Tíminn - 08.07.1975, Blaðsíða 9

Tíminn - 08.07.1975, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 8. júli 1975. TÍMINN 9 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri: Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Glsla- son. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur I Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verð I lausasölu kr. 40.00. Askriftargjald kr. 700.00 á mánuði. Blaðaprent h.f. Skæruhernaðurinn Upp á siðkastið hefur það færzt i vöxt, að til- tölulega fámennir stéttarhópar hafa knúið fram launakröfur sinar með hæpnum, eða jafnvel ólög- legum, verkfallsaðgerðum i skjóli aðstöðu sinnar til að lama starfsemi viðkomandi fyrirtækja og baka þeim stórkostlegt fjárhagstjón. Af þeim sökum hafa vinnuveitendur fremur valið þann kostinn að samþykkja nauðungarsamninga en að láta fyrirtækin stöðvast. Vinnubrögð af þessu tagi eru afar óheppileg, svo ekki sé sterkara að orði kveðið. í þeim felst virðingarleysi gagnvart lögum og réttvisi, svo ekki sé talað um virðingarleysið gagnvart at- vinnufyrirtækjunum, sem viðkomandi aðilar starfa hjá. Jafnframt felst i þeim hættulegt for- dæmi gagnvart öðrum launþegastéttum, sem samið hafa um kaup og kjör á hóflegum grund- velli með tilliti til erfiðrar stöðu atvinnufyrir- tækjanna. Er ekki óeðlilegt, að þeir aðilar hugsi með sér, að til litils sé að sýna sanngirni, ef aðrir hópar komi á eftir og knýi fram miklu meiri kauphækkanir. Það er svo sérkapituli, að miklir erfiðleikar geta stafað af þvi, að innan eins og sama fyrir- tækis er starfsfólkið i mismunandi stéttarfélög- um, og semja verður við hvern hóp út af fyrir sig. Þannig felst til að mynda engin trygging i þvi fyrir stórfyrirtæki eins og Flugleiðir, þótt samningar takist við flugmenn, ef ekki næst sam- komulag við flugfreyjur. En jafnvel þótt samningar næðust við báða þessa aðila, er um fjóra aðra stéttarhópa að ræða, sem hver um sig gætu stöðvað reksturinn, ef samningar næðust ekki við þá. Hér er um að ræða flugvirkja, af- greiðslufólk á flugvöllum og verkamenn við bensinafgreiðslu, auk flugumferðastjóra, sem reyndar hafa ekki verkfallsrétt, en hafa mögu- leika til að tef ja flugið með óeðlilegum veikinda- forföllum. Hjá ýmsum öðrum atvinnufyrirtækjum er svipaða sögu að segja, þótt dæmið um Flugleiðir sé mest einkennandi i þessum málum. Blaðaút- gefendur verða t.d. að semja við fleiri aðila en blaðamenn, ef blöðin eiga að koma út. Náist ekki samningar við prentara stöðvast blaðaútgáfan. Sömuleiðis stöðvast útgáfan, þótt samningar næðust bæði við blaðamenn og prentara, ef ekki næst samkomulag við fólkið, sem sér um pökkun blaðanna. Allir skynsamir menn hljóta að viðurkenna, að þetta fyrirkomulag er óæskilegt og getur valdið fyrirtækjunum slikum skakkaföllum, að rekstri þeirra sé ógnað alvarlega. Þegar við það bætist, að ákveðnir hópar eru farnir að beita skæru- hernaði til að beygja atvinnufyrirtækin, er vissu- lega komið i óefni. Ástæða er til að taka undir þær raddir, sem bent hafa á nauðsyn á endurskoðun vinnulög- gjafarinnar. Slik endurskoðun er ekki aðeins nauðsynleg fyrirtækjanna vegna. Ekki siður er hún nauðsynleg vegna launþega sjálfra. At- vinnuöryggið er i hættu, ef rekstri fyrirtækjanna er ógnað með skæruhernaði og þunglamalegu samningakerfi. Umfram allt þarf þó að verða hugarfarsbreyting og skilningur á þvi, að sameiginlegir hagsmunir eru i húfi bæði fyrir at- vinnurekendur og launþega. —a.