Tíminn - 17.02.1978, Blaðsíða 3

Tíminn - 17.02.1978, Blaðsíða 3
Föstudagur 17. febrúar 1978 lidliiii 3 Yfírlýsing frá blaðaútgefendum Hérfer á eftir greinargerö frá blaöaútgefendum vegna fram- kominnar fréttatilkynningar frá Blaöamannafélagi tslands, þar sem augljóst er aö meginregla blaöamanna um hlutlaust fréttamat hefur ekki veriö í heiöri höfð viö samningu henn- ar. Meginkrafa blaöamanna er sú, að algjörir byrjendur i blaðamennsku verði á sömu kjörum og margreyndir og/eða velmenntaðir fréttamenn Rikis- útvarpsins. Mætti likja þessu við að iðnnemi á fyrsta ári ætti að fá sömu laun og iðnmeistari. tJtgefendur hafa boðið, að blaðamenn er hafa sambæri- lega starfsreynslu og/eða menntun og fréttamenn Rikis- útvarpsins njóti sömu kjara. Þessu hefur Blaðamannafélag íslands hins vegar hafnað, m.a. i þvi formi að neita algjörlega að taka nokkurt tillit til mennt- unar er skipa skal i launaflokka. Annað veigamikið atriði i þess- um samanburðier það^aðblaða- menn njóta sérstakra friðinda umfram fréttamenn, sem nema i dag milli 14 og 20 þúsund kr. á mánuði. Þessi friðindi vill Blaðamannafélagið ekki meta. Er ekki náðist samkomulag milli aðila i' sérstakri nefnd út- gefenda ogblaðamanna var að- ilum heimilt að segja upp gild- andi kjarasamningi. Blaða- mannafélag Islands notfærði sér þennan rétt og sagði upp samningi aðila frá og með 24. janúar s.l. Eins og venja er til er slikt á- stand skapast þá lagði Blaða mannafélagið fram ýmsar kröf- ur. Auk ýmissa friöindakrafna og annarra sérkrafna voru lagðar fram kaupkröfur er námu allt að 105% hækkun launa frá þvi sem nú er. í þessu sambandi er rétt að taka fram aö launaþróun blaðamanna á timabilinu 1. desember 1976 til 1. desember 1977 nemur um 47-48% hækkun launa meðan launataxtar prentara dagbiaða hafa hækkað milh 52-56% á sama timabili og meðaltals- hækkun launataxta ASI félaga i heild nemur um 60%. Vöntunin nemur þvi milli 5,7-8,4%. Sið- asta tilboð vinnuveitenda sam- svarar 6.5% hækkun launa en gagnboð blaðamanna eru nú upp á um 91.%, Heildarhækkun launa á eftir þsssu að dæma að vera um 182% fyrir blaðamenn meðan hækkun launataxta ASI nemur um 60%. Til að itreka enn frekar kröfur sinar hefur Blaðamannafélag íslands kvatt félags sina til ó- löglegs yfirvinnubanns og hófst það þann 14. febr. s.l. Að lokum er rétt að taka fram að samningsvilji blaðamanna hef- ur um nokkurt skeið verið i al- gjörulágmarki og þvi vart von á' lausn meöan óbreytt ástand rik- ir. Hérfylgja meö kröfur blaöa- manna þannig aö lesendur geti sjálfir dæmt um hversu rétt- mætar og „hógværar” kröfur Blaöamannafélagsins eru. Blaðaútgefendur Tillögur Blaðamannafélags Islands til Félags blaðaútgef- enda, útgáfufélags Þjóðviljans og Dagblaðsins hf. um breyt- ingar á kjarasamningi aðil- anna, sem fallinn er úr gildi. 1. Við 1. grein samningsins verði gerð sú breyting, sem til- greind er á fylgiskjali 1 við til- lögur þessar. Greiða skal verð- lagsuppbót að fullu á laun sam- kvæmt samningi frá 1. júli 1977. 