Fréttablaðið - 16.06.2007, Síða 16

Fréttablaðið - 16.06.2007, Síða 16
greinar@frettabladid.is ÍFréttablaðinu laugardaginn 9. júní rit-aði Davíð Þór Björgvinsson, prófessor og dómari við Mannréttindadómstól Evr- ópu, grein í tilefni af fyrstu útskrift lög- fræðinga frá Háskólanum í Reykjavík. Ástæða er til að samfagna Davíð Þór og öðrum kennurum við skólann með þann merka áfanga – og ekki síst þeim stúdent- um sem luku lagaprófi þetta sinn. Í greininni heldur Davíð því fram að Háskólinn í Reykjavík hafi verið að útskrifa fyrstu lögfræðingana með fullnaðarpróf í lögfræði utan HÍ nú á dögunum. Þetta kemur reyndar oftar en einu sinni fram í grein Davíðs, meðal annars er yfirskriftin í þessa veru og talað um að þar til HR hóf lagakennslu hafi HÍ setið einn að slíkri mennt- un hér á landi. Þessar fullyrðingar Davíðs eru með nokkrum ólíkindum og koma verulega á óvart í ljósi þess að í ársbyrjun 2006 var hópur lögfræð- inga útskrifaður með fullnaðarpróf í lögum frá Háskólanum á Bifröst og hafa reyndar fleiri bæst í þann hóp síðan. Þessir lögfræðingar hafa sumir hverjir nú þegar gengist undir próf til málflutn- ingsréttinda og náð því með láði. Þeim og öðrum úr þessum hópi hefur vegnað vel á vinnumarkaði lögfræðinga. Það sætir furðu að Davíð Þór, sem hefur um árabil starfað við lögfræðikennslu, viti ekki af þessum hópi, en ekki vil ég ætla honum að tala gegn betri vitund. Undir slíkri hagræðingu á staðreyndum verður hins vegar ekki setið þegjandi og því er þess- ari athugasemd komið á framfæri. Ég vil í lokin óska lagadeild Háskólans í Reykja- vík innilega til hamingju með þann árangur að hafa útskrifað sína fyrstu lögfræðinga með meistara- gráðu. Ég efast ekki um að sá hópur og þeir sem í kjölfarið koma eigi eftir að auðga stétt íslenskra lögfræðinga, rétt eins og Bifrestingarnir hafa gert sem nú hafa lokið slíkri gráðu. Höfundur er forseti lagadeildar Háskólans á Bifröst. Velkomnir í hópinn HR-ingar Nú á dögunum kom hingað til Íslands háttsettur gestur að nafni Nicholas Burns. Hann er aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna og átti hér í við- ræðum við forsætis- og utanríkis- ráðherra. Að viðræðunum lokn- um fluttu fjölmiðlar, sem núna eru upp til hópa orðnir stjórnar- sinnaðir, gagnrýnislausar fréttir um gott samband ríkjanna tveggja, rekstur ratsjárkerfisins og fleiri tæknileg mál sem þarf að semja um. Það er hins vegar full ástæða til að rýna betur í það sem ekki var til umræðu á fundinum. Stundum hefur t.d. þótt ástæða til að ræða ástand mannréttinda- mála við erlenda ráðamenn, jafn- vel þótt ekki séu alltaf miklar líkur til að neitt komi út úr því. Það er gert til að sýna að ríkis- stjórn Íslands taki mannréttindi alvarlega og að þau séu alltaf á dagskrá hjá okkur. Ekki virðist hins vegar hafa þótt ástæða til að ræða mann- réttindamál við Burns. Þó er rík ástæða til þess. Mannrétt- indasamtök um allan heim hafa bent á ítrekuð mannréttinda- brot í tengslum við stríðsrekst- ur Bandaríkjanna í Afghanist- an og Írak. Sérstaklega má þar nefna fangabúðirnar sem Banda- ríkjastjórn rekur í Guantanamo á Kúbu í trássi við alþjóðalög og Colin Powell, fyrrverandi utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur kallað eftir því að verði lokað. Sú yfirlýsing er stórmerki- leg og hefðu einhverjir kannski búist við því að Geir og Ingibjörg Sólrún vildu ræða málið við Burns. En þau steinþögðu. Einnig mætti nefna skýrslu Dick Marty til Evrópuráðsins þar sem því er haldið fram að bandaríska leyniþjónustan reki leynifangelsi víðs vegar í Evr- ópu og þar eigi sér stað athæfi sem stangist á við mannréttinda- stefnu ráðsins. