Fréttablaðið - 30.03.2007, Síða 34

Fréttablaðið - 30.03.2007, Síða 34
Álandsþingi sveitarfélaga á dögunum var kynnt viljayfir- lýsing um tímabundna hækkun á framlagi ríkisins í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, m.a. vegna grunn- skólans. Þingið samþykkti einnig að sem fyrst yrði hafinn undirbún- ingur að heildstæðum flutningi ýmissa verkefna til sveitarfé- laga. Var rekstur framhaldsskóla og heilsugæslu sérstaklega nefnd- ur og fleira. Halldór Halldórs- son bæjarstjóri á Ísafirði og for- maður sambandsins sagði þetta mikilvægt skref og margir fleiri hafa tekið í sama streng. Allt lykt- ar þetta óneitanlega af pólitískum yfirboðum í aðdraganda kosninga. Fræðslumál eru stærsti ein- staki málaflokkur sveitarfélaga og kostnaðurinn við þau um það bil helmingur af útgjöldum þeirra. Sérfræðingar telja að stærð sveitarfélaga verði að taka mið af þessu. Grunnskóli með 200 nem- endur í 1.–10. bekk og eina bekkjar- deild í árgangi krefjist að lágmarki 1.000 manna þjónustusvæðis. Grunnskóli með 400-500 nemend- ur í 1.–10. bekk og tvær bekkjar- deildir í árgangi krefjist að lág- marki 2000 manna þjónustusvæð- is. Um helmingur sveitarfélaga hefur færri en 500 íbúa og um 70% þeirra hafa færri en 1.000 íbúa. Ef sveitarfélögin vilja taka að sér fleiri verkefni þarf augljóslega fyrst að sameina mörg þeirra og tryggja tekjustofna. Varla ætla þau að gera sömu mistökin og þegar þau tóku við rekstri grunnskólans og allt of litlir fjármunir fylgdu með? Framhaldsskólarnir eru ekki einsleitt skólastig heldur hafa þeir og eiga að hafa mismunandi áhersl- ur í starfi sínu, að því ógleymdu að námsbrautir eru misdýrar. Verk- efnið er því verulega flókið, bæði fjárhagslega og faglega. Sveitar- félögin hafa þegar beina aðkomu að skólanefndum framhaldsskól- anna með fulltrúum sínum og ef í þeirra ranni er að finna frjóar hugmyndir um starf skólanna er þeim í lófa lagið að koma þeim á fram- færi. Í ályktun landsþings- ins er flutn- ingur fram- haldsskóla frá ríki til sveit- arfélaga sagður auka sveigjanleg skil skólastiga. Skólaþróun verður þó að sjálfsögðu að styrkja stöðu allra nemenda en ekki bara hinna bráðgeru. Í því sambandi hefur verið rætt um brýna nauðsyn þess að auka námsval á unglingstigi, mismunandi inntak og viðfangs- efni í námi og að auka hlut verk- og listgreina í almennu námi. Til- tekinn hópur nær ekki að njóta sín við núverandi starfshætti. Upp- lýsingar Námsmatsstofnunar um árangur 10. bekkjar á samræmdu prófi í stærðfræði vorið 2006 sýna að tæplega 34% árgangsins stóð- ust ekki þau inntökuskilyrði sem framhaldsskólinn setur á aðrar námsbrautir en almenna braut. Samrýmist þetta hugmyndum um einstaklingsmiðað nám og mark- miðinu um að grunnskólinn sinni ólíkum þörfum? Skýrar heimild- ir eru í grunnskólalögum um að nemendur geti lokið skyldunámi á styttri tíma en 10 árum. Þrátt fyrir þetta hefur þeim sem ljúka skyldu- námi yngri en 16 ára ekki fjölgað að ráði. Mikilvægt er að löggjaf- inn setji skýrar leikreglur um rétt allra nemenda til fjölbreytilegra náms en nú er, um námskostnað á mörkum grunn- og framhalds- skóla, um hvenær nemandi hefur lokið námi í einstökum greinum og skólaskyldu sinni í heild. Ein þeirra nefnda sem starfað hafa að tíu skrefa samkomulagi kennara- samtakanna og menntamálaráð- herra birtir innan skamms löngu tímabærar tillögur um þessi at- riði. Flutningur framhaldsskóla til sveitarfélaga er á hinn bóginn ekki nauðsynlegt skilyrði fyrir auknum sveigjanleika skólastiga. Formaður meirihluta mennta- ráðs Reykjavíkur sagði fyrir skömmu að stökkbreyting hefði orðið í grunnskólum undir forystu sveitarfélaganna. Annar sveitar- stjórnarfulltrúi sagði grunnskól- ann hafa blómstrað og spenn- andi að bæta framhaldsskólanum við. Það er rétt að húsnæði hefur tekið stakkaskiptum, aðstaða nem- enda og starfsfólks verið bætt og víða er metnaður sveitarstjórna fyrir hönd sinna skóla. En skóli er ekki bara hús, tæki og tól heldur samfélag þar sem verður að ríkja gagnkvæmur skilningur og sátt. Því miður verður að segjast að engin stökkbreyting hefur orðið á launum og starfskjörum grunn- skólakennara. Ástandið nú geng- ur harkalega nærri starfsþreki þeirra og starfsánægju þannig að komið er ískyggilega nálægt þol- mörkum í þeim efnum. Skipu- lagsbreytingar stoða lítið ef ekki verður afgerandi breyting á land- lægu viðhorfi til kennarastarfsins. Munaðarleysi grunnskólakenn- ara þegar kemur að kjörum þeirra bendir sterklega til að það verði ekki að öllu leyti til velfarnaðar að flytja rekstur framhaldsskóla til sveitarfélaga. Óneitanlega er það mikill kostur við núverandi