Morgunblaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 10
Skattar á Íslandi 10 MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hvað felst í þeim breytingum sem gerðar voru á íslensku skattaumhverfi á síðasta ári? á morgun SJÖTTI fréttastjóri Stöðvar 2 og síðar sameinaðri fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar hefur tekið við stjórninni á rúmlega 18 ára starfs- tíma stöðvarinnar. Eftir óvænta uppsögn Sigríðar Árnadóttur frétta- stjóra á mánudag er Páll Magnússon tekinn við stöðunni, í þriðja skiptið, og mun gegna henni þangað til ann- að verður ráðið. Í reynd má því tala um átta fréttstjóratímabil. Sigríður Árnadóttir var styst allra fréttastjóra í starfi á Stöð 2 og Bylgjunni en starfstími hennar náði ekki að spanna fullt ár. Fyrsti fréttastjóri Stöðvar 2 var Páll Magnússon, ráðinn haustið 1986 þegar útsendingar hófust. Hann hætti sem fréttastjóri þegar hann var gerður að sjónvarpsstjóra 1990 og tók Sigurveig Jónsdóttir þá við af honum. Tæpum tveimur árum síðar voru fréttastjóraskipti á stöðinni og Ingvi Hrafn Jónsson tók við af Sig- urveigu í mars 1992. Sigurveig sagði þá að henni hefði boðist betra starf hjá stöðinni sem hún hefði þegið. Ingvi Hrafn, sem var þriðji frétta- stjórinn, stjórnaði fram á sumar 1994, en þá tók Elín Hirst við. Ingvi Hrafn sagði í aðdraganda fréttastjóraskiptanna að hann hefði fengið tækifæri til þess að takast á við ný verkefni í sjónvarpi. Hefði Páll Magnússon fallist á tillögu hans um að Elín Hirst tæki við. Elín Hirst var fjórði fréttastjórinn og stjórnaði fram til haustsins 1996 þegar henni var sagt upp. Páll tekur aftur við Við tók Páll Magnússon sem á ný sem fréttastjóri en hætti árið 2000 þegar hann hóf störf hjá ÍE. Þá tók Karl Garðarsson við sem fimmti fréttastjórinn í nóvember 2000 og lauk starfsíma hans í febrúar í fyrra og Sigríður Árnadóttir tók við sem sjötti fréttastjórinn. Karl fór í annað starf hjá ÍÚ, en hætti hjá fyrirtæk- inu í lok síðasta árs. Með uppsögn Sigríðar tekur Páll við í þriðja sinn og áttunda fréttastjóratímabil fréttastofunnar er hafið. Meðal- starfstími hvers fréttastjóra á Stöð 2 er rétt rúm 2 ár, þar af hefur Páll Magnússon verið langlengst í starfi fréttastjóra eða á áttunda ár. Fimm starfssystkin hans skipta með sér einum áratug, þar af þrjár konur og tveir karlar. Tíð fréttastjóraskipti hafa verið á fréttastofu Stöðvar 2 Sex fréttastjórar á 18 árum Sigurveig Jóns- dóttir Tók við af Páli. Ingvi Hrafn Tók við af Sigurveigu. Páll Hefur þrívegis ver- ið ráðinn fréttastjóri. Elín Hirst Tók við af Ingva Hrafni. Karl Garðarsson Tók við af Páli árið 2000. Sigríður Árnadóttir Tók við af Karli. ÍBÚAR á bæunum Reyni og Lækj- arbakka fengu að snúa aftur heim til sín í gær en bæirnir voru rýmdir í fyrradag vegna snjóflóðahættu að beiðni almannavarnanefndar Vest- ur-Skaftafellssýslu. Enn er talin hætta á snjóflóðum við bæinn Garða sem einnig var rýmdur í fyrrakvöld og var ekki talið óhætt að dvelja þar. Bæirnir standa í hlíð Reynisfjalls en úr því hafa fallið ófá snjóflóð. Vík í Mýrdal er hinum meginn við fjallið. Mikið fannfergi er á þessum slóðum um þessar mundir. Mikið fannfergi í Mýrdal og snjóflóðahætta í Reynishverfi Nokkrum hleypt heim Ljósmynd/Jónas Erlendsson Vegurinn að Lækjarbakka var opnaður í gær og komust íbúarnir þá heim. Í TAKT við áframhaldandi hátt