2. Við þriðju grein þriðja lið komi talan 50% i stað tölunnar 36%. I fjórða lið sömu greinar komi talan 100% i stað 85% sem er greiðsla fyrir aukavinnu og i stað tveggja klukkustunda út- kalls komi minnst fjórar stund- ir. Siðan skal eftirfarandi bæt- ast viö fjórða liðinn: öll yfir- vinna, sem unnin er á stórhátið- um (nýársdag, föstudaginn langa, páskadag, hvitasunnu- dag, 1. mai, 17. júni, jóladag, eftir klukkan 12 á hádegi að- fangadag jóla og gamlársdags) greiðist með tvöföldu yfir- vinnuálagi. Standi blaðamaður svokall- aða gæzluvakt utan sins vinnu- tima, þ.e. ikallfæri við sima t.d. um helgar,, fær hann fullt vaktaálag fyrir þann tima og ef til útkalls kemur fær hann yfir- vinnuálag i samræmi við ofan- greind skilyrði. Hafi starfsmaður ekki fengið samfellda hvild i a.m.k. 8 klukk- ustundir vegna yfirvinnu eða ýmiskonar útkalla, ber honum átta klukkustunda hvild frá þvi útkalli eða yfirvinnu lýkur og þar til hann mætir til reglu- bundinnar vinnu á ný án skerð- ingar á þeim reglubundnu laun- um sem starfsmaður hefði feng- ið greidd. Fáist ekki tilskilin hvild greiðistyfirvinnukaup auk hinna reglubundnu launa (dag- vinnu, vaktaálags ogyfirvinnu) sem hann hefði fengiö greidd. Þeir sem vinna vaktir skulu i vikuhverrifá tvo samfeilda fri- daga þannig að næturfri komi fyrir og eftir fridagana. 3. Fjórða grein hljóðaði svo: Útgefendur greiði fullt fasta- gjald heimasina félaga i BI. Auk þess greiði þeir 220 umfram- skref á ársfjórðungi. Þá greiði útgefendur einnig afnotagjald útvarps og sjónvarps eftir eitt áristarfi. „Litsjónvarpsafnota- gjöld” skulu greidd þar sem um slikt tæki er að ræða. Þessu til viðbótar greiði útgefendur krónur 2400 á mánuði upp i sima-, útvarps-og sjónvarpsaf- not til allra félaga i BI. Greidd sé ársf jórðungslega á- skrift sex heimsendra dagblaða fyrir félaga i Bí. 4. Akvæði samningsins um sumarleyfi blaöamanna, sem er að finna i sjöundu grein skulu breytastá þann hátt, að sumar- leyfi sé minnst 27 dagar (orlofs- dagar). Eftir fimm ára starf verði orlofsdagarnir 30, eftir 10 ára starf 33 og eftir 15 ára starf 36. Sé sumarorlof tekiö á timabil- inu 1. október til 31. mai kemur á það 50% álag. Samsvarandi hundraðshluti fyrir orlof á yfir- vinnu verði reiknaður út. Laugardagur reiknist ekki sem orlofsdagar i orlofi. Enn- fremur veröi eftirfarandi breyt- ing gerð á sjöundu grein : Blaða- menn, sem unnið hafa óslitiö i fimm ár eða lengur á islenzkum fjölmiðlum, skulu að loknu fimm ára starfi fá þriggja mán- aða fri auk orlofs á fullum laun- um hjá þeim vinnuveitanda sem hann starfar hjá þegar frlið er tekið. 5. I áttundu grein verði eftir- farandi breyting gerð: Þá skulu félagar i Bt, sem hafa verið eitt ár i samfelldu starfi hjá sama blaði fram að fæðingu barns þeirra, fá þriggja mánaða fri á fullum launum, enda haldi þeir áfram störfum að féii loknu hjá sama vinnuveitanda I a.m.k. eitt ár. Fyrri hl. 8. greinar breytist einnig á þennan hátt: Veikist blaðamaður, sem oröinn er full- gildur félagi i BI,langvarandi á hann rétt á fullum launum á dagvinnukaupi i fimm mánuði og hálfum launum I næstu fimm mánuði þar á eftir haldist veik- indin. Blaðamaður sem unnið hefurifimmáreðalengur árétt á sex mánaða launum og hálf- um launum aðra sex mánuði, haldist veikindin. Blaöamaður, sem unnið hefur i 10 ár eða leng- ur á rétt á átta mánaða launum og hálfum launum i aðra átta mánuði, haldist veikindin. 