Fréttablaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 13
13LAUGARDAGUR 8. mars 2003 Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Prag þann 17. mars. Þú bókar 2 flugsæti, en greiðir aðeins fyrir 1 og getur kynnst þessari fegurstu borg Evrópu á einstökum kjörum. Þú getur valið um úrval góðra hótela í hjarta Prag og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða í Prag allan tímann. 2 fyrir 1 til Prag 17. mars frá kr. 19.550* Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 19.550* Flugsæti til Prag, 17. mars, heim 20. mars. Almennt verð með sköttum. *Flug og skattar per mann m.v. að tveir ferðist saman. Verð kr. 3.900 Verð fyrir mann, m.v. 2 í herbergi á Pyramida, per nótt m. morgunmat. Völ um góð 3 og 4 stjörnu hótel. Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800. Fegursta borg Evrópu Munið Mastercard ferðaávísunina hafi öðlast sem skipstjóri hafi nýst honum á vettvangi stjórn- mála og í verkalýðsbaráttunni. Guðjón lét snemma til sín taka í verkalýðsmálum og árið 1975 varð hann formaður skipstjóra- og stýrimannafélagsins Bylgjunn- ar og gegndi því starfi til ársins 1984. Árið 1983 var hann kjörinn forseti Farmanna- og fiskimanna- sambandsins og því starfi gegndi hann allt til ársins 1999. Ýtt til hliðar í Sjálfstæðisflokknum Á heimili Guðjóns var mikið rætt um stjórnmál. Faðir hans var virkur þátttakandi í bæjarmálum og skipti sér líka af landsmálapóli- tík. „Ég man eftir mér sem ungum krakka sitjandi á eldhúskolli hlust- andi á föður minn og bræður hans rífast um pólitík. Það var svo merkilegt að þeir gátu aldrei verið í sama flokki á sama tíma. Ég hef stundum hugsað um það í seinni tíð hvort þeir hafi ekki bara komið sér upp þessum skoðunum til þess að hafa eitthvað til þess að rökræða um í skammdeginu.“ Guðjón byrjaði því snemma að hlusta á stjórnmálaumræðu en fór ekki að skipta sér af pólitík fyrr en eftir 1980. „Ég var lengi vel sammála föð- ur mínum og gekk í Sjálfstæðis- flokkinn rétt eftir 1970. Ég hef hins vegar aldrei náð því að vera sammála þessum flokki í sjávarút- vegsmálum og hafði alltaf sér- stöðu í því máli. Undir það síðasta var ég orðinn ansi leiður á því hversu lítið var hlustað á sjónar- mið okkar sem vorum á annarri skoðun heldur en flokkslínan í kvótamálinu.“ Þótt Guðjón hafi gengið í Sjálf- stæðisflokkinn fór hann í sérfram- boð ásamt Sigurlaugu Bjarnadótt- ur og Halldóri Hermannssyni árið 1983. Það náði hins vegar ekki fylgi og Guðjón gekk aftur í Sjálf- stæðisflokkinn nokkrum árum síð- ar. Hann tók þátt í prófkjöri fyrir kosningarnar 1991 og varð vara- þingmaður fyrir Matthías Bjarna- son til 1995. Fyrir kosningarnar það ár tók hann aftur þátt í próf- kjöri og hafnaði í 3. sæti en Ólafur Hannibalsson var færður upp fyr- ir hann og því þurfti Guðjón að láta sér varaþingmannssæti duga. Það sama var uppi á teningnum í próf- kjörinu fyrir kosningarnar 1999, Guðjón náði 3. sætinu en ekki var sátt í flokknum um að hann héldi því. Guðjón dregur ekki dul á það að þessi atburðarás hafi orðið til þess djúp gjá hafi myndast á milli hans og flokksins. „Ég tel að mér hafi verið ýtt til hliðar vegna þess að menn voru andvígir skoðunum mínum í kvóta- málinu. Ég var nokkuð óþægur ljár í þúfu. Auðvitað voru forystumenn LÍÚ mjög sáttir við það að mér skyldi hafa verið ýtt til hliðar. Það held ég að hafi aldrei verið neitt launungarmál.