Fréttablaðið - 16.06.2007, Side 62

Fréttablaðið - 16.06.2007, Side 62
E rtu búin að jafna þig eftir hljómleikaferðina? Þetta er allt að koma. Ég reyni bara að komast í sund einu sinni á dag. Það er mjög gott, hreinsar sál og líkama. Svo er gufan líka snilld. Eftir nokkra heitapotts daga var ég meira að segja búin að enduruppgvöta sund- tökin. Hvar var skemmtilegast að spila? Á mig virkaði þetta allt bara sem ein allsherjar skemmtun. Ítalía var ótrú- lega skemmtileg. Fólkið var bara allt svo rosa hrifið, vinalegt og ruglings- legt, af því að það talaði ekki nokkur maður stakt orð í ensku. En ég skildi samt kannski eitthvað, ég er ekki alveg viss. Eftir að við vorum búin að spila í Mílanó komumst við til dæmis að því að tónleikunum hafði verið útvarpað beint. Við komumst að því fyrir rælni bara af því að einn vinur okkar hafði staðið við mixerinn og heyrt að það var alltaf einhver kynnir að tala um okkur á milli laga í útvarpið. Vín var líka æði! Þar spiluðum við á svona pönkbúllu. Allt starfsfólkið var með hundaólar og gaddabelti. Og það voru áletranir uppi um alla veggi um að kynþáttahatarar og kvenhatarar væru óvelkomnir. Pönkari í einhverri svaka múnderingu kom og færði okkur bestu grænmetissúpu sem ég hef smakkað og sagði okkur að hann hefði eldað hana heima og komið með hana í potti á hjólinu sínu því eldunaraðstaða væri ekki upp á marga fiska á staðn- um. Kurteisari og vinalegri mann hef ég ekki hitt. En staðurinn var þegar opinn og austurríska ríkissjónvarpið var mætt og við sátum þarna til sýnis og allir horfðu á okkur borða og fara síðan eitt af öðru og spila ein á svið- inu fyrir framan allt þetta fólk og sjón- varpið í beinni. Eins og ég segi þá var allt fyndið á þessum túr og skemmti- legt og óviðbúið. Undarlegasta atvikið úti? Eins og ég segi þá leið mér eins og þetta væri allt ein allsherjar undarlegheit. En það sem stendur upp úr er þegar við vorum bókuð á eitthvað strandfestival eftir að tónleikunum í Mílanó var af- lýst vegna veðurs. Því þurfti að redda giggi í skyndi sem myndi um leið redda næstu gistingu. Við renndum af stað daginn eftir að leita að þess- um stað sem tónleikarnir voru bók- aðir á. Við vorum komin í pínulítinn fjallabæ fyrir utan Mílanó og eftir að hafa keyrt í gegnum bæjarmaraþon- ið að leita upplýsinga var okkur fylgt rétt út fyrir litla bæinn á pizzastað. Það var staðurinn! Eftir að hlæja eins og vitleysingar sáum við að sviðið var allt í lagi og þar sem við fengum gist- ingu slógum við til og bárum draslið inn. Ég og Henrik (söngvari og gítar- leikari) vorum svo á sviðinu að koma dótinu okkar í gang þegar maðurinn sem stóð hjá mixernum og hafði hleypt okkur inn fór að tala við okkur, á ít- ölsku auðvitað. Okkur tókst að lokum að skilja að hann var að spyrja hvort við ætluðum að mixa. Við spurðum þá hvort hann vildi ekki mixa. Þá sagði hann að hann gæti það ómögulega því hann þurfti að baka pizzur. Þetta var náttúrlega mjög fyndið og við hugs- uðum bara „Ókei, þetta er hvort eð er pizzustaður, þetta verður fínt“. Og svo gerðum við þetta bara. Það rætt- ist hins vegar algjörlega úr kvöldinu og staðurinn fylltist af fólki sem elsk- aði tónlistina og þetta var æði. Það var til dæmis maður fremst sem hrópaði á Henrik „HENDRIXA HENDRIXA“ aftur og aftur til að líkja honum við Jimi Hendrix og ég stórefast um að hann hafi vitað að hann héti í raun og veru Henrik. Góð reynsla allt saman! Hvernig er að rúnta um með fimm sveittum karlmönnum? Ég veit það ekki. Ég var sveitt sjálf, ég veit ekki hvort mér hafi tekist að vera eitthvað öðruvísi sveitt en þeir. Hvað óttastu mest? Ég er mjög loft- hrædd. Og einhverra hluta vegna kom það í minn hlut að keyra um Alpana, endalausar háar brýr. Mjög ógnvekj- andi. Hvaða lifandi persónu dáist þú mest að og af hverju? Ég dáist mest að börn- unum mínum. Þau eru bara svo enda- laust sæt. Hvað er dýrasti hlutur sem þú hefur nokkurn tímann keypt þér? Íbúðin mín. Hvar myndir þú helst vilja búa? Bara þar sem ég bý eða einhvers staðar í Evrópu. París, Berlín. Kannski