Fréttablaðið - 12.05.2005, Page 2
2 12. maí 2005 FIMMTUDAGUR
ALÞINGI Ágúst Ólafur Ágústsson,
þingmaður Samfylkingarinnar,
mótmælir harðlega ákvörðun um
að fresta afgreiðslu frumvarps um
afnám fyrningarfrests í kynferðis-
afbrotamálum. Hann kvaddi sér
hljóðs í upphafi þingfundar í gær
og vísaði til samkomulags frá því á
mánudag þar sem formenn þing-
flokkanna og forseti Alþingis
sömdu um þau mál sem skyldi taka
af dagskrá. Halldór Blöndal þing-
forseti kvaðst ekki hafa samið um
þetta mál við þingflokksformenn á
mánudag. Hann sagði að breytinga-
tillaga hefði verið lögð fram síðast
á þriðjudagskvöld og því hefði mál-
ið varla getað verið frágengið.
„Þetta gerist oft og réttlætir
ekki að málið sé tekið af dagskrá.
Staðreyndin er sú að ekki er
pólítískur vilji til þess að sam-
þykkja frumvarpið. Við sem
styðjum þetta og þau 15 þúsund
sem skrifuðu undir áskorun til
stjórnvalda höfum verið dregin á
asnaeyrunum. Endur og hálendis-
vegur eru forseta þingsins ofar í
huga en kynferðisafbrot gegn
börnum,“ segir Ágúst Ólafur.
Hópur fólks úr ungliðahreyf-
ingum stjórnmálaflokkanna af-
henti þingforseta skrifleg mót-
mæli undir kvöld í gær vegna
frestunar á afgreiðslu frumvarps-
ins til næsta hausts. – jh
Uppreisnarmenn færast í aukana:
Miki› mannfall í Írak í gær
BAGDAD, AP Á áttunda tug manna
týndi lífi og ríflega hundrað særð-
ust í hryðjuverkaárásum í Írak í
gær. Uppreisnarmenn hafa færst
mjög í aukana síðan nýja ríkis-
stjórnin tók við.
Í það minnsta þrjátíu manns
biðu bana þegar maður með
sprengiefni innanklæða laumaðist
inn á skrifstofu í bænum Hawija,
norður af Bagdad, í gærmorgun.
Þar var verið að ráða lögreglu- og
hermenn til starfa. 35 til viðbótar
særðust alvarlega í sprenging-
unni.
Um svipað leyti sprakk öflug
bílsprengja á markaði í borginni
Tikrit, heimaborg Saddam
Hussein. 27 fórust í sprengingunni
en 75 særðust. Að sögn sjónarvotta
reyndi ökumaður bílsins að aka inn
í nálæga lögreglustöð en öryggis-
verðir vörnuðu honum vegar.
Súnníasamtökin Ansar al-Sunnah
hafa lýst yfir ábyrgð á tilræðinu.
Þá var stærsta áburðarverk-
smiðja landsins sprengd í loft upp
í Basra og fórst einn þar.
Bayan Baqir Jabr, innanríkis-
ráðherra, reyndi í sjónvarpsviðtali
að róa almenning og lofaði að frið-
ur kæmist senn á í landinu. Fátt
bendir þó til að það verði í bráð.
Uppreisnarmenn hafa fært sig
mjög upp á skaftið á síðustu vik-
um. Um þessar mundir eru gerðar
um sjötíu árásir á dag, samanborð-
ið við 30-40 í febrúar. ■
Fráleitt a› mi›a
flinglok vi› sau›bur›
30 frumvörp bi›u fyrstu umræ›u flegar flinghaldi lauk í gær. Vilji er me›al
flingmanna til fless a› lengja flinghaldi› og gera störf flingsins skilvirkari.
Halldór Blöndal st‡r›i sínum sí›asta fundi í gær sem forseti Alflingis.
ÞINGLOK Halldór Blöndal stýrði
sínum síðasta fundi í gær, þegar
þingi var slitið, sem forseti
Alþingis. Í haust sest Sólveig
Pétursdóttir í stól forseta.
Halldór Ásgrímsson forsætis-
ráðherra lagði í gær fram þings-
ályktunartillögu um frestun þings,
svo sem venja er þegar þinghald-
inu lýkur, og lauk atkvæðagreiðsl-
um seint í gærkvöldi.
Mörg mál bíða afgreiðslu og
gerði Kristinn H. Gunnarsson,
Framsóknarflokki, starfshætti
þingsins að umtalsefni. Hann sagði
það ekki lengur í takt við tímann
að ljúka þinghaldi í fyrri hluta maí
og koma aftur saman í byrjun
október ár hvert. Hann lagði til að
þinghald stæði út júnímánuð ár
hvert og hæfist aftur um miðjan
september. „Þingið getur starfað í
þremur lotum, að hausti og í
tveimur lotum eftir áramót.“
Kristinn upplýsti að nú biðu um 30
frumvörp fyrstu umræðu, þar af
fimm sem lögð voru fram fyrir
áramót. 25 þessara frumvarpa
komu fram fyrir meira en tveimur
mánuðum og 65 umræður bíða.
Kristinn segir þingmenn vilja fá
þingmál sín rædd en til þess gefist
ekki tími. „Það er ekki gott að stór
og mikilvæg mál séu lögð seint
fram og gefinn stuttur tími til um-
ræðna og enn styttri tími til um-
fjöllunar í þingnefndum. Við þetta
verður ekki unað lengur.“
Byndís Hlöðversdóttir, Sam-
fylkingunni, tók undir orð Kristins
en gat þess að Rannveig Guð-
mundsdóttir hefði lagt fram tillögu
um að þing stæði til 15. júní og
kæmi aftur saman um miðjan sept-
ember ár hvert. Björgvin G. Sig-
urðsson, Samfylkingunni, kvað frá-
leitt að miða þingstörfin við sauð-
burð að vori og göngur að hausti.
