Fréttablaðið - 20.08.2005, Síða 33

Fréttablaðið - 20.08.2005, Síða 33
5LAUGARDAGUR 20. ágúst 2005 Á St. Andrews-vellinum í Skotlandi fara fram mörg helstu golfmót heims. Sala golf- ferða hafin Í golfferðum Icelandair og GB ferða er spilað á bestu völlum Englands og Skotlands. Sala er hafin á golfpökkum Icelandair og GB ferða. Pakk- arnir veita aðgengi að frábær- um hótelum og bestu golfvöll- um Skotlands og Englands, meðal annars St. Andrews og North Berwick. Ferðirnar eru á tímabilinu 1. október næstkomandi til 1. júní 2006 og geta viðskiptavin- ir valið um tvær eða fjórar nætur. Einnig velja ferðalang- ar sjálfir á hvaða völlum þeir spila. GB ferðir sjá um að skipu- leggja ferðirnar en verð með flugi er frá 39.900 krónum á mann í tvíbýli. Ekki eyða ferðalag- inu á klósettinu NIÐURGANGSLYFIÐ IMODIUM ER NAUÐSYNLEGT AÐ EIGA Í FERÐAAPÓ- TEKINU. Ferðaniðurgangur getur verið hvim- leiður fylgifiskur þess að ferðast til framandi landa. Erfitt er að koma í veg fyrir slíkar pestir en best er að passa vel hvað maður borðar og gæta þess að öll matvæli séu fersk og rétt meðhöndl- uð. Ef niðurgangur gerir vart við sig get- ur tekið dágóðan tíma að losna við hann. Lyfið imodium hentar vel til þess að vinna bug á niðurgangi. Það fæst í öll- um apótekum og er ekki lyfseðilsskylt. Lyfið er fljótt að virka sem er mikill kost- ur því ekki vill maður eyða sumarfríinu á klósettinu. Imodium hentar vel ef sýk- ingin er væg en ef niðurgangurinn er al- varlegur og sjúklingurinn verður mjög veikur er ráðlagt að leita læknis. Fjölgun í flugstöðinni FARÞEGUM SEM FARA UM FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR FJÖLGAÐI Í JÚLÍ- MÁNUÐI. Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríks- sonar fjölgaði um tæplega ellefu pró- sent í júlí miðað við sama tíma í fyrra, úr rétt tæpum 236 þúsund farþegum árið 2004 í rúma 261 þúsund farþega. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nem- ur rúmum átta prósentum milli ára samkvæmt vefsíðu flugstöðvarinnar. Farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgaði um tæp 26 prósent. Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um tíu prósent það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2004, eða úr tæplega 946 þús- und farþegum í tæpa 1.041 þúsund farþega. Heimsferðir bjóða upp á golf- ferð til Algarve 21. september þar sem hægt er að sækja golfskóla. Í haust bjóða Heimsferðir upp á golfferð til Algarve í Portúgal sem er eitt besta golfsvæði í Evrópu. Farið er 21. september og komið aftur 28. september. Dvalið er á Le Meridien Penina, fimm stjörnu hóteli þar sem allar aðstæður eru til fyrirmyndar. Net- verð á mann, miðað við gistingu í tvíbýli, er 119.990 krónur og inni- falið er flug, skattar, gisting með morgun- og kvöldverði, ferðir til og frá flugvelli, fimm golfhringir, golfkerra, æfingaboltar og farar- stjórn. Í ferðinni er í boði golfskóli sem kostar 24.000 krónur aukalega. Golfkennarar eru Hörður Hinrik Arnarson og Magnús Birgisson. Þeir hafa báðir verið starfandi golfkennarar og fararstjórar um árabil. Fyrir 6.900 krónur verður boðið upp á rútu og átján holu spil á San Lorenzo, sem er næstbesti golfvöllur á meginlandi Evrópu. Nánari upplýsingar um ferðina eru hjá Herði Arnarsyni í síma 898 5779 og hjá Magnúsi Birgissyni í síma 898 7250. ■ Um þessar mundir stendur yfir stór yfirlitssýning á verk- um Fridu Kahlo í Tate Modern-safninu í London. 51 ár er liðið frá andláti hennar. Verk mexíkósku listakonunn- ar Fridu Kahlo njóta sífellt meiri vinsælda, auk þess sem áhugi fólks á henni sjálfri og lífi henn- ar fer vaxandi. Að vissu leyti er nánast ógerlegt að aðskilja líf hennar frá listinni því ævi henn- ar, tilfinningar, ástir og örlög eru viðfangsefni málverka hennar. Hún birtist oft sjálf í verkum sínum og flestar mynda hennar eru sjálfsmyndir. Persóna henn- ar er mjög þekkt og ímynd henn- ar það sterk að það liggur við að það skyggi á málverkin hennar. Hún gerði um 200 myndir á með- an hún lifði en um 80 þeirra eru á sýningunni í Tate. Ásamt því eru sýndar heimildarmyndir um líf hennar og list, auk myndbrota af henni og eiginmanni hennar Diego Rivera. Yfirlit fyrirlestra og sýningartíma er að finna á slóðinni tate.org.uk. Sýningin stendur til 9. október. ■ Frida Kahlo í London Kona skoðar eitt af frægum verkum Fridu Kahlo á sýningu Tate í London. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G ET TY Golfskóli í Portúgal Mjög gott er að iðka golf í Algarve. Fátt er leiðinlegra en að verða veikur í fríinu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.