Fréttablaðið - 03.06.2004, Side 41

Fréttablaðið - 03.06.2004, Side 41
29FIMMTUDAGUR 3. júní 2004 ■ FÓLK Í FRÉTTUM ■ TÓNLIST MASKARI SEM LENGIR AUGNHÁR OG STYRKIR MEÐ CERAMIDE R Sterkari augnhár, 60% lengri. NÝR Útsölustaðir Apótekarinn Akureyri Hagkaup Kringlunni Hagkaup Skeifunni Hagkaup Smáralind Lyf & heilsa Austurstræti Lyf & heilsa Austurveri Lyf & heilsa Keflavík Lyf & heilsa Kringlunni Lyfja Laugavegi Lyfja Lágmúla Lyfja Smáratorgi Sérlega styrkjandi maskari með Ceramide R djúpnæringu. Augnhárin sýnast lengri þökk sé náttúrulegum þráðum í bursta. Þekur vel, djúpur litur. Klístrar ekki. bursti 1 bursti 2 Nýr bursti - einkaleyfi L’Oréal KRINGLUNNIFlo tt Bi kin í m iki ð úr va l Vinna nýja plötu Breska poppsveitin Blur erbyrjuð að vinna að fylgifisk plötunnar Think Tank sem kom út í fyrra. Þetta verður önnur platan sem sveitin vinnur án gítarleikar- ans Graham Coxon sem segist ekki vilja snúa til baka, þrátt fyr- ir að sættir séu á milli hans og liðsmanna sveitarinnar. Blur var nýlega í hljóðverinu og ætlar að halda upptökum áfram eftir stutt sumarfrí. Damon ætlar að eyða hluta af fríi sínu hér á Íslandi. Trommuleikari sveitarinnar, Dave Rowntree, tjáði sig í viðtali við XFM. „Við ætlum aftur inn í hljóðverið í september. Það eru engin tímamörk, við vinnum bara þegar okkur langar, eins og við gerðum með síðustu plötu. Grunn- urinn af lögunum er frá Demo- crazy plötunni hans Damons, þannig að þeir sem hafa heyrt hana ættu að átta sig á hvernig lögin eru. Sum laganna þar ættu að enda á plötunni okkar.“ Ekkert hefur verið ákveðið með útgáfudag en Damon vinnur einnig hörðum höndum að nýrri Gorillaz-plötu og teiknimynd sem er í smíðum. ■ N.E.R.D. Popphljómsveit Pharell Williams er lögð af stað í heljarinnar tónleikaferð um Evrópu, og kemur meðal annars fram á Hróarskelduhátíðinni eftir mánuð. Hér sjást þeir á sviði í Sviss á þriðjudag. David Beckham sagði í viðtalivið tímaritið Vanity Fair að hann og konan hans Victoria muni vera saman að eilífu, þrátt fyrir meint framhjáhald hans. Hann sagði fjölskyldu sína vera góða og sterka sem myndi duga til að halda fjölskyldunni saman í gegn um þessa erfiðleika. „Fólk getur sagt hvað sem það vill, en ég og Victor- ia verðum alltaf saman,“ sagði hann í viðtalinu. Þegar hann var sérstaklega spurður út í þetta meinta framhjáhald neitaði hann að svara. Hann sagði að fólk talaði almennt um það sem það vildi en hann hafi lært það í gegnum tíðina að það væri betra að svara ekki slíkum ásökunum. Í sama blaði sagði Victoria að hún og David hefðu á prjónunum plön um að búa í Bandaríkjunum, þar sem þau gætu starfað við fótbolta og tónlist. BLUR Fylgifiskur Think Tank er í mótun.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.