“ Guðjón segir að auk þess að hafa verið ýtt til hliðar eftir próf- kjör og ólíkra áherslna í kvótamál- inu hafi honum þótt flokkurinn vera farinn að halla sér of mikið í átt að frjálshyggju á síðustu árum og nefnir sem dæmi gælur flokks- ins við markaðsvæðingu í heil- brigðis- og menntamálum. Allt þetta hafi orðið til þess að hann sagði sig úr flokknum fyrir fjór- um árum. Þurfum ekki fleiri Hornstrandir Þegar litið er á bakgrunn Guð- jóns kemur ekki á óvart að sjávar- útvegsmál skipi stóran sess í lífi hans. „Ég lít svo á að sjávarútvegs- málin í heild sinni séu eitt mesta byggðamál sem er til umræðu í þjóðfélaginu,“ segir Guðjón og er greinilega töluvert niðri fyrir. „Ég er á þeirri skoðun að verðmæti Ís- lands til framtíðar byggi ekki síst á því að halda þessu landi í byggð ef við ætlum að selja það sem ferða- mannaland. Til þess þarf bæði að breyta kvótakerfinu og landbúnað- arkerfinu. Mér finnst við ekki þurfa fleiri Hornstrandir til að rölta um. Þegar við tókum upp þetta framseljanlega kvótakerfi árið 1990 myndaði ég mér þá skoð- un að við værum að fara í algjör- lega vitlausa átt. Í janúar þetta ár spáðum við (Farmanna- og fiski- mannasambandið) því að þetta myndi valda byggðaröskun, tekju- skiptingu og ósætti með þjóðinni og ég hef stundum kallað þetta tímamótaviðvörun. Þetta hefur allt gengið eftir en því miður var allt of mikið af lokuðum eyrum í þessu þjóðfélagi á þessum tíma.“ Guðjón er enn að berjast við að opna eyru almennings fyrir þeirri mismunun sem hann segir að nú- verandi kvótakerfi leiði af sér. Nú er hann hins vegar á nýjum vett- vangi. Fyrir kosningarnar 1999, þegar Guðjón hafði sagt sig úr Sjálfstæðisflokknum og ákveðið að draga sig í hlé frá stjórnmálum, höfðu forsvarsmenn Frjálslynda flokksins, undir forystu Sverris Hermannssonar, samband við hann og báðu hann að leiða flokk- inn á Vestfjörðum. Það gerði hann og þrátt fyrir hrakspár náði flokk- urinn 18% fylgi á Vestfjörðum og varð Guðjón kjördæmakjörinn þingmaður í fyrsta skiptið á sínum stjórnmálaferli. Sverrir komst á þing sem uppbótarþingmaður. Þess ber að geta að þegar Guðjón tók við formennsku í Bylgjunni árið 1975 tók hann við af Halldóri Hermannssyni, bróður Sverris. „Það veit enginn sína ævina fyrr en öll er,“ segir Guðjón, en líklegt er að hann taki við formennsku í Frjálslynda flokknum af Sverri nú um helgina. Guðjón segir að sér hafi gengið vel að vinna með Sverri en að- spurður hvort þeir séu líkir að ein- hverju leyti segir hann: „Tja, eigi veit ég það nú. Sverrir er náttúr- lega af eldri skóla en ég og hann er karl sem hefur oft fengið að ráða miklu. Sem forseti í Farmanna- og fiskismannasambandinu lagði ég aftur á móti mikla áherslu á sam- starf og samstöðu. Ég er því ekk- ert viss um að ég og Sverrir höfum alveg sömu stjórnunaráherslurnar, en það er bara eins og það er. Menn eru misjafnir.“ Ótti við ímyndaða hönd Guðjón er bjartsýnn á gengi Frjálslynda flokksins í kosningun- um í vor þrátt fyrir mikla skoðana- kannanabrælu. Hann segir að flokkurinn muni ekki lifa það ef hann nái ekki manni inn á þing, en hann óttist það ekki. „Eitt er víst og það er að skoð- anakannanir byggja ekki á full- komnum vísindum. Okkur var eng- um manni spáð fyrir þingkosning- arnar 1999 og ekki heldur fyrir borgarstjórnarkosningarnar í fyrra, en annað kom nú í ljós. Við verðum auðvitað vör við það í flokknum að