Tíminn - 14.08.1976, Blaðsíða 7

Tíminn - 14.08.1976, Blaðsíða 7
Laugardagur 14. ágúst 1976 TÍMINN 7 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri: Steimgrimur Glslason. Ritstjórnarskrifstofur f Edduhús- inu vib Lindargötu, simar 18300 —'18306. Skrifstofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreibslusimi 12323 — aug- lýsingasimi 19523. Verö i iausasöiu kr. 50.00. Askriftar- gjald kr. 1000.00 á mánuði. Blaðaprent h.f. Hvar eru mörkin? Nokkrar umræður hafa orðið um það i blöðun- um, að formaður Alþýðuflokksins hefur viður- kennt, að flokkur hans fái fjárstyrk frá flokks- bræðrum sinum á Norðurlöndum, sem nemi a.m.k. launum erindreka eða fræðslustjóra, eins og það er kallað. Rökstuðningur flokksmannsins fyrir þvi að þiggja þennan fjárstyrk er sá, að allt annað sé að þiggja fjárstyrk frá Norðurlöndunum en öðrum löndum, t.d. Bandarikjunum og Sovét- rikjunum. Við nánari athugun er þó ákaflega erfitt að gera teljandi mun á þessu. Allir slikir styrkir eru veittir til að hafa pólitisk áhrif i viðkomandi löndum. Það gildir jafnt um styrk frá Norður- löndunum og öðrum. Það er alkunnugt að Norðurlandamenn vilja ekkert siður hafa áhrif á utanrikisstefnu Islands en Bandarikjamenn og Rússar. Norðmenn telja sig t.d. miklu skipta, að hér sé herstöð á vegum Atlantshafsbandalagsins, þvi að ella aukist kröfur um, að bandalagið fái hliðstæða eítirlitsstöð i Norður-Noregi og Keflavikurstöðin er, enda væri hún óneitanlega betur staðsett þar. Hérlendis er þeim röksemd- um lika oft beitt, að það myndi skapa Norðmönn- um vandamál, ef bandariski herinn væri látinn fara héðan. Það hefur heldur ekki skort á þrýst- ing frá Noregi i sambandi við þetta mál. Það er einnig vitað, að það er Dönum áhugamál, að her- stöðin haldist hér áfram, þá þarf ekki heldur að efa það, hver er raunverulegur hugur Svia, þótt þeir séu utan Atlantshafsbandalagsins. Þeir standa hér með Norðmönnum og Dönum. Þótt Sviar játi hlutleysi i orði, hefur það aldrei farið milli mála, að samúð þeirra er miklu meira með Atlantshafsbandalaginu en Varsjárbandalaginu. Þetta viðhorf Svia kom óbeint vel i ljós, þegar kunnugt varð um óleyfilega peningaflutninga milli Sviþjóðar og Finnlands á siðasta ári, en þá voru finnskir sosialdemókratar að flytja peninga frá sænskum sósialdemókrötum, sem átti að nota i kosningabaráttu i einu helzta verkalýðssam- bandi Finnlands, þar sem kommúnistar voru að brjótast til yfirráða. Það, sem hér hefur verið sýnt, gefur giöggt til kynna, að erfitt er að draga mörkin milli póli- tiskra fjárstyrkja frá t.d. Norðurlöndunum eða Bandarikjunum. I báðum tilfellum væri styrkn- um ætlað að hafa áhrif á utanrikisstefnuna. I sambandi við fjárstyrki frá Sovétrikjunum væri þetta þó enn augljósara. I samræmi við þetta ættu islenzkir stjórnmálaflokkar að hafna öllum styrkjum erlendis frá. Viðræðurnar í Brussel Það er ljóst eftir þær könnunarviðræður, sem fóru fram i Brussel i lok siðasta mánaðar, verða engar frekari viðræður við Efnahagsbandalagið um fiskveiðimál fyrr en i október i fyrsta lagi eða eftir að Alþingi kemur saman. Þingflokkarnir þurfa lika að athuga þessi mál vel áður en lengra er haldið. t sambandi við könnunarviðræðurnar lögðu is- lenzku fulltrúarnir áherzlu á, að íslendingar eru ekki aflögufærir. Slikt er ástand fiskistofnanna. Þetta hlýtur að móta áfram afstöðu íslendinga til þessara viðræðna. Charles W. Yost: Evrópa mjakast í ótt til sameiningar Bandaríkin ættu að fagna þeirri þróun Roy Jenkins tekur senn viö formennsku i stjórnarnefnd Efnahagsbandalagsins. FYRIR tveimur öldum voru Bandariki Ameríku stofnuö á 14 árum, milli orrustunnar viö Lexington og Concorde og vigslu Washingtons forseta 1789. Enginn getur veriö viss um, aö Bandariki Evrópu veröi nokkurn timann til. Eöa, ef svo yröi, hve viötækt mundi það riki veröa. Evröpa var riki á dögum Karlamagnúsar, Hins heilaga rómverska keis- aradæmis og miöaldakirkj- unnar, en Evröpa nútimáns myndaöist ekki fyrr en á 16. öld og siðar. Fyrstu teikn þess, aö Bandariki Evrópu gæti oröiö meira en fjarlægur draumur, komust á loft meöan á seinni heimsstyrjöldinni stöð. Ann- ars vegar skipti máli, að með styrjöldinni eyddust fornar erjur og hins vegar sameinaöi óttinn viö Stalin Evrópubúa, en á þremur árum tókst hon- um aö leggja undir sig þaö sem áöur var þriöjungur Evrópu. 