gengi krónunnar er útlit fyrir að verðbólgan muni lækka á næstu mánuðum og fara lægst í 2% í desembermánuði, þrátt fyrir aukna eftirspurn og hækkandi húsnæðisverð. Þetta er mat greiningardeildar Landsbanka Ís- lands. Í sérriti um stöðu og horfur í efnahagsmálum og á skuldabréfa- markaði segir að það sé mat greiningardeildar Landsbankans að vegna þessa séu góðar horfur á því að ekki þurfi að koma til uppsagnar kjarasamninga næsta haust vegna of mikillar verð- bólgu. Á móti komi að gangi spá deild- arinnar eftir um að krónan falli þegar líða tekur á næsta ár megi reikna með að verðbólgan fari tímabundið töluvert yfir verð- bólgumarkmið Seðlabankans, sem er 2,5% verðbólga. Greiningardeild Landsbankans telur að aukið umfang stóriðju- framkvæmda, breytingar á hús- næðiskerfinu og aukinn aðgangur að lánsfé geti leitt af sér hratt vaxandi einkaneyslu ef ekki verði brugðist við með hækkun vaxta. Þessu til viðbótar komi áhrif lækkandi skatta á þessu ári og þeim næstu. Segist greiningar- deildin telja að stýrivextir Seðla- bankans fari hæst í 10% um mitt ár og lækki ekki aftur fyrr en undir lok næsta árs. Fram kemur í sérriti greining- ardeildar Landsbankans að mikil eftirspurn hafi verið eftir íbúða- lánum bankanna. Ætla megi að bankarnir hafi alls lánað út um 90–100 milljarða króna frá því lánin voru fyrst kynnt í lok ágúst- mánaðar á síðasta ári. Hvernig fjármögnun bankanna verður háttað sé enn óljóst í dag, en það muni hafa mikil áhrif á framtíð skuldabréfamarkaðarins. Segir deildin að ef þróunin verður sú að bankar, sparisjóðir og Íbúðalána- sjóður verði allir í útgáfu minni skuldabréfaflokka megi gera ráð fyrir að áhugi erlendra aðila dvíni eitthvað. Auk þess sé líklegt að hér myndist vaxtaþrep þar sem munur á raunvöxtum fasteigna- veðbréfa með og án ábyrgðar rík- isins verður nokkur. Nauðsynlegt að fylgjast með þróuninni Greiningardeild Landsbankans mælir enn með kaupum á íbúða- bréfum þar sem áfram er reiknað með lækkun á ávöxtunarkröfu næsta hálfa árið. Hins vegar seg- ir deildin að nauðsynlegt sé fyrir fjárfesta að fylgjast vel með þró- un á gengi krónunnar samhliða þróun ávöxtunarkröfunnar. Jafn- framt sé mælt með kaupum á fyr- irtækjaskuldabréfum og verð- bréfasjóðum, sem hafi það að markmiði að fjárfesta í hávaxta- bréfum, þ.e. skuldabréfum sem bera hærri vexti en skuldabréf með ríkisábyrgð. Verðbólgan í 2% í desember Greiningardeild Landsbankans spáir því að verðbólgan lækki á árinu en hækki aftur tímabundið á því næsta GREINING Íslandsbanka spáir vaxandi viðskiptahalla á þessu ári. Útflutningur jókst um 7% á fyrstu 11 mánuðum síðasta árs en meðal ann- ars aukin fjárfesting í stóriðju og aukin einkaneysla hafa leitt til þess að innflutningur jókst um 14,4% á sama tíma. „Um helming hallans má rekja til stóriðjufjárfestingar,“ að sögn Ingólfs Bender, forstöðumanns Greiningar Íslandsbanka. Samkvæmt Morgunkorni bankans munu stóriðjuframkvæmdir aukast í ár auk þess sem gengi krónunnar er hátt og innlend eftirspurn eftir vöru og þjónustu mun líklega aukast. Greining Íslandsbanka heldur því við spá sína frá því í september sl. að viðskiptahalli á þessu ári verði um 10,9% af landsframleiðslu en á fyrstu þremur mánuðum síðasta árs var hann 5,6% af landsframleiðslu. Íslandsbanki spáir vaxandi viðskiptahalla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.