Ísafold - 07.12.1907, Blaðsíða 1

Ísafold - 07.12.1907, Blaðsíða 1
ISAFOLD. Oppsijga (aArtflsg) band.fi V’.ð iramót, ógí)d asma kouun só tí) átgefanda fyrir 1. október og kanp andi gkuldlaus við biaðið. Afgreiðsla Austumtrœtx 8. Ileykjavík laugardag'inn 7. des». 1907. SCemur át ýmist eion sinni eða visv. í vikn. Verð úrg. (80 ark. minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða l*/t doll.; borgist fyrir miðjan júlí (erlendis fyrir fram), XXXIV. arg. Augnlækning ók. 1. og 3. þrd. kl. 2—8 i spital. Forngripasafn opiö é. mvd. og ld. 11—12. íHlutabankinn opinn 10—2* l/» og ó»/t—7. J£. F. U. M. Lestrar- og skrilstofa frA 8 árd. til 10 siód. Alm. fundir fsd, og sd. 8 V* siód. Landakotskirkja. Guösþj.ÖVs og 6 A helgidögum. Landakotsspitali f. sjúkravitj. 10 V*—12 og 4—6. Landsbankinn 10ll*—2 */*. Bankastjórn við 12—1. Landsbókasafn 12—3 og 6—8. Landsskjalasafnið A þrdn fmd. og Id. 12—1. .Lækning ók. i læknask. þrd. og fsd. 11—12. Náttúrugripasafn á sd. 2—8. Tannlækning ók. i Pósthússtr. 14, l.og3.md. 11—1 líeni, vidi, vici. Hvað tjáir þó Pétur og Páll ug jafn- vel Mattías beri oflof á þá mótora, sem þeir eru agentar fyrir, þegar öllum lýð er Ijóst að Dan-mótorinn ber höfuð og herð- ár yfir keppinautana. Röksemdir: Dan einn steinolíumótora hefir prisv- ar fengið gullmedalíu (í Marstrandi904, í París 1905, í Bergen 1907) og alls 35 sinnum verið verðlaunaður. Það á því heima um Dan hið forn- kveðna: Kom, sa og sigraði. ísafold kemur næst miðvikudaginn 11. þ, m. Bein leið til Canada. Hver um annan þveran hafa les- endur ísafoldar látið í ljósi frá því «m daginn undrun sína yfir því, að •ekki skuli leiðin sú, beint frá Reykja- vík tii Quebec, vera lengri en þetta, sem sagt var í blaðinu síðast, og vil- jað jafnvel rengja það hálft í hvoru. Það sýnist vera miklu lengra á landa- tbréfum. Já, það sýnist vera miklu lengra. Það mun hafa margan vilt; og hafa þeir því aldrei rent huganum svo hátt að gera ráð fyrir öðruvisi ferða- lagi þangað vestur um haf til Canada en héðan til Englands fyrst. Þeir hafa alls ekki varað sig á því, að það er alt að því helmings krókur. Svo var og lengi vel hér, að eng- inn maður hugsaði sér aðra leið út í heiminn en til Danmerkui fyrst eða Khafnar. Fyrir margra alda einokun •og tjóður við stórveldið, það var sú hugsun landslýð öllum sama sem ásköpuð. Að öðru leyti stafar misskilningur- inn um vegalengdina milli íslands og Canada vafalaust af því, að fæstir líta nokkurn tíma á jarðar hnattmynd, heldur flatmynd hennar, og vara sig því ekki á, hvað hnötturinn er orð- inn mjór svona norðarlega. Síðast voru þar umræddar vega- Jengdir til teknar mjög lauslega, hér um, bil og ekki frekara. Það var nóg til samanburðar. Hér eru þær allná- kvæmt reiknaðar (af stýrrmannakenn- ara hr. M. M.), fyrst bein leið eða sjónhending (I) og þá skipaleið (II), eftir bókum eða siglingabréfum, í mílufjórð- ungum (kvm.) I II 1. Rvík — Khöfn 1133 1230 2. » — Leith 738 898 3. » — Fagureyjars. 