Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.11.2004, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 19.11.2004, Qupperneq 50
Hin elskulega Bridget Jones er komin aftur í bíó í myndinni Bridget Jones: The Edge of Rea- son og sjálfsagt hafa margir beð- ið endurkomu hennar alveg frá því að stúlkan lét síðast sjá sig í bíó árið 2001. Fyrri myndin, Bridget Jones's Diary, sem byggði á samnefndri bók Helen Fielding sló hressilega í gegn og hreif bæði gagnrýnendur og áhorfendur úti um allan heim. Gerð framhaldsmyndar var því óumflýjanleg enda var Fielding þegar búin að skrifa aðra bók um hrakfarir og ástarlífsflækjur Bridgetar sem hefur einstakt lag á að koma sér í klandur. Endalaus vandræði Bandaríska leikkonan Renée Zellweger fór á kostum í hlut- verki Bridgetar enda gaf hún sig alla í hlutverkið, bætti á sig auka- kílóum fyrir hlutverkið og hvað eina. Zellweger þurfti líka að sanna sig þar sem efasemdaradd- ir heyrðust úr mörgum hornum þegar bandarísk leikkona var ráðinn í hlutverk bresku dagbók- ardömunnar. Zellweger gerði Bridget að sinni og það hefði ver- ið óhugsandi að halda áfram með ævintýri Bridgetar á hvíta tjald- inu án leikkonunnar. Hún er mætt til leiks á ný ásamt öllum helstu leikurum fyrri myndar- innar en sem fyrr er það ástar- þríhyrningur Bridgetar, Marks Darcy og Daniels Cleaver sem er í forgrunni. Bresku sjarmatröllin Colin Firth og Hugh Grant endurtaka rullur sínar sem Darcy og Clea- ver og eðalleikarinn Jim Broad- bent lætur einnig til sín taka í litlu hlutverki föður Bridgetar. Þegar við sögðum skilið við Bridget síðast voru hún og Darcy byrjuð saman eftir miklar hremmingar og lymskulegar til- raunir Cleavers til að stía þeim í sundur. Bridget er þó ekki komin í höfn þótt hún hafi landað sínum heittelskaða og í The Edge of Reason fer fljótlega að bera á brestum í sambandi parsins ham- ingjusama. Bridget grunar Darcy um græsku og ekki tekur betra við þegar hún þarf að fara utan á vegum vinnunnar með refnum Cleaver sem gæti vel hugsað sér að komast aftur með klærnar í stóru nærbuxurnar hennar. Gefðu mér vont í skóinn Jólasveinninn er mættur í bæinn frekar snemma þetta árið enda enginn venjulegur sveinki á ferð- inni. Hann er drykkfelldur inn- brotsþjófur sem vinnur við það á daginn að leika jólasvein í versl- unarmiðstöðvum til þess eins að eiga auðveldara með að ræna þessar sömu verslunarmiðstöðv- ar þegar degi tekur að halla. Snilldarleikarinn Billy Bob Thornton leikur þennan drullu- sokk og fer á kostum eins og hans er von og vísa en þessi falsjóla- sveinn uppgötvar mannlegar taugar innra með sér þegar hann kemst í kynni við ungan dreng sem á við offituvandamál og ein- elti að stríða. Þetta er ekki beint hin dæmi- gerða jólasaga enda varla hægt að búast við því þar sem hug- myndin að myndinni er runnin undan rifjum Coen-bræðra en þrátt fyrir ljótan munnsöfnuð, óhóflega drykkju og vafasamt kynlíf jólasveinsins kemst sígild- ur boðskapur jólanna vel til skila í þessari sérstöku gamanmynd sem tekur af öll tvímæli um að andi jólanna getur gert góðmenni úr fyrsta flokks skíthælum ef svo ber undir. ■ 19. nóvember 2004 FÖSTUDAGUR Ómissandi á DVD Spider-Man 2. Ein skemmtilegasta og vinsælasta mynd sumarsins er komin út á tvöföldum DVD-diski. Myndin sjálf er í widescreen á fyrri disknum ásamt ummælum leikara og tökuliðs, tónlistarmyndbandi og fleira góðgæti. Seinni diskurinn er pakkaður af alls konar fróðleik um Kóngulóarmanninn, gerð myndarinnar, tæknibrellur og fleira. Þá er skúrkurinn Doctor Octo- pus einnig tekinn fyrir enda má segja margt um það ólánsama illmenni. Ástarþríhyrningur og vondur jólasveinn BRIDGET JONES Lendir aftur milli steins og sleggju þegar Mark Darcy og Daniel Cleaver takast á um ástir hennar. BILLY BOB THORNTON Er frekar ógeðslegur sem alkóhólískur glæpamaður í jóla- sveinabúningi en þegar betur er að gáð leynist góð sál bak við skítinn og ljótt orðbragðið. Vín með jólamatnum 2004 Vínsýning á Nordica Hotel 20.