Fréttablaðið - 16.07.2005, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 16.07.2005, Blaðsíða 31
Stjörnur sem hafa gengið um Leicester torg: Kylie Minogue ● Sienna Miller ● Gwyneth Platrow ● Reneé Zellweger og Hugh Grant ● David Schwimmer ● Tom Cruise og Katie Holmes. 7LAUGARDAGUR 16. júlí 2005 Á daginn er Leicester torg í Lundúnum alls ekki ólíkt öðrum torgum og kennileitum í stórborginni. En á kvöldin breytist Leicester torg í undrastað þar sem stærstu stjörnur heims mæta á frumsýningar á stórmyndum ársins. Það er því auðvelt mál að berja stjörn- una sína augum – það eina sem þarf eru upp- lýsingar um frumsýningar á launching- films.com, fullt af þolinmæði og auðvitað blað og penni fyrir eiginhandaráritun. Leicester torg ætti að vera fyrsti viðkomustaður þinn í Lundúnum. Kynntu þér staðinn vel svo þú verðir örugglega ekki illa svikin/n þegar stjarnan þín kemur í heimsókn. Eitt slíkt tjaldsvæði, Þakgil, er að finna 20 kílómetrum austan við Vík í Mýrdal. Hjónin Bjarni Jón Finnsson og Helga Ólafsdóttir eru umsjónarmenn tjaldstæðisins, sem er sannarlega þess virði að gista á. „Við opnuðum árið 2001 með grunnaðstöðu, en höfum verið að snyrta, sá og þökuleggja síðan. Hér er salernisaðstaða, sturta og snúrur en fólk verður að þvo í læknum,“ segir Bjarni hlæjandi. „Hér er líka rúmgóður hellir sem ég er reyndar búinn að stækka svolítið og þar inni eru bekkir og borð og kamína þannig að fólk getur yljað sér ef eitthvað er að veðri. Þarna safnast fólk oft sam- an á kvöldin, syngur og spilar og gerir sér glaðan dag.“ Bjarni hefur gert ýmislegt til að gera hellinn notalegan, eins og að hengja kerti á hellisveggina, þannig að þegar rökkvar myndast sérstök stemning í hellinum. Það er svo ýmislegt fleira hægt að gera í Þakgili. „Já, við erum með fiskilón þar sem hægt er að veiða bleikju og hér er sérlega falleg náttúra og margar skemmtilegar gönguleið- ir, margar merktar.“ Til að komast í Þakgil er ekið um það bil fimm kílómetra austur fyrir Vík og beygt til vinstri við Höfðabrekku. Skilti vísa svo veg- inn á tjaldstæðið, sem er opið fram í október eða lengur, eftir því sem veður leyfir. Tjaldsvæðið er tilvalið hvort sem er fyrir einstaklinga eða hópa. Gistingin kostar 600 krónur nóttin fyrir 12 ára og eldri. Adrenalíngarðurinn er fyrsti skemmtigarður sinnar tegundar á Íslandi. Ólíkt vélknúnum tívolítækjum sem margir þekkja byggir starfsemi garðsins á frum- kvæði og virkni þátttakenda sjálfra. Sums staðar þurfa þátt- takendur virkilega að telja í sig kjark enda samanstendur Adrenalíngarðurinn af umfangs- mikilli háloftabraut, klifurvegg, stærstu rólu landsins, svifbraut og öðrum ögrandi viðfangsefnum. „Brautin er í rauninni tví- þætt,“ segir Óskar Helgi Guðjóns- son, framkvæmdastjóri Adrena- líns. „Annars vegar erum við með svokallaða háloftabraut. Þá ferðu upp á pall og velur í hvaða þraut- ir þú ferð. Þú getur til dæmis far- ið í tólf metra háa rólu og notið út- sýnisins yfir Langjökul og Skjald- breið meðan þú rólar fram og til baka. Erfiðasta þrautin í hálofta- brautinni er átta metra hár staur sem þú þarft að klifra upp á og stökkva svo fram af. Hinn hluti brautarinnar byggir á þrautum sem byrja á jörðunni og maður ræður sjálfur hvað maður fer hátt upp á við,“ segir Ómar. Garðurinn byggir á erlendri fyrirmynd og höfðu starfsmenn Adrenalíns lengi látið sig dreyma um slíkan garð á Íslandi. „Í vetur ákváðum við að láta af þessu verða og fengum þessa lóð við Nesjavelli. Það er þýskt fyrirtæki sem byggir brautina og hér geng- ur allt út á öryggið. Brautin er byggð samkvæmt Evrópustaðli og hingað koma menn einu sinni á ári til að taka út brautina og votta hana. Starfsfólkið er líka sérstak- lega þjálfað af þýskum sérfærð- ingum. Fólk fer ekki í brautina á eigin vegum, við erum með reynda leiðsögumenn og það eru aldrei fleiri en sex þátttakendur á hvern þeirra. Fyllsta öryggis er gætt, allir eru með líflínu og hjálma og þú átt aldrei á hættu að falla til jarðar.“ Til að byrja með verður Adrenalíngarðurinn opinn fyrir almenning um helgar yfir sumar- tímann en hópar geta fengið að koma í garðinn á hvaða tíma sem er eftir pöntunum. en hópar geta komið hvenær sem er. Allar nán- ari upplýsingar um Adrenalín- garðinn og starfsemi Adrenalíns má nálgast á heimasíðunni: www.adrenalin.is thorgunnur@frettabladid.is Með stjörnur í augunum Leicester torg er ósköp venjulegt á daginn en býr yfir stjörnu- töfrum á kvöldin. Náttúran er stórbrotin í Þakgili og margar merktar gönguleiðir um nágrennið. Hellirinn í Þakgili er ævintýri líkastur en þar inni er auðvelt að gera sér glaðan dag. Notaleg tjaldstæði og stemning í hellinum Á hringveginum eru mörg skemmtileg tjaldsvæði, en stundum þarf fólk að taka á sig örlitla króka til að komast á nýja og spennandi staði. Adrenalínið fer á flug á Nesjavöllum Í dag verður opnaður nýr skemmtigarður á Nesjavöllum. Garðurinn byggist á tækjum og þrautum sem koma adrenalíninu á fulla ferð. Frítt er í garðinn milli klukkan 13 og 17 í dag. Í garðinum er gætt fyllsta öryggis. Allar brautirnar eru byggðar eftir samþykktum Evrópustöðlum og starfsfólkið hefur feng- ið sérstaka þjálfun. Staurinn er 8 metra hár. Takmarkið er að standa uppréttur efst á staurnum og stökkva síðan af honum út í loftið í frjálsu falli þangað til líflínan tekur í.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.