Fréttablaðið - 16.07.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 16.07.2005, Blaðsíða 1
Blæs til hinsegin knattspyrnuleiks HEIMIR MÁR PÉTURSSON: ▲ FÓLK 46 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000     FREMUR HÆG suðvestlæg átt og rigning sunnan- og vestanlands. Bjart norðaustanlands en þar þykknar upp þegar líður á daginn og fer að rigna með kvöldinu. LAUGARDAGUR 16. júlí 2005 - 190. tölublað – 5. árgangur Hrafninn flýgur á ný Kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Hrafninn flýgur, var gefin út á DVD í vikunni með nýjum talsetningum á er- lendum tungumálum ásamt alls kyns aukaefni. Myndin á sér hins vegar nokkuð brokkgenga sögu og fæðing hennar var erfið. Hún hlaut misjafna dóma í fjölmiðlum en nú 20 árum síð- ar virðist sem myndin lifi um ókomin ár. KVIKMYNDIR 26-27 Eiði Smára hrósað Jose Mourinho, stjóri Chelsea hrósaði Eiði Smára Guðjohnsen mikið fyrir fyrsta leik liðsins á undirbúings- tímabilinu en Chelsea vann Wycombe 5–1 í vikunni. Eiður Smári er búinn að festa sig í sessi í hlutverki miðjumanns hjá ensku meisturunum. ÍÞRÓTTIR 34 Fann loksins draumabílinn HILMAR MÁNASON: Í MIÐJU BLAÐSINS ● bílar ● heimili ▲ FJÁRSÖFNUN Fjórtán hundruð kíló- metra hjólreiðaferð Eggerts Skúla- sonar til styrktar samtökunum Hjartaheill lauk síðdegis í gær þegar Eggert hjólaði síðasta spölinn til Reykjavíkur ásamt öðrum sem slógust í hópinn í Mosfellsbæ. Hann var þrjár vikur á ferð sinni um landið en víða slógust aðrir í för með honum stundakorn og gerði fé- lagskapurinn ferðina bærilegri fyrir vikið. „Ég er afar ánægður með að hafa klárað þetta og þetta gekk alveg svakalega vel þó að veð- ur og vindar hafi blásið gegn mér mest alla leiðina. Ánægðastur er ég með að hafa náð öllum þeim mark- miðum sem ég setti mér í upphafi. Hjartaheill fengu góða kynningu og við sýndum að einstaklingur getur staðið upp og haft áhrif sé vilji til þess. Svo söfnuðum við talsverðum peningum og ég er sæll og glaður þótt þreyttur sé.“ Eggert vildi koma á framfæri þakklæti og afsökunarbeiðni til þeirra bílstjóra sem töfðust þegar hann hjólaði síðasta spölinn en um- ferð gekk hægt á milli Mosfells- bæjar og Reykjavíkur. -aöe V I R K S A M K E P P N I af nammibarnum á laugardögum 50 % afsláttur VEÐRIÐ Í DAG M YN D /A P Sjávarútvegsrá›herra tekur vel í ósk stjórnar Kaupfélags Eyfir›inga um fjölgun starfa á Akureyri á vegum rá›uneytisins. Ekki ver›ur af flutningi á meginstarf- semi Fiskistofu til Akureyrar en flutningur á nokkrum verkefnum er í sko›un. RÍKISVERKEFNI Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir að stefnt sé að frekari fjölgun starfa á vegum ráðuneytisins á Akureyri en þeim hafi fjölgað fyrir norðan á undanförnum misserum. „Á þessum tíma- punkti er ekki hægt að segja til um hvaða verkefni verði unnin á Akureyri né um hversu mörg ný störf er að ræða. Þó er ljóst að uppbygging á starfsemi Rann- sóknastofnunar fiskiðnaðarins heldur áfram fyrir norðan en einnig verða fleiri kostir skoðað- ir,” segir Árni. Forsvarsmenn Kaupfélags Ey- firðinga áttu fund með Árna og Vilhjálmi Egilssyni ráðuneytis- stjóra síðastliðinn fimmtudag þar sem farið var yfir hugmyndir stjórnar KEA um flutning verk- efna á vegum ráðuneytisins til Ak- ureyrar. Ráðherra segir fundinn hafa verið gagnlegan og góðar líkur séu á að af samstarfi ráðu- neytisins og KEA verði. Niður- stöðu sé hins vegar ekki að vænta fyrr en í haust. Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga lýsti í vor yfir áhuga á að koma að flutningi opinberra stofnana og verkefna til Akureyrar og er fé- lagið tilbúið að leggja fram hund- ruð milljóna til að svo megi verða. Ein af þeim stofnunum sem KEA renndi hýru auga til var Fiskistofa og bauðst félagið til að greiða kostnaðinn við flutning megin- hluta stofnunarinnar norður. Benedikt Sigurðarson, stjórnar- formaður KEA, segir ljóst eftir fundinn með ráðherra og ráðu- neytisstjóra að ekki verði af flutn- ingi stjórnsýsluhluta Fiskistofu til Akureyrar. „Það er hins vegar hugsanlegt að fleiri verkefni á vegum Fiskistofu verði í fram- tíðinni unnin á Akureyri og við fögnum jákvæðri afstöðu ráð- herra til flutnings á verkefnum norður,” segir Benedikt. Árni segir vilja KEA til að koma að fjármögnun á flutningi verkefna á vegum ráðuneytisins norður mjög jákvæðan. „Það er af hinu góða þegar heimaaðilar hafa sett sér það markmið að skapa gott umhverfi fyrir ný störf. Slíkt liðkar til fyrir flutningi verkefna og að loknum sumarleyfum hitti ég forsvarsmenn KEA á ný,” seg- ir Árni. -kk Dæmdur í fangelsi: Karl keppti í kvennaflokki SIMBABWE Dómari í Simbabve hefur dæmt ungan mann í fjög- urra ára fangelsi fyrir að villa á sér heimildir og valda félögum sínum sálartjóni. Hann keppti í frjálsum íþróttum og vann til nokkurra verðlauna fyrir land sitt – í kvennaflokki. Samukeliso Sithole, átján ára, hefur hingað til sagst vera tví- kynja, með kynfæri bæði karls og konu. Fyrir rétti kvaðst hann hins vegar vera orðinn karlmað- ur að öllu leyti eftir að galdra- læknir bruggaði gegn honum seið í hefndarskyni. Ungi maðurinn baðst innilegrar af- sökunar á framfæri sínu og sagðist hann iðrast mjög að hafa sært félaga sína og aðra landsmenn. - shg Sjötta bókin um Harry Potter: Bi›u allt a› fjórtán tíma BÆKUR Sala á sjöttu bókinni um galdrastrákinn Harry Potter hófst á miðnætti í nótt. Fyrstu aðdáendurn- ir voru mættir fyrir utan Mál og menningu á Laugarvegi um klukkan tíu í gærmorgun og fjölgaði eftir því sem leið á daginn. „Ég var líka fyrst í röðinni þegar síðasta bók kom út og ákvað að mæta enn þá fyrr núna,“ sagði Halla Hallsdóttir, sem mætt var fyrst allra í gærmorgun. Stefnt er að því að bókin komi út í íslenskri þýðingu hinn 5. nóvem- ber næstkomandi að sögn Snæ- björns Arngrímssonar, forleggjara hjá bókaforlaginu Bjarti. Þýðandi bókarinnar hafði ekki fengið að sjá handrit bókarinnar í gær. - ht Blóðugur dagur í Bagdad: Tugir fórust ÍRAK, AP Rúmlega 30 manns, hið minnsta, létu lífið í sprengjuárás- um í Írak sem stóðu frá morgni til kvölds í gær. 111 til viðbótar særðust. Flestir létust í sjálfsmorðs- árásum og öðrum sprengjuárás- um í Bagdad, 29 að því er staðfest hefur verið. Þeirra á meðal eru sjö bandarískir hermenn, sex lög- reglumenn og þrír íraskir örygg- isverðir auk íraskra hermanna og óbreyttra borgara. Tveir banda- rískir hermenn létust í spreng- ingu nærri jórdönsku landamær- unum. Sheik Ahmed Abdul Ghafour al-Samarrai, áhrifamikill klerkur súnnímúslima, for- dæmdi árásirnar í ræðu sem hann hélt við messu í gær. ■ LÖGREGLUMAÐUR Á VETTVANGI Árásir voru gerðar víða í írösku höfuðborginni í gær. Hringferð Eggerts Skúlasonar til styrktar Hjartaheilla lokið: Sæll og gla›ur flótt flreyttur sé ÖLLUM MARKMIÐUM NÁÐ Eggert Skúlason var þreyttur en ánægður þegar hann nálgaðist Reykjavík í gær eftir þriggja vikna hjólreiðatúr um landið. Rá›herra lofar a› flytja störf nor›ur Klerkur í klípu Nánir samstarfsmenn Hans Markúss Haf- steinssonar í gegnum tíðina eru sammála um þá hlýju og alúð sem hann gefur af sér. Hann er einnig sagður mikill námsmaður. MAÐUR VIKUNNAR 44 BEÐIÐ EFTIR SJÖTTU BÓKINNI Nokkrir tugir tryggra lesenda bókanna um Harry Potter biðu tímunum saman fyrir utan Bókabúð Máls og Menningar á Laugavegi eftir því að sala á bókinni hæfist eina mínútu yfir eitt á miðnætti síðustu nótt. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.