Fréttablaðið - 30.03.2007, Síða 98

Fréttablaðið - 30.03.2007, Síða 98
Þeir líta út eins og blanda af liðs- mönnum The Kinks og Velvet Underground. Það er fyrir utan hárskrímslið ógurlega sem er eins konar asísk útgáfa af Robert Smith úr The Cure. Þegar þessi frumraun The Horrors er svo komin í tækið leyna áhrif frá The Birthday Party, The Cramps eða Bauhaus sér ekki. Þetta er þunglamalegt og oft draugalegt rokk á köflum. Þar á ég ekki við að tónlistin sé hæg, þvert á móti fær trommarinn að svitna all verulega. En dimm og lág rödd söngvarans og drakúla- legur orgelleikurinn fær sveitina til þess að hljóma eins sörf-rokk fyrir uppvakninga. Það er greini- lega með vilja gert að láta tónlist- ina hljóma skuggalega í samræmi við allan eyeliner-inn sem þeir mála undir augun á hverju kvöldi, auðvitað eftir að myrkva tekur. Svona rokk vampírur láta ekki sjá sig í dagsbirtu. The Horrors er vissulega áhuga- verð sveit, þá sérstaklega fyrir þá ákvörðun sína að gefa út plötu sem hunsar málamiðlanir tónlist- ariðnaðsins algjörlega. Við fyrstu hlustun er ekkert lag hérna sem ég gæti ímyndað mér að útvarps- stöðvar myndu vilja spila. Það er svo kannski einmitt vegna þessar- ar staðfestu þeirra að þeir fengu þó nokkra athygli frá bresku út- varpsstöðvunum? Lagið Sheena is a Parasite hefur gert ágætis lukku í Bretlandi og liðsmenn sveitar- innar eru orðnir fastagestir í tón- listarblöðum á við NME. The Horrors eru eins og skugga- hliðin af Bloc Party. Ef breski tón- listarmarkaðurinn væri teikni- mynd væru The Horrors skugga- legu og ofbeldisfullu andhetjurnar sem væru alltaf að reyna rífa niður ímynd góðu gæjanna. Svipað eins og The Misfits í Jem-teiknimynd- unum. Þessi tónlist er sköpuð sem andstæða af umhverfinu. Flótti liðsmanna frá því að verða eins og allir hinir. Þetta er fínasta frumraun þrátt fyrir að hún hljómi eins og hún sé gerð seint á áttunda áratugnum. Brimbrettarokk fyrir uppvakninga! Hljómsveitin Blonde Red- head mun brátt gleðja íslenska tónlistarunnendur á ný en tríóið heldur tvenna tónleika í aprílbyrjun. Einn- ig er von á nýrri plötu frá bandinu svo við slógum á þráðinn til trommuleikara sveitarinnar, hins hógværa en spurula Simone Pace. „Mér finnst þetta bara fín plata,“ segir Pace íhugull þegar hann er inntur eftir lýsingu á nýjasta sköpunarverki tríósins. Platan „23“ kemur út í Bandaríkjunum 23. apríl en hún er sjöunda plata sveitarinnar sem síðast gaf út plötuna „Misery is a Butterfly“ árið 2004. Pace orðar það svo að nýja platan sé beinskeyttari og dá- lítið ákveðnari en sú síðasta og út- skýrir að tónsmíðarnar hafi geng- ið greiðar en áður. „Við semjum lögin í sameiningu og það gekk nokkuð vel, það var alls ekki jafn flókið og oft áður,“ útskýrir Pace en hljómsveitin hefur starfað í óbreyttri mynd frá árinu 1995 svo félagar hennar eru líklegast orðn- ir nokkuð vel kunnugir, bróðir Simone og tvíburi, Amedeo Pace, syngur og leikur á gítar sem og hin sjarmerandi Kazu Makino. Pace líkir titli plötunnar við skemmtilega tilviljun. „Þessi tala hefur sérstaka þýðingu fyrir Kazu, hún er alltaf að hnjóta um hana, þetta er til dæmis númerið á íbúð- inni hennar. Það var nú bara pínu fyndið að platan ætti að koma út 23 . apríl. Við vildum velja einfald- an titil á plötuna – kannski færir þessi tala okkur gæfu?“ Platan var tekin upp í New York og tók sú vinna um tvo mánuði. „Það erfiðasta var að við vorum ekki með neinn upptökustjóra í þetta sinn,“ bætir Pace við, „svo þetta var heilmikil vinna en við höfum verið að þjálfa okkur til að geta gert þetta allt sjálf. Við höfum fengið aðstoð á hinum plötunum okkar en erum alltaf mjög virk í öll upptökuferlinu. Nú vorum við bara til í að láta reyna á það. Erfið- ast var að skipuleggja sig og finna tíma til að gera allt – þegar maður er að taka upp þá flýgur tíminn frá manni. Í New York býr maður ekki við þau forréttindi að geta verið eins lengi og manni sýnist í stúdíóinu, mér skilst að það sé að- eins öðruvísi hjá ykkur á Íslandi? Er það ekki aðeins afslappaðra?“ Blaðamaður hefur engan heil- brigðan samanburð svo hann snýr talinu að tónleikunum og spyr á hverju hlustendur megi eiga von í aprílbyrjun. „Við ætlum að reyna að spila eitthvað af nýju lögunum, eins mörg og við getum. Kannski spilar Skúli [Sverrisson] með okkur – ég veit það ekki ennþá,“ segir Pace rólyndislega. Tónlist- armaðurinn Skúli Sverrisson er góðkunningi hljómsveitarinnar og hefur leikið á bassa fyrir sveit- ina um árabil, allt frá fyrstu plöt- unni. „Við höfum þekkst í næstum tuttugu ár,“ áréttar Pace, „hann er frábær gaur. Bara mætir í stúdíó- ið og gerir allt í einni heimsókn. Hann skilur tónlistina strax.“ Blonde Redhead leikur á skemmtistaðnum Nasa við Austur- völl 5. apríl ásamt Kristinu Hersh, forsprakka bandarísku hljóm- sveitarinnar Throwing Muses sem dáleiddi gesti Innipúkans í fyrra. Hljómsveitin Reykjavík! mun einnig láta í sér heyra.Trióið leik- ur síðan á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði 7. apríl. „Er það ekki einhvers staðar á miðri eyjunni?“ spyr Pace forvitinn og vill einnig vita hvort tónleikarn- ir verði inni eða úti. Hann virð- ist nokkuð sáttur við svör blaða- manns og segir að lýsingar á að- stæðum þar vestra hljómi bara vel. Að lokinni Íslandsför tekur við tónleikamaraþon um allar trissur, fyrst ferðast sveitin um Bandaríkin og mun síðan leggja meginland Evrópu að fótum sér og skreppa til Ástralíu og Japan. „Já,“ segir trommarinn og dregur seiminn, „það verður dálítið mikið að gera.“ Pace útskýrir að hljómsveitin taki næstum allan tíma þeirra fé- laga og því gefist þeim fá tæki- færi til annarra starfa. „Þá sjald- an við höfum tíma reynum við að gera fleira sem við höfum yndi af - Kazu hefur til dæmis mjög gaman af hestum og ég af mótorhjólum. Ég veit ekki hvað við gerum ef við fáum einhvern frítíma á Íslandi – kannski ég fái bara að hanga með Skúla?“ AÐEIN S Á TÓNLI ST.IS Silvia Night - Goldmine Forhlustun hafin á Tónlist.is! Kemur í verslanir 1. apríl
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.