Morgunblaðið - 11.03.2005, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.03.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 29 DAGLEGT LÍF viku og þá er það ég sem sé um mat- seldina í svona 90% tilvika,“ segir hann. „Uppáhaldið er lúða, og þá á ég við stórlúðu „steik“ en þorskurinn er farinn að sækja mikið á og svo sýð ég stundum gellur en þá er ég einn í mat. Anna er ekki hrifin af þeim. En ýsa í karrý hefur lengi verið vinsæl á heimilinu bæði hversdags og eins þegar við erum með gesti. Ég tala nú ekki um þegar við erum með útlend- inga í mat, þeir eru vitlausir í þennan rétt.“ Karrý-ýsa 1 kg ýsa, skorin í stykki safi úr einni sítrónu salt og pipar hveiti karrý olía smjör fiskkraftur matvinnslurjómi soja maizenamjöl og vatn Ýsan er skorin í stykki og sítróna kreist yfir. Saltað og látið standa í um það bil hálftíma. Stykkin eru síðan þerruð og velt upp úr smá hveiti sem karrý hefur verið blandað í. Ýsustykkin brúnuð á pönnu og krydduð með pipar. Sett í eldfast fat. Dálítið karrý og smjör brætt sam- an á pönnu, síðan er fiskikrafti, mat- vinnslurjóma og soja bætt út í og lát- ið sjóða saman. Gott að setja smá vatn út í, jafnað með smá maizena og hellt yfir fisk- inn. Hitað í ofni við 200º í um 10 mín- útur. Borið fram með bönunum, rús- ínum, hnetum og mango eða engifer chutney, salati og hrísgrjónum. Fljótlegir en vinsælir réttir Á heimili Hólmfríðar Þorgeirsdóttur er allajafna fiskur á borðum tvisvar í viku og ýsan er vinsælasti fiskurinn. „Þetta eru ekki endilega mínar uppá- haldsuppskriftir en þetta er það sem gengur best ofan í unglinginn á heimilinu.“ Hólmfríður segir að ef ýsa verði ekki fyrir valinu þá sé það valið sem líti vel út í fiskborðinu eins og smálúða, silungur eða lax. Sjálf segir hún að fátt jafnist á við góða fiskisúpu með nýbökuðu brauði. Hún leggur uppúr því að hafa fisk á borð- um, bendir á að það sé góður matur og hollur og nú þegar verðið er að lækka á ýsunni ýtir það undir aukna fiskneyslu sem er af hinu góða. Ýsa með grænmeti og Mexíkó-ostasósu fyrir 4 600 g ýsa 2–3 gulrætur 100–200 g spergilkál sítrónupipar hveiti olía til steikingar Sósa: 4 dl léttmjólk ¼ Mexíkóostur rifinn (eða annar ostur) ½ teningur grænmetis- eða kjötkraftur 3 msk. sósujafnari Fisknum velt upp úr hveiti, krydd- aður með smá sítrónupipar og snöggsteiktur upp úr olíu. Sett í eld- fast fat ásamt spergilkáli og nið- urskornum gulrótum. Sósunni hellt yfir og ef vill má strá 2–3 msk. af rifnum osti yfir. Bakað í ofni við 175°C í 10–15 mín. Borið fram með soðnum hrísgrjónum eða kartöflum og hrásalati. Oft fullsteiki ég fiskinn á pönnunni og ber sósuna með ásamt öðru meðlæti án þess að ofnbaka réttinn. Þá set ég jafnvel gulrætur út í sósuna. Eins er gott að nota aðra osta til tilbreytingar t.d. paprikuost og skera þá papriku út í sósuna. Ýsa í tortillakökum (fyrir 4) 500 g soðin ýsa 1 dós hrein jógúrt 50 g rifinn 17% gauda ostur Öllu blandað saman og kryddað með salti, pipar og Mexíkókryddi Sett í 4–6 tortillakökur sem er rúllað upp og settar í eldfast fat. Ef vill má smyrja smá salsasósu á kök- urnar og strá 1–2 msk. af rifnum osti yfir. Bakað í ofni þar til þetta er orð- ið vel heitt. Borið fram með soðnum hrísgrjónum, salsasósu og hrásalati. Klassísk ýsa í ofni Guðrún Pálína Haraldsdóttir er mik- il fiskikona og henni finnst fiskur oft- ast vera miklu betri en kjöt. „Ég reyni að elda fisk þrisvar sinnum í viku. Ýsu kaupi ég oftast, en ég er líka rosalega hrifin af saltfiski og elda líka mikið af saltfiskréttum. Rækjur og lúða eru frekar ofarlega á vinsældalistanum. Ýsa í ofni er sennilega uppáhalds- réttur fjölskyldunnar og ég hugsa að þessi réttur sé eldaður í hverjum mánuði um þessar mundir. Ég hef eldað fullorðins útgáfu af þessum rétti og þá bæti ég við mikið af hví- lauk, sveppum, papriku og fersku kryddi. Þessi réttur er líka bara betri daginn eftir kaldur, t.d. ofan á ristað brauð. Það er um að gera að láta hugmyndaflugið njóta sín þegar verið er að gera fyllinguna.“ Ýsa í ofni 800–1000 g ýsa 1 dl olía 1 stk. púrrulaukur meðalstór 2–3 dl rasp 1–2 msk. steinselja ostur eftir smekk (gott að hafa sterkan ost) salt og pipar Ýsan er skorin í hæfilega bita og sett í eldfast form, saltað og piprað eftir smekk. Olían er hituð í potti, púrrulauk- urinn skorinn smátt og steiktur í ol- íunni þangað til að hann er orðinn gullinn. Takið pottinn af hellunni. Raspið, osturinn og steinseljan sett út pottinn og öllu blandað vel saman. Það er oft ágætt að salta fyllinguna líka. Þetta er svo sett ofan á ýsuna og sett í ofninn á 180–200°C í 40 mín- útur eða þangað til að raspið fer að gulna. Það er alveg frábært að hafa hrísgrjón, soja-sósu og nýtt brauð með. Ingibjörg Helgadóttir býður upp á spennandi og bragðgóðan ýsurétt með austurlensku ívafi. Hólmfríður Þorgeirsdóttir gefur meðal annars upp- skrift að Mexíkóýsu sem er vinsæl á hennar heimili. Morgunblaðið/Jim Smart Morgunblaðið/ÞÖK t í m a r i t u m m a t o g v í n e i t t 2 0 0 5 hollur matur í lit • vinkonur og veislumáltíðin þeirra • fiskiveisla á páskaborði • náttúran og nestið • ostur sem veislukostur • matarhefðir á vorhátíð matur á páskum – fyrir sælkera á öllum aldri m - tímarit um mat og vín fylgir Morgunblaðinu á laugardaginn hollur matur í lit vinkonur og veislumáltíðin þeirra fiskiveisla á páskaborði náttúran og nestið ostur sem veislukostur matarhefðir á vorhátíð Meðal efnis
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.