Tíminn - 20.09.1975, Blaðsíða 7

Tíminn - 20.09.1975, Blaðsíða 7
Laugardagur 20. september 1975. TÍMINN 7 tJtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri: Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Streingrlmur Gisla- son. Ritstjórnarskrifstofur i Edduhúsinu við Lindargöty, simar 18500 — 18306. Skrifstofur I Aðalstræti 7, sfmi 26500. — afgreiðslusimi 12323 — auglýsingaslmi 19523. Verð I lausasölu kr. 40.00. Askriftargjald kr. 800.00 á mánuði. Blaðaprent ji.f: Tvennt vinnst Sem kunnugt er, fer viðhald og viðgerðir á is- lenzku millilandaflugvélunum að miklu leyti fram erlendis. Greiða flugfélögin hundruð mill- jóna króna árlega i beinhörðum gjaldeyri fyrir þessa þjónustu. Jón Skaftason alþingismaður vakti athygli á þessu á siðasta þingi, er hann flutti þingsályktunartillögu þess efnis, að rikis- stjórnin kannaði i samráði við islenzku flugfélög- in á hvern hátt væri hagkvæmast að koma upp aðstöðu til viðgerða og viðhalds flugvéla á Kefla- vikurflugvelli. Benti þingmaðurinn á það með tölulegum upplýsingum, hversu mikinn gjaldeyri mætti spara, ef takast mætti að flytja þessa starf- semi að mestu leyti inn i landið. 1 greinargerð með tillögu sinni sagði Jón Skaftason m.a.: „Flugið er vaxandi þáttur i atvinnulifi Islend- inga. Þrátt fyrir aðsteðjandi erfiðleika nú um sinn i flugrekstrinum telja flestir, að þessi at- vinnugrein eigi sér mikla framtið i atvinnustarf- semi landsmanna. Keflavikurflugvöllur er eini alþjóðlegi flugvöll- urinn á Islandi. Erlendar og innlendar flugvélar hafa notað hann til millilendinga á flugi yfir Norður-Atlantshaf, og i sambandi við þær hefur risið upp talsverð atvinnustarfsemi þar, sem væntanlega fer vaxandi i framtiðinni. Á Keflavikurflugvelli vantar þó tilfinnanlega viðgerðar- og viðhaldsaðstöðu fyrir flugvélar, sem þarf að vera fyrir hendi á vel búnum alþjóð- legum flugvelli. Sú aðstaða, sem fyrir hendi er, er að langmestu leyti á vegum varnarliðsins og fyrir herflugvélar. Timabært er þvi að athuga, hvernig bezt verður að þessum málum staðið i framtið- inni og má minna á tvennt i þessu sambandi. í fyrsta lagi standa nú fyrir dyrum miklar framkvæmdir á Keflavikurflugvelli. Er m.a. gert ráð fyrir að skilja alveg að hernaðarflugsþjón- ustu og farþegaflugsþjónustu. Er stefnt að bygg- ingu nýrrar flugstöðvar fyrir farþegaflug á nýj- um stað á vellinum og miklum framkvæmdum til þess að búa betur að þessari starfsemi. Viðgerð- ar- og viðhaldsþjónusta flugvéla þyrfti að vera þáttur þessara framkvæmda.” Þá segir Jón Skaftason enn fremur: ,,f öðru lagi brann viðgerðarskýli Flugfélags íslands á Reykjavikurflugvelli til grunna i janú- armánuði s.l. Sú starfsemi, sem þar fór fram, er þvi á hrakhólum um sinn, og ekki vitað hvernig úr verður bætt svo haganlegast sé. Um hundrað manns, að mestu leyti lærðir flugvirkjar, störf- uðu við flugskýli Flugfélags íslands á Reykja- vikurflugvelli. Þrátt fyrir bráðabirgðaaðstöðu i flugskýli varnarliðsins á Keflavikurflugvelli til eftirlits og viðhalds Boeingvéla Flugfélags ís- lands og aðstöðu fyrir Fokkervélar félagsins i flugskýli Landhelgisgæzlunnar, er atvinnuöryggi þessarar stéttar ótryggt.” Ljóst er að framansögðu, að tvennt vinnst með tillögu Jóns Skaftasonar. í fyrsta lagi verður um stórkostlegan gjaldeyrissparnað að ræða, ef viðgerðarþjónustan verður framkvæmd innan- lands. Og i öðru lagi verður atvinnuöryggi flug- virkja tryggt og miklir möguleikar á þvi, að sú stétt eflist að mun, en á undanförnum árum hefur verið um fækkun að ræða i henni. —a.þ. ERLENT YFIRLITC Merkileg samvinna Kaunda og Vorsters Ný viðleitni til að sætta kynþættina I LOK ágústmánaðar siBastl. gerðist merkur at- burður I sögu Afriku á járn- brautarbrúnni yfir Zambezi- fljót, rétt neðan viö hina frægu Victoria-fossa. Þar hittust þá tveir helztu fulltrúar hvitra manna og svartra i sunnan- verðri Afriku, eða þeir Jo- hannes Vorster, forsætisráð- herra Suður-Afríku, og Kenneth Kaunda, forseti Zambiu. Tilgangurinn með fundi þeirra var að reyna að koma á sáttum milli minni- hlutastjórnarinnar i Rhodesiu, sem eingöngu er skipuð hvit- um mönnum, og fulltrúa hins svarta þjóðarmeirihluta þar. Þessi sáttatilraun fór út um þúfur, en fundur þessi var samt eigi að siður merkilegur og getur átt eftir að marka sögulegan áfanga I málefnum rikjanna i sunnanverðri Afriku. Þýðing fundarins fólst i þvi, að þeir Vorster og