þ. Hugh O'Shaughnessy, The Financial Times: Sættast Bandaríkja- menn og Kúbumenn? Bdðir gera sér far um að Idta í Ijósvilja til bættrar sambúðar UM mánaðamótin mai-júni lét KUbustjórn lausa þrjá bandariska fanga og haft er á orði, að brátt verði sleppt fleiri Bandarikjamönnum, sem hafa veriðihaldi á Kúbu. Þetta er talið framhald á þeirri viðleitni til velvildar, sem rikisstjórnirnar i Washington og Havana hafa sýnt hvor annarri undan- gengna mánuði. Bandarikja- ■ menn og Kúbumenn hafa engin vinsamleg samskipti átt og i reynd sýnt hvorir öðrum fjandskap allt siðan að Eisen- hower forseti rauf stjórnmála- sambandið við stjórnina i Havana og Kennedy forseti féllst á innrásina i Svinaflóa árið 1961. En nú virðist breyt- ing i vændum. Dr. Carlo Rafael Rodriguez er varaforsætisráðherra á Kúbu og talinn ganga næst Fidel Castro að völdum. Hann kom til London I mai til þess að undirrita samning um um- fangsmikil lánsviðskipti. Við það tækifæri lagði hann sér- staka áherzlu á hina breyttu afstöðu i skiptum Bandarikja- manna og Kúbumanna. RODRIGUEZ sagði, að Bandarikjamenn hefðu á þrennan hátt látið i ljós greini- legan vilja til að bæta sambúðina við Kúbumenn. Henry Kissinger utanrikisráð- herra Bandarikjanna flutti er- indi iHouston fyrsta marz um Suður-Ameriku, og lýsti þá og i sjónvarpsviðtali á eftirmild- ari afstöðu bandariskra stjórnvalda en áður. Utan- rikisráðuneyti Bandarikjanna hefir tekið hógværari afstöðu en áður i deilunni innan Sam- taka Amerikurikja um við- skiptabannið á Kúbu. öldungadeildarþingmenn ' frá Bandarikjunum hafa lagt og munu leggja leið sina til Kúbu.George McGovern kom þangað i maí og Edward Kennedy ætlar að koma siðla sumars. Rodriguez sagði þessar heimsóknir mjög mikilvægar, og hann bætti þvi við, að varla gæti hjá þvi farið, aö forsetakosningarnar I Bandarikjunum árið 1976 yrðu til þess að milda enn afstöðu Bandarlkjamanna. Dr. Rodriguez notaði tæki- færið til þess að sýna að hann vildi fyrir sitt leyti stuðla að bættri sambúð. Hann sagði til dæmis, að Kúbumenn styddu nú ekki vopnuð átök neins staðar i álfunni, og þessi yfir- lýsing hefur þegar haft nokkur áhrif i Suður-Ameriku. Hann kvað efnislega aðstöðu vissu- lega mæla með vopnaðri bylt- ingu i ýmsum löndum álfunn- ar, ,,en huglægar aðstæður eru ekki fyrir hendi,” bætti hann við. TALIÐ er að Rodriguez hafi með þessum ummælum átt við, að lifskjör alþýðu viða I Suður-Ameriku réttlættu blóð- uga byltingu, en ekki væri nægilega margt manna reiðubúið að taka þátt i framkvæmdinni. Hann bætti enn við, aö Kúbumenn aðhyllt- ust friðsamlegar aðferðir við að koma á félagslegum umbótum. Þeir styddu i þessu skyni við bakið á þeim rikis- stjórnum eða einstökum ráð- herrum, sem fylgdu fram- farastefnu og legðust gegn heimsvaldastefnu. Hann kvað þessa stefnu lifa og dafna i Mexikó, Venezuela og Perú. Hann lét einnig i ljós i þessu sambandi, að brýn nauösyn væri á að mynda i Chile breiðfylkingu, sem næði ekki aðeins til vinstri manna, heldur eínnig til Kristilega demókrataflokksins. Þessi ummæli hafa valdið mikilli gremju meðál öfgamanna til McGovern og Fidel Castro vinstri þar i landi. Rodriguez sagði orðrétt: „Samkomulag við vinstri- arm Kristilega demókrata- flokksins hrekkur ekki til. Það verður að ná til flokksins alls, einnig Eduardo Frei fyrrver- andi forseta. Vitaskuld á ekki aö efla til valda að nýju þá rikisstjórn, sem Frei veitti forstöðu áður fyrr, heldur að steypa hershöfðingjaklikunni af stóli.” MARGIR vinstri menn hafa talið Kristilega demókrata- flokkinn yfirleitt og Frei fyrr- verandi forseta sér i lagi eiga sina sök á hinni blóðugu bylt- ingu hersins i Chile i septem- ber 1973. Þessir vinstrisinnar hafa átt bágt með að kyngja ummælum Rodriguez. Þeir hafa i þessu sambandi viðhaft miður vinsamleg orð um fortið hans, en hann tók að sér ráð- herraembætti i stjórn Fulgenio Batista hershöfð- ingja á árunum upp úr 1940, og fylgdi i þvi efni þeim aðferð- um, sem Kommúnistaflokkur Kúbu aðhylltist þá. Óánægðir vinstri menn i Chile hafa talið þessi ummæli Kúbumannsins ærið óviðeig- andi og einna helzt sam- bærileg við það, að reyna að tala um fyrir konu, sem hefði verið nauðgað, og hvetja hana til að hátta aftur hjá mannin- um, sem nauðgaði henni. En hverjar sem tilfinningar her- skárra vinstrimanna i Chile kunna að vera, þá verður varla um það deilt, að Kúbu- menn hefðu naumast með öðr- um hætti getað sýnt öllu skýr- ar, að þeir hafa ekki eins og stendur hug á að breiða út byltingu, — að minnsta kosti ekki blóðuga byltingu. KÚBUMENN hafa með þessu