Tíminn - 12.07.1979, Blaðsíða 2

Tíminn - 12.07.1979, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 12. júlf 1979. SKYLABFELL TIL JARÐ ARÍ GÆR Washington/ Perth/ Reuter — Brak bandarísku geim- stöðvarinnar Skylab féll í hafið skammt undan vesturströnd Astralíu kl. 16.30 í gær, að íslenskum tíma. Bandariskum visindamönnum tókst aö hægja aöeins á ferö geimstöövarinnar til aö foröa þvl aö brak hennar lenti á byggö. Stærsti hluti S’kylabs féll i haf, en a.m.k. 1000 brot úr henni dreiföust yfir eyöimörk, u.þ.b. 500 milur frá borginni Perth I Astralíu, en I eyöimörkinni búa frumbyggjar. Nótt var i Astraliu er brotin úr Skylab féllu til jaröar og sáust þau þvi mjög vel i alls kyns litum. Skyiab-geimstööin, þegar hún var og hét. Likti fólk þeim viö loftsteinaregn eöa eldflaugasýningu. Siöan heyröust miklar drunur, er brot- in féllu niöur. Ekkierenp vitaö um nein slys eöa tjón af völdum geimstöövar- innar. Klukkustund áöur en Skylab féll til jaröar var nýfæddur drengur i Noröur-Indlandi skirö- ur i höfuöiö á geimstööinni. Baskar ánægðir með árang- ur af sprengjunum Bilbao, Spáni/Reuter — Skæru- liðar Baska lýstu yfir i gær, aö sprengjuherferö þeirra á spænska feröamannastaði heföi boriö góöan árangur. Var litiö á yfirlýsinguna sem visbendingu um aö nú væru þeir hættir sprengingum sinum. Skæruliöar aöskilnaöar- sinnaöra Baska ETA hófu sprengjuherferö sina fyrir tveimur vikum og sögöu, aö þeir mundu halda áfram þangaö til lögreglumenn sem starfa sem fangaveröir i Soria fangelsinu á Noröur-Spáni færu þaöan. í fangelsinu eru meira en 100 að- skilnaöarsinnar i haldi. Stjórn landsins tilkynnti s.l. mánudag aö lögreglumennirnir, sem ETA sakar um aö misþyrma föngunum, væru farnir frá fang- elsinu. í siöustu yfirlýsingu sinni til út- . varpsins i Bilbao neita ETA að skæruliöar þeirra séu aö gera áætlun um nýja sprengjuherferð á neöanjaröarjárnbrautakerfi Madrid. En sögusagnir hafa veriö uppi um þá áætlun. ETA ásakaöi stjórn landsins fyrir að vera aö bera út slikar sögur og i dag kom yfirlýsing frá yfirvöldum i Madrid um aö engar hótanir hafi komiö i sambandi við Metro-kerfiö. Viðræður Sadats og Be- gins báru ekki árangur Aukin nýting sólarorku: Alexandria/Reuter — Ekki báru viðræður Anwars Sadat forseta Egyptalands og forsætisráöherra israels, Menachems Begin mik- inn árangur, en þeir hafa ræöst viö I Alexandriu i þrjá daga. Sadat játaði i gær, að honum hefði ekki tekist aö sannfæra Begin um aö Gyöingar ættu ekki rétt á búsetu á áður byggöum svæöum Araba. En svo viröist sem þeim hafi eitthvaö miöaö áfram i erfiöasta málinu af öllu, þ.e.a.s. sjálfstjórn Palestinumanna á vesturbakka Jórdanár og á Gaza-svæðinu. Mikill hluti viöræöa þeirra fór i aö ræöa fyrirhugaö skipulag á samskiptum milli Israels og Egyptalands sem áhersla er lögö á i friðarsamningunum. T.d. munu þeir hafa samþykkt aö beita sér fyrir aö járnbrauta- Begin og Sadat i ökuferö þjónustu yrði komiö á milli Kairó og Tel Aviv. Þrátt fyrir aö höföingjarnir tveir hafi ekki náö samkomulagi virtist ágætis samband vera á milli þeirra, og mun Sadat hafa þegiö boö Begins um aö heim- sækja Israel i lok ágústmánaöar. 5% af orkuþörf heimsins unn- in úr sólarorku um aldamót Stærsta sólarorkustöö I Sam- bandslýöveldinu Þýskalandi sést hér á myndinni. t baksýn er þing- húsiö I V-Berlin en orkustööin knýr m.a. gosbrunn viö þinghús- ið. Orkumálaráðherra Efnahags- bandalagsins, Guido Brunnar, sagöi 600 vísindamönnum frá 26 löndum heims, á ráöstefnu EFTA um nýtingu sólarorku, aö vonir stæöu til aö um aldamót mundi unnin úr sólarorku. Mundi þaö 5% af orkuþörf heimsins vera spara 100 milljónir af oliu á ári. Erlendar EE: í> Umsjón: fréttir raSS VSSSi Gunnhildur Oskarsdóttir Magnús Jónsson: Verðtrygging er ekk- ert meinlaust mál • nú verður að borga krónu með krónu i stað kannski tieyrings áður ús á, að nú væri veriö aö gera ráöstafanir til aö breyta lausa- skuldum bænda i föst lán. Þetta heföi tvisvar veriö gert áöur, en þá heföi endurgreiöslan veriö samkvæmt gömlu venjunum. Nú væri þessu aftur á móti breytti 100% verötryggö lán, aö visu vaxtalaus, en þaö væri smáatriöi miöað viö hitt. Taldi Magnús að mikil þörf heföi ver- iöá, aö benda bændum á hvers konar lán þeir væru aö taka. Að