Fréttablaðið - 19.05.2005, Page 20

Fréttablaðið - 19.05.2005, Page 20
20 19. maí 2005 FIMMTUDAGUR Dreifb‡liskonur flinga Evrópuþing alþjóðasam- bands dreifbýliskvenna er nú haldið á Íslandi í fyrsta sinn. Sambandið vinnur að mannúðar- og líknarmálum og að starfi í þágu kvenna til sjálfs- hjálpar. Alþjóðasamband dreifbýl- iskvenna er meðal stærstu mannúðar- og líknarsamtaka í heiminum með um níu milljónir kvenna innan sinna vébanda. Kvenfélagasamband Íslands (KÍ) er aðili að sambandinu og stendur þessa dagana fyrir Evr- ópuþingi þess sem haldið er í fyrsta sinn á Íslandi. Yfirskrift þingsins er „Winning the way for women – the inspiration of Iceland.“ „Hér eru um 170 sterkustu konur í heiminum saman komn- ar,“ segir Helga Guðmundsdótt- ir forseti KÍ en konur frá um 30 löndum sitja þingið sem haldið er á þriggja ára fresti. Málefnin eru margvísleg að sögn Helgu. „Aðalmarkmið sambandsins er að vinna að hjálpar- og þróunar- starfi í þróunarlöndum, bæði í Asíu, Afríku og seinni árin í Eystrasalts- og Austantjalds- löndum,“ segir Helga og bætir við að allt hjálparstarfið gangi út á „hjálp til sjálfshjálpar“ þar sem peningar eru ekki látnir af hendi nema með eftirfylgni. „Stór hluti kvenna sem kem- ur að sambandinu eru bænda- konur. Margar af þeim ályktun- um sem koma fram á þingum snúast því um matvæli, gena- breytingar í matvælum og hvernig megi kenna konum í þróunarlöndum að rækta nýjar afurðir,“ segir Helga en á þing- inu munu fimm íslenskir fyrir- lesarar fræða gesti þess um kvennabaráttu á Íslandi. Þeirra á meðal eru frú Vigdís Finn- bogadóttir, Guðrún Pétursdóttir sem kynnir verkefnið Auður í krafti kvenna og Kristín Ást- geirsdóttir sem ræðir um sögu kvennahreyfingar á Íslandi. Helga segir mikinn stuðning af því að vera hluti af alþjóða- samtökum og taka þátt í þingum á þeirra vegum. „Þegar við sam- einumst lærum við svo mikið hver af annarri,“ segir Helga en þingið var sett í gær og lýkur að kvöldi laugardags. solveig@frettabladid.is Í FYRRA FÆDDUST SANDGERÐINGUM 23 BÖRN. Heimild: Hagstofan SVONA ERUM VIÐ: „Það er helst að frétta að ég átti afmæli á mánudaginn og varð þá 37 ára,“ segir Ragn- heiður Elín Clausen, nemi í bókmenntafræði við Háskóla Ís- lands og fyrrverandi þula í Rík- issjónvarpinu. Hún gengur annars ekki heil til skógar um þessar mundir. „Ég var skorin upp á mjöðm í vetur og var svo óheppin að fá sýk- ingu og hef verið dálítið lengi að jafna mig. En ég er komin til sjúkraþjálfara í endurhæfingu og er á batavegi,“ segir hún hress í bragði. Veikindin settu strik í reikninginn í skólanum og hún gat lítið einbeitt sér af bókmenntafræðinni í vetur. Ragnheiður er ekki búin að ráðstafa sumrinu en býst ekki við að sitja með hendur í skauti. „Þórunn systir mín er nýbúin að eignast dreng og mér finnst ekki ólíklegt að ég muni verja dágóðum tíma með litla frænda. Mig dreym- ir líka um að komast til Krítar eins og í fyrra. Það var æðis- legt.“ Annars gerir Ragnheið- ur ráð fyrir að fara að minnsta kosti í stuttar ferðir út á land. „Ég sest bara upp í bíl og keyri af stað. Ætli upp- áhaldsstaðirnir séu ekki Skaftafell og Snæfellsnes. Mér finnst alltaf yndislegt að koma þangað.“ Ætlar a› verja tíma me› litla frænda HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? RAGNHEIÐUR ELÍN CLAUSEN RAGNHEIÐUR GESTSDÓTTIR Ekki til nein fyrirmyndarríki HEIMSÓKN FORSETA TIL KÍNA SJÓNARHÓLL Miðja Reykjavíkur: Komin í Kópavog SKJÖLDURINN Í VIÐGERÐ Merkið hefur verið fjarlægt af heimastað sínum í Aðalstræt- inu og er sem stendur í viðgerð í Kópavoginum. „Miðja Reykjavíkur er í viðgerð núna, hún var orðin svo helvíti ljót,“ segir Guðbjartur Sigurðs- son, starfsmaður hjá Gatnamála- stjóra, þegar hann er inntur eftir því hvar skjöldurinn sem markar miðju Reykjavíkur sé. „Skjöldur- inn var sendur upp í Steinsmiðju Sigurðar Helgasonar í Kópavogin- um til viðgerðar,“ bætir Guðbjart- ur við. Það má því með sanni segja að miðja Reykjavíkur sé í Kópavog- inum þessa stundina þó hún sé væntanleg á heimaslóðir von bráðar. Annars er hún venjulega við norðurenda Aðalstrætis. - mh Á EVRÓPUÞINGI Helga Guð- mundsdóttir er forseti Kvenfé- lagasambands Íslands sem skipuleggur Evrópuþingið að þessu sinni.FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA „Ég tel mikilvægt að rækta samband við Kína, sem er svo stór hluti af heim- inum,“ segir Ragnheiður Gestsdóttir, barnabókahöfundur, sem segir nauðsynlegt fyrir lítið ríki eins og Ís- land að skapa sér jákvæða ímynd á heimsvísu. „Þótt kínversk stjórnvöld séu nú kannski ekki nein fyrirmynd, þá er það engu að síður mikilvægt fyrir Ís- land að kynna sínar hugsjónir og kynn- ast þeirra,“ segir Ragnheiður og telur samstarf á sviði menntamála sérstak- lega spennandi. „Mér finnst ánægju- legt að mennta- og menningarmál skuli vera rædd í þessari heimsókn, því þar geta Kínverjar kennt okkur margt.“ Hún bætir því einnig við að opinberar heimsóknir eigi ekki að taka mið að því hvað séu talin fyrirmyndarríki.“ Þá færum við nú í óskaplega fáar heim- sóknir held ég,“ bætir Ragnheiður við að lokum. 20-21 (24klst) 18.5.2005 19.36 Page 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.