1328 1328 4. » — Quebec 1896 2000 5. Khöfn — Leith 528 610 6. Liverpool — Quebec 2550 2640 Sú er hin eina ónákvæmni í þess- ari skýrslu, að skipaleið úr mynninu á Fagureyjarsundi upp að Quebec er sett nokkuð eftir ágizkan; bein er hún 650 mílufjórðungar. Með 12 mílna meðalhraða yrði þá skip milli Reykjavíkur og Quebec tæpa 7 sólarhringa. Og með minni hraða eru varla 1500—2000 smálesta skip smíðað nú orðið, að minstakosti ef þau eru ætluð til mannflutninga meðfram. — Nýjustu úthafsbáknin miklu hafa komist upp í 24 mílna hraða; og skulum vér vitaskuld ekki miða við það. Kunnugt er, að i vestari í Canada- ríkjunum hefir verið lengi á dagskrá að fá lagða járnbraut norður að Hud- sonsflóa. Það er talinn mikill hagur fyrir þungavöruflutninga hingað í álfu, pó að sjóleiðin austur um haf yiði þá hér um bil þriðjungi lengri, og pó að hún verði eigi notuð nema 3—4 mánuði árs í hæsta lagi fyrir ísum. Svo miklum mun eru land- flutningar dýrari. Þeim flutningssparnaði er auðvitað gott að taka fyrir oss, er þar að kem- ur. En nauðsynleg er oss hin leiðin alt um það, bæði þangað til, og eins á eftir, vegna mannflutninga og vegna annarra tima árs. Reykjavíkur-annáll. Brunabótavirðing var staðfest á siðasta bæjarstjórnarfundi á þessnm húseignum i kr. Jóns Guðmundssonar á Melstað. . . 5,862 Thorvaldsens félags í Austurstræti . 4,132 — — i Yeltusundi . . 8,767 Dánir. Árni B. Thorsteinsson landfógeti 29. nóv. 79 ára. Jón Einarsson verzlm., ekki tvitugur, dó 4. þ. m. úr heilabólgu, afleiðing mislinga i haust i septbr. Margrét Þorleifsdóttir, gift kona Lauga- veg 57, 25 ára (giftist i fyrra 16. des.), dó 1. des. Erfðafestulandið Elsumýrarbletti leyfði bæjarstjórn á siðasta fundi Sveini Jónssynl að selja i byggingaalóðir með venjul. kjör- um þessum mönnum, á 1 kr. feralin: Erasmus Eiiassyni.......... 1363 ferálnir Erasmus Gislasyni............ 1070 — Magnúsi Blöndahl............ 2068 — Sigvalda Hákonarsyni .... 1363 — Sveinjóni Einarssyni......... 611 — Sverri Sverrissyni........... 2726 — Sæmundi Þórðarsyni..... 1044 — Þorsteini Magnússyni .... 1551 — Ekknasjóður Reykjavikur er nú orðinn svo öflug stofnun, að hann veitir 40 ekk- jum nokkurn ársstyrk, enda leggja nær 400 manns i hann 2 kr. árstillag hver. Hann á crðið um 12000 kr. fastasjóð. Fasteignasala. Þinglýsing á bæjarþingi 28. nóv.: Sigurður Ólafsson selur 29. septbr. Árna Guðmundssyni kaupmanni húseignina Garð- bæ með 850 ferálna lóð á 1400 kr. Þinglýsingar á siðasta bæjarþingi (5. þ. mán.): Davíð Östlund ritstjóri selur 27. nóvbr. sira Lárusi Benediktssyni húseign nr. 23 við Þingholtsstræti með tilheyrandi lóð á 24,500 kr. Gisli Finnsson járnsm. selur 30. sept. Kristni Jónssyni trésm húseign nr. 38 við Yesturgötu á 8000 kr. Lárus prestur Benediktsson selur 27. nóv. Davíð Östlund húseign nr. 29 við Hverfis- götu á 6500 kr. og húseign nr. 17 B við Skólavörðustig með 589 ferálna