skip- an mála að framhaldsskólakenn- arar vita hver viðsemjandinn er. Hann er ekki „andlitslaus“ nefnd sem hefur enga raunverulega pól- itíska ábyrgð. Það kunna að vera lýðræðis- leg rök fyrir því að auka vægi og hlutverk sveitarfélaganna. En að öllu samanlögðu sýnist mér langt í land að raunhæft sé að tala um flutning framhaldsskólans til sveitarfélaganna og ábyrgðarleysi að rasa þar um ráð fram. Hvern- ig væri að byrja á því að skapa sátt um grunnskólann og frið um skólastarfið í landinu? Höfundur er formaður Félags framhaldsskólakennara. Sveitarfélögin og framhaldsskólarnir Það er ekki langt síðan að ég gerðist umhverfissinni. Ég ákvað að kynna mér málið ítar- lega og eftir það var niðurstað- an augljós. Hefur þú kynnt þér málið? Hefur þú lesið þér nægi- lega vel til svo þú megir taka upplýsta afstöðu? Það hefur alls ekki verið sýnt fram á hagkvæmni þess að stækka álverið í Straumsvík í stað þess að byggja upp blómlegt og fjölbreytt atvinnulíf í bland við fallega íbúðabyggð á því dýr- mæta landi sem álverið á að rísa á. Fylgismenn stækkunarinn- ar gefa sér þá forsendu að engin arðbær starfsemi komi í staðinn. Það gleymist að minnast á þau vistvænu hátæknifyrirtæki sem við gætum dregið til okkar ef ál- verksmiðjur fá ekki alla orkuna. Alvarlegra er þó að sá kostnað- ur sem hlýst af völdum mengun- ar er aldrei tekinn inn í reikning- inn. Ljóst er að stækkun álversins í Straumsvík mun óhjákvæmilega hafa í för með sér mikla meng- un og sú mengun hverfur ekki. Afstaða stjórnenda Alcan er sú að mengun sem nemur útblæstri alls bílaflota Íslands fer út í and- rúmsloftið og af því að við vitum ekki hvert hún fer þá er þetta í besta lagi. Er þetta sá sem þú vilt vera? Manneskja sem með for- dæmi sínu sendir sjálfum sér, börnum sínum, komandi kynslóð- um og heiminum þessi fullkom- legu ábyrgðarlausu skilaboð? Hvað gerir þú við tæki og hluti sem menga á þínu heimili? Þú losar þig við þá í snatri og líður einkennilega vel á eftir. Við vilj- um ekki skaða okkur og aðra, við viljum ekki sjónmeng- un, við vilj- um hafa fal- legt, hreint og fínt í kring- um okkur, því þannig líður okkur vel. Svona ættum við að hugsa um allt umhverfið okkar. Með athöfnum sínum er mann- kynið á góðri leið með að eyði- leggja vistkerfið og þeir fáu vís- indamenn sem halda öðru fram eru sagðir vera í afneitun, ekki með öllum mjalla eða eiga sér- hagsmuna að gæta. Það er al- gjörlega ábyrgðarlaust og ósann- færandi að ætla öðrum þjóðum það, sem margar hverjar búa við miklu verri aðstæður, að draga úr mengun ef við sem eigum miklu meira en nóg treystum okkur ekki til þess. Hvenær er komið nóg, hvenær ætlar þú að hætta að biðja um meira? Líður okkur ekki það vel að við þurfum ekki leng- ur að framkvæma á kostnað um- hverfisins? Ert þú einn af þeim sem von- ast til að aðrir breyti lífsháttum sínum en ætlar ekki að leggja neitt af mörkum sjálfur? Nær kærleikur þinn bara til þinna nánustu? Og ef kærleikur þinn er bundinn þeim böndum, hefur þú þá skoðað hvers konar áhrif loftslagsbreytingar og mengun almennt mun hafa á þína nán- ustu í framtíðinni ef áfram held- ur sem horfir? Ef þú sannfærist um að álver eigi eftir að auka tekjur bæjar- ins og þú munir af þeim sökum fá betri þjónustu í Hafnarfirði, þá staldraðu aðeins við, mun það virkilega breyta einhverju? Mun þér líða betur? Verður þú ham- ingjusamari? Ætlar þú virki- lega að láta skammtíma „sér- hagmuni“ þína ráða ferðinni? Er fórnarkostnaðurinn þess virði? Er ekki réttlátara og skynsam- legra gagnvart öllum heiminum að lifa í sátt við dýr, gróður, loft, vatn og annað fólk og öðlast þá hugarró og gleði sem því fylg- ir? Hver er uppspretta hamingj- unnar? Kæri Hafnfirðingur, þú ert líka Íslendingur, Norðurlandabúi og jarðarbúi. Hagsmunir þínir og okkar eiga að vera hagsmun- ir heildarinnar. Þetta á ekki að vera pólitískt mál, ekki láta af- stöðu þína í stjórnmálum villa þér sýn. Hugarfarsbreyting jarð- arinnar gæti byrjað á litla Ís- landi og þannig getum við haft gríðarleg margföldunaráhrif um allan heim. Ísland gæti orðið leið- andi land fyrir glæstustu framtíð okkar í sinni fullkomnustu mynd. Það eina sem þú þarft að gera er að byrja að hugsa og hegða þér í samræmi við þann möguleika, því allt sem hefur verið gert við jörðina átti fyrst rót sína að rekja til hugsana og að lokum athafna okkar mannanna. Höfundur er verkefnisstjóri. Ákall til Hafnfirðinga Hvenær er komið nóg, hvenær ætlar þú að hætta að biðja um meira? Líður okkur ekki það vel að við þurfum ekki lengur að framkvæma á kostnað umhverfisins?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.