi og blóð streymdi úr sárum hans. Þessi sýn varð Kristjáni frekari hvöt til að verja málstað mótmælenda gegn herjum kaþólskra með her sínum. Því stríði tapaði hann meðan Tyrkir rændu á Íslandi. Á hægri væng altaristöflunnar er tor- kennilegra efni. Augljóslega Kristur en hann hefur sérkennilega fylgihluti, meðal annars sverð sem gengur fram af munninum. Eftir nokkra fyrirgrennslan var ljóst hvaðan hann var sprottinn: úr upphafi Opinberunarbókar Jóhannesar sem er síðasta rit Nýja testament- isins. Engin kirkjumynd önnur á Íslandi hefur þetta myndefni og það er ákaflega sjaldgæft annars staðar á Norðurlöndum. Þarna eru tor- ræð tákn og sjaldgæfur boðskapur sem fluttur er í kirkju í Landeyjum um miðja sautjándu öld. Þessi mynd gæti verið lykillinn að skilningi á altaristöflunni í heild. Hvaða merkingu hafði Opinberunarbókin á þessum tíma? Hvaða skilning gátu tveir mektarmenn, sem komu saman á Íslandi, haft á henni? Gat verið eitt- hvert samhengi milli þessarar myndar og Tyrkjaránsins árið 1627? Hin torræða mynd á hægi vængnum er inn- blásin af fyrsta kafla Opinberunarbókarinnar þar sem Jóhannes talar í fyrstu persónu og segir frá því að Kristur hafi birst honum upp- risinn og í miklum ljóma. Höfuð hans og hár voru hvít eins og ull, segir í bókinni, andlitið sem sólin í mætti sínum, augun sem eldslogi, gullbelti var spennt um hann, röddin var sem niður margra vatna. Umhverfis eru einnig tákn ljóss og máttar: sjö ljósastikur, stjörnur í hægri hendi Krists og sverð sem gekk fram af munni hans. Kjarni boðskaparins er sá að Kristur er upprisinn og hefur sigrað dauðann og hið illa sem réð yfir hel ásamt dauðanum. Hér er því dregin upp mynd hins sigrandi Krists sem mun dæma að lokum. Táknmál Opinberunarbók Jóhannesar fjallar um dómsdag og hið illa í heiminum og hún er full af torræðum táknum og myndmáli. Hún hefur einnig átt mismiklu gengi að fagna meðal kristinna manna. Marteinn Lúth- er, leiðtogi þeirrar trúarhreyfingar sem kristni á Norðurlöndum er kennd við síðan á 16. öld, glímdi lengi við Opinberunarbókina, var lengi tortrygginn út í frásagnarhátt hennar og skipti nokkru sinnum um skoðun á bókinni. Loks þóttist hann komast til botns í boðskap hennar þegar atburðir urðu í samtíð hans sem skóku allan hinn kristna heim. Tyrkjaveldi sendi her- sveitir til að umkringja og sitja um sjálfa Vín- arborg haustið 1529. Í Tyrkjum sá Lúther nú þjóðirnar Góg og Magóg sem Jóhannes segir að ráðist til atlögu að undirlagi Satans og vilji tortíma hinum kristnu en farist að lokum sjálf- ar í eldsloga af himni. Í biblíuútgáfum sem gefnar voru út í lútherstrúarlöndum fram á 17. öld fylgdu skýringar Lúthers, þar á meðal sú túlkun að hið illa sem gengi laust væru Tyrkir samtímans. Þessar skýringar voru síðast prentaðar í útgáfu Þorláks Skúlasonar biskups á Hólum árið 1644. Fyrirmynd og frumleiki Á fyrri öldum þótti sjálfsagt að leita í sjóð eldri mynda þegar nýjar voru skapaðar. Prentaðar og þrykktar myndir eftir málverkum og teikn- ingum voru óspart notaðar sem fyrirmyndir. Var hugsanlegt að altaristaflan á Krossi ætti sér slíka fyrirmynd? Eftir nokkurra vikna leit, meðal annars í myndabanka danska þjóðminjasafnsins og á Konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn, bar leitin árangur. Fullkomin fyrirmynd alt- aristöflunnar á Krossi er titilsíða Nýja testa- mentisútgáfu Kristjáns konungs fjórða frá árinu 1647 sem teiknuð er af formskera hjá Kaupmannahafnarháskóla, Hans Andreas Gref að nafni. Myndefnið er í stórum dráttum hið sama, miðmyndin er að vísu smá og neðarlega vegna þess að titill bókarinnar tekur mest rými en myndefnið er það sama. Orðin, sem standa undir myndunum á vængjunum, eru eins á bók- arsíðunni og altaristöflunni, Humilitas (auð- mýkt) og Gloria (dýrð). Dúfa svífur yfir á báð- um stöðum. Þó að altaristaflan á Krossi sæki þannig meginefni sitt í titilsíðu danskrar biblíu er hún frumlega gerð á ýmsan hátt. Málunaraðferðin er létt og leikandi; klæði, ljósastikur og píslar- tól eru dregin einföldum pensilstrokum. Eld- urinn, sem logar frá augum Krists, er málaður með sérstæðum hætti sem á fáa sína líka. Hinn „dansandi Kristur“ á