Tíminn - 07.02.1974, Blaðsíða 15

Tíminn - 07.02.1974, Blaðsíða 15
■ f M' 1 I i Fimmtudagur 7. febrúar 1974. TÍMINN 15 hittust strákarnir. Peir höfðu þá étið miðdegis- verð og farið i slarkföt. ,,Þetta fáum við borgað, áður en langt liður.” sagði Jón. ,,Hann hlýtur að komast að þvi, að við höfum hent gaman af honum. Þó að ekki væri annað, þá getur það frétzt eftir hinum börn- unum, að það vorum við, sem þvældum kúna i tjóðrinu.” — Sú stund, sem er góð, er ekki slæm, sagði Pétur Kristján. — Og ef við hefðum ekki gert það, sem við gerðum, þá hefðum við báðir verið hýddir i dag. Auðvitað launar hann okkur lambið gráa, ekki er að efa það, ef við högum okkur ekki þannig, að hann fái ekki færi á okkur, sem varla kemur til. Jón stakk upp á, að þeir skyldu lesa vel i bibliusögum og kveri undir morgundaginn. Pétur Kristján samþykkti það. Voru þó báðir hálf daufir i dálk- inn, þvi að sjálfsagt gat kennarinn fundið upp einhverja gildru til að festa þá i. Þeir lágu. úti i mat- jurtagarði og voru að róta þar i moldinni. Þá fundu þeir músarholu. Þeir grófu svo djúpt, að þeir fundu músina og náðu henni. — Það gæti verið gaman að ala hana, þessa, sagði Jón. — Eða gefa kennaranum hana, sagði Pétur Kristján. Honum þykir svo gaman að músum. Þeir ráku upp hlátur, þvi að sann- leikurinn var sá, að kennarinn var hræddur við mýs, eins og kven- fólk getur frekast verið. — Geymdu hana i pennastokknum þinu. Hver veit til hvers 0 Erum ekki... auk mánaðarkaups og fæðis. Kröfurnar hljóða upp á hækkun kaupliða auk annarra atriða. Farmanna- og fiskimanna- sambandið hefur enn ekki ákveð- ið að fara i verkfall, en yfirmenn á bátaflotanum verða sjálfkrafa að leggja niður vinnu, ef undirmenn fara i verkfall. Sátta- fundur verður með yfirmönnum og útgerðarmönnum á morgun. O Skóiafólk lamandi áhrif á likamlegt þrek æskumanna, nema jafnframt bóknámi sé nokkrum tima varið til iþrótta og útivistar. bess er og gætt, þegar námsskrá er samin, að ætla tima til þess og telst það til skólastarfsins. í frumvarpi um grunnskóla er kveðið svo á: ,,Miðað við niu mánaða starfs- tima grunnskóla og 6 daga skóla- viku skulu starfsdagar skóla á hverju skólaári teljast vera 210. Af þeim skal 195 dögum hið fæsta varið til kennslu og prófa, en allt að 15 dögum til annarra þarfa skólans, og er i þvi sambandi heimilt að taka tillit til sérstakra atvinnuhátta og aðstæðna i skóla- hverfinu.” ,,Skólastjóri og kennararáð ákvarða, hversu ráðstafa skulu þeim starfsdögum skólans, 15eða 10, sem ekki er skylt að nota til kennslu eða prófa.” ,,1 öllum skólum á grunn- skólastigi skal nemendum gefinn kostur á að taka þátt i tómstunda- og félagsstarfi á vegum skólans eftir þvi sem aðstæður leyfa.” Frumvarp þetta kveöur svo á, að heimilt skuli að vera að kveðja til starfa við landgræðslu tvo daga á hverju skólaári hvern þann nemanda, sem orðinn er 12 ára eða eldri og stundar nám i skóla, sem kostaður er af rikinu aö einhverju eða öllu leyti, enda sé namandinn hraustur og ófatlaður. Landgræðslustörf i þessu sambandi teljast græðsla lands og hvers konar vinna vegna gróðurverndar, gróðursetning trjáplantna, grisjun skóga og fegrun skóglendis, gróðursetning skrúðjurta og endurbætur skrúð- garða, lagfæring og fegrun umhverfis skóla, gistihúsa, sjúkrahúsa eða annarra opin- berra menningar- og liknarstofn- ana. Landgræðslustörf skólafólks skulu undirbúin og skipulögð sem bezt að tilhlutan Skógræktar rik- isins, Landgræðslu rikisins eða búnaðarsambands. Samkvæmt yfirliti um fjölda nemenda og kennara i skólum skólaárið 1972-1973 — en það yfir- lit er birt með grunnskólafrum- varpinu — voru þá samtals um 25 þúsund nemendur i skólum þeim, sem frumvarp þetta tekur til. Ef frumvarpið verður lögfest og ákvæði þess látin koma til fullra framkvæmda, má ætla með visun til nemendafjölda, að hægt verði á þessum grundvelli að fá unnin á einu ári um 50 þúsund dagsverk við landgræðslu, þótt vinna hvers einstaklings við þessi verkefni sé aðeins tvö dagsverk á ári. Af þessu má marka, að hér er um að ræða verulegt framlag til gróður- verndar og landgræðslu. t frumvarpi þessu felst heimild til að kveðja til landgræðslustarfa nemendur i skólum, sem kostaðir eru af rikinu að einhverju eða öllu leyti. Ekki verður skylt að láta þetta koma til fullra framkvæmda þegar i stað. Akvæði frumvarpsins, ef að lög- um verða, má framkvæma i áföngum, eftir þvi sem störfin verða undirbúin og skipulögð samkv. 