Kaunda fengu hér tækifæri til að ræðast við itarlega. Arang- ur þess á vonandi eftir að verða mikilvægur sem fyrsta spor i þá átt, að unnt verði að leysa kynþáttadeilurnar i' Suð- ur-Afrfku á friðsamlegan hátt. ÞEIR Vorster og Kaunda eiga fátt sameiginlegt annað en það, að báðir eru þeir ein- beittir talsmenn kynþátta sinna og báðir virðast hafa gert sér ljóst, að reyna verður sáttaleiö til þrautar, þótt til skamms tima hafi rikt það andrúmsloft, að öllum sátta- leiðum virtist lokað. Það eiga þeir einnig sameiginlegt, að báðir hafa verið I fangabúðum hjá Bretum vegna þjóðernis- stefnu sinnar. Vorster sat I fangabúðum Breta á heims- styrjaldarárunum sökum þess, að hann fór sem þjóðernis- sinnaöur Búi ekki dult með það, að samúð hans væri með Þjóðverjum. Þess vegna hefur þvi óspart verið beitt gegn honum, að hann væri fyrrver- andi nasisti, enda þótt samúð hans með Þjóðverjum væri sprottin af öðrum ástæðum. Kaunda sat I fangelsi hjá Bretum vegna þess, að hann barðist fyrir sjálfstæði Zambiu. En þegar þessu sleppir, eru þeir Vorster og Kaunda eins ólikir og verða má, jafnt I útliti og upplagi. Kaunda er hár vexti og spengilegur, léttur I hreyfing- um, hrifnæmur og getur illa leynt tilfinningum sinum. Það hefur iðulega hent hann aö tárfella ámannamótum. Hann fékk fyrstu menntun sina á trúboðsskóla og er enn undir sterkum áhrifum þeirra kenn- inga um mannhelgi og bræðralag, sem hann drakk i sig þar. Þar lærði hann einnig að afneita áfengi og tóbaki og öðrum slikum löstum. Vegna kenninga sinna og breytni er Kaunda talinn einn merkasti þjóðhöfðingi meðal svartra manna i Afriku, enda þótt hann hafi orðið að gripa til einræðissinnaðra stjórnar- hátta tilþess að halda riki sinu saman. Vorster er mjög þrek- vaxinn og þunglamalegur, stirðmáll og lágmæltur, og sjaldan verður á honum fund- ið, hvort honum likar betur eða verr. Hann hefur þótt þröngsýnn I skoðunum, eink- um þó i sambandi við þjóðernismál og kynþáttamál. I uppvextinum barðist hann gegn Bretum,enásíðari árum hefur áhugihansbeinzt að þvi, að tryggja yfirráð hvita kyn- þáttarins i Afriku, m.a. með sem ströngustum aðskilnaði kynþáttanna. Þegar Vorster varð forsætisráðherra fyrir nokkrum árum, var það þvi spádómur margra, að nú myndi ástandið i kynþátta- málunum enn versna. ÞETTA hefur hins vegar ekki orðið raunin. Að visu hef- ur enn orðið litil breyting inn- an sjálfrar Suður-Afriku, enda verður Vorster að fara var- lega i þeim efnum, ef hann á ekki að missa völdin I flokki sinum. En stefnan I utanrikis- málum hefur mikið breytzt. Sambúðin við svörtu ríkin, sem liggja að mestu eða öllu innan landamæra Suður- Afriku, eins og Lesotho, Svazi- landog Batswana, hefur geng- ið vel. Stjórn Suður-Afriku hefur ekki á neinn hátt reynt aö hindra valdatöku svarta kynþáttarins i Mosambik. Að Kaunda undan förnu hefur hún svo reynt að hvetja hvitu minni- hlutastjórnina i Rhodesiu til samninga við svarta meiri- hlutann þar. Vorster er vel ljóst, að þetta þrengir allt að Suður-Afriku og knýr á um stefnubreytingu þar. Hann væntir þess hins vegar, að hann geti með vissri tilhliðrun og batnandi sambúð við svörtu rlkinfengið tima og ráðrúm til þessara breytinga. INNAN flokks Vorsters munu nú margir orðið líta þessa viðleitni hans með efa- semdum. Til eru öfl þar, sem eru farin að kalla hann svik- ara. Þess vegna verður Vor- ster að fara sér hægt. Hið sama gildir lika um Kaunda. Það hefur verið álit margra forustumanna i svörtu Afriku, að málefni Suður-Afriku verði ekki leyst, nema með vald- beitingu, efnahagslegri eða hernaðarlegri. Sáttaviðleitni Kaunda mælist þvi misjafn- lega fyrir. En Kaunda vill i lengstulög treysta á friðsam- lega lausn mála ogbræðralag. Þess vegna hefur hann gengizt undir þá áhættu, að ræða við sjálfan höfuðfjandann, eins og margir svartir menn i Afriku álita Vorster vera. Samvinna þeirra Vorsters og Kaunda hefur hingað til beinzt mest að þvi, að reyna að koma á sáttum i Rhodesiu. Annað kemur á eftir. Það er vafalitið þáttur i þessari við- leitni, að Suður-Afrika sendir nú ekki fulltrúa á þing Sam- einuðu þjóðanna. Það er gert i þeim tilgangi að valda ekki auknum deilum þar. Þessi mál verða lika tæpast leyst á vettvangi Sameinuðu þjóð- anna. Þau verður að leysa heima i Afriku og þvi eru þeir Kaunda og Vorster á réttri braut, hver sem árangurinn verður. Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.