6. Við tiundu grein bætist: At- vinnurekendur greiði upphæð sem nemur 2% af öllum launum félaga iBI i Eftirmenntunarsjóð Blaðamannafélags Islands. 7. Við tólftu grein bætist: Blaðamannafélag Islands fái afrit af greiðslukvittunum tryggingarfélaganna vegna ferða- og slysatrygginga félags- manna. 8. Ný grein komi sem 14. grein, og númeraröð greina þar á eftir hækki samsvarandi. Greinin hljóði svo : Atvinnurek- endur taka að sér að greiða árs- gjöld félaga i BI samkvæmt lög- um félagsins. 9. Núverandi 14. grein breytist þannig: Stjórn B1 er heimilt að fyrirskipa meðlimum þess að leggja niður vinnu hjá atvinnu- rekenda, sem dregið hefur að greiða i lifeyrissjóð, menn- ingarsjóð, orlofsheimilasjóð, eftirmenntunarsjóð og ársgjöld félaga I tvo mánuði eða lengur. Þetta skal þó aðeins gert að beiðni stjórnar sjóðanna og stöðvunin tilkynnt með mánað- ar fyrirvara. 10. Núverandi 15. grein hljóði svo: Samningur þessi gildir frá 1. júli 1977 til 1. marz 1979. 11. Núverandi 17. grein hljóði svo: Handritalesarar og próf- arkalesarar á blööum skulu fá sömu laun og blaðamenn sam- kvæmt fyrstu grein samnings- ins. 12. Núverandi 18. grein hljóði svo: Allir fastráönir starfsmenn sem stunda blaðamennsku. ljós- myndun, handrita-og prófarka- lestur og útlitsteiknun, skulu gerast félagar i BI. Fyrir fast- ráðna félaga 1 BI skal uppsagn- arfrestur útgefandans vera jafnlangur i mánuðum og starfsaldur i árum, þó ekki lengri en 12 mánuðir, nema hvað uppsagnarfresturinn skal aldrei vera styttri en þrir mán- uðir. Uppsagnarfrestur félaga i B1 skal vera þrir mánuðir. 13. Inn I samning skuli koma ákvæði um að útgefendur sjái félögum i Bí fyrir mat, ef þeir standa vaktirá matmálstimum. 14. 21. grein hljóði svo: Trún- aðarmaður BI á hverjum vinnu- stað skal m.a. hafa þau réttindi að eigi er heimilt aö ráða nýjan blaðamann án hans vitundar né segja upp blaðamanni. Trúnað- armaður félagsins skal vera fulltrúi i stjórn þess fyrirtækis sem hann starfar hjá, með til- lögurétt og málfrelsi. 15. Inn i samninginn komi á- kvæði um greiðslu fyrir afnot fyrirtækis af tækjum starfs- manna, svo sem bilum, ljós- myndavélum og segulböndum. 16. Inn i samninginn komi á- kvæði um greiðslu 50% álags þegar menn þurfa að gegna tveimur störfum samtimis t.d. þegar blaðamaður þarf auk skrifa sinna að annast ljós- myndatökur og öfugt (þ.e. þeg- ar ljósmyndarar þurfa að skrifa). 17. Blaðamannafélag tslands áskilur sér allan rétt til frekari tillögugerðar i þessum samningum. Blaðamannafélag tslands gerir tillögu um að laun blaöa- manna verði svohljóðanu. frá 1. júli 1977; Mánaðarlaun Arslaun A fyrsta 2. fl. 3. fl. 2. fl. 3. fl. starfsári 225.275 234.737 2.703.300 2.816.844 Eftir lár 230.584 240.269 2.767.008 2.883.228 eftir2ár 271.619 283.027 3.259.428 3.396.324 eftir4ár 278.415 290.108 3.340.980 3.481.296 eftir6ár 285.179 297.157 3.422.148 3.565.884 eftirSár 292.038 304.304 3.504.456 3.651.648 eftir 10 ár 297.120 309.599 3.565.440 3.715.188 eftir 12 ár 307.929 320.862 3.695.149 3.850.344 eftir 15 ár 317.168 330.480 3.806.016 3.965.760 Hinn 1. desember 1977 hækki allir mánaðalaunataxtar um 4,3%, hinn 1. júni 1978 um 4,1% og hinn 1. september 1978 um 3,2%, hinn 1. desember 1978 um 5% og hinn 1. febrúar 1979 um 5%. Ritstjórnarfulltrúar og fréttastjórar taka laun samkv. 