gefið til kynna, að þeir vilja greiða götu bættrar sam- búðar við valdhafana i Washington. Efalitið mætti stuðla að bættri sambúð innan Samtaka Amerikurikja. Aimennt er álitið, að Samtökin muni bráðlega afnema leyf- arnar af hafnbanninu á Kúbu. Táknrænt er i þessu sam- bandi að hinn hægrisinnaði utanrikisráðherra Paraguay hafði boðið sig fram sem framkvæmdastjóra Samtak- anna, en hefir nú ákveðið að hverfa frá framboði á þeim forsendum, að hann kynni einn góðan veðurdag að verða neyddur til að skipuleggja og ástunda bætta sambúð við þá rikisstjórn, sem hann hefði meiri andúð á en nokkurri annarri rikisstjórn hér á jörð. DEILAN um bætur fyrir bandariskar eignir, sem byltingarstjórnin á Kúbu hrifsaði til sin á fyrstu stjórnarárum Castros, er enn óleyst. Bandariskir þegnar hafa lagt fram 8816 kröfur um slikar bætur og nema þær fast að 3350 milljónum dollara. Nefna má sem dæmi kröfu Cuban Electric Company, um bætur að upphæð 267.6 milljónir doliara, bótakröfu ITT að upphæð 130.7 millj. dollara og 108.9 milljón doll- ara kröfu frá bandariskum sykurhring. Bótakröfurnar nema, eins og áður er sagt, rúmlega 3.3 milljörðum dollara. Það er hærri upphæð en samanlagðar kröfur bandariskra þegna um bætur fyrir eignir, sem stjórn- ir Sovétrikjanna og allra Aust- ur-Evrópurikja hafa lagt hald á. Upphæðin sýnir ljóslega, hve gifurlegar eignir Banda- rikjamanna á Kúbu hafa ver- ið. „Litlar horfur eru á þvi, að eignarnámið á Kúbu verði bætt”, stóð árið 1973 i ihalds- blaðinu Inter American Economic Affairs I Washing- ton. Eignir Kúbumanna, sem rikisstjórn Bandarikjanna hefir lagt hald á, nema alls um 60 milljónum dollara. Stjórn Kúbu á aðeins 2,5 milljónir dollara af þvi. Almennt er litið svo á, að bætt sambúð Banda- rikjamanna og Kúbumanna þurfi ekki að standa og falla með bótagreiðslum Kúbu- manna, svo fremi að nægur vilji sé fyrir hendi hjá valdhöf- unum bæði i Havana og Washington. AHUGINN á bættri sambúð hefir greinilega aukizt. Erfiðri hindrun og miklu persónulegu hatri var rutt úr vegi þegar Nixon forseti hvarf úr Hvita húsinu ásamt sumum sam- starfsmönnum sinum eins og Bebe Rebozo til dæmis. For- svarsmenn bandariskra fyrir- tækja gera sér þess æ ljósari grein, að þeir fara á mis við álitlegar pantanir frá Kúbu- mönnum, sem hafa bæði vilja oggetu tilþess að kaupa mikið af hvers konar vélum og tækj- um. Kúbumenn hafa lýst þvi i blöðum, að þeir vilji kaupa vörur frá Bretlandi fyrir einn milljarð dollara á næstu fimm árum og svipað magn frá Frakklandi og Spáni. Banda- riskum viðskiptajöfrum hljóta að sviða þessar og þvilikar frásagnir i augum. Að lokum má minna á, að stjórnir ým- issa Suður-Amerikuríkja sýna siaukna tregðu á að viðhalda hafnbanni Samtaka Ameriku- rikja á Kúbu og þetta á sinn þátt i að sannfæra starfsmenn bandariska utanrikisráðu- neytisins um, að vigið, sem þeir hafa lagt allt kapp á að verja til þessa sé að verða óverjandi. KOMMÚNISTASTJÓRNIN á Kúbu telur sig orðna trausta I sessi. Þvi á að fagna með fyrsta flokksþingi Kommúnistaflokks Kúbu á þessu ári. Leiðtogar flokksins telja sig hafa efni á að beita sér fyrir bættri sambúð. Hátt sykurverð að undan- fömu hefir aukið á sjálfs- öryggið, svo og aðildin að Comecon og efnahagsaðstoð Sovétmanna. Mikilvægur fundur forustumanna Come- con var haldinn I Havana i lok maímánaðar, og ber það greinilega vott um, að aðild Kúbu að samtökunum er mik- ils metin. Viðleitni valdhafanna i Moskvu og Washington til sambúðarbóta stuðlar mjög aö sáttum Bandarikjamanna og Kúbumanna. Kúbumenn gera sér ljóst, þrátt fyrir hreystiyrði valdhafanna um hafnbannið, að efnahagslif landsmanna hefur farið mikils á mis við að missa samböndin við þau fyrirtæki I Bandarikj- unum, sem lengst af hafa séð eyjaskeggjum fyrir daglegum nauðþurftum. Endurnýjuð samskipti við Bandarikja- menn ættu að geta rutt úr vegi ýmsum þeim þröskuldum, sem hafa staðið atvinnulifi Kúbumanna fyrir þrifum nokkuð á annan áratug.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.