Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.10.2006, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 20.10.2006, Qupperneq 6
stjórnendur töluðu um kynslóða- breytingu meðal kvenna þar sem yngri konur hefðu allt önnur við- horf en þær eldri. Mætti segja að þær hefðu tileinkað sér karllægari gildi og væru óhræddar við að gera kröfur. Kom þetta fram hjá stjórn- endum bæði opinberra stofnana og einkafyrirtækja. sdg@frettabladid.is JAFNRÉTTISMÁL Óútskýrður kynbund- inn launamunur er nánast hinn sami nú og fyrir tólf árum, eða tæp sextán prósent, þegar tekið hefur verið til- lit til starfsstéttar, aldurs, starfsald- urs og vinnutíma. Þetta kemur fram í niðurstöðum viðamikillar rann- sóknar á launamyndun og kyn- bundnum launamun á Íslandi sem Capacent-rannsóknir gerðu fyrir félagsmálaráðuneytið og kynnt var í gær. Sambærileg rannsókn frá árinu 1994 var notuð til samanburðar. Fram kemur að vinnutími karla og kvenna í fullu starfi hefur styst, konum í fullu starfi hefur fjölgað og viðhorf þeirra til starfs hafa breyst nokkuð. Hefði þetta að öllum líkind- um átt að verða til þess að draga úr launamun karla og kvenna sem hefur þó ekki gerst. Heildarlaun karla í fullu starfi samkvæmt rannsókninni nú eru að jafnaði rúmlega 481 þúsund krónur meðan konur voru með rúmar 325 þúsund krónur eða sem samsvarar 67,6 prósentum af launum karl- anna. Nú eru fleiri konur í hópi stjórn- enda sem fá aukagreiðslur í formi óunninnar yfirvinnu og/eða bíla- styrks. Ástæðan er talin sú að karl- menn eru nú mun frekar komnir með fastlaunasamninga þar sem þeir eru með ákveðna upphæð fyrir sína vinnu, burtséð frá lengd vinnu- tíma. Af þeim sem eru með fast- launasamninga eru konur með nítj- án prósent lægri laun heldur en karlmenn. En þar sem ekki er um slíka samninga að ræða er launa- munurinn þrettán prósent. Það gefur vísbendingu um að í fast- launasamningum sé búið að festa kynbundinn launamun. Um það bil helmingur karlmanna er með fast- launasamning en um átján prósent kvenna. Munur á viðhorfi stjórnenda kom fram í niðurstöðum rannsóknar- innar og kváðust konur nú finna fyrir mun meiri hvatningu frá yfir- mönnum sínum miðað við rann- sóknina frá árinu 1994. Margir Magnús Stefánsson félagsmála- ráðherra segir þessar niðurstöður valda sér miklum vonbrigðum. „Við erum að sjá jákvæðar breytingar til jafnréttis en það virðist ekki vera að skila sér í launaumslagið.” Magnús segir að þeir sem raun- verulega hafi áhrif á launaákvarðanir séu stjórnendur á einkamarkaði og hjá hinu opinbera. „Og við spyrjum hvort þeir geri sér grein fyrir að þeir eru í raun og veru að brjóta rétt á fólki með því að mismuna í launum fólki sem vinnur sömu störf og skilar sömu vinnu?” Magnús hyggst óska eftir samtölum við vinnuveit- endur á næstunni til að ræða leiðir til að minnka launamun. Þverpólitísk nefnd vinnur nú að endurskoðun jafnréttislaganna og mun Magnús óska eftir því að hún taki til sérstakrar skoðunar þá leið sem Finnar eru að fara. „Þar hafa stjórnvöld gert samkomulag við aðila vinnumarkaðarins um að minnka kynbundinn launamun um fimm prósent til ársins 2015. Mér finnst einboðið að við nýtum okkur það sem Finnar hafa fram að færa í þessu.“ Magnús útilokar þó ekki að hugsanlega verði gripið til lagasetn- ingar til að sporna við launamun. Niðurstöðurnar verða kynntar á ríkisstjórnarfundi í dag. - sdg 6 20. október 2006 FÖSTUDAGUR KJÖRKASSINN Eiga skólamáltíðir að vera fríar? Já 73,7% Nei 26,3& SPURNING DAGSINS Í DAG Munu hvalveiðar skaða ímynd Íslands? Segðu skoðun þína á visir.is MAGNÚS STEFÁNSSON FÉLAGS- MÁLARÁÐHERRA Árið 1961 voru sett fyrstu lögin um jöfn laun karla og kvenna. Samkvæmt þeim lögum átti að útrýma kynbundnum launamun á næstu sjö árum eftir að lögin voru sett. