Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.09.2005, Qupperneq 68

Fréttablaðið - 10.09.2005, Qupperneq 68
Leikhópurinn RAMT er í heimsókn hjá Þjóðleik- húsinu og sýnir íslenska verkið Að eilífu í kvöld og annað kvöld. Rússneska leikhúsið Rossisky Aka- demicesky Molodezhny Teater sótti Þjóðleikhúsið heim í vikunni til þess að setja tvær sýningar á fjalirnar. Hópurinn sýndi Kirsu- berjagarðinn eftir Anton Tsjekov á fimmtudag og föstudag en í kvöld og annað kvöld sýnir hópurinn leik- ritið Að eilífu eftir Árna Ibsen. Verkið varð á sínum tíma til í Hafnarfjarðarleikhúsinu þar sem Hilmar Jónsson leikstýrði því en uppfærsla RAMT hópsins hefur gengið fyrir fullu húsi í Moskvu í á þriðja ár þannig að það er óneitan- lega fengur fyrir Íslendinga að fá að sjá hvernig Rússarnir nálgast verkið. „Við unnum handritið frá grunni með Árna og settumst öll niður saman og sögðum sögur af samböndum, brúðkaupum. Það var mikið hlegið og Árni safnaði svo sögunum saman og skrifaði verkið upp úr þeim.“ Hilmar hefur ekki enn séð rússnesku uppfærsluna en stefnir að því að komast á sýninguna í kvöld. „Það er rosalega gaman fyrir okkur í Hafnarfjarðarleik- húsinu að listamenn á heimsmæli- kvarða skuli kjósa að vinna með verk sem varð til í okkar leikhúsi. Það var lagt upp með það í Hafn- arfjarðarleikhúsinu að vinna með ný verk og það er alltaf eitt og eitt verk sem springur út og slær í gegn víða um heim. Þetta er eitt af þeim.“ Það er eistneski leikarinn Ravio Trass sem leikstýrir þessarri uppfærslu á Að eilífu en alls eru um 60 manns mættir með honum og leikhússtjóranum Alex- ej Borodin til landsins. Þetta eru leikarar, listrænir aðstandendur og tæknifólk en undirbúningur vegna heimsóknarinnar hefur staðið yfir frá því í janúar enda að mörgu að huga þegar svo stór hópur leggur land undir fót. ■ 44 10. september 2005 LAUGARDAGUR Rússneskir gestir sýna Að eilífu Framhaldssaga um flolanda heimilisofbeldis Bókin Friðland eftir Lizu Mark- lund er nýkomin út. Friðland er framhald bókarinnar Hulduslóð þar sem sögð var saga Mariu Er- icsson, þolanda heimilisofbeldis, sem flýr land vegna ofsókna maka síns. Maria segir þar í smáatrið- um frá lífi sínu og aðdraganda of- beldisins. Anna Ingólfsdóttir, út- gefandi og þýðandi, orðar vel til- gang Hulduslóðar. „Bókin sýnir það hvað getur gerst þegar gagn- kvæm virðing fer að skekkjast.“ Ýmis samtök hafa notað bókina sem handbók fyrir fórnarlömb heimilisofbeldis. Í Friðlandi er haldið áfram að segja sögu Mariu. Þar segir frá því þegar hún fer til Suður Amer- íku og þaðan til Bandaríkjanna. Því er lýst hvernig Maria kemur sér fyrir í nýju landi og byrjar nýtt líf ásamt börnum sínum tveimur. ■ LIZA MARKLUND Þýðing á nýlegri bók eftir sænska rithöfundinn Lizu Marklund var að koma út. Hún heitir Friðland og er framhald bókarinnar Hulduslóð þar sem fjallað er á opinskáan hátt um heimilisofbeldi. M YN D /F R ED R IK H JE R LI N G RAVIO TRASS Hafði í mörg horn að líta á æfingu á Að eilífu í Þjóðleikhúsinu á fimmtu- daginn og stýrði leikurum sínum eins og röggsamur herforingi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.