Fréttablaðið - 30.03.2007, Page 56

Fréttablaðið - 30.03.2007, Page 56
hús&heimili fyrir blómin Heima hjá Orra Árnasyni arkitekt hangir stórt málverk af honum sjálfum og tveimur félögum hans spekingslegum á svip sem vekur vanalega mikla lukku meðal gesta. Orri segir að myndin hafi orðið til eftir kvöldlangar rökræður við listamanninn sjálfan. „Ég var nýkominn heim frá Spáni eftir tíu ára dvöl og sat inni í stofu í minni fyrstu íbúð ásamt félögum mínum,“ segir Orri en þeirra á meðal var listamaðurinn Birgir Snæbjörn Birgisson. „Við vorum að spjalla saman um list og listamenn og ég hafði það á orði að mér þættu þessir listamenn oft heldur stórir upp á sig. Þeir gætu aldrei tekið við pöntunum heldur vildu bara fara eigin leiðir,“ segir Orri og bætir við að Birgir hafi ekki verið sammála þessu. „Ég spurði hann því hvort hann vildi ekki mála mynd af mér. Hann var til í það og við sömdum um kaup og kjör. Þetta var einhver blanda af gríni og mikilmennskubrjálæði,“ segir Orri og hlær. „Þegar til kom fannst mér hálf kjánalegt að vera bara einn á mynd- inni og fékk félaga mína sem sátu með okkur þarna um kvöldið til þess að slást í hópinn,“ segir Orri. Þeir félagar veltu lengi fyrir sér hvaða uppstilling væri heppi- legust og fundu loks málverk af Leó X eftir Rafael þar sem hann situr ásamt tveimur ráðgjöfum sínum og skoðar bók. „Ég hafði ný- lega lesið Moby Dick og var alveg heillaður af henni. Hún var bara bókin í mínum huga,“ segir Orri og nefnir að sér hafi þótt magnað hvernig Ahab skipstjóri var tilbú- inn að leggja allt í sölurnar til að ná hvalnum, jafnvel þótt hann hafi á endanum orðið að lúta í lægra haldi. „Við félagarnir erum því að glugga í Moby Dick á málverk- inu,“ segir arkitektinn. Orri segir að valið hafi staðið á milli þess að hafa hana eða Don Kíkóta með á myndinni en Moby Dick hafi orðið ofan á. „En það er allt í lagi. Ég er með styttu af Don Kíkóta á skrifstofunni hjá mér svo ég reddaði þessu.“ - árá Málverkið spekingslega Orri Árnason arkitekt og málverkið sem varð til fyrir tilviljun. Vinirnir tveir á málverkinu eru þeir Kristinn Jóhannsson og Arnar Matthíasson. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SÆTIR BOLLAR Þessir eru nýkomnir í versl- unina BoConcept. Bollarnir geta nýst undir bæði te og kaffi, eru handfangslausir og fagurlega skreyttir í svörtu og gylltu. Stykkið kostar 690 krónur. VATNSÚÐARINN litli er bæði sætur og nytsamlegur. Með annarri hendi er hægt að halda á honum og sprauta úða yfir uppá- halds pottablómið. Fæst í Hús- gagnahöllinni á 490 kr. Páskatilboð Sidebiters® til varnar og bætir grip Viðarhöfða 6 - Sími 577 4444 Radíal-dekk Vinsælustu 38“ dekkin á markaðnum í dag • Standast mjög vel mál. • Leggjast einstaklega vel við úrhleypingu. • Mjög hljóðlát. • Gróft snjómynstur • Sterkar 3ja laga hliðar • 6 laga sóli, sérlega sterkur • Nákvæm framleiðsla • Langur endingartími Þú kaupir þrjú 38“ MTZ dekk og færð það fjórða frítt. 4 fyr ir 3 Skólavörðustíg 21 Sími 551 4050 • Reykjavík Ný sending af sængurfatnaði Ný mynstur og nýjar gerðir TEPPI Á STIGAHÚS - gott verð - komum og gerum verðtilboð 30. MARS 2007 FÖSTUDAGUR8
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.