Fréttablaðið - 27.09.2006, Side 32

Fréttablaðið - 27.09.2006, Side 32
MARKAÐURINN Eggert Þór Aðalsteinsson skrifar Áform stjórnenda Avion Group um sölu á meirihluta hlutafjár í dótturfélaginu Avion Aircraft Trading (AAT) gengu ekki eftir á þriðja ársfjórðungi en félagið átti í viðræðum við erlendan fjárfesti um kaup á hlutnum. Hefði salan gengið eftir hefði Avion hagn- ast verulega enda er dótturfé- lagið bókfært á fimm milljónir Bandaríkjadala en metið á tut- tugufalda hærri upphæð. AAT er félag sem fjárfestir í flugvélum með það að markmiði að selja þær síðar með hagn- aði. Avion Group vill ekki síður selja hlutinn til að minnka bólg- inn efnahagsreikning vegna flug- vélakaupanna. Spáði Landsbankinn því í afkomuspá sinni að söluhagnað- urinn af hlutnum í AAT gæti numið tæpum 3,4 milljörðum króna og reiknaði KB banki einn- ig með því að salan myndi falla til á síðasta ársfjórðungi. Þar sem viðskiptin gengu ekki í gegn var afkoma Avion langt undir afkomuspám. Hafþór Hafsteinsson, stjórn- arformaður AAT, segir að eitt og annað hafi síðar komið upp sem mönnum hafi þótt óásættanlegt og því hafi verið ákveðið að leit- að til fleiri aðila. Ástæðan fyrir því að félagið hefði greint frá viðræðunum á kynningarfundi í lok júní var sú að samkomulag hafði verið handsalað. „Þegar við vorum að ganga frá skjölum eftir fundinn þá voru sett fram ákveð- in skilyrði sem þurfti að fara með til stjórnar. Á sama tíma sýndu fleiri þessum hluta áhuga þannig að stjórnin mat það svo að við ættum ekki að ganga frá sölu við þennan aðila heldur ræða við fleiri.“ Ekki var ágreiningur um verð að sögn Hafþórs. Forsvarsmenn Avion Group töldu að skilyrði um arðgreiðslur og lánafyrirkomu- lag hefðu verið óásættanleg. Hafþór segir að viðræðuslitin séu nýtilkomin og því hafi ekki þótt ástæða til að greina frá þeim fyrr en við birtingu níu mánaða uppgjörs nú í vikunni. Hann getur ekki greint frá því hvort niðurstaða fáist á yfir- standandi ársfjórðungi. Gangi salan ekki eftir á núverandi reikningsári, sem lýkur í októb- er, reiknar Greining Glitnis með talsverðu tapi af rekstri Avion fyrir árið í heild. 27. SEPTEMBER 2006 MIÐVIKUDAGUR4 F R É T T I R Eimskip skilaði rekstrarhagnaði fyrir afskriftir (EBITDA) upp á 1,4 milljarða króna á þriðja árs- fjórðungi og 3,3 milljörðum króna fyrir fyrstu níu mánuði reikn- ingsársins. Hlutfall EBITDA af veltu nam fjórtán prósentum. Tekjur Eimskipa á fjórðungn- um námu tíu milljörðum króna. Áætlanir félagsins, sem er dótturfélag Avion Group, ganga vel og er stefnt að fjögurra millj- arða EBITDA-hagnaði á árinu og að framlegðarhlutfallið verði um 13,3 prósent. Allt bendir til þess að þau markmið náist á fjórða ársfjórðungi og gott betur en það. - eþa Eimskip á áætlun Mælt er með kaupum í Atorku Group í nýlegri greiningu Glitnis. Verðmatsgengi á Atorku er 7,3 krónur á hlut samanborið við markaðsgengið 6,35 en mark- gengi, þar sem Glitnir sér gengi Atorku standa í eftir sex mánuði, er sjö krónur á hlut. Glitnir verð- metur rekstrarfélög samstæðunn- ar eftir sjóðstreymisgreiningu út frá rekstrarspá en fjármálahluti samstæðunnar er metinn sérstak- lega samkvæmt upplausnarvirði. Stuðst er við 12,8 prósenta ávöxtunarkröfu við gerð verð- matsins.- - eþa Glitnir mælir með Atorku HAFÞÓR HAFSTEINSSON Sala Avion á meirihluta hlutafjár í Avion Aircraft Trading hefur ekki enn gengið eftir. Vænt sala gekk ekki eftir Stjórnendur Avion höfðu handsalað samkomulag við kaup- anda á hlut í dótturfélaginu AAT, sem hefði skilað miklum söluhagnaði. Óásættanleg skilyrði ollu því að upp úr við- ræðum slitnaði. Avion ræðir nú við aðra fjárfesta. ������������������������������������������������������������� ������������������������������������������������������ ���������������������������������������������������������� ������������������������������������������������������� ������������������������������ �������������������������������������� ������������������������������������ ������������������������ ���������������������������������������������������������� ���������������������������������������� ������������������������������������������������������������������������� �������������������������������������������������������������������� ������������������������������������������������������������������������ ���������������������������� ���������������������������������������������������� ����� ������������������������������������������������� ���������� ������������� �������������������� ����������������� H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 6 2 0 8 Fjárfestingafélagið Straumborg, sem er að níu tíundu hluta í eigu Jóns Helga Guðmundssonar í BYKO, skilaði 4.968 millj- arða króna hagnaði árið 2005. Hagnaður ársins 2004 var 3.154 milljarðar króna til samanburð- ar. Hagnaðurinn er að miklu leyti tilkominn vegna hækkana á hluta- bréfaverði í fyrra, einkum geng- ishækkunar í KB banka. Norvest, dótturfélag Straumborgar, átti um 2,5 prósenta hlut í KB banka um síðustu áramót en bankinn hækkaði um 68 prósent í fyrra. Eignir Norvest-samstæðunn- ar námu 17,6 milljörðum króna í árslok, eigið fé var rúmir 9,7 milljarðar og eiginfjárhlutfall því 55,4 prósent. Straumborg á um 22 pró- senta hlut í Norvik, eignarhalds- félagi BYKO-samstæðunnar, sem hagnaðist um 563 milljónir króna á síðasta ári samanbor- ið við 537 milljónir árið 2004. Fjármunatekjur námu tæpum 1,1 milljarði en fjármagnsgjöld um 531 milljón. Jón Helgi var stærsti hluthafi Norvikur í árslok með 48 prósenta hlut. Eignir Norvikur voru 10.623 milljónir króna í árslok, þar af voru eignarhlutir í dótturfélög- um metnir á 7,4 milljarða. Eigið fé var á sama tíma 3.385 milljón- ir króna og lækkaði um 542 millj- ónir króna vegna uppskiptingar félagsins. - eþa JÓN HELGI GUÐMUNDSSON Straumborg hagnaðist mikið í fyrra. Straumborg hagnaðist um fimm milljarða Gengishagnaður af hlut Norvestar í KB banka vó þungt. Jarðboranir hafa gengið frá samn- ingum um kaup á nýjum hátækni- bor sem verður afhentur næsta sumar. Verður hann sá öflugasti í tækjaflota félagsins og fær um að bora niður á allt að rúmlega fimm kílómetra dýpi. Verður hann jafnframt útfærður samkvæmt óskum sérfræðinga Jarðborana til að tryggja að hann henti sem best íslenskum aðstæðum. Í fréttatilkynningu frá félaginu kemur fram að nýi borinn muni auka afkastagetu Jarðborana hér heima til muna, auk þess sem fyrirtækinu verður kleift að taka ný skref í útrás. Þar komi bæði til tæknileg fjölhæfni borsins og aukin afkastageta borflota Jarðborana í heild, ekki síst við þær aðstæður þegar verk- efni hér heima eru í sögulegu hámarki, samtímis því sem sinna þarf áhugaverðum verkefnum erlendis. Í tilkynningunni er haft eftir Bent S. Einarssyni, forstjóra félagsins, að Jarðboranir og dótt- urfyrirtækið Iceland Drilling séu að að skoða frekari vaxtamögu- leika erlendis og er þá litið til fleiri tegunda verkefna en borun- ar eftir jarðhita. Kaupverð nýja borsins er um 1,4 milljarðar íslenskra króna. Fyrirtækið Drillmec í borginni Piacenza á Ítalíu mun hanna og framleiða borinn en fyrir eiga Jarðboranir fjóra bora frá sama framleiðanda: Óðin, Geysi, Sleipni og Sögu. - hhs Jarðboranir tryggja sér nýjan liðsauka ÓÐINN BOR Óðinn er nýjasti borinn í flota jarðborana og heldur þeim titli þangað til hátækniborinn kemur til landsins og eykur afkastagetu Jarðborana til muna. Tiltrú neytenda á horfur í efna- hagsmálum hefur vaxið snögg- lega og stendur væntingavísi- tala Gallup nú í 119,6 stigum. Vísitölugildi yfir hundrað stig- um táknar að fleiri neytendur eru bjartsýnir en svartsýnir. Vísitalan fór lægst í rúmlega áttatíu og átta stig í júlímánuði. Fram kemur að fleiri neyt- endur telji að efnahagsástandið verði betra eftir sex mánuði en það er nú. Bjartsýni á atvinnu- horfur í landinu hefur hins vegar minnkað. Greining Glitnis telur neyt- endur hafa tekið gleði sína á ný þrátt fyrir gengisfall krónunnar, verðbólguskot í kjölfarið og útlit fyrir að hægist á vexti á næstu misserum. Greiningin bendir á að fleiri hyggi nú á bifreiðakaup en á sama tíma í fyrra, auk þess sem áttatíu prósent neytenda ætli að ferðast til útlanda næsta árið. Hins vegar hafi orðið talsverð- ur samdráttur í fyrirhuguðum húsnæðiskaupum; aðeins 5,6 pró- sent hyggja nú á fasteignakaup á næstu sex mánuðum samanborið við tíu prósent á sama tíma í fyrra. - jsk Aukin bjartsýni neytenda Væntingavísitala Gallup snarhækkar. Meiri bifreiða- kaup, fleiri utanlandsferðir en minna um íbúðakaup.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.