Fréttablaðið - 13.08.2006, Side 22

Fréttablaðið - 13.08.2006, Side 22
ATVINNA 2 13. ágúst 2006 SUNNUDAGUR Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa með hjúkrunarsveit Landspítala – háskólasjúkrahúss Nýr og spennandi starfsvettvangur fyrir hjúkrunarfræðinga. Hjúkrunarsveit LSH tekur til starfa 1. september 2006. Um er að ræða nýja starfsemi innan Landspítala – háskólasjúkrahúss. Hjúkrunarfræðingar hjúkrunarsveitar munu starfa á hinum ýmsu deildum spítalans bæði á einstökum vöktum og vegna tímabundinna verkefna. Um er að ræða spennandi og krefjandi starf þar sem umsækjandi mun sinna mjög fjölbreytilegum verkefnum í klínískri hjúkrun. Vinnuhlutfall getur verið breytilegt og vinnutími sveigjanlegur. Boðið er upp á sérskipulagt námskeið í upphafi starfs og þjálfunar- tíma á bráðadeildum sjúkrahússins. Umsækjendur skulu hafa a.m.k. 3ja ára starfsreynslu í hjúkrun. Við leitum að framsæknum hjúkrunarfræðingum sem eru tilbúnir að koma og vinna á nýjum vettvangi þar sem krafist er sjálfstæðra vinnubragða, haldgóðrar þekkingar í hjúkrun og góðra samskipta- hæfileika. Umsóknir berist til Dagbjartar Þyri Þorvarðardóttur, deildarstjóra 24C Hringbraut og veitir hún jafnframt upplýsingar í síma 543 3297, netfang dthyri@landspitali.is. Hjúkrunarfræðingar Óskum eftir áhugasömum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum á barnaskurðdeild, lyfjadeild, vökudeild og bráðamótttöku barna. Boðið verður upp á markvissa aðlögun með reyndum hjúkrunar- fræðingum ásamt miklum möguleikum á starfsþróun og verkefnavinnu. Á Barnaspítala Hringsins er annast um börn og unglinga að 18 ára aldri. Áhersla er lögð á fjölskylduhjúkrun þar sem barnið og fjölskylda þess er í forgrunni. Barnaspítali Hringsins er staðsettur í nýju og björtu húsnæði þar sem öll aðstaða er til fyrirmyndar. Þar er starfandi hópur fagfólks þar sem samheldni og samvinna allra stétta er höfð í fyrirrúmi. Umsóknir berist fyrir 28. ágúst nk. til Hjálmtýs R. Baldurssonar, skrif- stofustjóra, Barnaspítala Hringsins, netfang hjalmtyr@landspitali.is. Upplýsingar veita: Jóhanna Lilja Hjörleifsdóttir deildarstjóri á barnadeild 22E, sími 824 5916, netfang johahjor@landspitali.is, Fríða Ólöf Ólafsdóttir, deildarstjóri á barnaskurðdeild, sími 824 5683, netfang fridaola@landspitali.is, Ingileif Sigfúsdóttir, deildarstjóri á bráðamóttöku barna, sími 824 5862, netfang ingilsig@landspitali.is Elísabet Halldórsdóttir, deildarstjóri á Vökudeild, sími 824 5826, netfang elisabha@landspitali.is. Hjúkrunarritari óskast til starfa á krabbameinslækningadeild 11E við Hringbraut. Deildin er 12 rúma legudeild fyrir sjúklinga sem þurfa meðferð vegna krabbameins. Starfshlutfall er 100%, unnið virka daga frá kl. 08:00 - 16:00. Starfssvið hjúkrunarritara felur í sér símsvörun, upplýsingagjöf, útveg- un og röðun gagna, gagnavinnsla í tölvukerfum sjúkrahússins og almenna fyrirgreiðslu. Hæfniskröfur: • Jákvætt viðmót og lipurleiki í mannlegum samskiptum, sveigjanleiki, góðir skipulagshæfileikar og geta til að vinna undir álagi. Þarf að geta unnið sjálfstætt og hafa frumkvæði í starfi • Stúdentspróf eða sambærileg menntun • Góð tölvukunnátta Umsóknir skulu berast fyrir fyrir 28. ágúst nk. til Kristínar Sophusdóttur, sviðsstjóra, 13A Hringbraut, sími 824 5251, netfang kristsop@landspitali.is og veitir hún upplýsingar ásamt Steinunni Ingvarsdóttur, deildarstjóra, sími 543 6216, netfang steining@landspitali.is. Sérhæft skrifstofustarf - bókhald Fjármálasvið óskar eftir að ráða sérhæfðan starfsmann í fjárhags- bókhald spítalans. Nauðsynlegt er að starfsmaðurinn geti unnið sjálfstætt við bókhaldsverkefni, afstemmingar