upprisumyndinni og fleiri þættir minna á mannerismann sem form- tilraunir frá lokum 16. aldar eru kenndar við. Og þegar betur er gætt að kemur í ljós að veigamikið atriði á upprisumyndinni er með sérstökum hætti. Samkvæmt Matteusarguðspjalli lét Pílatus varðmenn sitja um gröf Krists og þeir „skulfu af hræðslu við hann og urðu sem örendir“ þeg- ar hann reis upp frá dauðum. Upprisumyndir taka mið af þessari frásögn og sýna hermenn hrökkva frá, skelfda og jafnvel nývaknaða. Á Krossi er allt annar háttur hafður á því myndin virðist frjálslega gerð og útfærslan styðst ekki við fyrirmyndina á titilsíðu dönsku biblíunnar. Hermenn leita inngöngu í gröfina sem líkja má við helli og standa þá hermennirnir í hellis- munnanum. Er það hrein tilviljun að þessi myndlýsing hefur minna sameiginlegt með guðspjallinu en frásögn Kláusar Eyjólfssonar af píslardauða Jóns Þorsteinssonar í Tyrkja- ráninu í Vestmannaeyjum árið 1627? Sam- kvæmt Kláusi flýði séra Jón með heimilisfólki sínu í helli í urð undir hamri nokkrum og fór hann þar með guðsorð því til huggunar. Svo fór þó að ránsmenn fundu hellinn og gekk foringi þeirra á undan og átti orðastað við prestinn, hjó hann síðan þrisvar uns hann var örendur. Upp frá því var því hann jafnan nefndur Jón písl- arvottur. Túlkun Tyrkjaránsins Tökum nú þræðina saman og lesum úr alt- aristöflunni á Krossi. Gefendurnir, Kláus Eyj- ólfsson og Níels Klemensson, voru báðir vel heima í trúartáknum samtímans og Kláus hafði sett Tyrkjaránið í Vestmannaeyjum í trúarlegt samhengi í frásögn sinni. Báðir höfðu þeir fundið Tyrkjaránið á eigin skinni enda var það mestu hamfarir sem þeir lifðu á ævi sinni. Tvær nýjar biblíuútgáfur stóðu þeim til boða, dönsk og íslensk, í þá dönsku sóttu þeir meginhug- myndina að myndgerðinni og í þeirri íslensku gátu þeir lesið hvernig Lúther tengdi Opinber- unarbókina við Tyrkjaógnina. Lesum þá boðskapinn út úr altaristöflunni á Krossi, mynd fyrir mynd frá vinstri til hægri eins og vera ber í vestrænni menningu: Mikil er þjáning mannanna og mest var hún í Tyrkjaráninu, en Kristur þjáðist einnig og leið fyrir syndir okkar. Hin illu öfl sækja að, eins og Tyrkir að séra Jóni Þorsteinssyni, en þau fá ekki grandað okk- ur því að Kristur hefur sigrað dauðann. Kristur mun ríkja og hið góða fær yfirhönd- ina, ekki fyrir ofbeldi og vopnavald heldur „munnsverð“ og „munnvönd“ (eins og Lúther orðaði það); sverð andans sem er guðs orð. Ef þessi lestur er réttur hafa Kláus Eyjólfs- son og Níels Klemensson sagt að hefndin og of- beldið séu ekki leiðin til að yfirvinna hörm- ungar heldur orðið og siðmenningin. Sverð andans sigrar ofbeldismennina. Svo geta menn mátað þennan boðskap við hefndarskyldu og vopnadýrkun fyrstu alda Ís- landssögunnar eða innrásina í Írak í nútíman- um. Ef þeir hafa yfirleitt trú á því að einn tími segi öðrum nokkurn skapaðan hlut. Þeim sem vilja kynna sér aðra og lengri um- fjöllun um þetta efni og tilvísanir í heimildir er bent á Árbók Hins íslenska fornleifafélags 2001–2002 (Reykjavík, 2003). Sverð andans sigrar ofbeldismennina Hér verður því haldið fram að altaristaflan á Krossi í Austur-Landeyjum sé trúarleg túlk- un á voðaverkum sem unnin voru 23 árum fyrr en taflan var sett upp í kirkjunni, Tyrkjaráninu í Vestmannaeyjum árið 1627. Eftir Þorstein Helgason thelga@khi.is Altaristaflan á Krossi í Austur-Landeyjum Taflan var gefin til kirkjunnar árið 1650. Það gerðu tveir menn, íslenskur mektarbóndi og danskur kaupmaður. Höfundur er dósent í sagnfræði við Kennaraháskóla Íslands. Kristur með sverð úr munni Lykillinn að boðskap altaristöflunnar er þessi sjaldgæfa mynd sem gerð er eftir lýsingu í upphafs- kafla Opinberunar Jóhannesar: Og er ég sneri mér við, sá ég sjö gull- ljósastikur, og milli ljósastikanna ein- hvern, líkan mannssyni, klæddan síðkyrtli og gullbelti var spennt um bringu hans. Höfuð hans og hár var hvítt, eins og hvít ull, eins og mjöll, og augu hans eins og eldslogi... Hann hafði í hægri hendi sér sjö stjörnur og af munni hans gekk út tvíeggj- að sverð biturt, og ásjóna hans var sem sól- in skínandi í mætti sínum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.