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra Íslands virðast ekki hafa séð ástæðu til að ræða þetta mál við Burns. Mannréttindabrotin sem eiga sér stað í Guantanamo og í leyni- fangelsunum eru órjúfanlegur hluti af stríðsrekstri Bandaríkj- anna í Írak og í Afghanistan. Full ástæða er til þess að fagna yfir- lýsingu utanríkisráðherra um að Íslendingar styðji ekki lengur stríðið í Írak, en jafnframt er at- hyglisvert að forsætisráðherra þegir þunnu hljóði eins og honum komi málið ekki við. Öðru máli gegnir um hið gleymda stríð í Afghanistan. Utanríkisráðherra hefur tekið upp orðræðu fyrri íhaldsstjórnar og kallar stríðið „uppbyggingu“ og að Íslendingar eigi að „leggja sitt af mörkum í þeirri uppbygg- ingu“, svo vitnað sé í hádegis- fréttir Útvarpsins á fimmtudag. Það er hins vegar órökrétt af utanríkisráðherra að gera grein- armun á stríðsrekstri Banda- ríkjanna í Írak og Afghanistan. Fangabúðirnar í Guantanamo voru stofnaðar í kjölfar innrásar- innar í Afghanistan og leynifang- elsin tengjast þeim hernaði ekk- ert síður en hernaðinum í Írak. Ástandið í Afghanistan núna er skelfilegt og hið sama gildir um hernað Bandaríkjanna þar og í Írak. Hann beinist í ríkum mæli gegn óbreyttum borgurum og erfitt að sjá að hann stand- ist viðauka Genfarsáttmálans frá 1977 um vernd þeirra á ófriðar- tímum. Í Afghanistan er engin uppbygging í gangi; þvert á móti ríkir þar stjórnleysi á stór- um svæðum. Vígahópar vaða uppi og fjöldi fólks lætur lífið í hverri viku. Bandaríkjaher á mikinn hlut í þessum hernaði gegn venjulegu fólki í Afghanist- an en í vestrænum fjölmiðlum er fólkið sem verður fyrir byssum Bandaríkjamanna yfirleitt kall- að „vígamenn“ án nánari skil- greiningar. Undanfarna tvo mán- uði hafa a.m.k. 135 óbreyttir borgarar verið myrtir af erlend- um hermönnum í Afghanistan. Núna á þriðjudaginn voru átta afghanskir lögreglumenn drepn- ir af skotglöðum bandarískum hermönnum „fyrir mistök“. Ekk- ert af þessu virðist hafa komið til tals í viðræðum Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur við Nicholas Burns á fimmtudaginn. Í maí síðastliðnum samþykkti þingið í Afghanistan ályktun um að NATO-herirnir ættu að láta af árásum á Talibana og að ríkis- stjórn landsins ætti þegar að hefja viðræður um vopnahlé. Þessi ályktun hafði engin áhrif á framgöngu NATO-herjanna því að Afghanistan er hvorki lýð- ræðisríki né sjálfstætt ríki nema að nafninu til. Er ekki ástæða til þess að utanríkisráðherra út- skýri hvers konar „uppbygging“ er fólgin í hernaði sem fer fram í trássi við þjóðþing viðkomandi lands? Það er skiljanlegt að stjórn- völd á Íslandi vilji eiga vinsam- leg samskipti við Bandaríkin. En vinur er sá sem til