Tíminn - 28.06.1977, Side 3
Þriöjudagur 28. júni 1977
3
Hússar kaupa
Suðurlandssíld
Hinn 3. júni var undirritaður í
Moskvu fyrirframsamningur um
sölu á 45.000 tunnurn af saltaðri
Suðurlandssild til Sovétrikjanna,
þar af eiga 35.000 tunnur að vera
hausskorin og slógdregin sér-
verkuð sild eða svokölluð
„specialsild” og 10.000 tunnur
heilsöltuð sild. Nokkur hækkun
varð á söluverðinu frá fyrra ári.
Heildarsöluverðmæti sildarinnar
nemur unt 900 tnilljónum króna.
Tilþess að frantleiða þetta magn,
þarf rúmlega 6.200 srnál. af fersk-
sild.
1 samn.viðræðunum við hina
sovézku aðila tóku þátt af hálfu
Sildarútvegsnefndar þeir Gunnar
Flóvenz, framkvæmdastjóri,
Haraldur Sturlaugsson, útgerðar-
maður, Jón Þ. Arnason, fram-
kvæmdastjöri og Óskar Vigfús-
son, formaður Sjómannasam-
bands íslands.
Gert er ráð fyrir að siðar verði
teknar upp viðræður um viðbót-
armagn til afgreiðslu á 1. árs-
fjórðungi 1978.
A s.l. ári voru fyrirframsamn-
ingar við Sovétrikin undirritaðir i
Moskvu i september og var þá
eingöngu samið um sölu á
heilsaltaðri sild af minnsta stærð-
arflokki, en núverandi samningur
gerir ráð fyrir að Sovétmenn
kaupi sild af öllum stærðarflokk-
um.
Þá hafa þegar verið undirritað-
irsamningar um sölu á um 20.000
tunnum af sykur- og kryddsalt-
aðri sild til Finnlands. Heildar-
söluverðmæti sildar þeirrar, sem
samið hefur verið um við Finna,
nemur um 500 milljónum króna.
Tæplega 3.000 smál. af fersksild
þarf til þess að framleiða hið um-
samda sölumagn til Finnlands.
Gert er ráð fyrir að undirbún-
ingsviðræður um sölu á saltaðri
sild til Sviþjóðar hefjist i næsta
mánuði.
:e ber vexti
sti og síma
r, sem ekki fara að orlofslögum,
nn
Ósamið í
Vestmannaeyjum
— vidræöur um bónusmálin komnar i strand
að hann fær upphæð ásamt
vöxtum greidda. Var okkur
tjáð, að vanskil af hálfu vinnu-
veitanda komi ekki í ljós fyrr en
launþegi fer til Pósts og sima til
að fá orlof sitt innheimt. Hins
vegar verður i náinni framtið
tekin upp tölva hjá Pósti og
sima, sem mun geyma i minni
sinu alla orlofsgreiðendur á
íslandi og skrifa þá út mánaðar-
lega greiði þeir ekki orlofsfé á
tilsettum tima- eða alls ekki.
Nokkuð mun vera um það
þrátt fyrir allt, að atvinnu-
rekendur safni saman mánað-
arlegum orlofsgreiðslum og
greiði sjálfir út þegar fólk fer i
fri, vaxta og bótalaust. Þeim
launþegum, sem fyrir sliku
verða, má benda á að snúa sér
til Orlofsdeildar Pósts og sima,
þar sem slikt er skýlaust brot á
orlofslögum auk þess sem laun-
þeginn hlýtur af vaxtatap.
Aðeins ef atvinnurekandi bætir
launþegum með einhverskonar
viðtækari orlofsréttindum er
honum heimilt að greiða orlofs-
fé, sjálfur og milliliðalaust, til
launþegans. Þannig mun
atvinnurekanda vera heimiltað
greiða sjálfur orlofsfé sé orlofs-
prósentan öll reiknuð af
gildandi launum, þegar farið er
i fri, sem að sjálfsögðu þýðir
hærra orlof t.d. annars, þar sem
laun eru nú mun hærri en
launin voru á orlofstimabilinu.
Verðlauna-
hafar í Chi
cago-ferð
Siðastliðinn vetur efndu Flug-
leiðir h.f. og Barnablaðið Æskan
til verðlaunasamkeppni. Tvenn
fyrstu verðlaun voru ferð til Chi-
cago, en mikil þátttaka var i
verðlaunagetrauninni og u.þ.b.
helmingur svara var réttur.
