Fréttablaðið - 10.09.2005, Síða 61

Fréttablaðið - 10.09.2005, Síða 61
ist að þeim myndi ekki líka minn partur í myndinni. En þau eru enn að vitna í myndina, þannig að þetta fór allt vel.“ Uppeldi þeirra er nú líklegast mjög ólíkt þínu eigin, þú fluttir til dæmis um 20 sinnum á fyrstu 15 árum þínum. Þessi saga tekur ör- lítið á slíku óöryggi á heimilinu, gastu tengt þig eitthvað við það? „Ég held reyndar að ég hafi búið á um 30 mismunandi stöðum þegar ég var 17 ára,“ leiðréttir Depp. „Þetta var algjör bilun. Ég held að það hafi bókað haft mikil áhrif á mig sem einstakling. Enn þann dag í dag fæ ég þá tilfinn- ingu að ég verði að breyta um um- hverfi og þannig hafa börnin mín fengið að kynnast þessu örlítið líka. Við vorum ekki beint synd- andi í seðlum. Ég bjóst aldrei við því að enda á þeim stað sem ég er í dag. Ég gæti enn endað á göt- unni. Ég er frekar sáttur bara eins lengi og ég hef loft til að anda og mat á borðið fyrir mig og fjöl- skylduna. En ég var nú ekkert að velta þessu fyrir mér sérstaklega við gerð þessarar myndar.“ Af Stubbum og illa lyktandi súkkulaði Kvikmyndir Tims Burton snerta flestar á skuggahliðum lífsins, hvort sem það er í gamni gert eða alvöru. Með síðustu myndum sín- um Big Fish og nú þessari virðist hann þó vera að færa sig örlítið nær ljósinu. Hann varð pabbi fyr- ir um tveimur árum síðan og því auðvelt að ímynda sér að sá sólar- geisli hafi haft þó nokkur áhrif á sköpunargáfu hans. Gæti það verið málið, að Tim sé að mýkjast við það að hafa loksins erfingja í lífi sínu? „Já, og það að horfa á Tele- tubbies í sjónvarpinu og svona,“ segir Tim kaldhæðnislega. „Þeir gefa mér bara jákvæðara viðmót til heimsins. Ég er svo hamingju- samur maður.“ „Ég er aftur á móti í vandræð- um vegna þess að börnin mín eru að verða of gömul fyrir Tele- tubbies,“ segir Johnny. „Mig dauðlangar til þess að halda áfram að horfa á þá. Ætli ég geri það ekki bara.“ Súkkulaðið í myndinni er mjög raunverulegt að sjá, hvernig var það eiginlega að vinna heilu dag- ana með streymandi súkkulaði- fljót? „Eftir nokkra daga var fljótið byrjað að lykta ansi illa,“ segir Tim og hlær. „Ég vildi óska að ég gæti deilt því með þér. Kannski ef ég fer úr skónum? Nei, lyktin var miklu verri en táfýla.“ Ólíkt fyrri myndinni þá er að- eins einn leikari sem leikur alla Umpalumpana. Af hverju var sú ákvörðun tekin? „Það voru þrjár leiðir til þess að gera þá“, segir Tim. „Að ráða fullt af dvergum til þess að leika þá eða tölvuteikna þá alfarið eins og virðist tíðkast nú til dags. Ég vildi ekki missa mannlega þáttinn og því ákvað ég að fjölfalda einn dverg sem mér fannst líta út eins og Umpalumpi. Mér fannst það líka nægilega skrýtið til þess að það væri í samræmi við sýn höf- undarins.“ Bættuð þið þá engu við sögu- þráðinn? „Það eina sem við bættum inn í, sem var ekki í bókinni, voru at- riðin úr æsku Willy Wonka,“ segir Tim. „Við reyndum að hafa þau í anda bókarinnar. Dahl er svo stór- kostlegur rithöfundur að okkur langaði til þess að ná því. Mér fannst að ef áhorfandinn fengi ekki útskýringu á því af hverju Wonka væri svona sérvitur, þá yrði hann bara einhver furðufugl. Mig langaði samt alls ekki að rústa dularfullt yfirbragð hans. Það er svo flott við Wonka að mað- ur er aldrei viss um hvort hann sé góður eða slæmur.“ „Það var mjög gott að hafa for- tíð hans með, til þess að móta per- sónuna,“ bætir Johnny við. „Mér fannst það virkilega góð viðbót.“ Studdust þið þá ekkert við gömlu myndina? „Nei, ekki neitt,“ segir Tim. „Ég veit að mörgum finnst hún vera algjör klassík en hún hafði aldrei þau áhrif á mig. Ég bað meira að segja leikarana og hand- ritshöfundinn um að sleppa því að horfa á gömlu myndina og lesa bara bókina. Hún var því mjög viljandi hunsuð.“ Þið völduð Freddie Highmore í hlutverk Charlies. Þú, Johnny, vannst með honum áður við gerð myndarinnar Finding Neverland. Kom hann ykkur eitthvað á óvart við gerð þessarar myndar? „Hann er alveg hreinn og heið- arlegur,“ segir Depp. „Hann er bara ljúfasti og venjulegasti pilt- ur í heimi. Hann hefur ótrúlegan þroska miðað við ungan aldur. Að hafa hann á staðnum færir mynd- ina alveg bókað á æðra plan.“ „Svo hefur hann aldrei þurft að fara í fangelsi,“ segir Burton skyndilega og báðir springa úr hlátri. Einhver viðbrögð frá fjölskyldu Roalds Dahl? „Ég var meira stressaður yfir því að sýna þeim myndina en kvikmyndaverinu,“ viðurkennir Burton. „Vegna þess að þetta er barnið þeirra, þannig séð. Þau voru virkilega vingjarnleg, ekkj- an hans er virkilega góð persóna.“ Hvaða verkefni bíða þín, Johnny? „Já, ég er í smá pásu frá því að skjóta tvær framhaldsmyndir Pirates of the Caribbean. Það hef- ur allt gengið mjög vel með þær myndir og það hefur verið sér- staklega skemmtilegt starf. Seinna á þessu ári ætti svo mynd sem ég lék í um daginn, The Libertines, að koma út. Ætli það verði ekki í desember?“ En svona að lokum Tim, hver væri þinn óska gullni miði?Að hvaða lokuðu svæði myndir þú helst vilja fá aðgang? „Hmm, ég væri til í að vera í herberginu þegar Britney Spears fæðir barnið sitt!“ LAUGARDAGUR 10. september 2005 37

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.