Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.04.2006, Qupperneq 76

Fréttablaðið - 10.04.2006, Qupperneq 76
 10. apríl 2006 MÁNUDAGUR28 aukaafsláttur af lítranum með ÓB-frelsi 16 stöðvar sæktu um á www.ob.is H im in n o g h af / SÍA FRÉTTIR AF FÓLKI Daniel Radcliffe verður væntanlega nýjasta viðbótin í þáttaröð Ricky Gervais, Extras, en þættirnir fjalla um aukaleikarann Andy Millman sem er að reyna að slá í gegn á hvíta tjaldinu. Hefð er fyrir því að stórstjörnur birtist í þáttununm og var Radcliffe að vonum spenntur yfir þessu nýja tækifæri sínu. „Ég var svo uppveðraður eftir að hafa fengið símtalið frá Gervais að ég sofnaði ekki um nóttina,“ sagði unglingastjarnan. „Ég veit ekkert hvernig mitt hlutverk verður en það verður spennandi að fá að takast á við eitthvað nýtt,“ bætti Radcliffe við. Leikstjórinn Peter Jackson ætlaði sér að gera gamanmynd um hina risavöxnu górillu King Kong en kvikmyndaverin réðu honum frá því. Kvikmyndin, sem hafði verið níu ár í vinnslu, sló rækilega í gegn í fyrra en Jackson vildi fyrst hafa hana farsakennda í stað ógnvekjandi eins og raunin varð. Engu að síður er leikstjórinn himinlifandi yfir því að hafa horfið frá þessari hugmynd sinni vegna þess að hann gerði sér grein fyrir því að gaman- mynd um stóran apa gengi væntanlega ekki jafn vel.. „Uppphaflega var handritið skrifað með gamanleik í huga en þegar ég lít til baka sé ég að það var rétt hjá okkur að hverfa af þeirri braut.“ Ferill leikkonunnar Siennu Miller gæti verið í hættu en ljósmyndari Vanity Fair festi á filmu frekar vafasama hegðun hennar í teiti eftir Óskarsverðlaunin nýverið. Myndirnar birtast í maíhefti tímaritsins og gætu skaðað leikkonuna meira en margan grunar. Umrætt teiti var mest sótt af valdamikl- um framleiðendum sem sáu leikkonuna haga sér eins og óð væri. Breska blaðið The Mail on Sunday hefur eftir einum heimildarmanni að þrátt fyrir að Holly- wood sé glys og glamúr fylgist menn vel með hegðun ungra stjarna og í þessu umrædda teiti hafi Miller farið yfir strikið. „Þetta eru hrein og klár viðskipti og stúlka sem vill gera það gott á þessum vettvangi á ekki að hegða sér svona,“ hefur blaðið eftir heimildarmanni sínum. Á myndunum má sjá Miller í léttum leik við leikkonuna Töru Summers auk þess sem hún var víst óhrædd að bera sig fyrir framan gestina. Ellismellirnir í Rolling Stones gerðu allt brjálað í Sjanghæ þegar þeir spiluðu á sínum fyrstu tón- leikum í Kína. Sveitin er nú á tón- leikaferðinni A Bigger Bang og hóf herlegheitin með Start Me Up við mikil fagnaðarlæti. Þrjú ár eru síðan sveitin frestaði tónleikum í Peking og Sjanghæ vegna óláta í landinu en nú gekk allt sem skyldi. Kínversk stjórnvöld höfðu reyndar töluverð afskipti af tón- leikunum og bönnuðu Stones meðal annars að flytja fimm lög, þeirra á meðal Brown Sugar, Honky Tonk Women og Let‘s Spend the Night Together, vegna kynferðislegra tilvísana í texta þeirra. „Rollingarnir“ voru ekkert að styggja yfirvöldin og fylgdu eftir tilskipan þeirra. Mick Jagger sagði á blaðamannafundi að þeir hefðu búist við þessu en verið algjörlega áhyggjulausir. „Við eigum sem betur fer fjögur hundr- uð lög til að spila,“ sagði hann. Kínverski rokkarinn Cui Jian fékk að spila með sveitinni í lag- inu Wild Horses en hann varð nokkurs konar þjóðhetja meðal kínverskra námsmanna því lög hans urðu eitt af einkennismerkj- um uppreisnarinnar á Torgi hins himneska friðar. „Þetta er bylting fyrir unnendur rokksins í Kína og sjálfan mig,“ sagði hann við frétta- vef BBC. „Þetta var stór stund og ég mun aldrei gleyma henni,“ bætti hann við. ■ Steinarnir rúlluðu í Sjanghæ ROLLING STONES Trylltu lýðinn í Peking og fylgdu eftir ábendingum frá kínverskum stjórn- völdum um að spila ekki viss lög. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES Helga Guðjónsdóttir úr Fjölbrauta- skóla Vesturlands bar sigur úr býtum í Söngkeppni framhaldsskól- anna sem var haldin í beinni útsend- ingu Ríkissjónvarpsins í fyrra- kvöld. Helga söng lagið Vegas, eða Ruby Tuesday sem rokksveitin The Rolling Stones gerði frægt á sínum tíma. Í öðru sæti varð Greta Mjöll Samúelsdóttir úr Menntaskólanum í Kópavogi og í því þriðja lenti Arn- dís Ósk Atladóttir úr Fjölbrauta- skólanum í Vestmannaeyjum. Helgi Sæmundur Guðlaugsson úr Fjöl- brautaskóla Norðurlands vestra vann SMS-vinsældakosninguna. Alls tóku tónlistarmenn úr tólf framhaldsskólum þátt í úrslitunum en í undanúrslitunum kepptu efni- legir listamenn úr um þrjátíu fram- haldsskólum landsins. ■ Helga sigurvegari kvöldsins SIGURVEGARINN Helga Guðjónsdóttir tryggði sér efsta sætið með því að syngja lagið Vegas fyrir hönd Fjölbrautaskóla Vesturlands. MYND/ÓMAR FYRRI SIGURVEGARAR Sigurvegararnir frá keppninni í fyrra tróðu upp við mikinn fögnuð viðstaddra. ANNAÐ SÆTIÐ Greta Mjöll Samúelsdóttir úr MK lenti í öðru sæti í keppninni í fyrrakvöld.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.