Tíminn - 21.12.1972, Blaðsíða 21
Kimmtudagui' 21. desember 11)72
TÍMINN
21
L/JWiY
Glitrandi gamansemi og heit
mannlund í garði þjóðlegrar listar
Hjúkrunarkona
óskast til starfa við Vifilsstaðahæliðá næturvöktum frá kl.
23.00 til 8.00. Illuti úr starfi kemur einnig til greina.
Upplýsingar gefur forstöðukonan i sima 42800.
Reykjavik, 18. desember 1972.
Skrifstofa rikisspitalanna.
Eírikur Sigurösson:
MEÐ ODDI OG EGG
Minningar Ríkarðs Jóns-
sonar
Skuggsjá gaf út.
t>að hefur lengi verið á margra
vitorði, að Rikarður Jónsson,
myndhöggvari, væri ekki aðeins
snillingur með hnif og meitil,
heldur lika orðsnjall, sögufróður
og skemmtinn maður i bezta lagi,
lagvirkur visnasmiður og fjör-
kálfur i andanum. Hann hefur
mörgum skemmt með kimilegri
sögu, tekið þátt i gáska góðra
stráka og átt sálufélag við
kjarnakarla, bæði austur á
fjörðum og i Reykjavik, lil að
mynda séra Árna og Jón i Sjálg.
Það er vonum seinna, að út
koma i bók minningar Rikarðs,
eðafrásagnir af honum og samtöl
við hann — raunar ailt of seint,
þvi að Rikarður gerist nú ald-
raður og kappinn i honum farinn
að stirðna. Rikarðs-bók hefði
þurft að koma út fyrir einum
fimm eða tiu árum. Þá hefði eld-
huginn notið sin.
Þá er lika álitamál, hvert snið
hefði átt að velja slikri bók.
Átti að birta þaö, sem Rikarður
hefur skrifað og láta þar við sitja,
eða láta hann segja góðum ritara
og höfundi frá, og hann siðan
skila þvi i sinni samningu? Báðir
þessir bókarhættir hefðu verið
góðir og gildir. Rikarður hefur
margt ritað og birt i blöðum og
timaritum, og hefði það verið nóg
bókarefni og geymdar virði. Með
þeim hætti hefði þó maðurinn
sjálfur, lif hans og viðhorf, og
listamaðurinn ckki komizt nægi-
lega vel tii skila. Bezt bók um
Ilikarð hefði vafalitið fengizt með
þvi, að góður höfundur helði
samið hana á sinn hátt af sam
tölum við hann og tiltækum heim-
ildum.
Eirikur Sigurðsson virðist hafa
larið bil beggja i verki sinu, og
má fallast á, að það sé skynsam-
leg aðferð, eins og á slóð. Hins
vegar er þessi samtvinnun miklu
vandasamari, ef vel á að takast,
og viðbúið,að slik bók verði laus i
böndum og vanti samræmi og
heildarsvip, enda verður sú
raunin. 1 annan stað virðist bókin
tekin saman á nokkuð löngum
tima og verða á bláþræðir vegna
þess.
Fyrri hluti bókarinnar, þar sem
segir frá æsku og æskuslóðum
Rikarðs, fólki hans eystra og
lifsbragnum upp úr aldamótun-
um, stórhug og baráttu æsku-
mannsins, ferðum i önnur lönd og
kynnum af listum, er ritaður eltir
frásögn Rikarðs, og er það allt
saman sérlega læsilegt og á þvi
samfelld tök. Ferðasögur með
góðkunnum Islendingum, til að
mynda Davið skáldi á ttaliu og
viðar,eru bráðlifandi og fullar af
gamni. Seinni hlutinn er miklu
sundurleitari og með brag
annarrar bókar. Þar er sitthvað
birt úr dagbókum Rikarðs, kaflar
úr greinum eftir hann , getið
nokkurra samferðamanna með
hugblæ liðinnar minninga-
stundar, sem varla á við lengur,
og ýmislegt fleira. Þar er auð-
'vitað margt vel og skemmtilega
sagt, eins og Rikarðs var von, en
samt eru þetta nú l'remur frá-
sagnarefni, sem hefði þurft að
koma á framfæri i nýju samhengi
til þess að þau nytu sin.