1958 var gerður i Rómar- borg samningur milli 6 rikja i Evrópu, sem stofnuöu Efna- hagsbandalag Evrópu. Enda þótt bandalagið sé i dag ein- ungis efnahagsleg eining, þá var það upphaflega hugsað sem visir að stjórnmálalegri, evrópskri einingu. Sá visir hefur ekki þróazt frekar. Þrjú riki i viöbót hafa fengið inngöngu I bandalagiö, og fleiri hafa margvlslega sam- vinnu viö það, en þegar evrópskir leiötogar heimsóttu Bandariki Ameriku i tilefni af 200 ára afmæli þess, þá var þaö ennþá drottning Bret- lands, forseti Frakklands. kanslari Vestur-Þýzkalands, sem gerðuþaö, en ekki forseti Bandarikja Evrópu. Samt sem áöur, þó þaö hafi ekki vakiö mikla athygli, þá var mikilvægtskrefstigiö I átt- ina til sameiningar Evrópu nýlega. Hin langvarandi deila um stærö og samsetningu þings Evrópu var aö lokum leyst. Það var samþykkt á fundi hinna niu, aö 1978 skyldi slikt þing vera kosiö, ekki af ríkisstjórnum, heldur af fólk- inu i löndunum. Evrópuþingið mun hafa 410 þingmenn, þar sem sum löndin hafa allt upp i 81 þingmann, svo sem Bret- land, Frakkland, Þýzkaland og Italia, en önnur allt niöur i 6 þingmenn, eins og Lúxem- borg. Völd þingsins munu þó enn um sinn vera takmörkuð og framkvæmdastjórar þess munu jafnvel hafa enn minni völd, en þeir veröa útnefndir af rikisstjórnum landanna tO ákveöins tima. Þó getum viö búizt viö, aö þessi völd eigi eftir aövaxa meö timanum,ef kringumstæður veröa hag- stæöar. Slikar kringumstæöur gætu komiö, ef vel áraöi I Evrópu, þannig aö friöur og framför hvettu til sameining- ar. En slikar kringumstæöur gætu einnig myndazt þótt illa áraöi, ef Evrópa yröi fyrir ut- anaökomandi þrýstingi, hvort sem hann kæmi aö austan eöa sunnan, þvi þaö gæti rekiö Evrópuþjóöirnar saman i hernaöarlega eöa efnahags- lega einingu. En þó að þróunin leiddi aö lokum til þess að hinir niu sameinist, þá eru þó milljónir af öörum Evrópubúum, sem koma til meö aö standa fyrir utan evrópska rikiö. Þaö eru riki sem eru i NATO, en ekki i Efnahagsbandalaginu: Is- land, Noregur, Portúgal, Grikkland og Tyrkland. Og svo eru til Evrópuriki, sem hafa verið útilokuð vegna stjórnmálastefnu þeirra, eins og t.d. Spánn. Eöa önnur, sem hafa sjálf útilokað sig vegna nálægðar sinnar viö Sovétrik- in, eins og Austurriki, Finn- land og Sviþjóö. Aö lokum eru þaö allar milljónirnar austur af Elbe, sem eru kúgaöar af Sovétmönnum, en þessar mill- jónir hafa öldum saman litiö á sig sem Evrópubúa og gera það enn, alveg eins og Bretar eöa Frakkar gera. Þaöættu aövera miklar lik- ur til þess, aö eftir tiu ár eöa svo, þá hafi flestar þjóöirnar I tveimur fyrri hópunum sam- einazt Svrópu, en óliklegt er aö siöasti hópurinn geri það á næstunni. Mikilvægasta spurningin er, hvort Banda- riki Evrópu, og þá hvenær þau fari af barnsaldrinum og veröi þroskuð. Fyrir 30 árum voru miklar deilur i Bandarikjunum, hvort þaö væri þeim hagstætt, aö Evrópa sameinaöist. Niöur- staöan var sú, að þaö væri hagstætt Bandarikjunum, — þ.e.a.s. Bandarikin þarfnast sterkrar, sameinaörar Evrópu, sem þeir gætu veriö i nánum samskiptum viö. Evrópa getur aldrei veriö eins sterk og hún á skiliö og þarfnast, ef hún heldur áfram aö vera skipt. Utanrikisstefna Bandarikjanna veröur aldrei i eins miklu jafvægi og eins á- hrif amikil og hún þarf, fyrr en Bandarikin hafa eignazt bandamann jafnsterkan og þau. Bandarikin ættu þess vegna aö fagna hverju þrepi, sem Evrópa tekur, i átt til samein- ingar og ættu, ef mögulegt er, að hjálpa til viö þá þróun. Þýttogendursagt: MÓL Genscher utanrikisráöherra Vestur-Þýzkalands. Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.