Fréttablaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 10
Fljótvirkt, bólgueyðandi verkjalyf Díklófenak-k 12,5 mg Fæst án lyfseðils Voltaren Dolo (díklófenak kalíum) 12,5 mg töflur. Notað við vægum verkjum eins og t.d. höfuðverk, tannverk, tíðaverk, verk vegna gigtarsjúdóma, vöðvaverk eða bakverk og hita af völdum inflúensu eða kvefs. Dragi ekki úr einkennum á nokkrum dögum, skal leita til læknis. Þeir sem eru með eða haft sögu um maga- eða skeifugarnasár eða skerta lifrastarfsemi ættu að ráðfæra sig við lækni áður en lyfið er notað. Þeir sem þola ekki acetýlsalisýru, ibuprofen eða önnur bólgueyðandi lyf eða eru með astma eiga ekki að nota Voltaren Dolo . Notið lyfið ekki á meðgöngu nema í samráði við lækni, en aldrei á síðasta þriðjungi meðgöngu. Leitið ráða læknis eða lyfjafræðings um milliverkanir við önnur lyf. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan, Kirkjulundi 17, 210 Garðabæ. ® ® UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ FJÁRFESTINGARTÆKIFÆRI Í ÞRÓUNARLÖNDUM RÁÐSTEFNA Á RADISSON SAS HÓTEL SÖGU, FIMMTUDAGINN 24. MAÍ 2007 09:00 SKRÁNING 10:15 SETNINGARÁVARP Utanríkisráðherra Íslands 10:25 ERU SAMSTARFSVERKEFNI Í ÞRÓUNARLÖNDUM TÆKIFÆRI EÐA TÁLSÝNIR? Stefán Þórarinsson, framkvæmdastjóri Nýsis hf 10:45 SAMSTARF HINS OPINBERA OG EINKAGEIRANS Ragna Sara Jónsdóttir, viðskiptafulltrúi utanríkisráðuneytisins 11:05 MENNINGARGILDRUR Þorgeir Pálsson, framkvæmdastjóri Thorp ehf 11:25 INVESTMENT FROM ABROAD, NAMIBIAN PERSPECTIVE Bernadette Artivor, framkvæmdastjóri fjárfestingarstofu Namibíu 12:00 HÁDEGISVERÐUR 13:00 WORLD BANK OPERATION, OPPORTUNITIES, JOINT EFFORT Kieran Kelleher, Senior Fisheries Specialist 13:30 RÓIÐ Á NÝJUM MIÐUM. FRUMHERJASTARF Í SJÁVARÚTVEGI ÞRÓUNARLANDS Sigurður G. Bogason, framkvæmdastjóri MarkMar ehf 13:50 FJÁRFESTINGAR OG LÁNVEITINGAR Í ÞRÓUNARLÖNDUM – AF SJÓNARHÓLI GLITNIS Ásmundur Gíslason, sérfræðingur hjá Glitni 14:20 ÞAR SEM SMJÖRIÐ DRÝPUR AF HVERJU STRÁI Guðlaugur Þór Pálsson, framkvæmdastjóri Frostmarks ehf 14:40 KAFFIHLÉ 15:00 STOFNUN OG REKSTUR FYRIRTÆKIS Í ÞRÓUNARLANDI - REYNSLA FRÁ ÚGANDA Kristján Erlingsson, framkvæmdastjóri Icemark-Africa Ltd 15:20 ÞRÓUNARBANKI EVRÓPU, SAMSTARFSMÖGULEIKAR OG TÆKIFÆRI Baldur Pétursson, aðstoðarframkvæmdastjóri Þróunarbanka Evrópu 15:50 PALLBORÐ: Stjórnandi Helga Jónsdóttir, bæjarstjóri: Þátttakendur úr hópi fyrirlesara 16.20 SAMANTEKT Pétur Bjarnason, framkvæmdastjóri Fiskifélags Íslands 16:30 RÁÐSTEFNUSLIT Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri ÞSSÍ Ráðstefnustjórar: Fyrir hádegi: Helga Jónsdóttir, bæjarstjóri, eftir hádegi: Júlíus Hafstein, sendiherra. RÁÐSTEFNAN ER ÖLLUM OPIN Ráðstefnugjald er 5000 kr. (hádegisverður er innifalinn). Skráningu ber að tilkynna til Fiskifélags Íslands í síma 551 0500 eða á netfangið fi@fiskifelag.is „Það eru átta hús við Sómatún en það níunda er við Ósómatún,“ segir Egill Jónsson, íbúi við Sómatún 8 í