Ýmsir munu sakna þess, að
listastarfi Rikarðs skuli ekki
Brasilíufararnir
munu enn njóta
mikilla vinsælda
Jóhann Magnús
Bjarnason:
BRAZI Li UFARARNIR
Bókaútgáfan Edda,
Akureyri
Eins og kunnugt er af fréttum
stendur yfir heildarútgáfa á
verkum vestur-islenzka skáldsins
Jóhanns Magnúsar Bjarnasonar,
og eru áður komin út tvö bindi
verksins, en nú fyrir jólin kom
þriðja bindið og hefur að geyma
lengstu og að ýmsu leyti beztu
skáldsögu Jóhanns, Braziliufar-
ana. Árni Bjarnarson býr söguna
undir prentun, svo og allt rit-
safnið.
Braziliufararnir eru íslend-
ingum ekki ókunn saga. Þeir voru
lesnir um þvert og endilangt
landið fyrir svo sem fjórum eða
fimm tugum ára og nutu mikilla
vinsælda, enda er sagan bæði
fjörlega rituð og full af sögu-
legum atvikum. Frásagnir af
ævintýrum íslendinga i fjörrum
löndum voru einnig i hávegum,
og er svo enn.
Braziliufararnir munu enn
njóta vinsælda nýrra kynslóða.
Söguefni þeirra er ekki siður
ævintýralegt nú, þegar tækni og
hraðsamgöngur hafa breytt
heiminum og hann er orðinn enn
ólikari þvi, sem menn þekktu
áður af afspurn og beinum
kynnum. Sagan er lika einkar
li lega skrifuð og koma beztu rit-
höíundakorstir Jóhanns þar
fram.
Það er mikið og þakkarvert
átak áf Árna Bjarnarsyni aö gefa
ritsafn Jóhanns Magnúsar
Bjarnasonar út að nýju með svo
myndarlegum hætti um þær
mundir, sem aldarafmæli land-
náms lslendinga i Vesturheimi er
minnzt. Bækur hans hafa bein-
linis verið lesnar upp til agna hér
á landi og ekki fengizt siðustu
áratugi. Nú geta menn endur-
nýjað kynnin i vandaðri útgáfu,
og ungt fólk mun hafa hið mesta
yndi af Braziliuförunum ekki
siður en eldra fólkið.þegar það
var ungt.
gerð meiri skil, en við þvi er lik-
lega ekki gott að gera héðan af.
Um list Rikarðs þyrfti þó að rita
miklu skilmerkilegar en gert
hefur verið af manni, sem kann á
þvi góð skil og kannar þaö vel, og
þá án beinna persónulegra
tengsla við Rikarð.
En auðvitað er bók þeirra
Rikarðs og Eiriks stórskemmti-
leg aflestrar og brugðið upp
fjölda lýsandi mynda af kynnum
Rikarðs við þjóðkunna menn og
fróðlegar persónur. Gamansemi
Rikarðs og karlmannlegt lifsvið-
horf nýtur sin ágætlega, og hið
heita hjarta hans slær landi og
þjöðlegum verðmætum af
fölskvalausri ást aldamóta-
mannsins. Þessi bók er þvi til
þess fallin að veita lesanda gleði-
stundir i kynnum við stórbrotna
mannlund, heið lifsviðhorf og göf-
uga list. Bókin er fallega út gefin.
— AK.
Laust embætti,
er forseti íslands veitir
Héraðslæknisembætti i Flateyrarhéraði
er laust til umsóknar. Laun samkvæmt
launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknarfrestur er til 20. janúar 1973.
Ileilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
1S. desember 1972.
HUfíð pappirunum víð
óþarfa hnjaski
og yður við
stöðugriieit /óreiðunni
Notið til þess plastáhöldin vinsælu frá Múla-
lundi. Þau hjálpa yður til að halda pappírun-
um á sínum stað. Við fylgjumst með þörfinnj
og framleiðum nú flestar gerðir af möppum
og bréfabindum í mörgum stærðum og lit-
um, til hvers konar nota, ennfremur hulstur
og poka úr glæru plasti t.d. fyrir skírteini,
reglugerðir, 1. dags umslög o.fl.
Fyrir fundarhöld getið þér fengið skjala-
möppur með rennilás og einnig aðrar teg-
undir, ásamt barmmerki með nafni hvers
þátttakanda.
Fyrir bridgekeppnir framleiðum við Bridge-
bakkann góða.
Vörur okkar eru stílhreinar og vandaðar og
við allra hæfi.
MÚLALUNDUR— ÁRMÚLA 34 — REYKJAVÍK -SÍMAR 38400 OG 38401
—AK