lóð á 9000 kr. Sigurður Olafsson selur 19. nóvbr. Garð- ari Gíslasyni & Hay húseign nr. 32 við Laugaveg á 5150 kr. Sturla Jónsson kaupm. og Gisli Þorbjarn- arson búfræðingur selja 22. maí Andrési Þorleifssyni húseignina SyðraBerg við Grundarstig. Sturla Jónsson kaupm. selur 2. júli Jóni Sveinssyni trésmið húseign nr. 61 við Laugaveg á 16000 kr. Þorsteinn Sigurðsson kaupm. selur 23. septbr. Baldri Benediktssyni trésmið húseign nr. 9 við Klapparstig með 411 ferálna lóð á 7000 kr. og hálfa húscign nr. 16 við Barónsstig á 4000 kr. Heiðursminning var Dcivíð Östlund trú- boða og ritstjóra hér i bæ haldin 27. f. m., með því að þá voru liðin 10 ár frá þvi er hann kom hingað til lands. Hann er sænskur að ætt og nppruna, nam tungu vora ótrúlega fljótt og vel, gerðist jafnvel ritfær i henni á fárra missira fresti og rit- ar haDa nú mörgum skólagengnum og jafn- vel hálærðum íslending betur. Hann er mesti eljumaður og atorku, bindindisfröm- uður hinn mesti og mikill nytsemdarmaður á marga lund. Honum og frú hans var flutt kvæði og haldið samsæti þann dag af safnaðarmönn- um hans og öðrum vinum, er færðu hon- um auk þess ýmsa góða muni að gjöf (vand- aðan skrifborðsstól, staf úr dýrindisviði o.fl.). Hjúskapur. Halldór Kr. Július cand. jur. og ym. Ingibjörg Hjartardóttir Lindal, óO. nóv. Hans Georg Andersen verzlm. og ym. Halldóra Þuiíður Guðmundsdóttir 23. nóv. Ingjaldur Þórðarson (Hverfisg. 36) og ym. Guðrún Pétursdóttir, s. d. Jón Einamon (Frkst. 4) og ym. Guðrún Sigurðardóttir, 30. vóv. Kjartan Höskaldsson (Njg. 17) og ym. Margrét Guðbrandsdóttir, s. d. Olafur ísieifsson skipstjóri og ym. Stefania Pétursdóttir. 28. nóv. Páll Jónsson (Skólavst. 12) og ym, Stein- nnn Júlia Gisladóttir, 23. nóv. Sveinn Jónsson (Njg. 29) og ym. Guð- rún Teitsdóttir, 30. nóv. Sveinn Sveinbjarnarson skipstjóri og ym. Sigriður Jónsdóttir, 23. vóv. Höfðingleg gjöf er það, sem Jón Þórðar- son kaupmaður hefir vikið nýlega stofnun- inni hótel ísland, 1000 kr. i peningum. Hann cr formaður i stjórnarnefnd þess. Það er, eins og kunnugt er, eign Good- templara, veitir mat, kaffi og óáfenga drykki, og hýsir gesti. Lántaka bæjarsjóðs. Bæjarfógeti tilkynti á síðasta bæjarstjórnarfundi, að 1. skamtur áður samþyktrar lántöku hjá Bikuben í Khöfn væri nú greiddur slandsbanka i reikning hans við Privatbankann, og lýkur bæjarstjórn þar með 2 bráðabirgðarlánum hjá íslandsbanka. Leikfélag Reykjavikur er tekið til starfa fyrir skömmu, þegar létti mestu tombólu- hriðinni. Það hefir leikið mörg kvöld i striklotu hinn enska, viðfræga gamanleik: Föðursystur Charleys, sem hér var sýndur fyrir nokkrum árnm. Árni Eiríksson leikur aðalhlutverkið og þykir takast vel, svo og hinum leikendunum yfirleitt, enda aðsókn mikil. Mannsbani varð ungur drengur hér i bæ fyrir skömmu, annars pilts, sem hann var að leika sér við með áflogum: kastaði steini i höfuð honum, er hann beið bana af litlu eftir. Sá hét Þórður Árnason, er