Tíminn - 20.11.1973, Blaðsíða 8

Tíminn - 20.11.1973, Blaðsíða 8
8 TÍMINN Þriðjudagur 20. nóvember 1973. t „taranlella'.’ „BRÚÐUHEIMIH" Fyrst á íslandi 1905 — síðast 1952 Þjóðleikhúsið frumsýnir fimmtudag 22. nóvember Krogstad kom á aðfangadag meösvolitla „jólagjöf” handa Nóru. BROÐUHEIMILI eftir Henrik Ibsen Leikstjóri: Briet Héðinsdóttir — Leik- myndir og búningateikningar: Sigurjón Jóhannsson — Þýðing: Sveinn Einars- son. Leikendur: Guðrún Ásmundsdóttir — Nóra Erlingur Gislason — Helmer Rúrik Haraldsson — Dr. Rank Baldvin Halldórsson — Krogstad Þóra Friðriksdóttir — Kristin Guðbjörg Þorbjarnardóttir — Anna Maria Steinunn Jóhannesdóttir — Helena Þrjú börn — börn Helmers og Nóru Norska skáldjöfurinn Henrik Ibsen (1828-1906) þarf vart að kynna lesendum. Hann hefur not- ið mikilla vinsælda hér á landi, þ.e.a.s. verk hans um áratuga skeið, en alls hafa 10 leikrit eftir hann verið sýnd. Verk Ibsens hafa verið sýnd um allan heim, og löngum við góðar undirtektir. „Brúðuheimili” („Et Dukke- hjem) var fyrsta verk Ibsens i flokki „leikrita úr raunveruleik- anum”, sem lauk með „Nár vi döde vágncr”,er út kom 1899 og var sýnt strax árið eftir, 1900, af aðalleikhúsunum á Norðurlönd- um og i Þýzkalandi. Þetta verk var eins konar „epilog” fyrr- nefndra verka, sem þar höfðu myndað heild. „Brúðuheimili” var frumsýnt á jólunum 1879 og kom af stað feiki- legum æsingi og umræðum á norskum heimilum svo sem vænta mátti, þar sem i leikritinu var staða konunnar i þjóðfélaginu tekin til meðferðar. Slikt efni var nánast einsdæmi á þeim tima. Verkið sjálft var þannig upp byggt, að það hlaut að ná vinsæld- um, enda varð það mesti leikhús- sigur 19. aldarinnar, og af leikrit- um alvarlegs eðlis hefur ekkert Frá vinstri: Dr. Rank (Rúrik), vinkona Nóru, Kristfn (Þóra), Helmer (Erlingur) og loks Nóra sjálf (Guðrún).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.