Fréttablaðið - 11.04.2007, Qupperneq 22
Vegna mikillar sölu á Ford
Edge í Ameríku koma fáir bílar
hingað til lands.
Ford Edge er nýkominn á markað
en þrátt fyrir það er hann þegar
farinn að narta í skottið á helstu
keppinautunum. Sala hefur geng-
ið vonum framar erlendis bæði
hvað varðar sölutölur og hversu
fljótt bílarnir fara, en að meðaltali
stendur hver bíll aðeins í 20 daga
á plani áður en hann selst.
Hérlendis var salan í raun orðin
góð áður en bíllinn var frumsýnd-
ur, og voru til að mynda einhverjir
búnir að panta bílinn áður en hann
var fáanlegur í reynsluakstur.
Vegna mikillar sölu í Ameríku
fékk Brimborg aðeins tuttugu bíla,
tíu eru nú þegar komnir og seldir,
en hinir tíu koma á næsti tveimur
mánðum.
Ford Edge
rokselst
Illa gengur að selja Chrysler
og virðast fáið hafa áhuga á að
kaupa.
Ekki er hægt að segja að tilboðun-
um rigni inn í Chrysler, en Daimler-
Chrysler leitar nú logandi ljósi að
kaupanda. GM hefur reyndar boð-
ist til að kaupa, eða öllu heldur taka
við fyrirtækinu, og eru forsvars-
menn fyrirtækisins tilbúnir að láta
tæplega 10 prósenta hlut í eigin fyr-
irtæki í skiptunum.
Á sama tíma vilja þeir fá háar
fjárhæðir frá Þjóðverjunum til
að losa um heilbrigðistryggingar.
Þegar dæmið er reiknað til enda
kemur í ljós að tilboðið hljóðar að-
eins upp á um 1,4 milljarða.
Kanadíska varahlutafyrirtæk-
ið Magna hefur hins vegar boðið
300 milljarða í Chrysler, sem
hljómar töluvert betur í eyrum
DaimlerChrysler-manna. Auðkýf-
ingurinn Kerkorian hefur boðið
svipaða upphæð en hann hefur lengi
haft augastað á fyrirtækinu.
Tvennum sögum fer af öllum til-
boðum og stöðugt birtast fregnir um
að ný tilboð berist eða fallið sé frá
öðrum. Sama hvernig fer er ljóst að
DaimlerChrysler hefur tapað gríð-
arlegum fjárhæðum á Chrysler, en
fyrirtækið, sem hét Daimler-Benz
þá, borgaði 2.500 milljarða fyrir
Chrysler árið 1998.
Chrysler verðlaust?
Ökunám í fjarnámi !!!!
Ekill ökuskóli er eini ökuskólinn á landinu sem býður upp
á ökunám í fjarnámi. Þú getur unnið námskeiðin
í tölvunni heima þegar þér hentar.
Skoðaðu þennan frábæra kost á ekill.is
Námskeið sem hægt er að taka nú þegar eru fyrra námskeið
til almennra ökuréttinda (Ö1) og bifhjólanámskeið.
Fleiri námskeið eru væntanleg á næstu mánuðum
Ö2 námskeið / Aukin ökuréttindi / Fyrir lesblinda ofl.
Ekill ökuskóli. Sími 461-7800 www.ekill.is ekill@ekill.is
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Daewoo lyftarar
Partur-Spyrnan-Lyftarar • Eldshöfða 10 • 110 Reykjavík • Sími: 585-2500 • Fax: 567-9557
Gæði á góðu verði
ALLT UM HOLLYWOOD
ENTERTAINMENT TONIGHT OG INSIDER
90% heimila ná Sirkus TV á ADSL kerfinu, Breiðbandinu, Digital Ísland
en einnig er hægt að ná Sirkus TV með venjulegu UHF loftneti