4. flokki sem séu a.m.k. 20% hærri en 3. fl. Ritstjórar taki laun sem séu a.m.k. 40% hærri en 3. fl. Fjárráðin árið 1977: Fjórföldun innflutn- ings sjónvarpstækja — Nær helmingi fleiri bifreiöar, 70 þúsund manns með sex milljarða úr bönkum i utanferðum JS — A árinu 1977 gætti mjög hinna batnandi lifskjara i land- inu. A árinu voru flutt inn rúm- lega 8.800 sjónvörptil landsins, og var það u.þ.b. fjórföldun sjón- varpsinnflutnings ársins á undan. Hvorki meira né minna en 97% af innfluttum sjónvörpum á árinu 1977 voru litasjónvörp. Innflutningur bifreiða jókst hátt i það um helming á árinu 1977 miðað viö árið áður. Mest var flutt inn af einkabifreiðum enda er talið að flutninga- og vörubif- reiðir hafi dregizt nokkuð aftur úr i innflutningnum, en þar er um atvinnutæki að ræöa. Alls voru 7.563 bifreiðir keyptar til lands- ins á árinu 1977. Það sem þó sýnir hag lands- manna hvaö bezt, eða þá ráðdeild sem einkenndi ráöstöfun tekn- anna, er að á árinu 1977 fóru hvorki fleiri né færri en 70.000 landsmenn utan, og flestir þeirra i orlofs- eða skemmtiferðir. Haföi utanferðum Islendinga fjölgaö um u.þ.b. ellefú þúsundir frá ár- inu áður. Þeir Islendingar sem ferðuðust til útlanda á siöasta ári keyptu i bönkunum gjaldeyri fyrir tæp- lega sex milljaröa króna, sem er næstum þvi helmingi meira en hafði verið á árinu áöur. Þegar 'litið er á uppruna þessara tæpu sex milljarða má hafa það i huga að launatekjur nema u.þ.b. fjórðu afþeim tekjumsem einstaklingar og fjölskyldur höfðu i landinu á árinu 1977. SJ — Það munu margir þekkja vandamálin úr sinu eigin hjóna- bandi, sagði Brynja Benedikts- dóttir leikhússtjðri á Akureyri um leikritið Alfa Beta, sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir á föstu- dagskvöld. Leikurinn er eftir Bretann E.A. Whitehead, en á mæta vel við hér á tslandi engu siður en á Englandi. Kristrún Ey- mundsdóttir þýddi leikritið, leik- mynd er eftir Þráin Karlsson og Brynja Benediktsdóttir er leik- stjóri. Leikritiðgerist i Liverpool á niu árum i lifi hjóna, sem þau Sigur- • veig Jónsdóttir og Erlingur Gisla- son leika. Verkiö er i þremur þáttum eg er þeim skipt með sýningu skyggni- mynda úr ýmsum fjölskyldual- búmum, en Asgrimur Agústsson ljósmyndari sá um þann þátt sýn- ingarinnar. Alfa Beta verður sýnt á Akur- eyri nú um helgina og um næstu helgi. Um mánaðamótin hefjast sýningar á þvi á Litlg sviði Þjóð- leikhússins, þar sem það veröur flutt sem gestaleikur. Samkoma vegna málfrelsissj óðs A sunnudaginn veröur efnt til samkomu I Háskólabiói til ágóöa fyrir málfrelsissjóð og hefst hún klukkan tvö. A samkomu þessari verða fluttar ræöur, leikþættir og tón- verk, sem almenningshylli njóta. • Markmið málfrelsissjóös er að „standa vörð um rétt einstakl- inga I þjóðfélaginu til þess að ræða opinberlega um mál þau, sem varða almannaheill og list- ræna tjáningu, án þess að þurfa aö óttast fjárútlát vegna mála- ferla”. Stjórn sjóösins skipa Jóhann S. Hannesson, Jónas Jónsson frá Yztafelli, Thor Vilhjálmsson, Páll Skúlason prófessor og Silja Aðal- steinsdóttir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.