Fréttablaðið - 16.06.2007, Page 65

Fréttablaðið - 16.06.2007, Page 65
Hveragerðis var enn eitt ævintýr- ið og svona mætti lengi telja. Bær- inn sjálfur er heldur ekki síður eftirtektarverður útlits, hrollvekj- andi og forvitnilegur, eyðilegur og lifandi í senn, einhvers konar Twin Peaks Íslands. Það er því skyldu- stopp í Hveragerði, þó ekki sé nema rétt til að reka nefið inn í eighties- paradísina Eden, eina stórkost- legustu spilakassa- og skyndibita- sjoppu Íslands. Að því loknu má koma við í Álnavörubúðinni, en þar má finna ótrúlegustu klæði, allt frá suður-þýskum kjólum á þriggja ára upp í Kárahnjúkakraftgalla. Á Örlygshöfn er að finna stórkost- legan stað en þar, að Hnjóti, safn- aði bóndinn Egill Ólafsson heitinn ólíklegustu munum og úr varð eitt magnaðasta byggðasafn Íslend- inga. Má þar finna allt frá gamla innbúinu hans Gísla að Uppsölum (þar á meðal hljóðfæri og aðrar uppfinningar úr hans smiðju sem enginn veit til hvers skal brúka í dag) upp í sovéskar flugvélar. Einnig eru þar gömlu flugstöðv- arnar frá Sondodda og Þingeyri sem og fyrsta húsið sem hafði radíóvita. Allt ofsaspes, svo ekki sé talað um umhverfið sem hefur einmitt heillað margan og mörg- um kvikmyndargerðarmanninum þótt það afar myndvænt. Eyjaferðir geta verið sérdeil- is exótískar. Flatey, á sínu 19. aldar flippi, er auðvitað klassísk en eyjan sem við stingum upp á að þið heimsækið í sumar heitir Vigur á Ísafjarðardjúpi. Bátur fer daglega frá Ísafirði. Eyjan litla er í einkaeign og er bóndi eyjarinn- ar heimsóttur (af sama ættlegg og búið hefur á eyjunni síðan 1884) en þar stundar hann heilsársbú- skap og hefur meðal annars tekj- ur af dúntekju. Í Viktoríuhúsi er svo hægt að fá heimagert bakk- elsi úr smiðju bóndans en eyjan er forkunnarfögur og mjög svo öðruvísi. Innan um kýr, eyjafugla og kletta má svo finna einu korn- myllu landsins, frá árinu 1940. Sérstök og heimilisleg upplifun enda er eyjan lítið heimili og því eru gestir minntir á að guða ekki á glugga með myndavélarnar. Fáum hefur varla látið sér detta í hug að gista í kirkju en nú er hægt að setja það atriði í fram- kvæmdalýsingu sumarfrísins 2007. Á Stöðvarfirði stendur nefni- lega gömul afhelguð kirkja og hafa húsráðendur útbúið þar svefn- aðstöðu fyrir tíu manns. Gisting- in er hugsuð fyrir svefnpoka en sængurföt eru einnig í boði fyrir þá sem vilja og ágætis hreinlæt- is- og eldunaraðstaða er á staðnum. Til að toppa skemmtilegheitin má svo fá leigða átján feta skektu eða gúmmíbát til að róa á út á fjörð og má þá grilla eigin veiði á gasgrilli eftir bátsferðina. Hvert sumar safnast hópur fólks á Arnarstapa eða Hellnum á Snæ- fellsnesi til að njóta orkuflæðis frá Snæfellsjökli. Ef það vant- ar einhverjar nýaldartaugar í þig er af nógu öðru að taka enda er þessi staður suðupottur frum- legrar skemmtunar. Til dæmis má bregða sér í sönghellinn aðeins norðar í Stapafellinu. Fyrirtækið Snjófell býður svo upp á snjóbíla- og snjósleðaferðir frá jökulrönd Snæfellsjökuls og að orkuflæðis- athöfnum eða snjósleðaferð lok- inni má svo skella sér á veitinga- húsið Fjöruhúsið sem rekið er af fjölskyldu sem eldar, þjónar og gerir allt sem gera þarf á staðn- um. Fyrir þá með sérþarfirnar má nefna að gárungarnir segja kokk- inn á Svörtuloftum á Hellissandi, sem er í um tuttugu mínútna fjar- lægð, hreinlega redda því sem