breyta lausaskuldum i föst lán heföi áöur hljómaö ósköp fallega, en þaö geröi þaö ekki endilega lengur. Hins vegar sagöi Magnús aö þaö gleddi nú bankamenn aö geta loksins meö góöri sam- visku sagt fólki aö spara og eiga peninga. Hei — „Nei viö i Búnaöarbank- anum höfum ekki þá reynslu, að mikiösé um aö vaxtaaukalán fari i vanskil hjá fólki. A.m.k. tel ég ekki aö það hafi aukist hlutfallslega. En þar sem lánin eru aö meginhluta að veröa vaxtaaukalán, getur þaö villt mönnum svolitið sýn”. Þetta var svar Magnúsar Jónssonar, bankastjóra, er Timinn bar undir hann fréttir um að mikið væri oröiö um aö vaxtaaukalán — sem nú hafa að mestu tekið við af vixillánum — lentu i van- skilum hjá fólki. Magnús sagöist aö sjálfsögöu ekki vilja vera að hæla þeim Búnaðarbankamönnum sér- staklega, en þeir legöu mikla áherslu á að staöiö væri I skil- um, og þaö heföi tekist mjög vel. Viöskiptavinirnir væru yfirleitt góðir, enda væri öðrum ekki lánað. Auövitaö gæti eitt- hvaö óvænt komiö upp á hjá fólki, en þá hefði mikiö að segja aö fólk heföi samband viö bank- ann áöur en vixill félli. Fólk fariðað hugsa betur um afleiðingarnar Með þá breytingu i huga aö nú eru vextir hærri og borgaðir eft- ir á i staö forvaxta af vixlum, var Magnús spuröur hvort fólk áttaöi sig alltaf á þeirri greiöslubyröi sem þaö tæki á sig meö lánunum. Hann sagði, aö ef þeir yröu þess varir aö fólk væri að sækja um vaxta- aukalán, sem ekki væri hægt meö góöu móti aö sjá hvernig þaö ætlaði sér aö standa undir, teldu bankastjórar sér skylt aö vekja athygli fólks á þvi, hvað þaö væri aö taka á sig. Sann- leikurinn væri lika sá, sem bet- ur fer, aö fólk væri fariö aö hugsa meira um þaö en áöur hvaöa afleiðingar lántaka heföi. Lánin nú aivörulán Þá var Magnús spuröur hvort fólk heföi þá áttaö sig á þvi hvaö verötrygging þýddi I raun. Hann sagöist ákaflega hræddur um, aö þaö taki fólk tima aö átta sig á þvi, aö full verðtrygg- ing er ekkert meinlaust mál. Henni fylgdi sú breyting, aö lán veröa nú alvörulán, og miklu varöaöi aö fólk geröi sér sem allra best grein fyrir þvi hvaö þaö væri aö taka á sig aö greiöa. Margur væri oröinn vanur þvi aö þurfa ekki að borga nema kannski tfeyring fyrir lánaöa krónu. Nú yröi hins vegar aö borga hverja krónu meö krónu. Þetta væri þvi ger- breytt viðhorf. Lausaskuldir í föst lán hljómaði áður fallega, en ekki lengur I þessu sambandi drap Magn- Þjóðarframleiðslan 811 milljarðar: Fjár- festing 24.3% Kás — Samkvæmt nýjustu áætlunum er gert ráð fyrir aö þjóðarframleiðsia tslendinga veröi um 811 milljarðar króna á þessu ári. Þr átt fyrir aö rikis- stjórnin hafi gefið út bráöa- birgöalög um auknar lántökur til viöbótarframkvæmda i orkumálum er áætlaö aö fjár- festing I landinu veröi fyrir inn- an 25% af þjóöarframleiöslu, eöa 24.3%. Er þaö i samræmi viö stefnu rikisstjórnarinnar, sem gerir ráö fyrir aö fjárfest- ing veröi innan viö 25% af þjóö- arframleiöslunni. Ef þjóðarframleiðslan veröur 811 milljaröar króna þýöir það aukningu hennar á þessu ári, miöaö við siöasta ár um 2%. Hins vegar er hætt við þvi aö kaupmáttur þjóöarframleiösl- unnar, þ.e. þjóöartekjurnar aö raungildi, muni þrátt fyrir þessa auknu þjóöarframleiöslu, dragast saman um 1—2% vegna viöskiptakjararýrnunarinnar af völdum oliuverðhækkananna, að sögn Jóns Sigurössonar, for- stjóra Þjóöhagsstofnunar. ASI mótmælir og varar við niður* fellingu niðurgreiðslna Fundur miöstjórnar Alþýöu- sambands tslands, sem haldinn var I dag, samþykkti einróma eftirfarandi ályktun: Undanfarna mánuði hefur veröbólgan enn magnast. Þegar er ljóst, að veröbólga á þessu ári fer langt fram úr áætlun stjórnvalda. Miöaö viö hiö skerta visitölukerfi, mun kaup- máttur þvi augljóslega rýrna. Rikisstjórnin hefur nú dregiö úr niöurgreiöslum á landbúnaö- arafurðum og hækkuöu þær þvi um 7-9% um slöustu mánaöa- mót, — og fyrirhugað mun aö draga enn frekar úr niöur- greiöslum. Þessi minnkun niðurgreiöslna kemur haröast niöur á tekju- lægstu hópum þjóðfélagsins, einkum barnafólki, og mun draga úr neyslu landbúnaðar- vara. Miðstjórn Alþýðusam- bands íslands mótmælir þvi þessari ákvörðun rikisstjórnar- innar og varar alvarlega viö þvi aö haldið sé áfram á þessari braut.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.