Fréttablaðið - 12.06.2006, Side 13

Fréttablaðið - 12.06.2006, Side 13
MÁNUDAGUR 12. júní 2006 13 410 4000 | landsbanki.is Í SL EN SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S L BI 3 30 53 06 /2 00 6 Í SL EN SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S L BI 3 30 53 06 /2 00 6 Tryggðu þér miða á betra verði á landsbankadeildin.is eða ksi.is mán. 12. júní kl. 19:15 fim. 15. júní kl. 19:15 fim. 15. júní kl. 19:15 fim. 15. júní kl. 19:15 fim. 15. júní kl. 19:15 lau. 10. júní kl. 16:00 mán. 12. júní kl. 19:15 mið. 14. júní kl. 19:15 mið. 14. júní kl. 19:15 Fylkir - Keflavík Grindavík - Valur ÍA - Breiðablik FH - ÍBV KR - Víkingur KR - Valur Breiðablik - Þór/KA Keflavík - FH Fylkir - Stjarnan 5. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KVENNA 7. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KARLA STÓRNMÁL „Okkur er mikil alvara í því að ríkisstjórnarsamstarfið gangi upp,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálf- stæðisflokksins og menntamála- ráðherra, eftir stjórnarbreyting- arnar í gær. Spurð hvort sjálfstæðismenn sættu sig við að Framsókn færi með utanríkis-, viðskipta-, og umhverfisráðuneytin, þá mála- flokka sem eru sagðir verða í brennidepli fyrir næstu alþingis- kosningar, svaraði hún að ekki skipti máli hvor flokkanna bæri ábyrgð á hverju ráðuneyti heldur að unnið væri að góðum málum innan þeirra. Sjálf liti hún svo á að lykilmálin næstu þrjú árin væru efnahags-, öldrunar- og menntamál. Forsætisráðherra leiði ríkisstjórn- ina í efnahagsmálum almennt. Hún segir ekki ósanngjarnt að láta umhverfisráðuneytið aftur í hendur Framsóknarflokknum þrátt fyrir innanflokksdeilur og fylgi- stap í sveitarstjórnarkosningunum: „Við sjálfstæðismenn höfum sinnt þessu þannig að við nýtum okkur ekki það að allt skuli vera með döprum hætti hjá Framsókn. Við settum fram þá kröfu á sínum tíma að fá mann í skiptum fyrir forsæt- isráðuneytið og því hlustum við á þá kröfu þegar hún er sett fram af hálfu framsóknarmanna.“ - gag Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir ekki ósanngjarnt að umhverfisráðuneytið fari til framsóknarmanna: Alvara í að láta samstarfið ganga upp MENNTAMÁLARÁÐHERRA Í FJÖLMIÐLUM Þorgerður Katrín segir lykilmálin fyrir næstu ár verða efnahags-, öldrunar- og menntamál. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segist sátt- ur við þær breytingar sem ákveð- ið hefur verið að gera á ríkis- stjórninni. „Ég á ekki von á því að það verði miklar breytingar á starfi ríkisstjórnarinnar, þrátt fyrir að inn í hana komi nýtt fólk.“ Aðspurður sagði Guðni mikinn feng í Jóni Sigurðssyni seðla- bankastjóra, þar sem hann kæmi inn í ríkisstjórnina með reynslu sem væri dýrmæt. „Jón Sigurðs- son þekkir vel til efnahagsmála og kemur eflaust með nauðsynlega varúð vegna verðbólgunnar inn í sitt ráðuneyti,“ sagði Guðni. - mh Guðni Ágústsson: Bjartsýnn á gott gengi GUÐNI ÁGÚSTSSON LANDBÚNAÐARÁÐ- HERRA FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR STJÓRNMÁL „Það skiptir miklu máli fyrir okkur að halda traustum tökum um forsætisráðuneytið,“ sagði Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra í Valhöll í gær eftir að ráðherraskipti í ríkisstjórninni höfðu verið tilkynnt. Hann sagði annað óhjákvæmilegt. „Þetta er samkomulag sem hefur orðið og ekki annað um það að segja,“ sagði Sturla. Sjálfur ætli hann að halda áfram í stjórn- málum. „Það er ekkert annað uppi á teningnum.“ - gag Sturla Böðvarsson: Sáttur enda það eitt í boði STURLA BÖÐVARSSON Samgönguráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI BYGGÐASTOFNUN Tap af rekstri Byggðastofnunar var 272 milljón- ir á síðasta ári og er það hundrað milljónum króna minna en árið 2004, samkvæmt því sem kemur fram í ársskýrslu stofnunarinnar. Í skýrslunni kemur einnig fram að eignarfjárhlutfall Byggðastofn- unar hafi verið 8,2 prósent en það er 0,2 prósentustigum fyrir ofan lágmarks eignarfjárhlutfall sam- kvæmt lögum. - eö Rekstur Byggðastofnunar: 272 milljóna króna tap BANDARÍKIN, AP Borgarstjórn Ont- ario-borgar í Kaliforníu í Banda- ríkjunum vill láta setja takmörk á hvað segja má í ræðustól, eftir að prestur nokkur sagðist vera að leggja bölvun á borgarstjórann og fjölskyldu hans. „Þetta kom illa við mig,“ sagði John Anderson, sem situr í borg- arstjórn. „Ekki svo að skilja að ádeilur á (borgarstjórann) séu neitt til að uppveðrast yfir, en þetta fór fram úr öllu því sem getur talist til gagnrýni.“ Anderson bað því lögmann borgarinnar að stöðva fólk sem færi um víðan völl í ræðum. - smk Vilja takmarka ræður: Prestur bölvar borgarráði

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.