Fréttablaðið - 12.03.2005, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 12.03.2005, Blaðsíða 44
Dansari „Ég er atvinnudansari en vinn í rauninni sem danshöfundur. Í þessari sýningu er ég hins vegar bara að dansa og við erum fjórir dansarar. Þegar við dönsum saman virkar það svolítið eins og samtal sem tvinnast inn í sýninguna.“ Ivonna Strupieshowska, dansari frá Póllandi. 32 12. mars 2005 LAUGARDAGUR Houdini snýr aftur er fjölskyldu- sýning sem sameinar leikhús, sirkús, dans og töfrabrögð. Frum- sýningardagurinn er 23. mars og bíða eflaust margir í ofvæni eftir að bera sýninguna augum. Grunn- urinn að sýningunni er brellur hins fræga töframanns Harry Houdini, sem var frægasti hverfilista- og sjónhverfingamað- ur heims. Það er fyrirtækið Mó- gúllinn sem setur upp sýninguna en eigendur þess eru Jón Tryggvason og Helgi Björnsson. Dean Gunnarsson er annar töframannanna í sýningunni. Hann er frá Kanada og hefur haft áhuga á töfrum síðan hann var tíu ára. „Ég er atvinnumaður í eins konar hverfilist eða flótta. Ég losa mig úr handjárnum, spenni- treyjum, keðjum og fleiru í alls konar erfiðum aðstæðum. Töfrar finnst mér afar fallegir en flótt- inn er mun erfiðari. Hann er lík- amlegur og það er auðvelt að meiða sig. Stundum þarf ég að hanga á hvolfi og losa mig úr spennitreyju og keðjum, kín- verski vatnapyntingaklefinn er hættulegasta flóttabragð Houdin- is. Þá er ég bundinn með keðjum, settur á hvolf ofan í tank sem fólk sér inn í. Svo þarf ég að losa mig sem er mjög erfitt. Það sem er virkilega sérstakt við þessa sýn- ingu er að ég geri öll brögðin í henni. Oftast geri ég bara nokkur brögð svo þetta er mjög erfitt fyrir mig. Aðspurður hvort hann hafi ein- hvern tíma meiðst við kúnstirnar segir hann að svo sé og sýnir blaðamanni fingur sína sem nokkrir hverjir eru ekki svo heil- ir. „Ég hef brotið allt, fæturna, tennurnar, rifbein, hendur, hné og ég hef misst af fingrum. Ég meira að segja dó einu sinni í flóttatil- raun. Þá var ég settur í líkkistu og lokið var neglt aftur. Ég var um- vafinn keðjum og kistunnni var hent í ísilagða á í Kanada. Svo komst ég ekki út. Það voru liðnar fjórar mínútur ofan í vatninu þeg- ar björgunarmenn mínir drógu mig upp úr og ég var dáinn. Húð- in var blá og augun voru dauð. Sjúkraliðarnir flýttu sér með mig á spítalann og þeir þurftu að veita mér hjartahnoð til þess að lífga mig við,“ segir Dean stóreygur og alvarlegur á svip. „Ég man líka eftir tilfinning- unni þegar ég dó. Ég sá skært ljós og ég sá göngin sem mér var ætl- að að ganga. Það var mikil værð yfir mér og friður og ég var ekk- ert hræddur. Ég vissi að ég myndi ekki deyja, vissi að þetta væri ekki minn tími. Það brá öllum nema mér. Reyndar brá mér virkilega þegar ég sá í sjónvarp- inu hvernig ég var þegar þeir veiddu mig upp úr ánni. Ég var eins og dauður hundur.“ „Mér finnst rosalega gaman að gera hluti sem fólk heldur að sé ekki mögulegt að gera. Þessi sýn- ing er frábær að því leyti að hún býður upp á svo margt annað en bara töfrabrögð. Hún fær fólk til að hlæja og þarna eru dansarar, leikarar, trúðar og töframenn allt í einni sýningu. Einnig er þetta falleg saga og það er eitthvað sem mér finnst mikilvægt.“ ■ Farandsýning um allan heim „Við höfum unnið að þessu í tvö ár, erum með framleiðendur frá Belgíu, Hollandi og Þýskalandi sem eru að gera þetta með okkur og þetta kostar um tíu milljónir,“ segir Helgi Björnsson. Þetta er eins konar farandsýning sem við ætlum að sýna á nokkrum stöðum í heiminum. Við höfum til dæmis fengið mikinn áhuga bæði frá Bandaríkjun- um og Evrópu. Sýningin sjálf er virkilega skemmtileg og þarna fær fólk að sjá töfra- brögð sem jafnast á við það sem Houdini gerði þegar hann var uppi.