vamms segir. Samskipti íslenskra stjórnvalda við bandaríska ráðamenn hafa til þessa einkennst af þrælslund fremur en vináttu og er sú pólitík greinilega ekki á undanhaldi. UppbygginginE ftirspurn eftir lífrænum vörum hefur aukist gífur- lega á síðustu þremur árum og má segja að spreng- ing hafi orðið. Framboð á lífrænum vörum er þó ekki í samræmi við þessa miklu eftirspurn, enda hefur líf- ræn ræktun aðeins verið lítill hluti af landbúnaði í hinum vestræna heimi. Á Íslandi stunda örfáir bændur lífræna ræktun og fjölgar þeim engan veginn nóg til að anna stóraukinni eftirspurn. Á það sínar skýringar. Hægt hefur gengið að byggja upp markaðinn á Íslandi með ferskmeti, auk þess sem markaðs- setning hefur verið hverfandi. Lífræn ræktun er hvergi á námsskrá skólanna og umræðan um lífrænan landbúnað er í lágmarki. Enn fremur hefur þáttaka stjórnvalda verið lítil sem engin, sem stendur lífrænni ræktun kannski einna helst fyrir þrifum. Þörf er á viðsnúningi ef íslenskur landbúnaður vill vera í takt við nýja tíma. Sóknarfærin eru til staðar bæði hérlendis og erlendis. Mark- aður fyrir lífrænt vottaðar vörur fer stækkandi og víðast hvar erlendis er ekki hægt að svara eftirspurninni. Möguleikarnir eru miklir og þarf aðeins raunhæfar hugmyndir og verkfæri til framkvæmda til að nýta sér þá. Hér eru öll skilyrði til lífrænnar ræktunar. Orkan og vatn- ið er hreint og þau atriði eru sterk í ímynd Íslands á alþjóða- vettvangi. Skrefin sem þarf að taka til að skipta yfir í lífræna ræktun eru fá. Það tekur býli tvö ár að skipta yfir í lífræna ræktun og fá vottun. Á meðan er uppskerurýrnum mikil og ættu þá stjórnvöld að grípa inn í og styrkja bóndann til að koma ræktuninni af stað. Markmiðið er að gera býlið sjálfbært svo það verði ekki áfram háð styrkjum frá hinu opinbera. Evrópusambandið hefur hvatt til lífrænnar ræktunnar, fyrst og fremst með umhverfissjónarmið í huga, með sér- sniðnum reglugerðum og styrkjum til bænda. Einnig hefur sambandið stutt við rannsóknir, fræðslu og markaðssetningu. Í Bandaríkjunum hefur áherslan hins vegar verið lögð á markaðinn. Þar hafa stjórnvöld stutt markaðsrannsóknir, fræðslu og markaðssetningu á lífrænum landbúnaðarvörum. Markaðurinn er nánast jafnstór í Evrópu og Bandaríkjunum en í Evrópu er land í lífrænni ræktun stærra og framleiðslan margfalt meiri. Fordæmin eru ekki langt undan og vel er hægt að nýta sér reynslu annarra. Aukin umhverfisvitund á stóran þátt í þeim mikla áhuga sem neytandinn sýnir lífrænum vörum. Þær kosta örlítið meira en aðrar vörur, en umhverfisvernd og sanngjörn skipti við bændur eru innifalin í verðinu. Sífellt fleiri eru tilbúnir að borga fyrir meira ef umhverfið nýtur góðs af því. Með ört stækkandi markaði og breyttu hugarfari neytenda ættu bændur að líta á lífræna ræktun sem raunhæfan framtíðar- kost fyrir íslenskan landbúnað. Sóknarfæri fyrir bændur Eyjarslóð 5 101 Reykjavík S: 511 2200 www.seglagerdin.is 150.000,- kr.AFSLÁTTUR Fullt verð kr. 2.850.000,- Tilboð kr. 2.700.000,- Ti lb o ð g ild ir t il 20 . j ú n í 2 00 7Travel king 510 TDF Alde hitakerfi og gólfhiti fylgja með
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.