Hinn 6. mai var dregið úr rétt-
um lausnum og hlutu fyrstu verö-
laun, ferð til Chicago og dvöl þar,
þeir Sveinn Asgeirsson, Hliðar-
götu 4, Neskaupstað, 12 ára, og
Einar Már Jóhannesson 11 ára,
Asgarðsvegi 13, Húsavik, Flug-
ferðir innanlands hlutu Guðrún
Harðardóttir, Austurvegi 3, Hris-
ey, Edda Elisabet Egilsdóttir,
Skólavegi 20, Fáskrúösfirði, Elin
Björnsdóttir, Hliðarvegi 43, Isa-
firði og Davið Jónsson, Hliðar-
vangi 24, Hellu, Rangárvalla-
sýslu. Bókaverðlaun hlutu Sigrún
Einarsdóttir, Tunguvegi 4,
Reykjavik, Snædis Snæbjörns-
dóttir, Lindarholti 5, Ólafsvik,
Gunnar Þ. Haraldsson, Innra
Leiti, Búðardal, Brynja Hjálm-
týsdóttir, Vallholti 32, Selfossi,
Kristin Guðjónsdóttir,
Harsdorffsveg 6b, Kaupmanna-
höfn, Kristinn Friðriksson, Vita-
stig 3, Akranesi: Gisli Rúnar
Baldvinsson, Álfaskeiði 80, Hafn-
arfirði, Guðný Hallgrimsdóttir,
Lágholti 13, Mosfellssveit, Þor-
gerður Sigurðardóttir, Kársnes-
braut 51, Kópavogi og Baldur Þ.
Guðmundsson, Skólavegi 12,
Keflavik.
Þeir Sveinn Ásgeirsson og Ein-
ar Már Jóhannesson fóru verð-
launaferðina til Chicago 30. mai
og komu aftur til Islands 3. júni.
Auk þeirra voru með i ferðinni
ritstjóri Æskunnar og blaða-
fulltrúi Flugleiða.
Meðan dvalið var i Chicago var
borgin skoðuð eftir föngum.
Hæsta bygging heims, TheSears-
Tower, var heimsótt, dagstund
eytt i skemmtigarðinum The
Great America, en nú er ár frá
þvi hann var opnaður og keppir
við Disney-skemmtigarðana. Þá
heimsóttu verðlaunahafarnir
dagblaðið Chicago Daily News og
söluskrifstofu Loftleiða, sem er á
bezta stað i borginni, við South
Michigan Avenue. Frásögn og
myndir úr Chicagoferð verð-
launahafanna mun birtst i Æsk-
unni næsta vetur.
gébé Reykjavik. — Ctskipunar-
bannið, sem nær til allra fisk-
framleiðsluafurða, stendur enn.
Samningaviðræður vegna bónus-
vinnu starfsfóiks i frystihúsum
eru komnari strand, og nýr fund-
ur hefur ekki verið boðaður.
Endurnýjun á samningi vegna
iöndunar úr togurum er svo til
lokið, og samningar við fiski-
mjölsverksmiðjurnar ganga vel
og verður fundur um þau mál i
dag. Fastir samningar hafa ekki
verið gerðir við fiskimjölsverk-
smiðjurnar áður. — Þannig fórust
Jóni Kjartanssyni, formanni
Verkalýðsfélags Vestmannaeyja
orð i gær, þegar hann var inntur
eftir samningaviðræðunum.
— Það eru ýmsir agnúar á
bónuskerfinu, og er þá fyrst að
telja, að það er nokkuð af fólki
sem þar er utan við. Þar á ég við
verk sem ekki er hægt að tima-
mæla, en hér er verið að flokka
menn launalega séð i annars og
þriðja flokks fólk, sagði Jón.
Þessi breytilegu störf sem hann
minntist á, eru t.d. bifreiðastjór-
ar, lyftaramenn, menn sem vinna
eingöngu i isafgreiðslu og fleiri.
— Þetta er ekki margt manna,
en okkur finnst þetta réttlætis-
mál. Félagsfundur um samninga-
málin hefur ekki verið boðáður
hjá okkur, þar sem við viljum
bera öll þessi áðurnefndu atriði
upp i einu, sagði Jón. — út-
skipunarbannið i Vestmannaeyj-
um hefur staðið í tæpa viku, eða
frá 22. júni s.l., og er litið farið að
gæta enn. Það mun þó hafa meiri
áhrif eftir þvi sem lengra liður.