redda þarf og hringi maður og at- hugi hvort hann geti eldað fyrir mann eitthvað af óskalistanum er því oft reddað. Rafting hefur um nokkurt skeið verið vinsælt, sérstaklega meðal erlendra ferðamanna. Það sem margir vita ekki er hve auðvelt er að nálgast sportið og til að taka þátt þarftu hvorki reynslu eða sér- staka færni og jafnvel börn geta fengið að koma með. Langvinsæl- ust er Hvítá og fyrirtækið Arctic Adventures býður upp á ferð- ir daglega. Börn yngri en tólf ára geta farið í bátinn á miðri leið, þegar búið er að þræða hættuleg- ustu leiðina en Hvítá þykir ekki hættuleg á og erfiðleikastig henn- ar er 2 af 5. Fyrir þá sem vilja meira adrenalínkikk er Hólmsá öllu erfiðari en fyrirtækið býður líka upp á ferðir niður hana. Það eru ótalmörg skemmtileg vatna- sport í boði á Íslandi sem ekki allir vita af og vert er að nefna einnig það nýjasta, svokallað snorkling. Slík köfun er fyrir þá sem ekki hafa farið á köfunarnámskeið en þá synda ferðamenn í sérstökum þurrgöllum í Þingvallavatni, með öndunarpípu í munni sér. Allir fá froskalappir svo það er auðvelt að synda og njóta umhverfisins. Margir Íslendingar hafa aldrei stigið fæti inn á hálendi landsins. Ef ástæðan er sú að fólk geti ekki hugsað sér að vera án háhraðanet- tengingar og háklassahótels er slík ástæða ekki tekin gild lengur því í dag er að finna hótel norðaustur af Heklu, á Sprengisandsleið, sem býður upp á laxapaté, appelsínu- súkkulaðimús, internet og sjón- varp. Hótelið, Hotel Highland, hefur verið starfrækt þrjú síðustu sumur og gestum finnst það mikið sport að fá slíka þjónustu á jafn ólíklegum stað. Í Brautarholti í Selárdal bjó lista- maðurinn Samúel Jónsson (1884- 1969). Þar standa stórmerkilegar styttur hans enn, sem og kirkja sem hann smíðaði að eigin frum- kvæði. Verk Samúels vekja gjarnan mikla athygli enda húsagerðin sem og listaverkin afar óvenjuleg og sérstök. Hrörlegt umhverfið og auðnin gera upplifunina enn sér- stakari en verkin eru engin smá- smíði og gefur þar meðal annars að líta eftirlíkingu af ljónagosbrunn- inum í Alhambra á Spáni og styttu sem sýnir Leif heppna skyggnast eftir Vínlandi. Áberandi glæsilegur Chevrolet Captiva er sportjeppi sem tekið er eftir. Bíllinn er hannaður til að mæta kröfum evrópskra öku- manna og útkoman er áberandi glæsilegur bíll. Kraftmikil túrbó dísilvél með 5 þrepa sjálfskiptingu. Þú getur valið um 5 eða 7 manna bíl og því fer vel um alla fjölskylduna. Chevrolet er á Tangarhöfðanum og við tökum vel á móti þér. www.benni.is Opið virka daga frá kl. 9.00 - 18.00. Lau. 12.00 - 16.00 Tangarhöfða 8-12 Sími 590 2000 Umboðsmenn: Bílahornið hjá Sissa, Keflavík. Bílasalan Ós, Akureyri. Bílasala Austurlands, Egilsstöðum Chevrolet Captiva Meiri búnaður – bakkskynjari, aksturstölva, loftkæling o.fl., o.fl. Meiri kraftur – 16 ventla túrbó dísilvél með 320 Nm Meira rými – 7 manna sportjeppi fyrir alla fjölskylduna Captiva Chevrolet Captiva 7 manna sportjeppinn sem tekið er eftir Hlaðinn staðalbúnaði Tölvustýrð miðstöð og loftkæling ESP stöðugleikastýring (aftengjanleg) Hraðastillir (cruise control), stjórnað í stýri Nálgunarvörn 18” álfelgur Aksturstölva ARP veltivörn TOD sjálfvirk drifstýring DCS eykur öryggi niður brekkur Tölvustýrð spólvörn LRS heldur hæð við hleðslu Og margt fleira

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.