Jóhann Ársælsson, Samfylk-
ingunni, taldi brýnt að forðast
endurflutning mála. Það mætti
gera með því að halda málum
vakandi milli þinga.
Guðjón A. Kristjánsson, Frjáls-
lynda flokknum, sagði að nú væru
126 þingsályktunartillögur óaf-
greiddar. Nauðsynlegt væri að
breyta starfsháttum þingsins til
að ná betri árangri.
johannh@frettabladid.is
Ríkissaksóknari:
Ákært vegna
Dettifossmáls
DÓMSMÁL Á mánudag var gefin út
ákæra á hendur fimm mönnum í
seinni hluta svokallaðs Detti-
fossmáls, eins umfangsmesta
fíkniefnamáls sem hér hefur
komið upp, að því er fram kemur
í staðfestingu Hæstaréttar á
gæsluvarðhaldi yfir einum
mannanna.
Þessi hluti málsins fjallar um
innflutning á tæpum 7,7 kílóum af
amfetamíni sem falin voru um
borð í Dettifossi og komu til
landsins frá Þýskalandi 19. júlí í
fyrra. Fyrri hluti málsins snýst
um tæp þrjú kíló af amfetamíni og
600 grömm af kókaíni sem reynt
var að smygla með sama skipi. Þá
tengist málinu innflutningur á
e-töflum í pósti.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins verður málið dómtekið í byrj-
un næstu viku. - óká
Ólga í Jalalabad:
Skoti› á mót-
mælendur
KABÚL, AP Fjórir Afganar biðu bana
og 71 særðist í skothríð lögregl-
unnar í Jalalabad en þar mót-
mæltu hundruð stúdenta meintu
g u ð l a s t i
bandarískra
leyniþjón-
ustumanna í
f a n g a b ú ð -
unum í Gu-
antanamo.
Tímarit-
ið News-
week skýrði
frá því í
vikunni að
leyniþjónustumenn í Guantana-
mo hentu gjarnan Kóraninum í
klósettið og sturtuðu bókinni
jafnvel niður til að ergja fangana
í búðunum. Mikil reiði og mót-
mæli gripu um sig í Afganistan
og víðar í kjölfar fregnanna. Í
Jalalabad brást lögreglan hins
vegar við með því að skjóta á
mótmælendur. ■
SPURNING DAGSINS
Gu›björn, á Ei›ur Smári
afturkvæmt til Íslands?
„Veri hann velkominn. Ferguson ætti að
skammast sín fyrir að hafa ekki keypt
þennan snilling á sínum tíma.“
Guðbjörn Ævarsson er formaður Rauðu djöfl-
anna, stuðningsmannaklúbbs Manchester United
á Íslandi. Eiður Smári Guðjohnsen skoraði mark á
Old Trafford í 3-1 sigri Chelsea á Manchester á
þriðjudag. UNGLIÐAR MÓTMÆLTU FRESTUN Telja sérkennilegt að afgreiða ekki málið þegar viljinn til
þess sé þverpólítískur.
BRÓÐIR SYRGÐUR Jamil Abdul Husain missti bróður sinn Haydar Abdul Husain í
sprengjutilræðinu í Tikrit í gær.
NORÐUR-KÓREA
KJARNORKUVOPNAFRAM-
LEIÐSLU ÁFRAMHALDIÐ Stjórn-
völd í Pjongjang lýstu því yfir í
gær að þau hefðu lokið við að
fjarlægja notaða kjarnorkuelds-
neytisstauta úr einum kjarna-
ofna sinna til að vinna úr þeim
plúton í kjarnavopn. Með þessu
þrýstir stjórnin á viðsemjendur
sína í kjarnorkumálum um að
gefa enn frekar eftir við samn-
ingaborðið.
Frestun fyrningarfrumvarps:
Svik vi› flúsundir
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
ÍRAN
RAFSANJANI BÝÐUR SIG FRAM
Móttaka framboða til embættis
forseta Írans hófst á þriðjudag-
inn en kosningar verða í land-
inu 17. júní næstkomandi.
Hashemi Rafsanjani, fyrrver-
andi forseti, hefur lýst því yfir
að hann bjóði sig fram. Hann
þykir sigurstranglegur þar sem
hann nýtur trausts bæði klerk-
anna í landinu og stórs hluta al-
mennings.
Sebastian Young:
Sakfelldur
fyrir mor›i›
DÓMSMÁL Dómstóll í Pensacola í
Flórída fann í fyrradag Sebastian
Young sekan um morð á fyrrver-
andi eiginkonu sinni, Lucille
Mosco, og morðtilraun við hálfís-
lenskan son hennar, Jón Júlíusson.
Atburðurinn varð 14. mars 2003
en þá hafði nálgunarbann verið
sett á Young. Hann braust þá inn í
íbúð mæðginana og skaut konuna
með haglabyssu. Jón náði að koma
sér út en hlaut samt talsverðan
áverka.
„Ég vil að hann fái dauðadóm,“
sagði Jón í samtali við Pensacola
News Journal eftir að dómurinn
var kveðinn upp. Young verður
annað hvort dæmdur í ævilangt
fangelsi án möguleika án reynslu-
lausn eða til dauða. - shg
ÞINGI VAR FRESTAÐ Í GÆRKVÖLDI Þingmenn, eins og Kristinn H. Gunnarsson, koma að
óbreyttu næst saman til fundar eftir 140 daga.
GUÐLASTI MÓTMÆLT