Tíminn - 30.10.1971, Blaðsíða 7
LAtfGARDAGtTR 30. októbcr mi
TIMINN
7
Atkvæðastríð næsta áríð
innan brezka þingsins?
NTB London, íösludag.
Þótt Heath forsætisráðhcrra
Brctlands og stjórn hans hafi unn
ið fyrstu lotu um a'ðildina að EBE
eru ekki öll kurl komin til graf-
ar. Eftir er að greiða atkvæði um
ýmsa lagabálka varðandi aðildina
og er talið að mikið atkvæðastríð
muni ríkja á brezka þinginu langt
fram á næsta ár. Vcrkamanna-
flokkurinn undir stjórn Wilsons,
hefnr sagt, að stjórnarandstaðan
muni leggjast af öllum kröftum
gegn tillögum stjórnarinnar.
Stjórnarleiðtogar í Vestur Ev-
rópu og Bandaríkjunum hafa lýst
því yfir, að samþykktin í brezka
þinginu í gærkvöldi hafi markað
tímamót í sögu Evrópu. Stjóm-
málamenn í EBE-löndunum 6 hafa
látið í Ijósi ánægju sína yfir, að
tillaga brezku stjórnarinnar skuli
hafa fengið svo mikinn meiri-
hluta, sem raun varð á.
Willy Brandt, kanslari Vestur-
Þýzkalands sagði í dag í sjón-
varpsviðtali, að þetta væri honum
mikið gleðiefni. Þá sagði hann,
að þetta ætti einnig að verða
Frökkum til ánægju, þar sem þau
nágrannalönd V-Þýzkalands, sem
telja, að V-Þýzkaland sé að verða
efnahagslegt stórv'eldi, ætlu að
vera öruggari í stækkuðu banda-
lagi.
Paul Henri Spaak í Belgíu og
Joseph Luns í Hollandi, sem undir
rituðu Rómar-sáttmálann 1958,
þegar þeir voru utanríkisráðherr
ar, sögðu báðir í dag, að úrslitin
væru stórviðburður. Luns sagði
það ánægjulegt ,að Bretland tæki
nú loks réttmætt sæti sitt í hinu
evrópska samfélagi og EBE.
William Rogers, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna lét einnig
í ljós ánægju sína yfir úrslitun-
um atkvæðagreiðslunnar og benti
á, að Bandaríkin hefðu lagt fram
sinn skerf til einingar Evrópu
og þessi úrslit væru stórt skref
í þá átt.
Kolombo, forsætisráðh. ítalíu,
kvaðst glaður yfir því, að Evrópa
fengi nú að njóta þess, sem Bret-
land hefði upp á að bjóða sam-
einaðri Evrópu.
í Moskvuútvarpinu k\að við
nokkuð annan tón í morgun. Þar
sagði, að Heath hefði gengið í
berhögg við vilja brezku þjóðar-
innar, þar sem það væri vitað,
að um 70% hennar hefðu verið
mótfallin aðild að EBE með skil-
yrðum stjórnarinnar.
Fyrirfram var talið, að meiri-
hiuti brezku stjómarinnar í at-
kvæðagreiðslunni yrði um 70 at-
kvæði, en þau urðu 112, eins og
kunnugt er. Samkvæmt óopinber-
um heimildum greiddu 282 þing-
menn íhaldsflokksins atkvæði
með, en 44 annað hvort á móti,
eða sátu hjá. 199 þingmenn verka
mannaflokksins greiddu atkvæði
á móti, en 90 annað hvort með
eða alls ekki.
Tveir þingmenn, sem annars
eru erkifjendur, greiddu í þetta
sinn atkvæði á sama veg, en það
eru þau Bemadetta Devlin og
Ian Paisley frá N-írlándi.
V-Berlín mótmælir skothríö
NTB—Vestur-Berlín, föstudag
Borgarráð V.-Berlínar hefur sent
frá sér liarðorð mótmæli vegna
þess, að austur-þýzkir landamæra-
verðir skutu í morgun á mann, sem
reyndi að flýja yfir til V-Berlín-
ar.
Lagði borgarráðið til, að Aust-
ur-Þýzkaland hætti slíkum aðgerð
um í hjarta Evrópu og snúi sér
heldur að því að vinna að því að
minnka spennuna.
Einnig mótmæltu Fitikkland,
Bretland og Bandaríkin þessu at-
hæfi formlega í dag.
Tvisvar sinnum heyrðist skot-
hríð við múrinn í morgun og sá-
ust A-Þýzkir landamæraverðir
bera líflausan mann að jeppa. Ekki
er vitað, hvort maðurinn var lát-
inn.
Finnska stjórnin baðst lausnar
NTB-Helsrngfors, föstudag.
Ahti Karjalainen, forsætisráð-
herra Finnlands, baðst í dag lausn
ar fyrir sig og ráðuneyti sitt. —
Ástæðan er sú, að ekki hefur
tekizt að leysa ágreininginn milli
tveggja stærstu stjórnarflokkanna
um verð á landbúnaðarvömm.
Luxem-
bourg
viður-
kennir
Kekkonen forseti hefur falið
Teuvo Auro, borgarstjóra í Hels-
ingfors að mynda embættismanna
stjórn, sem skal sitja þar til kosn
ingar fara fram, 2. og 3. janúar
næstkomandi.