New York. Bara alls staðar sem ég gæti haft efni á að lifa sómasamlegu lífi. Ef þú hefðir ofurafl, hvert myndi þitt vera? Gubba peningum. Þá gæti ég gert allt. Hvað gerir þig þunglynda? Að geta ekki gert allt í heiminum sem ég vil, þegar ég vil. Hvað er ljótasti ávaninn sem þú hefur? Að reykja. Hvað er uppáhalds orðið þitt? Þessi er erfið. Hmmm. Ég segi „hérna“ svona 2000 sinnum á dag og „mjög“ mjög oft. Ef þú færir á grímuball, í hverju myndir þú helst fara? Það veit ég ekk- ert! Það einhver svona ákvörðun sem kemur bara þegar grímuballið kemur upp. Kannski bara með sólgleraugu. Þegar ég var lítil var ég alltaf prins- essa sem þurfti að neyða úr gallan- um eftir svona þrjá daga þegar hann var orðinn útataður í kakómalti og ég svaf í fötunum af hræðslu við að þau myndu lenda í þvottavélinni. Köttur eða hundur? Sem ég myndi fá mér ef ég gubbaði peningum? Þá fengi ég mér hund en eins og stendur er kött- ur algjör snilld. Þeir passa sig sjálfir og taka ekkert pláss og eru skemmti- legir líka. Kannski ég fái mér einhvern tíma bara bæði kött og hund. Hvað er neyðarlegasta tómstunda- gamanið þitt? Ég skammast mín held ég ekki fyrir eitthvað sem mér finnst skemmtilegt. Ég spila til dæmis ekki golf. En mér finnst gaman að hlusta á texta í ömurlegum lögum. Ég er sökker fyrir sumu ömurlegu sjón- varpsefni eins og glötuðum raunveru- leikaþáttum, En ég hef verið blessun- arlega laus við sjónvarp síðustu mán- uði svo kannski er mér borgið. Hefurðu einhvern tímann sagt ein- hverjum að þú elskir þá en ekki mein- að það? Nei, en tilfinningar mínar hafa breyst samt með tímanum. Einu sinni elskaði ég til dæmis Wham. Þeir eiga mjög góða texta. Hverjum þremur myndir þú bjóða í draumadinner? Ég myndi velja fólk sem kynni að meta það svo ég myndi segja Nico manninum mínum og Jöru og Sigrúnu vinkonum mínum. Hvert er ömurlegasta starf sem þú hefur nokkurn tímann unnið við? Ég held að snyrtivöruverslun eigi verst við mig af öllu sem ég hef annars tekið mér fyrir hendur. Er einhver sem þú skuldar afsök- unarbeiðni fyrir eitthvað? Já, eflaust. Það er nú erfitt að komast í gegnum lífið án þess, án þess að ég ætli að fara að útlista einhverjum leiðindum hér. En fyrirgefðu. Hver sem þú ert. Ég hef svo lítið leiðindaþol að ég tek mjög nærri mér ef einhver er leiður eða reiður út í mig út af einhverju. Ef þú ættir tímavel, hvert myndir þú helst vilja fara? Fram í tímann bara að kíkja og svo eftir það örugglega aftur í tímann ef ég gæti troðið öllum sem ég þekki og þykir vænt um inn líka. Hvað er mesta afrek þitt? Að vera þriggja barna móðir. Margt annað líka en þetta stendur upp úr sem krafta- verkið mitt. Hvernig viltu að fólk minnist þín? „Töff, yndisleg, góð, falleg, skemmti- leg, fyndin“. Nei. Kannski bara eins og ég er, með smá móðu yfir. Hvað heldur fyrir þér vöku? Það er fátt. Ef ég er þreytt þá sofna ég yfir- leitt hvar sem ég er. Hvaða lag finnst þér að ætti að spila við jarðarförina þína? Það er ekki bara eitt lag! Það verða að vera tónleikar! Opnunarlagið yrði náttúrlega Bíbí og Blaka. Svo bara allt það sorglegasta sem ég get tínt til. Það má ekki vera þurrt auga á svæðinu. Carpenters með eitt- hvað, kannski „I Say Goodbye to Love“. (með gítarsólóunum). Jimmy Rodgers með eitthvert jóðlæði, „My Rough and Rowdy Ways“. Og Jim Reeves með The Blizzard. Alvarlegu „Farðu nú að gráta lögunum“ verð ég að fá meiri tíma til að pæla í. Ég vona ég fái hann nú. Eitthvað gott með Bob Dylan. Og svo bara eitt- hvað gott kvikmyndaskor yfir allt svo allir gráti nú og þetta verði dramatískt og fallegt. Vildi að ég gæti gubbað peningum Okkur tókst að lokum að skilja að Ítalinn var að spyrja hvort við ætluðum að mixa. Við spurð- um þá hvort hann vildi ekki mixa. Þá sagði hann að hann gæti það ómögulega því hann þurfti að baka pizzur. Bassaleikarinn og hljóð- maðurinn Bíbí Ásgeirsdóttir var að koma úr hljómleikaferð um Evrópu með rokksveitinni Singapore Sling. Frétta- blaðið tók hana í þriðju gráðu yfirheyrslu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.