Fréttablaðið - 10.09.2005, Síða 36

Fréttablaðið - 10.09.2005, Síða 36
Bólusetningar geta verið nauðsynlegar þegar ferðast er til framandi landa. Ef þú ert á leiðinni í ferðalag skaltu athuga með góðum fyrirvara hvaða sprautur þú þarft að fá. Bólusetningarnar geta nefnilega tekið tíma og sumar bólusetningarnar þarf maður að fá með nokkrum fyrirvara.[ Búdapest – perlan vi› Dóná Í október er hægt að fara í spennandi ferðir til Búdapest, borgarinnar sem hefur upp á allt að bjóða sem ferðamenn sækjast eftir. Búdapest er sérlega falleg borg sem hefur nútímalegt yfirbragð í bland við sögulegt umhverfi, lif- andi menningu, iðandi mannlíf og endalausan glaðning fyrir bragð- laukana. Áin Dóná skiptir borg- inni í tvo hluta, Búda, sem er eldri hluti borgarinnar og stend- ur í hlíð vestan árinnar og hins- vegar Pest. Í vestari hluta borg- arinnar Búda er kastalahverfið sem gnæfir yfir borgina. Þar er að finna rústir Aquincum, hinnar fornu borgar Rómverja, fornt völundarhús sem liggur undir borgina og stórbrotinn arki- tektúr. Hið sögufræga Hetjutorg og þinghúsið sem er það þriðja stærsta í Evrópu eru á sléttunni austan megin árinnar, í Pest. Mörg minjasöfn og listasöfn eru í borginni. Ungverjar hafa getið sér orð fyrir gestrisni og góðan mat og er Búdapest sannkallað himnaríki fyrir sælkerana. Í kastalahverf- inu er hægt að gæða sér á gúllas- súpu og njóta um leið útsýnisins yfir Pest og Dóná. Matarmenning Ungverja er rík og má finna fjöl- marga veitingastaði sem bjóða upp á hefðbundna ungverska rétti en einnig úir og grúir af matar- gerð frá öllum heimshornum. Ekki spillir fyrir að verðið er ívið lægra en Íslendingar eru vanir og því auðvelt að fara á glæsileg veitingahús eins og Gundel við Hetjutorgið án þess að buddan finni mikið fyrir því. Margir veit- ingastaðir bjóða upp á lifandi tón- list og söng með matnum og er upplagt að fara á þá og njóta listar af lyst. Sumir veitingastaðir eru með miðaldayfirbragði, maturinn er borinn fram á fati og vínið í krús. Einnig er auðvelt að sækja venju- lega kráarstemningu til að kom- ast nær daglegu lífi innfæddra. Ungverski Laugavegurinnn nefn- ist Váci utca og út frá þeirri götu liggja margar hliðargötur þar sem má finna helstu merkjavör- ur. Í Búdapest er einnig að finna mikið magn af verslunarmið- stöðvum meðal annars þá stærstu í Evrópu, West End City. Einnig má finna markaði sem bjóða upp á næstum hvað sem er. Ungverjar eru þekktir fyrir vandað og fal- legt handverk, þar má nefna þjóð- búningadúkkurnar frægu, leir- vörur og handmálað postulín. Einnig má finna mikið úrval af antíkmunum. Á kvöldin hefur borgin yfir sér rómantískan blæ, tilvalið er að bregða sér í óper- una, ganga meðfram Dóná eftir sýninguna, njóta ljósanna og mannlífsins. Enn betra væri að sigla niður ána, hlýða á sígaunatónlist um leið og upplifa þá mögnuðu stemningu sem um- lykur þessa fallegu borg í miðju Evrópu. Heimsferðir bjóða upp á þriggja, fjögurra og sjö nátta ferðir til Búdapest í októbermán- uði. Uppselt er í ferðir hjá Úrval Útsýn og Plúsferðum. Meðalverð á helgarferðum til Búdapest án skatta er um 50 til 60 þúsund. Nánari upplýsingar um Búdapest má nálgast á netinu http: / /www.i i t .bme.hu/hung- ary/budapest/.■ ] Í vikunni var sögulegu hámarki náð í íslenskri laxveiði því þá voru sett aflamet í þremur ám. Þverá og Kjarrá rufu 4.000 laxa múrinn, Norð- urá skreið yfir 3.000 laxa og Selá í Vopnafirði fór yfir 2.000 fiska múrinn þegar 55 laxar komu á land á átta stangir á einum degi! Vik- an 29. ágúst til 4. september gaf 317 laxa í Eystri-Rangá sem er þreföld meðalveiði fyrir þessa viku. Til samanburðar gaf þessi vika 194 laxa í fyrra og var það þá metveiði svo þarna er fjör líka! Hins vegar eru ekki allar fréttir góðar: Flestir virðast sammála um að sjóbleikjuveiðin hafi brugðist þetta sumarið. Við heyrðum á tal tveggja