margir sem styðja okkur vilja ekkert vera að segja frá því. Ég veit ekki hvort það á að kalla það ótta við einhverja ímynd- aða hönd hérna í þjóðfélaginu,“ segir Guðjón sposkur á svip. „Ég kvíði því ekki að við náum ekki manni inn á þing. Ég er alveg 100% sannfærður um að við munum brjóta þennan 5% múr sem þarf til að eiga rétt á uppbótarþingmanni. Ég er sjálfur sannfærður um að við náum inn kjördæmakjörnum manni. Við fengum 7 þúsund at- kvæði í síðustu kosningum og ef við fáum 10 þúsund núna þá sýnist mér að við fáum fjóra menn inn á þing.“ Ekki eins málefnis flokkur Því hefur oft verið haldið fram að Frjálslyndi flokkurinn sé eins málefnis flokkur, kvótamálið sé eina baráttumálið. Guðjón þver- tekur fyrir þetta. „Við erum hins vegar afar stolt af því að hafa tekið þetta sjávarút- vegsmál upp á okkar arma og við- haldið umræðu um það inni á Al- þingi. Við eru þeirrar skoðunar að ef við hefðum ekki gert það hefði umræðan um sjávarútvegsmál orðið allt önnur. Það að stjórnar- andstöðuflokkarnir, Samfylkingin og Vinstri grænir, skuli báðir vera búnir að taka það upp að það verði að breyta út af þessu kerfi er með- al annars vegna þess að við höfum verið svo grjóthörð á því að þetta geti ekki gengið svona eins og þetta er.“ Auk áherslna í sjávarútvegs- málum segir Guðjón að flokkurinn leggi mikla áherslu á landbúnaðinn því hann skipti ótrúlega miklu fyr- ir framtíðina og skapa verði skil- yrði fyrir endurnýjun í greininni. Auk þessa séu fjöldamörg önnur mál sem flokkurinn leggi áherslu á eins og velferðar-, mennta-, heil- brigðis- og samgöngumál. „Það var aldrei skrifað í stjörn- urnar að það yrði dans á rósum að búa á Íslandi. Íslendingar verða að gera sér grein fyrir því að í stóru landi verður dýrt að búa. Það er dýrt að búa hér til gott vegakerfi. Ég er reyndar þeirrar skoðunar að við eigum ekki að spara mikið við okkur í vegakerf- inu og búa frekar til jarðgöng en að halda áfram að baksa þetta yfir fjöllin. Jarðgöng eru varanleg lausn, til mörg hundruð ára von- andi, og því mun arðbærari en vegir yfir hálendið.“ Guðjón segir Frjálslynda flokkinn líka vilja gera skurk í skattamálum. Hækka verði per- sónuafsláttinn um 20 þúsund krónur og til þess að koma til móts við það mætti alveg hækka fjármagnstekjuskattinn upp í 15% eða hátekjuskattinn aftur upp í 7%. Hann segir að búið sé að hliðra til skattalega fyrir fyrir- tækjum landsins. Nú sé komið að fólkinu. Í lok viðtalsins spurði blaða- maður Fréttablaðsins hvað Guð- jóni fyndist um stjórnmálaumræð- una síðustu daga, þ.e. deilu Baugs, Davíðs Oddssonar forsætisráð- herra og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, talsmanns Samfylk- ingarinnar. „Mér finnst alveg ömurlegt að horfa upp á þetta og ætla að láta öðrum eftir að vera í einhverju persónulegu skítkasti. Það verður hins vegar að krefjast þess að öll fjármál stjórnmálaflokka verði opnuð, fólkið á rétt á því. Ég er til- búinn að taka þátt í málefnalegum umræðum hvenær sem er.“ trausti@frettabladid.is EKKI EINS MÁLEFNIS FLOKKUR Því hefur oft verið haldið fram að Frjálslyndi flokkurinn sé eins málefnis flokkur, kvótamálið sé eina baráttumálið. Guðjón þvertekur fyrir þetta. Auðvitað voru forystumenn LÍÚ mjög sáttir við það að mér skyldi hafa verið ýtt til hliðar. Það held ég að hafi aldrei verið neitt launungarmál. ,,

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.