efnahagsliða og úrlausn ýmissa viðfangsefna við fjárhagsbókhald. Eftirfarandi kröfur eru gerðar til umsækjenda: • Stúdentspróf, verslunarpróf eða önnur sambærileg menntun. • Mikil reynsla af störfum við fjárhagsbókhald • Sjálfstæði í störfum og framtakssemi í úrvinnslu verkefna • Hæfni í mannlegum samskiptum. Æskilegt er að starfsmaðurinn geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir skulu berast fyrir 28. ágúst nk. til Bjarka Þórs Baldvins- sonar, verkefnastjóra, fjármálasvið Eiríksgata 5, 3. hæð E og veitir hann nánari upplýsingar, netfang bjarkiba@landspitali.is. Sérhæft skrifstofustarf - fjárstýring Fjármálasvið óskar eftir að ráða sérhæfðan starfsmann í fjárstýringu og innheimtu spítalans. Nauðsynlegt er að starfsmaðurinn geti unnið sjálfstætt við innheimtuverkefni, afstemmingar efnahagsliða og úrlausn ýmissa viðfangsefna við fjárstýringu. Eftirfarandi kröfur eru gerðar til umsækjenda: • Stúdentspróf, verslunarpróf eða önnur sambærileg menntun. • Mikil reynsla af störfum við fjárstýringu og/eða innheimtu • Sjálfstæði í störfum og framtakssemi í úrvinnslu verkefna • Hæfni í mannlegum samskiptum. Æskilegt er að starfsmaðurinn geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir skulu berast fyrir 28. ágúst nk. til Sigrúnar Guðjónsdóttur, deildarstjóra, fjármálasvið Eiríksgata 5, 3. hæð E og veitir hún nánari upplýsingar, netfang sgudjons@landspitali.is. Laun ofangreindra starfa samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum Fossvogi og Hringbraut, skrifstofu starfsmannamála Eiríksgötu 5, á heimasíðu www.landspitali.is. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Landspítali – háskólasjúkrahús er reyklaus vinnustaður. KÓPAVOGSBÆR www.kopavogur.is - www.job.is Frá Kársnesskóla Starfsfólk óskast í eftirfarandi störf: • Gangavörður/ræstir • Starfsmaður í Dægradvöl 50% Laun samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Upplýsingar gefur Guðrún Pétursdóttir, skóla- stjóri í síma 570-4100, netfang gudrunpe@kask. kopavogur.is Hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um störfin. Starfsmaður mánaðarins óskast! Vaktstjóri Almenn afgreiðsla Útimaður Líður þér best utandyra og lætur veðrið aldrei stoppa þig? Þá ertu hinn fullkomni útimaður. F í t o n / S Í A Olíufélagi› ehf. er kraftmiki› fljónustufyrirtæki. Hlutverk fless er a› sjá fólki og fyrirtækjum fyrir orku, rekstrarvörum og flægindum me› ánægju vi›skiptavina a› lei›arljósi. ESSO skólinn veitir starfsmönnum nau›synlega starfsfljálfun en mikil áhersla er lög› á endurmenntun til a› auka samkeppnishæfni fyrirtækisins. Starfsmannafélag Olíufélagsins er kröftugt og lifandi. Tilgangur félagsins er að standa fyrir fjölþættri félagsstarfsemi svo sem að standa fyrir skemmtunum, fræðslu, íþróttaiðkun, ferðalögum auk þess að byggja og reka orlofshús. Nánari uppl‡singar um ESSO á www.esso.is. Olíufélagið ehf. vill ráða framúrskarandi fólk, konur og karla, til framtíðarstarfa á þjónustustöðvum félagsins á höfuðborgarsvæðinu. Leitað er að hörkuduglegu fólki með lipra þjónustulund sem langar að starfa í skemmtilegu umhverfi. Krefjandi og skemmtilegt starf í hressum hópi starfsmanna. Umsækjendur þurfa að hafa stjórnunarhæfileika og vera liprir í samskiptum. Starfið felst í almennum afgreiðslu- og þjónustustörfum og hentar þeim sem eru jákvæðir og hafa gaman af samskiptum við fólk. Einnig er leitað að duglegu og samviskusömu starfsfólki í hlutastörf á þjónustustöðvarnar. Umsóknir má nálgast á vefsíðu Olíufélagsins www.esso.is. Nánari upplýsingar eru veittar hjá starfsþróunardeild í síma 560 3300.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.