-21. nóvember Vínsýning verður haldin á Nordica Hotel 20.-21. nóvember, kl. 14-18 báða dagana, á vegum Vínþjónasamtaka Íslands og Vínbúða. Aðgangseyrir er 1000 kr. og Riedel-glas fylgir með á meðan birgðir endast.Aldurstakmark er 20 ár. Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík 17.–25. nóvember Reykjavik International Film Festival www.filmfest.is Málþingið Kvikmyndir og samfélag verður haldið í Listsafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, á morgun, laugardag, frá kl. 12–16, á vegum Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík. Rætt verður um hlutverk og gildi kvikmyndahátíða, íslenska kvikmyndamenningu og rödd Íslands í hinum alþjóðlega kvikmyndaheimi. Erindi flytja Sturla Gunnarsson kvikmyndaleikstjóri, Li Ping meistara- nemi, Helga Stephenson, einn stjórn- enda Kvikmyndahátíðarinnar í Toronto, Jannike Ahlund stjórnandi Gautaborgarhátíðarinnar og Þorfinnur Ómarsson. Leikstjórar Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík sitja fyrir svörum, og fjöldi fagfólks og áhugafólks um kvikmyndir tekur þátt í pallborðsumræðum. Þar má nefna Sigurjón Sighvatsson, Baltasar Kormák, Kristínu Jóhannes- dóttur og Dag Kára Pétursson. Aðgangur er ókeypis Sambíóin frumsýna Mindhunter, nýjustu mynd finnska leikstjór- ans Renny Harlin, í dag. Harlin á að baki ansi brokkgengan feril en getur státað af vanmetnum snilld- armyndum á borð við The Adventures of Ford Fair- lane og The Long Kiss Goodnight og risasmellnum Die Hard 2. Mindhunt- er fjallar um sjö unga og efnilega út- skriftarnema í ströngum þ j á l f u n a r - skóla banda- rísku alríkislögreglunnar. Allt á þetta úrvalsfólk möguleika á að komast að sem glæpasálgreinar hjá stofnuninni en til þess að landa þessu eftirsótta starfi þurfa þau að standast erfitt lokapróf. Gamli vandræðagemlingurinn Val Kilmer leikur þjálfarann þeirra, Harris, sem er þekktur fyrir að fara óhefðbundar leiðir. Hann sendir útskriftarnemana með þyrlu til einangraðrar eyju þar sem þeir eiga að eyða helg- inni og leysa morðgátu. Það kem- ur þó fljótt í ljós að hér er um meira en bara leik að ræða þar sem kaldrifjaður morðingi leyn- ist á meðal þeirra. Það reynir því heldur betur á hæfileika þeirra og þekkingu þar sem morðinginn er alltaf nokkrum skrefum á und- an þeim og það er ljóst að það munu ekki allir lifa prófraunina af. Morðinginn virðist vita allt um hvert og eitt þeirra og notar for- tíð þeirra og veikleika gegn þeim og kemur þeim í hel einu af öðru. Óttinn og álagið verður til þess að nemarnir snúast hver gegn öðr- um og innbyrðis átök magnast enda er enginn hafinn yfir grun. Þau gera sér þó ljóst að enginn muni lifa hremmingarnar af nema þau sameinist gegn óvininum ósýni- lega og þar með hefst æsilegt kapphlaup við tímann þar sem þau verða að af- hjúpa morðingj- ann í hópnum á meðan einhverjir eru eftir uppistandandi. Christian Slater, LL Cool J og Kathryn Morris úr Minority Report eru í eldlínunni á eyjunni en auk þeirra eru Jonny Lee Mill- er (Trainspotting), Patricia Vela- squez (The Mummy), Clifton Coll- ins (Traffic) og Eion Bailey (Fight Club) einnig í bráðum háska. ■ Banvænt lokaverkefni CHRISTIAN SLATER OG VAL KILMER Sá fyrrnefndi er í vondum málum í Mindhunter þar sem æfing í leit að morðingja snýst upp í baráttu upp á líf og dauða. SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR » 50-51 Bíóopna (38-39) 18.11.2004 19.54 Page 2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.