3. gr. Kemur þá i ljós, hvort hugmynd sú, sem hér er reifuð, stenzt próf reynslunnar. Með þessu frumvarpi er ekki stefnt að þvi að koma á með lög- gjöf þvingandi valdboði. Það er borið fram með það fyrir augum að glæða þann áhuga á þessu við- fangsefni, sem komið hefur fram hjá ungmennafélögum og ýrrlsum öðrum, og að efla starfsemi áhugamanna á þessu sviði. Þjóðhátiðarárið 1974 á að verða ár mikilla fyrirheita um að græða landið, bæta það og fegra. Unga kynslóðin, sem vissulega nýtur góðra lifskjara i landinu, á að fá tækifæri til að sýna með skipu- legum átökum, að börn vorhug- ans séu að verki, þar sem hún gengur til starfa. r liii Fundur um stjórnmálaviðhorfið Framsóknarfélögin i Reykjavik halda fund að Hótel Esju i kvöld fimmtudagskvöld kl. 20:30. Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra ræðir stjórnmálaviðhorfið. Allt stuðningsfólk Framsóknarflokksins velkomið á fundinn. Félag framsóknarkvenna Félagskonur munið fundinn að Hótel Esju i kvöld kl. 20:30, þar sem Ölafur Jóhannesson, forsætisráðherra,talar um stjórnmála- viðhorfin. Stjórnin._____________J Þjóðhótíðarmerki Ásatrúarmanna: SÓLKROSS ÚR SILFRI, BUNDINN RÚNUM 0 Loðnan hjá Fiskmatinu. Sagði hann að þeir hefðu mjög lítinn mannskap til að fylgjast með aflasamsetn- ingu allra loðnufarmanna, sem bærust á land. Þessa stundina hefðu þeir nóg að gera við að fylgjast með þvi, að loðna, sem fara ætti til frystingar, væri frystingarhæf, og við þær athug- anir hefðu þeir rekizt á litið magn af sild i aflanum. Ef svo fer að loka verður svæðinu frá Hrollaugseyjum að Ingólfshöfða á nótinni, eins og Jakob Jakobsson leggur til, ætti það ekki að koma verulega að sök, þvi að aðalveiðisvæðið hefur, a.m.k. undanfarið, verið allmiklu vestar. o Víðivangur verðhækkanir og svo Vest- mannaeyjagosið, sem hafði úkaflega mikil áhrif á a111 at- vinnulif i landinu og jók verð- bólguna til muna, þar sem framkvæmdirnar eftir gosið komu fyrst og fremst á þaö svæði landsins, sem mest áhrif hefur á verðþensluna, Suðvesturlandið.4 Lifskjör almennings i land- inu hafa verið góð á siðasta ári, og betri en nokkru sinni fyrr, þvi að kaupmáttur launa hefur auki/.t þrátt fyrir allt. Þar koma til kaupbreytingar, er gerðar voru, þegar þessi rikisstjórn tók við, og svo hin mikla og góða atvinna um land allt á sl. ári." —TK Auglýsið í Tímanum ASATRÚAKFÉLAGIÐ hefur látið gera táknmerki til minn- ingar um ellefu hundruð ára byggð i landinu, segir i fréttabréfi frá þessum samtökum. Þetta cr barmmcrki, sólkross bundinn rúnum, gerður úr silfri á bláum grunni. Þetta táknmerki verður einnig á minnispeningi, sem félagið liyggst gefa út. Þá hefur félagið látið gera silfurkringu sem táknar heims mynd Ásatrúarinnar eins og lýst er i Eddunum. I fréttabréfinu er einnig skýrt frá þvi, að Asa- trúarmenn hafi gert útvarps- þætti bæði handa sænska og hol- lenzka sjónvarpinu og i bigerð sé þáttur vegna bandariskrar út- varpsstöðvar. Sagt er og. að i sumar sé von á Ásatrúarmönnum frá Bandarikjunum og Þýzka- landi á þjóðhátiðina. Cavalier-hjólhýsin 1974 Okkur er ónægja að tilkynna að Cavalier-hjólhýsin órgerð 1974 eru komin til landsins Okkur er einnig dnægja að tilkynna að vegna sérstaklega hag- stæðs gengis d sterlingspundinu hafa verðin síðustu vikurnar lækkað um tugi þúsunda Gjörið svo vel — húsin eru sýnd í sýningarsal okkar hér að Klettagörðum 1 1 — Sundaborgum (d móti Laugarósbíói). Einnig sýnum við hollenzku Casita-fellihýsin og þýzku Knaus-hjólhýsin. Gísli Jónsson & Co. h.f. SUNDABORGUM — KLETTAGÖRÐUM — SÍMI 8-66-44

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.