“ Töfrabrögð, sirkuslistir, leikur og dans! Borgarleikhúsið frumsýnir töfrasýninguna The Return of Houdini um páskana. Borghildur Gunnarsdóttir ræddi við leikstjóra, leikara, dansara, trúða og töframenn sem allir hjálpast að við að gera sýninguna að einstakri harmoníu margra þátta. Sviðsstjórinn „Ég leik Marcel sviðstjóra sem er límið fyrir sýninguna. Við Abbie Collins, samferðakona mín, leikum trúðana tvo og sjáum um fyndna hluta sýningarinnar. Ég er mjög spenntur fyrir sýn- ingunni og finnst frábært að vera hérna á Ís- landi, hitta Íslendinga og hlusta á skrítin ís- lensk orð,“ segir hann og hlær. David Cassel, leikari, fjöllistamaður og trúður frá Kanada. Búningakonan „Ég leik Olgu sem er búningakonan og á sér dulið og dimmt leyndarmál sem ég má ekki segja hvað er,“ segir hún og kímir. „Við Marcel erum svolítið að kepp- ast á sviðinu. Olga er voðalega mikil subba og hann er alltaf að reyna að þrífa eftir hana.“ Abbie Collins, sirkuslistakona frá Englandi. Dansari „Ég er leikari og dansari og er útskrifuð frá leiklistarskólanum í Kraká. Ég hef dansað í átján ár en hef aldrei gert neitt þessu líkt. Það verður gaman að sjá galdrana í sýningunni en ég er ekki búin að fá að sjá neitt ennþá.“ Dominika Knapik, dansari frá Pól- landi. Danshöfundurinn „Ég er danshöfundur sýningarinnar. Ég hef unnið við margar sýningar, bæði óperur, söngleiki, leikrit og fleira. Í fyrra var ég mikið að vinna í Nor- egi þar sem ég setti upp Shakespeare-sýn- ingu. Ég hef líka unnið fyrir sjónvarp í Englandi. Mér finnst frábært að fá að vinna hérna á Íslandi því ég hef komið hingað tvisvar áður og líkaði virkilega vel. Ég er mjög spenntur fyrir sýningunni.“ Darren Royston, danshöfundur frá Englandi. Kynnirinn „Ég leik stjórann eða kynninn. Við erum byrjuð að æfa eins og brjálæðingar og frum- sýningin er eftir um tvær vikur. Mér hefur alltaf fundist galdrar mjög spennandi og hef fylgst með töframönnum eins og David Blaine og David Copperfield. Ég held að þessi sýning verði algjör snilld því þessir töframenn eru algjörlega í sömu deild og þeir sem ég nefndi áðan.“ Darri Ólafs- son, leikari frá Íslandi. Leikstjórinn „Mitt starf er að tvinna saman alla þættina í sýn- ingunna og vefa þá saman í fallegt munstur. Síð- ustu tvær vikur höfum við öll verið að vinna saman en ég byrjaði á því að eyða tíma með töframönnunum, Dean Gunnarsson og Joaquin Ayala, en þeir eru meðal hæfustu töfra- manna í heimin- um í dag. Þetta er stór sýning og það verður gaman að sjá hvernig allir þessir þættir koma út þegar þeim er blandað sam- an, ég veðja á stórkostlega sýningu.“ Wayne Harrison, leikstjóri sýningarinnar, frá Ástralíu. Töframaðurinn „Ég sé um töfrabrögðin og galdrana í sýningunni og leik hlutverk annars Houdini-karakteranna tveggja. Ég kem fram ásamt Tönyu kærustunni minni og brögðin mín snú- ast mörg í kringum hana. Ég læt hana hverfa, ég sting spjótum í hana fyrir framan áhorfendur án þess að hún meiðist og fleira. Það er mjög spennandi að vera hérna á Íslandi því Íslendingar hafa aldrei séð svona töfrabrögð áður nema bara í sjónvarpi.“ Joaquin Ayala, töframaður frá Mexíkó. DEAN GUNNARSSON Hann er annar töframaðurinn í sýningunni og sérhæfir sig í flótta og hverfilist. Hann hefur sigrast á mörgum hættulegustu brögðum Houdinis og er einn besti töframaður heims. HELGI BJÖRNSSON Hann er annar eigenda fyrirtækisins Mógúlsins, sem framleiðir sýninguna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.