Fréttablaðið - 26.10.2005, Blaðsíða 32
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005 MARKAÐURINN8
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Hólmfríður Helga Sigurðardóttir
skrifar
Árlega er mikið magn tölvubúnaðar sent til Afr-
íku og annarra þróunarlanda til notkunar á heim-
ilum, skólum og fyrirtækjum. Þegar tölvubúnað-
urinn kemur á áfangastað kemur oft í ljós að hann
er ónýtur eða of illa farinn til þess að taki því að
gera við hann. Samkvæmt umhverfissamtökum
skapar þetta gríðarleg umhverfisvandamál í
mörgum af fátækustu ríkjum heims. Stór hluti
þess tölvubúnaðar sem sendur er úr landi kemur
frá endurvinnslum í Bandaríkjunum sem fá hann
ókeypis frá fyrirtækjum sem ekki geta notað
hann lengur. Ódýrt vinnuafl í þróunarlöndunum
er svo notað við að taka hann í sundur, gera við
hann eða selja hann.
Sagt var frá skýrslu umhverfissamtakanna
sem bera nafnið „Digital rusl: Útflutningur end-
urnýtingar og misnotkunar til Afríku“ í The New
York Times. Í henni er því haldið fram að endur-
vinnslufyrirtæki stundi það að gefa ónothæfar
tölvur og búnað til þróunarlandanna. Það er gert
til þess að komast hjá því að þurfa að endurvinna
hlutina á viðeigandi og oft kostnaðarsaman hátt.
Þrátt fyrir að í skýrslunni sé fókusinn á Nígeríu í
Afríku fullyrða samtökin að ástandið sé eins í
mörgum þróunarríkjum.
Í mörgum þeim löndum sem um ræðir er tölvu-
iðnaðurinn kominn á fullt ról en enn skortir
skipulag við endurvinnslu. Það þýðir að innflutta
ruslinu er oft hent í landfyllingar þar sem eitur-
efni lekur út í jarðveginn, mengar grunnvatn og
mjög óheilsusamlegar aðstæður skapast. Oftar en
ekki eru umhverfisreglugerðir í þróunarlöndun-
um ekki eins strangar og á Vesturlöndum og lönd-
in því opin fyrir misnotkun af þessari gerð.
Bandaríkin eru eina vestræna ríkið sem ekki hef-
ur samþykkt Basel-sáttmálann sem er ætlað að
takmarka verslun með hættulegan úrgang.
Þróunarlönd að
drukkna í tölvuúrgangi
Mikill hluti þess tölvubúnaðar sem sendur
er til þróunarlandanna er ónothæfur.
Breska sjónvarpsstöð-
in BSkyB sem er í eigu
f j ö l m i ð l a r i s a n s
Ruperts Murdoch hef-
ur boðið 211 milljónir
punda, um 22,6 millj-
arða íslenskra króna, í
breska internetfyrir-
tækið Easynet. Þetta er
nýr kimi fyrir kónginn
en hingað til hefur
internetið ekki spilað
stórt hlutverk í fjöl-
miðlaveldi hans. Með
þessu harðnar enn
samkeppnin á breska
sjónvarpsmarkaðnum
en British Telecom til-
kynnti nýverið áætl-
anir um að hefja sjón-
v a r p s ú t s e n d i n g a r
gegnum breiðband.
Hlutabréf í Easy-
net tóku kipp á föstu-
dag við fréttirnar og
hækkuðu um 35 pró-
sent, í 175. Það er þó
langt í þær hæðir sem
þau náðu árið 2000 en
þá fór hluturinn upp í
2.500 og var virði fyr-
irtækisins 292 millj-
arðar íslenskra
króna. Í dag er virði
þess tæpir tuttugu
milljarðar. - hhs
TÖLVUÚRGANGUR Í FÁTÆKU HVERFI Í NÍGERÍU Skapar gríðarleg umhverfisvandamál í mörgum af fátækustu ríkjum heims.
!
"
#$
%$
%
&
! % &
%$
&
'$
(
)
* %
*
"%
$
+,-+,-./
* +,-
!
&0 .
&%
# &
# 1+
12"% +3/+ &
4$ !0563/+
$
%
# 2+78
%
#
* %
"&
"%
#
#
#
"
+,-
&
#
% %$
! $
"%
$ 0
4 1
+ 9
:;-
0!"%** <
=>
"
+,-+,-
% **$!!
%
* % "%
$
&
$
&
!
! ! (
+,-
4 1
+*
% & "&?
!0
$
<@<9- <@<A8B- 52<@<A8C- 52<@<C-<@<+D- <@<+,- <@<+;-
Evrópuráðið og enska úrvalsdeildin standa nú í deilum
vegna sýningarréttar á beinni útsendingu fótbolta-
leikja í ensku úrvalsdeildinni. Hingað til hefur
sjónvarpsstöðin BSkyB setið ein að sýningar-
réttinum en Evrópuráðið hefur nú kraf-
ist þess að samningnum verði rift
fyrir næsta samningstímabil 2007 til
2010. Þess er krafist að að
minnsta kosti tveimur sjón-
varpsstöðvum verði veittur
sýningarrétturinn á leikjum í
beinni útsendingu. Verði
deildin ekki við þessum kröf-
um má hún eiga von á málsókn
sér á hendur.
Viðræður eru hafnar milli
aðilanna en hafa ekki borið ár-
angur. Aðrar sjónvarpsstöðvar
sem vilja krækja í hlut eru
NTL-Telewest, Channel 5, BBC
og ITV. - hhs
Ósætti um sýningarrétt
Murdoch í netið
Hörð barátta um sjónvarpsáhorfendur í Bretlandi.
FJÖLMIÐLAMÓGÚLLINN
RUPERT MURDOCH
BSkyB sem er í eigu Mur-
dochs hefur boðið 211 millj-
ón pund í internetfyrirtækið
Easynet.
08-09 Markadur lesið 25.10.2005 15:27 Page 2