Morgunblaðið - 11.03.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.03.2005, Blaðsíða 1
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A KR VANN ÓVÆNTAN SIGUR Í HÓLMINUM /C3 MAGNÚS Gunnarsson, leikmaður Keflavík- ur,var ekki árennilegur að sjá eftir leikinn gegn Grindavík í gær í 8-liða úrslitum úrvals- deildarinnar í kröfuknattleik. Hann fékk mikið högg á nefið undir lok leiksins og fór alblóð- ugur af velli og er líklega nefbrotinn. Ekki var ljóst í gærkvöldi hve alvarleg meiðsli hans eru eða hvort hann verði meira með Keflavík í þess- ari rimmu gegn Grindavík. Magnús lenti í sam- stuði við Terrel Taylor miðherja Grindavíkur sem er rúmlega 120 kg að þyngd. Taylor slapp með skrekkinn fyrr í leiknum er hann „dans- aði“ á bringu og kvið Jóns N. Hafsteinssonar framherja Keflavíkur. Var dæmt ásetningsvíti á Taylor en hann hefði með réttu átt að fá brottrekstur enda var brotið fólskulegt. Magnús nef- brotnaði og framhaldið óvíst JOSE Mourinho, knattspyrnu- stjóri Chelsea, hefur verið sekt- aður um 5.000 pund, jafnvirði um 570.000 króna, af enska knatt- spyrnusambandinu fyrir að segja að Sir Alex Ferguson, starfs- bróðir hans hjá Manchester Unit- ed, reyndi að hafa áhrif á dómara með því að ræða við hann í hálf- leik í viðureign Chelsea og Man- chester United í deildabikarnum fyrr í vetur. Mourinho lét ummælin falla í sjónvarpsviðtali eftir fyrri leik liðanna 12. janúar. Sagði hann að áherslur Neale Barry dómara hefðu verið allt aðrar í fyrri hálf- leik en í þeim síðari eftir að Ferguson hafði spjallað við Barry á leið þeirra af leikvelli að lokn- um fyrri hálfleik. Mourinho gat ekki fært rök fyrir máli sínu þeg- ar á hólminn var komið hjá dóm- stóli enska knattspyrnu- sambandsins. Auk sektarinnar var Mourinho aðvaraður fyrir að tala ógætilega að mati enska knattspyrnusambandsins í fram- haldi af öðrum leikjum. Var óskað eftir að hann gætti betur að fram- komu sinni og orðum á meðan á kappleikjum stendur og eins eftir að þeim lýkur. Mourinho sektaður í Englandi LÖGREGLA í Þýskalandi hefur handtekið knattspyrnudómara, sem talinn er hafa haft áhrif á úr- slit þriggja knattspyrnuleikja sem hann dæmdi. Er dómarinn, sem heitir Dominik Marks, grun- aður um fjársvik, samsæri og pen- ingaþvætti. Marks, sem handtekinn var í Berlín í gærmorgun, er annar dómarinn, sem handtekinn er vegna málsins. Dómarinn Robert Hoyzer var hálfan mánuð í gæslu- varðhaldi áður en honum var sleppt 25. febrúar. Hann viður- kenndi að hafa haft áhrif á úrslit knattspyrnuleikja gegn greiðslu. Verið er að rannsaka gerðir 25 manna, þar af 14 leikmanna, sem taldir eru hafa haft áhrif á úrslit í það minnsta 10 knattspyrnu- leikja, flestra í neðri deildum þýsku knattspyrnunnar. Einnig hafa þrír króatískir bræður verið handteknir, grunaðir um að hafa skipulagt svikin. Þýskur dómari handtekinn Wenger varðist allra frétta ogsegir að ekki sé rétt að gagn- rýna leikmenn liðsins þrátt fyrir að félagið hafi fallið út úr Meistara- deildinni, og Frakkinn er bjartsýnn á að félagið verði enskur bikar- meistari og geti haldið í við Chelsea í ensku úrvalsdeildinni allt þar til á lokakafla mótsins. Arsenal mætir Bolton á útivelli í átta liða úrslitum ensku bikar- keppninnar um helgina. En Arsenal hefur ekki gengið vel í heimsóknum sínum til Bolton á undanförnum misserum. „Auðvitað eru mikil vonbrigði að eiga ekki möguleika á að sigra í Meistaradeildinni en við höfum ekki gefið upp alla von að verja titilinn í ensku úrvalsdeildinni. Við tökumst á við næsta verkefni með sama hug- arfari og áður þrátt fyrir að vera úr leik í Meistaradeildinni, það er ekki ástæða til þess að vera svekkja sig yfir því sem gerst hefur,“ sagði Wenger. „Við höfum notað marga unga leikmenn í vetur þar sem leikmenn hafa átt við meiðsli að stríða. En það sem strákarnir hafa gert í vetur er kraftaverki líkast, þeir hafa stað- ið sig gríðarlega vel. En ég verð að taka ábyrgð á gengi liðsins og ég gagnrýni störf mín alla daga. En við erum ekki nógu góðir til þess að vera Evrópumeistarar, staðreynd- irnar tala sínu máli,“ sagði Wenger. Arsene Wenger hrósar ungviðinu ENSKA knattspyrnuliðið Arsenal féll úr keppni í Meistaradeild Evrópu í gær þrátt fyrir 1:0 sigur gegn Bayern München en enskir fjölmiðlar ganga nú hart að Arsene Wenger, knattspyrnustjóra liðsins, og telja að hann þurfi að byggja upp nýtt lið þar sem félag- inu hafi ekki tekist að ná langt í Meistaradeild Evrópu á und- anförnum misserum. ÍSLANDSMEISTARAR Stjörn- unnar komust í gærkvöld í úrslit á Íslandsmótinu í blaki karla þeg- ar þeir lögðu ÍS, 3:0, í öðrum undanúrslitaleik liðanna sem fram fór í Hagaskóla þar sem ofangreind mynd var tekin á meðan leiknum stóð. Úrslit í ein- stökum hrinum voru; 25:19, 25:15 og 25:21. Það kemur ekki í ljós fyrr en í fyrsta lagi á laugardag hvort Stjarnan leikur við HK eða Þrótt Reykjavík í úrslitum en þá eigast þau lið við öðru sinni. HK vann fyrsta leikinn í gær, 3:0 en hann fór einnig fram í Hagaskóla. Morgunblaðið/Árni Sæberg Stjarnan leikur til úrslita 2005  FÖSTUDAGUR 11. MARS BLAÐ C

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.