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN MIKIL VONBRIGÐI ��������������������� ��������������������������������������� ������������ � ������������� � ������������� ����������� ��������������� � ������������ ����������� ����������� ������������ �������� �������� �������� �������� �������� ������� � ������� �������� ������� ������� ������� ������� ������� ������� ������� ������� ������� ������� ������� ������� ������� �������   ��������������������� ��������������������� Launamunur milli kynjanna 16 prósent Launamunur hefur nánast staðið í stað í 12 ár þrátt fyrir fjölgun kvenna í fullu starfi og breytt viðhorf. Stjórnendur segja yngri konur hafa karllægari gildi. Heildarlaun kvenna í fullu starfi eru tæp 70 prósent af heildarlaunum karla. ��������������������� ��������������������������������������� ������������ � ������������� � ������������� ����������� ��������������� � ������������ ����������� ����������� ������������ �������� �������� �������� �������� �������� ������� � ������� �������� ������� ������� ������� ������� ������� ������� ������� ������� ������� ������� ������� ������� ������� �������   ��������������������� ��������������������� FR ÉTTA B LA Ð IÐ /H EIÐ A KVENNAFRÍDAGURINN Í FYRRA Rannsóknin er eitt af verkefnum félagsmálaráðuneytisins sem talað er um í þingsályktun ríkis- stjórnarinnar um jafnréttismál árin 2004 til 2008. Nú fæst 10% s‡r›i rjóminn frá MS í handhægum sprautuflöskum N‡ju umbú›irnar eru einstaklega flægilegar. fiær fl‡ta fyrir matseldinni og henta vel í fjölbreytta rétti – en innihaldi› er a› sjálfsög›u sami frískandi og hitaeiningasnau›i s‡r›i rjóminn Ger›u fla› gott me› s‡r›um rjóma – frá MS. N‡jun g! www.lyfja.is - Lifið heil ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N /S IA .I S L Y F 34 59 3 1 0/ 20 06 Bólusetning gegn inflúensu – engin bið Lyfja Lágmúla: alla daga kl. 15–20 Lyfja Smáralind: alla daga kl. 13–15 Lyfja Laugavegi: föstudaga kl. 13–17 DÓMSMÁL Hæstiréttur mildaði í gær dóm héraðsdóms yfir fjórum mönnum sem höfðu verið ákærðir fyrir að standa ekki skil á virðis- aukaskatti og staðgreiðslu opin- berra gjalda og lækkaði sektar- greiðslur þeirra um 74,25 milljónir króna. Þrír mannanna, þeir Árni Þór Vigfússon, Kristján Ragnar Kristjánsson og Ragnar Orri Benediktsson tengdust allir Lands- símamálinu svokallaða þar sem þeir voru meðal annars sakfelldir fyrir fjárdrátt og peningaþvætti. Auk þeirra var fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Japis dæmdur í þessu máli. Mennirnir fjórir höfðu verið dæmdir í héraðsdómi fyrir van- skil á 56 milljónum vegna virðis- auka- og vörsluskatta Lífstíls ehf. og fjögurra annarra fyrirtækja sem undir það heyrðu. Þar voru sektargreiðslur þeirra ákveðnar 96,6 milljónir króna og Kristjáni Ragnari einum og sér gert að greiða tæpar 66 milljónir. Þeir áfrýjuðu allir úrskurðinum sem og ríkissaksóknari sem krafðist þess að Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms. Í Hæstarétti voru sektar- greiðslurnar lækkaðar umtalsvert, líkt og fyrr segir, og er þeim nú gert að greiða rúmlega 22 milljónir króna til ríkissjóðs. Brot Kristjáns Ragnars var talið meiriháttar og því hlaut hann hæstu sektina, eða 18,5 milljónir króna. - þsj Hæstiréttur lækkaði sektir fjögurra manna vegna skattsvika um 74,25 milljónir: Dómur Símamanna mildaður LANDSSÍMAMENN Kristján Ragnar Kristjánsson og Árni Þór Vigfússon voru dæmdir til að greiða samtals 21,3 milljónir króna. ÖRYGGI Mikið af hættulegum efnum er að finna í smíðastofum í grunnskólum landsins, loftræst- ing er oft léleg í stofunum og aðstaðan ekki nógu góð. Þetta segir Gunnar Kristinsson, heilbrigðisfulltrúi á umhverfis- sviði Reykjavíkurborgar, en þetta kemur fram á vefsíðu sviðsins. Hann segir börn meðhöndla hættuleg efni og að oft sé ekki til áætlun um viðbrögð ef eitthvað bregði út af. Þetta er meðal niðurstaðna könnunar á varnaðar- merktum efnavörum, sem náði til sextíu og þriggja grunnskóla á Íslandi. - sþs Öryggi í smíðastofum landsins: Hættuleg efni algeng í stofum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.