Fréttablaðið - 31.12.2003, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 31.12.2003, Blaðsíða 31
31MIÐVIKUDAGUR 31. desember 2003 HANDBOLTI Ásgeir Örn Hallgrímsson var kjörinn íþróttamaður Hafnar- fjarðar 2003. Kjörinu var lýst á íþróttahátíð sem haldin var í Íþróttahúsinu við Strandgötu á mánudag. Ásgeir Örn hefur verið einn lyk- ilmanna handknattleiksliðs Hauka sem varð Íslands- og deildarmeist- ari í ár. Hann lék sína fyrstu A- landsleiki í vor og var fyrirliði ung- lingalandsliðsins sem varð Evrópu- meistari síðastliðinn vetur. Ásgeir Örn var valinn í úrvalslið Evrópu- mótsins og var jafnframt marka- hæstur Íslendinga á mótinu. Allir hafnfirskir íþróttamenn sem unnu meistaratitla á árinu 2003 fengu viðurkenningar á hátíðinni en 420 hafnfirskir íþróttamenn urðu Ís- landsmeistarar á árinu í átján grein- um, sex hópar urðu bikarmeistarar og 36 einstaklingar urðu heims-, Evrópu- eða Norðurlandameistarar. Fjórtán íþróttamenn fengu viður- kenningu bæjaryfirvalda fyrir góð- an árangur og frammistöðu í íþrótt- um á árinu. Auk Ásgeirs fengu eftir- taldir íþróttamenn viðurkenningu: Björn Þorleifsson taíkvondómaður úr Björk, Þórey Edda Elísdóttir og Björgvin Víkingsson, frjálsíþrótta- menn úr FH, Heimir Guðjónsson, knattspyrnumaður úr FH, Ragnar Ingi Sigurðsson, skylmingamaður úr FH, Björgvin Sigurbergsson, kylfingur úr Keili, Helena Sverris- dóttir, körfuknattleikskona úr Hauk- um, Hafsteinn Ægir Geirsson, sigl- ingamaður úr Þyt, Anja Ríkey Jak- obsdóttir og Heiðar Ingi Marinós- son, sundmenn úr SH, Örn Valdi- marsson, skotmaður úr Skotíþrótta- félagi Hafnarfjarðar, Eyjólfur Þor- steinsson, hestamaður úr Sörla, og Andri Jónsson, tennismaður úr Bad- mintonfélagi Hafnarfjarðar. FH og Haukar útnefna sína íþróttamenn ársins í dag. Haukar klukkan 12.30 og FH-ingar kl. 13. ■  11.00 Saga HM 2002 á Sýn.  13.00 Mótorsport 2003 á Sýn.  13.25 Íþróttamaður ársins 2003 á RÚV.  14.00 US PGA Tour 2003 á Sýn.  15.00 Opna breska meistaramót- ið 2003 á RÚV.  15.55 Formúla 1 2003 á RÚV.  16.00 Íþróttaárið 2003 á Sýn.  16.55 Vestfjarðavíkingurinn 2003 á RÚV.  17.15 Mótorsport 2003 á Stöð 2. Námskeið Í boði eru 3 námskeið 8 vikur: 20. Janúar – 13. Febrúar og 2. Mars - 26. Mars. 4 vikur: 20. Janúar – 13. Febrúar 4.vikur: 2. Mars – 26. Mars. 4.3.2.m.fl. karla – 3.2.mfl.kvenna Æfingar 3x í viku Þriðjudagar, Fimmtudagar og Föstudagar kl: 06.30 - 07.30. 8 vikur kosta 39.900 34.500 ef greitt er með MasterCard 5.750 kr per mánuð miðað við 6 mán. greiðsludreifingu. 4 vikur kosta 19.900 4.975 kr per mánuð miðað við 4 mán. greiðsludreifingu. 5.flokkur karla og 4. flokkur kvenna: Æfingar 2x í viku Mánudagar og Miðvikudagar kl: 06.30 - 07.30 8 vikur kosta 26.600 23.000 ef greitt er með MasterCard 5.750 kr per mánuð miðað við 4 mán. greiðsludreifingu. 4 vikur kosta 13.300 4.433 kr per mánuð miðað við 3 mán. greiðsludreifingu.2 . n á m sk ei ð 1 . n á m sk ei ð Rútuferðir: frá Frostaskjóli, Hafnarfirði og Árbæ. Gjafakort Hægt er að kaupa gjafakort í skólann. Bara fara inn á www.knattspyrnuskolinn.net og hægt að ákveða hvaða upphæð sem er. Frí heimsendingarþjónusta. Innifalið í gjaldi: Morgunmatur. Æfingatreyja, stuttbuxur og sokkar. Fyrirlestrar um forvarnir, íþróttasálfræði, næringarfræði o.fl. Allir nemendur fá nú greiningu á eigin getu í lok hvers námskeiðs: Stjórnun á bolta, sendingar, knattrak, hlaup með bolta, skot og skallatækni, varnar-sóknarleikur,hugarfar leikmanns o.fl. skráning er á: skraning@knattspyrnuskolinn.net SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík. Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breyt- ingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagsáætlun í Reykjavík: Naustareitur Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Nausta- reits, lóðir að Vesturgötu 6-10 og Tryggvagötu 18. Tillagan gerir m.a., ráð fyrir að sameina ofangreindar lóðir og að núverandi byggingar við Tryggvagötu 18 verði fjarlægðar, fyrir- huguðum gönguleiðum/torgi milli húsa við Vesturgötu og Tryggvagötu er breytt, lagt til að viðbygging aftan við veitingastað við Vestur- götu 8 verði fjarlægð og heimilt verði að skyggni og svalir nái allt að 1 metra út fyrir byggingarreit Tryggvagötumegin. Samkvæmt þessari breytingu er nýbygginga- rmagn 3270m2. Við sameiningu lóðanna er hægt að leyfa meira byggingarmagn norðan megin á lóðinni en núverandi deiliskipulag gerir ráð fyrir og er heildaraukning á bygg- ingarmagni alls 693m2. Nýtingarhlutfall sam- einaðrar lóðar er 2,60. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 08:20 – 16.15, frá 31. desember 2003 - til 11. febrúar 2004. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hags- muna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við hana skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 11. febrúar 2004. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna. Reykjavík, 31. desember 2003. Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur Íþróttamaður Hafnarfjarðar: Ásgeir Örn útnefndur ÍÞRÓTTAMAÐUR HAFNARFJARÐAR 2003 Ásgeir Örn Hallgrímsson, Íþróttamaður Hafnarfjarðar 2003, og Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar. hvað?hvar?hvenær? 28 29 30 31 1 2 3 DESEMBER Miðvikudagur Landsbankadeildin: Viktor í Víking FÓTBOLTI Viktor Bjarki Arnarsson skrifaði í gær undir 2 ára samn- ing við Landsbankadeildarfélag Víkings. Viktor lék með yngri flokkum Víkings en gerðist 17 ára gamall atvinnumaður hjá hollenska félaginu Utrecht. Viktor lék með unglinga- og varaliði Utrect leiktíðina 2000 til 2001 en skipti yfir í 1. deildar félagið TOP Oss leiktíðina 2001 til 2002. Hann skoraði eitt mark í fimmtán leikjum fyrra árið hjá TOP Oss en hefur leikið sautján af nítján leikjum félagsins í vet- ur og skorað þrjú mörk. Viktor hefur leikið 23 leiki með yngri landsliðum Íslands. Þetta er fjórði nýi leik- maðurinn sem semur við Víking á síðustu vikum og nýliðarnir ætla sér greinilega að standa sig í efstu deild næsta sumar. ■ FÓTBOLTI „Ég er mjög sáttur við að vera kominn heim á ný og stefni að því að vinna titla með KR,“ sagði Bjarni Þorsteinsson sem skrifaði í gær undir samning við Íslandsmeistarana. Bjarni lék með KR-ingum á árunum 1996 til 2000 en hefur leikið með norska úrvalsdeildarfélaginu Molde undanfarin þrjú ár. Nýi samn- ingurinn gildir út leiktíðina 2006. Bjarni sagði að aðdragandinn hafi í raun verið verið stuttur. KR-ingar höfðu samband við hann þegar ljóst var að hann væri laus mála hjá Molde en ekki komst skriður á málið fyrr en í vikunni þegar ljóst var að hann færi ekki til danska félags- ins AGF. Bjarni er þriðji leikmaðurinn sem KR-ingar fá til sín frá lok- um leiktíðar 2003. Ágúst Gylfa- son gekk til liðs við KR frá Fram og Sigmundur Kristjánsson frá hollenska félaginu Utrecht. ■ BJARNI ÞORSTEINSSON Leikur með KR að nýju. Landsbankadeildin: Bjarni til KR á ný

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.