Naustahverfi á Akureyri. Egill hefur, ásamt granna sínum Arinbirni Þórarinssyni í Sómatúni 4, kært tillögu að breyttu deili- skipulagi í götunni. Að auki hafa allir íbúar þar, nema einn, skrifað undir mótmælaskjal vegna þessa. Deilan snýst um Sómatún 6, en þar reisir lóðareigandi einbýlis- hús á tveimur hæðum. Egill segir upphaflegt deiliskipulag aðeins hafa gert ráð fyrir einlyftu húsi. Eftir að Egill og Arinbjörn kvört- uðu undan því hafi bæjaryfirvöld breytt deiliskipulaginu þannig að það leyfir nú tveggja hæða hús á þessum þremur lóðum. Þá þegar voru þeir félagar með einlyft hús í byggingu. Þeir saka bæjaryfir- völd um að hafa beitt ósannindum til að hygla þriðja lóðarhafanum. „Kristján Þór Júlíusson, fyrr- verandi bæjarstjóri, var á sex manna fundi með okkur lóðarhöf- unum og þar lagði hann til að ágreiningurinn færi fyrir úrskurðarnefnd og að niðurstaða hennar yrði endanleg. Svo þegar niðurstaðan er honum í óhag, þá kýs hann að gleyma þessum orðum sínum. Ég kalla það að menn gangi á bak orða sinna,“ segir Egill. „Niðurstaða úrskurðarnefndar- innar var alveg ótvíræð. Þarna ætti aðeins að byggja hús á einni hæð. Þá komu saman fjórir menn á vegum Akur- eyrarbæjar: Kristján Þór Júlíusson, þáverandi bæjarstjóri, Hermann Jón Tómasson, verðandi bæjarstjóri, og tveir full- trúar þeirra í skipulags- nefnd. Þeir bjuggu til bréf og lögðu fyrir skipulagsnefnd. Í því kemur fram að úrskurðar- nefnd hafi fundið meint misræmi í gögnunum,“ segir Egill. Kristján Þór vísar þessum ávirðingum á bug. Hann segir misræmi sannarlega hafa verið í annars vegar uppdráttum og hins vegar í texta deiliskipulagsins. „Þegar það kom í ljós þótti eðli- legast að hönnuðir hverfisins gerðu tillögu til skipulagsnefndar um hvernig skyldi fara með þenn- an mismun.“ Kristján segir að bæjarstjórn verði að fara að lögum í málinu en ekki taka afstöðu út frá persón- um. „Það má hún bara ekki gera og ég vona að hún detti ekki í þann pytt. Ég hef aldrei tekið afstöðu í bæjarmálum út frá persónum og hyggst ekki fara að taka upp á því núna þegar ég er að enda minn feril í sveitarstjórn.“ Saka bæjar- yfirvöld um ósannindi Íbúar við Sómatún á Akureyri hafa kært tillögu að nýju deiliskipulagi. Skipulagið var endurskoðað eftir að einn íbúi reisti hærra hús en hinir. Fyrrverandi bæjarstjóri segir að farið hafi verið að lögum. Eysteinn Yngvason í Við- eyjarferðum vill bjóða almenningi ferðir út í Engey. Eysteinn annað- ist siglingar út í Viðey frá 1993 til 2007 en varð undir í útboði um siglingar þangað í sumar. Eysteinn segist samhliða því að annast um æðarvarp í Engey hafa farið þang- að með hópa í skoðunarferðir. Hefur Eysteinn óskað eftir því við umhverfisráð Reykjavíkur að honum verði áfram falið að sjá um æðarvarpið því það fari mjög vel saman við siglingarnar fyrirhug- uðu og þekkingu hans á aðstæðum í eynni. Viðeyjarferjan stefnir á Engey

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.