Fréttablaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 31
31 ■ Út í heim SUNNUDAGUR 1. febrúar 2004 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S F LU 2 32 87 0 1/ 20 04 flugfelag.is Árshátíðarslaufur Starfsmannafélög, klúbbar, hópar… Látið okkur hnýta árshátíðarslaufuna. Hafðu samband við Bergþóru eða Kristjönu í síma 570 30 75 hopadeild@flugfelag.is Litríkar og eftirminnilegar árshátíðarslaufur til: Akureyrar Egilsstaða Ísafjarðar Reykjavíkur Færeyja Frábærir gististaðir. Gerum tilboð í flug, gistingu og hátíðarkvöldverð. Tryggið ykkur sæti í tíma! Ferðamálaráð Íslands, Ung-mennafélag Íslands og Land- mælingar Íslands hafa undirritað samstarfssamning um gerð og rekstur gagnagrunns um göngu- leiðir á Íslandi. Gagnagrunnurinn í heild sinni verður aðgengilegur almenningi á heimasíðunni www.ganga.is frá og með 1. maí næstkomandi. Þar verða upplýsingar um að minnsta kosti 500 gönguleiðir ásamt upp- lýsingum sem tengjast slíkum ferðalögum hér á landi. Fleiri leið- ir munu svo bætast við í framtíð- inni. Gönguleiðir eru skilgreindar í þessu verkefni sem leiðir sem taka a.m.k. tvær klukkustundir að ganga. Að sögn Einars K. Guðfinns- sonar, formanns Ferðamálaráðs, eru miklar vonir bundnar við samstarfsverkefnið. „Það er mjög athyglisvert að í nýrri könnun kemur fram þegar ferðaáhugi landsmanna er skoðaður að fólk sem ferðast um landsbyggðina sækir í fátt meira heldur en ein- mitt gönguferðir og góðar göngu- leiðir,“ segir Einar. „Tveir þriðju hlutar þeirra Íslendinga sem ferð- ast um landsbyggðina segja í svari við spurningum okkar að gönguferðirnar sé það sem þeir stundi mest. Forsenda fyrir öfl- ugri ferðaþjónustu, ekki síst á meðal Íslendinga, er uppbygging gönguleiða, merking þeirra og að geta haft aðgang að slíku á einum stað,“ segir hann. ■ FLUG TIL JAMAICA Heimsferðir bjóða nú sérflug til Jamaica í fyrsta sinn frá Íslandi. Glæsileg hótel í boði. Verð kr. 69.950, flug og skattar miðað við 5000 kr. mastercard-ávísun. Verð kr. 84.950, flug, gisting, skattar, far- arstjórn og gisting á Sandcastle hóteli *** sem er fallegt hótel við ströndina miðað við 5000 kr. mastercard-ávísun. FLUG TIL BILLUND Plúsferðir bjóða beint flug til Billund alla mið- vikudaga í sumar. Flugsæti til Billund kostar 19.995 kr. báðar leið- ir fyrir fullorðinn og 15.220 kr. fyr- ir börn 2ja–11 ára. Verð frá 10.540 kr. önnur leiðin Keflavík–Billund fyrir fullorðinn og 7.765 kr. fyrir börn 2ja–11 ára. Innifalið er flug og flugvallarskattar. SAMSTARF Einar K. Guðfinnsson, formaður Ferðamálaráðs (til hægri), og Magnús Guðmundsson, for- stjóri Landmælinga Íslands, handsala samninginn. Sæmundur Runólfsson, framkvæmda- stjóri UMFÍ (lengst til hægri), Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ, og Magnús Oddsson ferðamálastjóri fylgjast með. Gagnagrunnur um gönguleiðir á Íslandi: 500 gönguleiðir á ganga.is SUÐUR-AFRÍKA OG GLÆPIR Glæpatíðni í Suður-Afríku er mikil og gæti eflaust snúið mörgum ferðalangin- um frá því að fara í heimsókn. Með því að stunda ábyrga ferðamennsku er hægt að sneiða hjá vandræðum. Í ábyrgri ferðamennsku felst meðal annars að flækjast ekki um gangandi á kvöldin, veifa ekki peningum, skartgrip- um og myndavélum að óþörfu. Nauð- synlegt er að lesa sér til um hvar er öruggt að vera og hvar ekki. Sömuleiðis er gott að spyrja fólk í ferðaþjónustunni ráða og fara eftir þeim leiðbeiningum sem manni eru gefnar. Á GÓÐRAVONARHÖFÐA Suðvesturtá Afríku er langt frá borgum Evrópu eins og sjá má. BO-KAAP Litríkt múslimahverfi Höfðaborgar. LONGMARKET STREET Í HÖFÐABORG Þar eru skemmtileg kaffihús og barir. HEIMILI MANDELA Hefur verið breytt í safn í Soweto.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.