Fréttablaðið - 16.10.2005, Blaðsíða 32
12
ATVINNA
16. október 2005 SUNNUDAGUR
Flugfélag Íslands óskar eftir að ráða starfsmann
til framtíðarstarfa á lager tæknideildar félagsins
á Akureyrarflugvelli.
Starfssvið:
• Umsjón með varahlutalager tæknideildar
• Móttaka og sending íhluta
• Skráning í tölvukerfi
• Aðstoð við flugvirkja við þrif á flugskýli, flugvélum o.fl.
Hæfniskröfur:
• Góðir skipulagshæfileikar, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Lipurð í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og sveigjanleiki
• Góð tölvukunnátta
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Stundvísi og reglusemi
• Iðnmenntun æskileg ásamt reynslu af lagerstörfum og skáningu í
miðlægan gagnagrunn
• Viðkomandi þarf að geta unnið vel undir álagi, vera talnaglöggur og
samviskusamur
Umsóknarfrestur:
Skriflegar umsóknir, merktar ofangreindu starfi, berist starfsmannastjóra Flugfélags
Íslands eigi síðar en 24. október nk. Rafrænar umsóknir sendist með tölvupósti á
netfangið umsoknir@flugfelag.is. Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu
félagsins, www.flugfelag.is.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-F
LU
2
98
95
1
0/
20
05
Flugfélag Íslands er arðbært,
markaðsdrifið þjónustufyrirtæki,
leiðandi í farþega- og
fraktflutningum, og þjónar
flugrekendum og aðilum í
ferðaiðnaði.
Eitt af markmiðum félagsins er
að hafa ætíð á að skipa hæfum
og liprum liðsmönnum sem sýna
frumkvæði og hafa gaman af
vinnunni sinni.
Hjá Flugfélagi Íslands starfa um
230 manns sem allir gegna
lykilhlutverki í starfsemi þess.
Starfsmaður á
tæknilager - Akureyri
www.flugfelag.is | sími 570 3030 | fax 570 3001
Sjá ennfremur: www.kopavogur.is og www.job.is
KÓPAVOGSBÆR
LAUS STÖRF
Starfsmaður óskast í fullt starf á skrifstofu
byggingarfulltrúa.
Starfssvið er m.a:
• Fundarboðun, móttaka umsókna, umsjón
með undirbúningi, fundarritun og frágangi
byggingarnefndarfunda.
• Skrifstofustörf og skjalavistun.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Stúdentspróf eða önnur sambærileg fram-
haldsmenntun æskileg.
• Almenn tölvufærni m.a.í Outlook, Word,
Excel og Power Point.
Starfsmaður óskast í fullt starf í sameigin-
lega afgreiðslu byggingarfulltrúa og bæjar-
skipulags.
Starfssvið er m.a:
• Afgreiðsla, símsvörun, ljósritun o.fl.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Almenn grunnmenntun.
• Almenn tölvufærni m.a.í Outlook, Word,
Excel.
Laun samkvæmt kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kópavogs.
Umsóknum skal skila fyrir 25. október 2005 á
skrifstofu byggingarfulltrúa og bæjarskipulags
að Fannborg 6, 200 Kópavogi.
Nánari upplýsingar um störfin veita
byggingarfulltrúi og
skipulagsstjóri
í síma 570-1450.
Stjórnmálafulltrúi
Sendiráð Bandaríkjanna óskar eftir að ráða
stjórnmálafulltrúa.
Allar nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðu sendiráðsins: www.usa.is.
Umsóknarfrestur er til 26. október 2005.554 7760
568 9400
UMSJÓN AFGREIÐSLUBORÐS
Óskum eftir samstarfi við manneskju til að sjá um
afgreiðsluborð okkar í Kringlunni, ásamt því að selja
vörur á miðpalli verslunar. Viðkomandi einstaklingur
þarf að vera jákvæður og drífandi, með ríka þjón-
ustulund og frumkvæði. Reynsla af sölumennsku
æskileg. Í boði er fullt starf eða hluta. Þyrfti að geta
byrjað sem fyrst.
Vinsamlega hafið samband við Hallgrím 893-8303
eftir helgi. Sendið okkur E-mail: elly@byggtogbuid.is
eða sendið inn umsókn: Byggt og búið, Kringlunni
4 -12, 103 Reykjavík.
Kynnisferðir ehf. óska eftir að ráða
starfsmann í 50% vinnu.
Um er að ræða létt lager- og umhirðustarf, vinnutími frá kl.
06:30-10:30, virka daga. Vinnustaður er í Umferðar-
miðstöðinni, þar sem umsóknareyðublöð fást.
Upplýsingar um starfið gefur rekstrarstjóri í síma 580-5402
eða 8600-302.
Umsóknir sendist á Kynnisferðir ehf., Vesturvör 6, 200
Kópavogi merkt „Lager“, eða með tölvupósti á netfangið
sigfus@re.is.
Umsóknarfrestur er til 20. október 2005.