fyrir áverkanum varð, 10 vetra gamall. Styrktarsjóður verzlunarmanna i Reykja- vik eða fullu nafni styrktar- og sjúkrasjóður v. i R. heitir hinn elzti þess kyns sjóður hér á landi, stofnaður fyrir 40 árum og hélt afmæli sitt 24. f. m., kominn þá upp í 34 þús. kr. og hefir þó úthlutað styrk um 17 þús. kr. Messað á morgun í báðum kirkjum á hádegi og siðdegis i dómk. (J. H.). í 75. töliiblað I Erlendar ritsimafréttir til ísafoldar frá R. B. Kh. 3. nóv. kl. 4 sd. Samningar við Sameín félag. Hafstein hefir frestað heimferð sinni til 6. des. Hann hefir staðið i samning- um við Samein.félag og árangurinn verið sd, að gamli samningurinn hefir orðið endurnýjaður, þó svo, að strand- ferðirnar hafa verið teknar upp aftur og bœtt við aukaferðum. Franskt loftfar horfið. Franska loftfarið Patrie sleit sig laust á laugardaginn, lagði d stað i loftferðalag og sást síðast til þess við írlands strendur; stefndi þá i útnorður- átt. Námusprenging i Pennsylvaniu. Þar urðu til inni 60 manns og köfnuðu. Kh. 5. des. kl. 3 sd. Oscar konungur veikur. Oscar konungur lasinn vegna svefn- leysis. Konungsefni tekið við stjórn. Dæmdir morðingjar. Morðmálinu í Montecarlo lokið þann veg, að Vere Goold var dcemdur i œfi- langa hegningarhúsvist, en kona hans til lifláts. Þau h'öfðu myrt frú Levin frd Stokkhólmi af dönskum œttum. íslenzkt-fœreyskt hlutafélag. Stofnað hlutafélag með þvi nafni og hefir það tekið að sér fiskiútgerð Laurit- zens i Esbjerg og Balslevs í Kaupmanna- höfn. Það œtlar að fœra út kviarnar til fiskiveiða við ísland. Lauritzen er formaður i stjóm félagsins. Hlutaféð hálf miljón. Brezki konsúllinn. Um það mál er nú fengin sú frek- ari vissa, að skrifstofukostnaðurinn hér á að haldast, 100 ,pd. sterling, og að fullráðið er, að Asgeir kaupm. Sigurísson, verði hér varakonsúll, en þar með haft í áformi, að fá gerða hið bráðasta breyting á sambandinu við stjórnina í Lundúnum, að hann eigi beint við hana, en ekki Færeyja- konsúlinn, sem er ekki einungis afar- óviðfeldið fyrir oss, heldur mjög svo óhagfelt, með því að póstskip fara nú orðið að öllum jafnaði fram hjá Færeyjum, sem betur fer. Gufuskipin. S/s Vesta lagði á stað hingað frá Khöfn 5. þ. m. S/s Ceres hélt til Vestfjarða f fyrra dag. S/s Ceres kom sunnud. 1. þ. m. frá út- löndum. Meðal farþega frá Englandi var Einar Hjörleifsson og verzlunarm. Ólafur Gunnlaugsson Briem. Veðrátta. Mesta hægviðri um land alt þessa viku alla, með þíðu meginpartin og jafnvel töluverðum hlýindum, t. d. nær 9 stig á Seyðisf. á sunnudaginn; froststirðn- ingur aðeins hér i gær og með bliðu og i dag; nú föl á jörðu. Hér er hita-yfirlitið: Rv. Bl. Ak. Gr. Sf. Sd. 1. L4.1 +5.5 +7.0 +3.0 -8.7 Md. 2. -0.2 +0.5 -h0.5 +-4.0 -0.7 Þrd. 3. -3.0 +0.4 0.0 +-0.5 -0.7 Mvd. 4. -3.1 +3.1 +3.0 0.0 -2.5 Fd. 5. -2.2 +3.4 +3.5 0.6 -2.4 Fsd. 6. -3.4 +-0.4 -1-2.0 +1.0 - hl.8 Ld. 7. -1.1 0.0 +0.2 +3.5 _ -1.8

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.