Stjórn Karjalainens kom til
valda í júlí 1970, etfir 40 daga
stjórnarkreppu og tveggja mán-
Kína
Kínverjamir að koma
NTB—New York, föstudag.
Kinverska Alþýðulýðveldið til-
kynnti U Thant, aðalritara Sam-
einuðu þjóðanna í dag, að það
myndi senda sendinefnd til New
York í náinni framtíð til að taka
sæti á allsherjarþinginu. Síðar
verður tilkynnt, hverjir skipa
sendincfndina.
NTB-Lnxemborg, föstudag.
Luxembourg ákvað í dag að
viðurkenna Alþýðulýðveldiö
Kína, en hefur enn ekki ákveð
ið að taka upp stiórnmálasam-
band við það, sagði utanrikis-
ráðherra Luxeinborgar í dag.
Landið greiddi ekki atkvæði
með albönsku tillögunni í alls-
herjarþinginu og sagði það skoð
un sína, að land, sem ekki hefur
rofið sáttmála SÞ, ætti að sitja
þar áfram, en ekki að verða
vikið brott með einföldum
meirihluta, að því er segir í
yfirlýsingu stjórnar Luxem-
borgar.
Kosygin og Castro
segjast sammáia
NTB-Havana, föstudag.
Sovézki forsætisráðherrann,
Aleksej Kosygin, sagði í dag í
Havana, að hann væri ánægður
með samræður þeirra Castros,
sem farið hafa frarn á Havana
síðan á miðvikudag.
Þeir Kosygin og Castro héldu
fund með sér í dag í Havana, en
fóru síðan út fyrir borgina til
að ræða þar við verkamenn, sem
vinna að byggingu mikils íbúða-
hverfis.
Þegar þangað var komið og
Enn manndrap í Beífasí
— Lögreglustöð sprengd
NTB—Belfast, föstudag.
Lögreglumaður bcið bana og
tveir aðrir særðust í dag í
Belfast, þegar lögreglustöð var
sprengd í loft upp. Tvær verz-
lanir hrundu einnig til grunna
við sprenginguna.
Sprengjan innihélt um 45
kiló af dýnamiti og höfðu vopn
aðir menn komið henni fyiúr í
annarri verzluninni, eftir að
Þeir höfðu skipað starfsfólkinu
að ganga út.
Fyrr í dag var hermaðuf Sköt
inn í hnéð, er hann var á verði
í kaþólska hverfinu í Belíast.
Félagar hans skutu á móti og
hittu eina leyniskyttu. Her-
sveitir fundu 2500 patrónur í
tómu húsi í grenndinni.
Forsætisráðherra Irlands,
Jack Lynch, mótmælti við
Bretland því atviki, sem átti
sér stað við landamærabrú í
gær. Brezki herinn segir, að
menn sínir hafi aldrei stigið yf
ir landamærin.
Viðskíptasamningur
Italíu og Kína
NTB—Róm, föstudag.
Ítalía og Kína undirrituðu í dag
þriggja ára viðskiptasamning, en
nú er Iiðið ár, síðan löndin tóku
upp stjórnmálasamband sin á
rnlli.
Viðskiptasamningurinn er svip-
aður samningum Kína við Noreg
og Svíþjóð. ítalía mun halda vöru-
sýningu í Kína á næsta ári.
ítalía kaupir aðallega af Kína
vefnaðarvöru, matvöru, mælitæki
ýmis konar og málma, en Kína
kaupir af Ítalíu vélar, ökutæki,
áburð og fleira.
(JSA minnki framlagið til
aða embæltismannastjórn, sem
borgarstjórinn stjórnaði einnig.
Stjórn Karjalainens var upphaf-
lega fimm flokka stjórn, en komm
únistar snerust gegn henni í marz
s.l. vegna ágreinings um stefn-
una í verðlags- og tekjumálum.
Allan tímann hefur stjórnin haft
mjög nauman meirihluta.
NTB—Washington, föstudag.
Bandaríska þingið samþykkti í
dag álit, Þar sem því er beint til
-Nixons forseta, að hann minnki
framlag Bandaríkjanna til Sam-
einuðu þjóðanna úr 32% í 25%.
Það er hópur íhaldssamra þing-
manna, sem stendur að baki þess-
arar samþykktar, en þeir eru
argir yfir því, að allsherjarþingið
felldi bandarísku tillöguna um
,,tvö Kínaí* innan SÞ.
Bandaríkin greiða um þriðja
hluta af útgjöldum SÞ og enn
meira til sérstofnanna samtak-
anna.
Tilkynningin kom í skeyti frá
utanrikisráðherra Kína, og var
svar við skeyti, sem U Thant sendi
austur á þriðjudagsnóttina, þess
efnis, að kínverska stjórnin sendi
sendinefnd sína sem fyrst, þannig
að öryggisráðið geti haldið áfram
störfum án hlés.
þeir ætluðu að fara að tala, sagði
hvorugur neitt dálitla stund, eins
og þeir væru ekki alveg klárir
á því, hvor ætti að byrja. Þá
brosti Kosygin breitt og sag'ði:
— Þarna sjáið þið, hvað við fé-
lagi Castro erum sammála. Mér
er ánægja, að segja ykkur, að við
höfum einnig verit, jafn sam-
mála í öðrum málum, sem við
höfum rætt.
Talið er, að þeir Castro og
Kosygin hafi einkum rætt efna-
hagsmál og fjárhagsaðstoð Sovét-
ríkjanna við Kúbu.