Álafoss skuldar öryrkj-
um vinnulaun siðan í
marz, aprfl og maí í vor
SJ-Reykjavík. Eftir áramótin i
vetur fengu ibúar háhýsa
öryrkjabandalags islands við
Hátún og fleiri öryrkjar atvinnu
við frágang á treflum, sem
Alafoss h.f. framleiðir til út-
flutnings. Þegar flest var vann
um 50 manns við frágang á
treflunum. Mikil óánægja hefur
verið meðal öryrkjgnna að
undanförnu vegna seinagangs
og vangreiðslu Álafoss fyrir
vinnu þessa. Eiga sumir
öryrkjarnir eftir að fá greitt
fyrirþá vinnu sem þeir inntu af
hendi i april. Guðni Runólfsson
hjá Alafossi hefur þó sagt
blaðinu, að hluti þess sem
öryrkjarnir eiga inni verði
greitt i dag. Þrátt fyrir þessar
vangreiðslur eru sumir
öryrkjanna óánægðir með að
hafa enga vinnu haft siðan i
júnlbyrjun, en siðan þá hefur
enginn verið til að sjá um
dreifingu á treflunum.
Svava Sigurgeirsdóttir, ein
ibúanna i húsunum við Hátún,
lét i ljósi við Timann mikla
óánægju með viðskiptin við Ála-
foss. — Ég vann 1097 trefla i
marz og april. 24 af þeim voru
taldir ónýtir og þar að auki fékk
ég ekki borgun fyrir 42 trefla.
-
Ég á einnig eftir að fá borgun
fyrir mai, en þá vann ég um 1000
trefla. Égá sennilega um 60.000
kr. inni hjá Álafossi.
Þá greindi Svava Sigurgeirs-
dóttir okkur frá þvi að öryrkjar
hefðu ekki fengið greitt fyrir
vinnu hjá Iðntækni við fram-
leiðslu á gjaldmælum i bila og
fleira. Iðntækni varð gjaldþrota
og hefur öryrkjabandalagið
tekið við rekstrinum á tækni-
vinnustofunni, sem er á efstu
hæð i Hátúni 10. Guðmundur
Löve framkvæmdastjóri
öryrkjabandalagsins bjóst þó
við að laun fyrir vinnu hjá
Iðntækni fengjust greidd, þvi
þetta væru forgangskröfur við
gjaldþrotaskipti Iðntækni, sem
nú standa fyrir dyrum. Gissur
Guðmundsson húsvörður i
Hátúni 10 b staðfesti i gær það
sem Svava sagði um trefla-
málið. Hann annaðist dreifingu
á treflunum til öryrkjanna
ásamt tveim konum, sem voru
honum til aðstoðar. — Ég upp-
götvaði þegar i febrúar að van-
greitt var fyrir vinnuna og
fékkst það þá strax leiðrétt,
en siðan hefur ekkert gerzt i
málunum. — Það géngur iila að
fá leiðréttingu, ég talaði við for-
stjóra saumastofu Alafoss
siðast i dag og kvaðst hann ætla
að greiða þetta á næstunni,
eitthvað á morgun. Gissur
kvaðst vera búinn að gefast upp
á að annast dreifingu á
treflunum og óánægjan meöal
öryrkjanna væri svo megn að
þeir töluðu um að fara með
málið til lögfræðinga. Guðni
Runólfsson forstöðumaöur
saumastofu Álafoss við Nýbýla-
veg hafði þetta um málið að
segja:
— Þetta á sinar eðlilegu
skýringar. Þetta er nýtt kerfi
hjá okkur, sem ekki er farið að
starfa eðlilega. Aö undanfömu
hefur maðurinn, sem annast
dreifingu treflanna, verið i
sumarfrii og þá hefur einmitt
gefizt tækifæri til að yfirfara
þessa hluti.
Það er ætlunin að greiða hluta
af þessu á morgun og afganginn
á næstunni, sagði Guðni
Runólfsson i gær.
Vistmenn á öðrum
stofnunum, svo sem Klepps-
spitalanum og Hrafnistu, hafa
einnig unnið við frágang á
treflum þessum og þaðan hafa
ekki borizt kvartanir um við-
skiptin við Alafoss.