manna í dag sem voru að bera saman bækur sínar og komust að sömu niðurstöðu: Sjóbleikjan lætur bara varla á sér kræla. Þeir höfðu verið í Svarfaðardalsá, Hörgá og Ólafs- fjarðará og varla fengið bein. Áður höfum við einnig skýrt frá slakri sjóbleikjuveiði í Eyjafjarðará og Vatnsdalsá. Vænir fiskar hafa verið að fást af og til í Fnjóská í allt sumar og fréttist af einum 97 sm sem tók fluguna hjá Haraldi Eiríks- syni síðasta mánudagskvöld. Landbúnaðarráðherra Guðni Ágústsson hyggst leggja fram á þingi núna í haust ný frumvörp til laga um lax- og silungs- veiði. Á heimasíðu landbúnaðarráðuneytisins má nálgast drög að öllum þessum frumvörpum og senda inn athugasemdir. Veiðimenn eru hvattir til að kynna sér málið enda mikið í húfi. Stangveiði lauk í Veiðivötnum á Landmannaafrétti 21. ágúst og er lokatalan ein sú hæsta sem þar hefur sést, eða 16.585 fiskar! Mikil bleikjuveiði hefur verið í mörgum vatnanna þetta sumarið og hífir fjöldi bleikja töluna upp, þ.e.a.s 6.818 bleikjur voru skráðar og 9.767 urriðar. Þyngsti urriðinn þetta sumar- ið var 13 pund og kom hann úr Hraunvötnum eins og oft áður. Veiðinni er nú lokið á urriðasvæðunum í Laxá en við heyrðum eina góða sögu sem gerðist rétt undir lokin. Það var Jonni flugmaður hjá Atlanta sem lenti í því í Laxárdalnum að fiskur tók fluguna – ekki stór, að honum fannst, stangarendinn bara rétt tifaði. En þegar hann fór að draga fenginn nær sér, þyngdist dráttur- inn skyndilega, og okkar maður taldi víst að slýdræsa hefði lent á urriðanum litla sem át fluguna. Jonni tók fast á móti en allt í einu var eins og urriðanum hefði vax- ið ásmegin. Þegar Jonni var við það að landa „krílinu og slýdræsunni“ sá hann hvers kyns var: Risastórt vígtennt urriðaskrímsli hafði ráðist framan að litla greyinu og sproð- rennt því í orðsins fyllstu merkingu – aðeins sporðurinn á litla urriðanum stóð út úr kjaftinum á þeim stóra. Það munaði minnstu að Jonni næði að landa báðum fiskunum, en þegar þeir sprikluðu saman í fjöruborðinu lak sá litli út úr þeim stóra, sem synti burt álíka hissa á uppákomunni og veiðimað- urinn. Meira um haustveiðina á flugur.is! Góða skemmtun. Fleiri veiðifréttir daglega og heilræði við veiðar á www.flug- ur.is; Flugufréttir koma alla föstudaga í tölvupósti til áskrif- enda á flugur.is með ítarlega umfjöllun um allt sem varðar veiðiskap í sumar. VEIÐISUMARIÐ með Stefáni Jóni Hafstein VEIÐIFRÉTTIR Í SAMSTARFI VIÐ FLUGUR.IS Veiðimet í vikunni! Sjálfsmynd af veiðimanni með feng! Opinbert tungumál: Ungverska. Flatarmál: 93.030 ferkílómetrar. Fólksfjöldi: 10.198.315 (Árið 2001). Tímabelti: UTC+1 (UTC+2 á sumrin). Þjóðsöngur: Himnusz (Isten áldd meg a magyart). Gjaldmiðill: Forinta (HUF). 100 krón- ur íslenskar eru 350 forintur. Fjarlægðir: Frá Ferihegy flugvelli til Búdapest eru 22 km, um 40-50 mín- útna akstur. Flugtími: Flug frá Íslandi til Búdapest tekur um fjórar klukkustundir. M YN D /G ETTY Kastalahverfið að kvöldiFæðingar í háloftunum FLUGFÉLÖGIN VILJA VOTTORÐ FRÁ BARNSHAFANDI KONUM Á LEIÐ Í FLUGVÉL. Flestum konum er óhætt að ferðast með flugvél milli áfanga- staða fram á 36. viku meðgöngu. Þó nefna aðrir 32. viku í þessu samhengi og enn styttri tíma ef meðgangan er ekki al- veg eins og hún á að vera. Því er best að ráðfæra sig ávallt við lækni ef lagt er upp í langferðir með bumbuna út í loftið. Þar fyrir utan setja flugfélögin ákveðnar reglur um ferðalög barnshafandi kvenna. Flugleiðir vilja til dæmis fá að sjá lækn- isvottorð frá þeim konum sem eru á síðasta mánuði með- göngu. Iceland Express gerir enn strangari kröfur og vill vott- orð frá konum frá og með 28. viku og leyfir ekki flug eftir 34. viku. Því er ljóst að hafa verður varann á og stóla ekki um of á ferðalög á síðustu vikum fyrir fæðingu. Ekki bíða eftir að kúlan verði of stór.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.