Fréttablaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 12
12 8. mars 2003 LAUGARDAGUR Guðjón Arnar Kristjánsson, eðaAddi Kitta Gauj, eins og hann er kallaður af vinum og fjölskyldu, er fæddur 5. júlí á sjálfu lýðveldis- árinu. Hann er Vestfirðingur í húð og hár og þó að hann starfi nú í höf- uðborginni og búi í Mosfellsbæn- um ásamt eiginkonu sinni, Maríönnu Barböru Kristjánsson, kíkir hann reglulega út um þak- gluggann til að gá til veðurs eins og tíðkast úti á landi. Þá horfir hann á norðurhimininn í átt til heimahaganna, Hornstranda. „Nágrannarnir halda eflaust að ég sé að njósna um þá en það er öðru nær,“ segir Guðjón og hlær. Guðjón hóf sjómennsku 14 ára gamall og varð skipstjóri 24 ára. Óhætt er að segja að í 20 ár hafi hann verið ein mesta aflakló lands- ins. Þegar hann hætti sjómennsk- unni fékk hann gamalt spilhand- fang að gjöf frá fyrrum skipverj- um sínum á togaranum Páli Páls- syni og á það var ritað á silfur- skjöld 77.420 tonn. Það var aflinn sem hann dró að landi. Guðjón segir að sjómennskan hafi oft verið strembin en í vor, rúmu ári áður en hann verður sex- tugur, fer hann kannski í erfiðasta túrinn. Hann þarf að fiska mörg þúsund atkvæði fyrir Frjálslynda flokkinn til þess að ná manni eða mönnum á þing. Kvótakerfið hefur róandi áhrif Guðjón er með skrifstofu að Vonarstræti 12, gegnt Ráðhúsi Reykjavíkur. Þetta er gamalt hús og það brakaði vinalega í stiganum á leiðinni upp á þriðju hæð, þar sem skipstjórinn er með skrif- stofu. Dyrnar stóðu opnar og bak við skrifborðið, sem var þakið pappírum þannig að hvergi glitti í sjálft borðið, sat Guðjón við tölvu. Í fyrstu fannst blaðamanni Fréttablaðsins þessi litla skrifstofa ekki hæfa þessum mikla manni, en hann útskýrði að hún væri eins og flokkurinn frekar smá, en samt mjög góð. Hver einasta hirsla var nýtt og gott betur en það. Á mið- stöðvarofninum voru meira að segja geymdar möppur í stöflum. Blaðamaðurinn hugsaði með sér að enginn annar en eigandinn sjálfur rataði um þetta pappírsvölundar- hús. Á veggjum skrifstofunnar voru þrjú málverk af Snæ- fellsjökli, en það sem vakti kannski mestu athyglina var gam- alt fréttaviðtal úr Degi sáluga við Kristján Ragnarsson, fyrrverandi formann Landssambands ís- lenskra útvegsmanna. Fyrirsögnin var „Kvótakerfið hefur róandi áhrif“. Guðjón varð brosleitur þeg- ar hann sá blaðamanninn lesa við- talið og sagðist ekki hafa getað staðist freistinguna að hengja fréttina upp, enda fyrirsögnin óborganleg. Guðjón og Kristján elduðu oft grátt silfur saman þegar Guðjón var formaður Farmanna- og fiskimannasambandsins. Kallaður Addi Kitta Gauj Guðjón fæddist á Ísafirði og er ættaður af Hornströndum og ólst upp á Ísafirði ásamt átta systkin- um. Móðir hans, Jóhanna Jakobs- dóttir, kom frá Reykjarfirði en Kristján Sigmundur Guðjónsson, faðir hans, úr Skjaldabjarnarvík. „Þetta var bændafólk, sjósókn- arar, smiðir og fuglatekjumenn í bland,“ segir Guðjón. „Úr þessu umhverfi er ég ættaður og ég get alveg upplýst það að ég finn aldrei meiri frið en þegar ég kemst norð- ur á Strandir.“ Eins og áður sagði er Guðjón kallaður Addi Kitta Gauj af vinum og fjölskyldu, en hvernig stendur á því? „Vestfirðingum er tamt að tengja menn við ættir þeirra, ým- ist í móður- eða föðurætt,“ segir Guðjón. „Ég á til dæmis ágætis vini fyrir vestan sem eru bræður en annar er kenndur við móður- ættina og hinn við föðurættina. Faðir minn var aldrei kallaður ann- að en Kitti Gauj og síðan heiti ég Guðjón Arnar og var kallaður Addi. Það lá því beint við að ég yrði kenndur við föður minn og ég er því aldrei kallaður annað en Addi Kitta Gauj. Það fór hins vegar í verra þegar menn fóru að kalla elsta son minn, Kristján Andra, Stjána Adda Kitta Gauj,“ segir Guðjón brosandi. Auk Kristjáns Andra á hann fjögur önnur börn og tvö fósturbörn. Guðjón hneigðist fljótt að sjó- mennsku eins og áður sagði. „Ég var harðákveðinn í því þeg- ar ég var 16 ára gamall að verða skipstjóri. Ég hef alltaf haft mjög gaman af því að fylgjast með líf- ríkinu og náttúrunni og er náttúru- unnandi að því leyti til. Ég er þó ekki það mikill náttúruunnandi að ég vilji stoppa verklegar fram- kvæmdir eða allavega vil ég leggja það á vogarskálar. Mér finnst menn hafa farið svolítið offari í þessari umhverfisumræðu síðustu ár og finnst oft skorta á að menn hafi reynt að draga lærdóm af þeim framkvæmdum sem þegar hafa verið gerðar og þeirri um- ræðu sem átti sér stað í aðdrag- anda þeirra. Ég veit vel að það er verið að fórna miklu í náttúrunni vegna Kárahnjúkavirkjunar, en ég hef hins vegar ákveðið að styðja þá framkvæmd.“ Þegar Guðjón var 21 árs stund- aði hann nám við Stýrimannaskól- ann í Reykjavík og frá árinu 1968 til 1992 var hann skipstjóri, lengst af á togaranum Páli Pálssyni ÍS, sem gerður var út frá Hnífsdal. „Þetta var yndislegur tími og við fiskuðum fantavel oft á tíðum.“ Aðspurður segir Guðjón að góð- ur skipstjóri þurfi að hafa mikla athyglisgáfu og taka vel eftir því sem náttúran hafi upp á að bjóða. Ekki síður þurfi hann að taka eftir því hvað aðrir geri og vera fljótur að læra af því. Hann segist ekki efast um að sú reynsla sem hann Guðjón Arnar Kristjánsson gefur kost á sér í formannskjöri Frjálslynda flokksins um helgina. Hann er alinn upp á Hornströndum og byrjaði í sjómennsku 14 ára. Hann á að baki langan feril í verkalýðsbaráttu og veit meira en flestir um kvótakerfið. Honum var ýtt til hliðar í Sjálfstæðisflokknum og gerðist þingmaður Frjálslynda flokksins 1999. Þungur róður fram undan Á SKRIF- STOFUNNI Í VONARSTRÆTI Guðjón hefur greinilega ýmis- legt á sinni könnu. Skrif- borðið er þakið pappírum þannig að hvergi glittir í sjálft borðið. STERKUR Á VESTFJÖRÐUM Þrátt fyrir hrakspár náði Frjálslyndi flokkurinn 18% fylgi á Vestfjörðum í síðustu kosningum. Guðjón Arnar Kristjánsson varð þá í fyrsta skipti á stjórnmálaferli sínum kjördæmakjörinn þingmaður. FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.