Fréttablaðið - 21.05.2004, Page 53

Fréttablaðið - 21.05.2004, Page 53
41FÖSTUDAGUR 21. maí 2004 EM-DRAUMURINN Á ENDA Framherjinn Filippo Inzaghi hlaut ekki náð fyrir augum ítalska landsliðsþjálfarans og fer ekki með á EM. Ítalska landsliðið á EM: Inzaghi er ekki í hópnum KNATTSPYRNA Giovanni Trapattoni, landsliðseinvaldur Ítala, valdi í gær leikmannahóp sinn fyrir EM í sumar. Það vantar ekki stjörnurn- ar í liðið en sá leikmaður sem menn helst sakna úr hópnum er framherji AC Milan, Filippo Inzaghi. Inzaghi hefur verið meiddur á ökkla síðustu vikur og ekki náð fullum bata. Í hans stað valdi Trapattoni framherja Juventus, Marco Di Vaio. Það kom einnig á óvart að Trapattoni skyldi ekki velja Alberto Gilardino, framherja Parma, en hann gerði sér lítið fyrir og skoraði 23 mörk í ítölsku deildinni í vetur og var næst- markahæstur. Gianluigi Buffon verður aðalmarkvörður landsliðs- ins og svo var Marco Materazzi valinn í vörnina í stað Nicola Legrottaglie frá Juve. Ítalir byrja undirbúning sinn í næstu viku í Flórens en fyrsti æf- ingaleikur þeirra verður gegn Túnis þann 30. maí næstkomandi. ÍTALSKI LANDSLIÐSHÓPURINN MARKVERÐIR Gianluigi Buffon Juventus Francesco Toldo Inter Angelo Peruzzi Lazio AÐRIR LEIKMENN Fabio Cannavaro Inter Guiseppe Favalli Lazio Matteo Ferrari Parma Marco Materazzi Inter Alessandro Nesta AC Milan Massimo Oddo Lazio Christian Panucci Roma Gianluca Zambrotta Juventus Mauro Camoranesi Juventus Stefano Fiore Lazio Gennaro Gattuso AC Milan Simone Perrotta Chievo Andrea Pirlo AC Milan Cristiano Zanetti Inter Antonio Cassano Roma Bernardo Corradi Lazio Alessandro Del Piero Juventus Marco Di Vaio Juventus ÍFrancesco Totti Roma Christian Vieri Inter Einn leikur r fer fram í Landsbankadeild karla í kvöld: Bæði liðin taka ekki neina áhættu FÓTBOLTI „Víkingar eru að koma upp og það er alltaf erfitt,“ sagði Hinrik Þórhallsson. „Bæði lið eru í sárum eftir fyrsta leik en Vík- ingar hafa heimavöllinn og reyna að sanna hvað þeir geta,“ bætti Hinrik við. Hinrik er Bliki að upp- lagi en hefur einnig leikið með KA og Víkingi í efstu deild. Hinrik sá leik KA og Keflavík- ur á sunnudag. Hann segir að KA hafi ekki spilað mjög vel þar, sér- staklega ekki í seinni hálfleik. Nokkrar breytingar hafa orðið á liði KA frá því í fyrra en telur Hinrik að búið sé að slípa liðið saman? „Ég held að það taki eitt- hvað lengri tíma svona undir venjulegum kringumstæðum. Það komu þrír eða fjórir nýir strákar og þetta tekur alltaf sinn tíma. En þetta eru hörkustrákar og ég held að það búi miklu meira í þeim.“ „Það væri mjög slæmt fyrir bæði lið að tapa aftur en ég myndi segja að það væri ennþá verra fyrir Víking,“ sagði Hinrik um leikinn í kvöld. „Þeir eru að koma upp og eru að spila sinn fyrsta heimaleik á móti KA. Ég hugsa að bæði lið fari varfærnislega í vörn- inni og taki ekki neina sénsa og þetta verði fyrst og fremst bar- átta. Það eru fjórir eða fimm leik- ir með stuttu millibili og það skiptir miklu máli að fá einhver stig út úr þeim. Ef liðin fara í gegnum fjóra eða fimm leiki án þess að fá stig getur þetta orðið erfitt tímabil framundan. Ég hugsa að bæði lið hugsi fyrst og fremst um að ná alla vega stigi úr þessum leik,“ sagði Hinrik Þór- hallsson, og hann spáir jafntefli í leik Víkings og KA í kvöld. Víkingar vígja nýja stúku á leiknum í kvöld en nú hefur verið sett þak og sæti á stúkuna í Víkinni. Þetta er enn fremur fyrsti leikur Víkingsliðsins í efstu deild á aðalvellinum eins og hann er í dag en síðasta þegar liðið lék í efstu deild 1999 var völlurinn á öðrum stað í Víkinni. VÍKINGUR LEIKUR VIÐ KA Víkingar töpuðu illa fyrir Fram í fyrstu umferð. Þeir leika við KA í kvöld.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.