Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.06.2007, Qupperneq 79

Fréttablaðið - 16.06.2007, Qupperneq 79
Rúmlega ein milljón eintaka af Playstation 3-leikjatölvunni hefur selst í Evr- ópu og Ástr- alíu. Millj- ónasta ein- takið seldist eftir níu og hálfa viku, sem er betri árangur en Sony náði með fyrstu tveimur Playstation- tölvunun. Þrátt fyrir að Playstat- ion 3 hafi komið út í Japan í nóvember á síð- asta ári hefur leikjatölvan næstum því selst í milljónum eintaka á því svæði. Í Norður-Ameríku hefur tölvan selst í yfir 1,3 milljónum eintaka. Leikurinn Resistance: Fall of Man hefur selst í 600 þús- und eintökum í Evrópu og Motor- storm í yfir hálfri milljón. Helga Dýrfinna Magnúsdóttir, 23 ára gömul Kópavogsmær, tekur þátt í Miss Tourism í ár. Keppnin fer fram í Kína og leggur Helga uppí langferðina í byrjun júlí. „Ég tók þátt í Hawaiian Tropic-keppn- inni og lenti þar í öðru sæti. Upp- haflega stóð síðan til að ég færi til Las Vegas en þegar það datt upp- fyrir stakk Ásdís Rán Gunnars- dóttir uppá því að ég tæki þátt í þessari keppni,“ útskýrir Helga sem var að vonum spennt fyrir ferðinni. „Mér líst alveg rosalega vel á þetta enda hef ég aldrei áður komið til Kína,“ bætir hún við. Helga ætti að vera sjóuð í keppn- um því hún hefur verið nokkuð iðin við kolann við að koma sér á framfæri. Hún hefur tvívegis tekið þátt í Ungfrú Reykjavík og svo prófaði hún að syngja fyrir hina harðskeyttu dómnefnd í Idol- leit Stöðvar 2. Keyrði alla leið til Akureyrar eftir að hafa misst af inntökuprófunum í höfuðborg- inni. „Ég hef verið að læra söng en tókst ekki að yfirbuga stress- ið sem fylgir því að syngja fyrir framan myndavélarnar,“ útskýr- ir Helga sem hefur þó ekki lagt sönginn á hilluna því hún hyggst þenja raddböndin fyrir dómefnd- ina í Kína en þátttakendur reyna með sér í hæfileikakeppni. „Ég hef verið að bræða það með mér að syngja Somewhere Over the Rainbow,“ segir Helga. Syngur fyrir Kínverja Hljómsveitirnar Benni Hemm Hemm og Stórsveit Nix Noltes fá fjórar stjörnur af fimm mögu- legum á heimasíðunni music- omh.com fyrir frammistöðu sína á tónleikum á staðnum Catch í London. „Það er svona tónlist sem vex inni í þér eins og sú hlýja tilfinn- ing sem þú færð þegar einhver sem þú hefur áhuga á brosir til þín í lestinni á leiðinni heim,“ segir í umsögninni um Benna Hemm Hemm. Tónlist Stórsveit- ar Nix Noltes er lýst sem blöndu af sígaunapönki með íslenskum þjóðlagaáhrifum sem ná aftur fyrir þann tíma sem Emilíana Torrini kom fram á sjónarsviðið. „London þarf á fleiri hljóm- sveitum eins og Benna Hemm Hemm og Stórsveit Nix Noltes á að halda til að matreiða fyrir sig svona fína rétti og kenna okkur Bretum hvernig á að njóta oftar svona góðrar tónlistar.“ Fá fjórar stjörnur Kínversk yfirvöld hafa klippt í burtu helming atriðanna með kín- verska leikaranum Chow Yun-Fat úr framhaldsmyndinni Pirates of the Caribbean. Ástæðan er sú að þau eru talin móðga kínverskan almenning. Chow Yun-Fat kemur aðeins fram í tíu mínútur í kínversku út- gáfunni í stað þeirra tuttugu mín- útna sem eru í upprunalegu útgáf- unni. Yfirvöldin vildu ekki gefa frekari ástæður fyrir aðgerðum sínum en kínverska tímaritið Pop- ular Cinema hefur skýringuna á reiðum höndum: „Sjóræninginn sem Chow leikur er sköllóttur, ör- óttur með langt skegg og langar neglur. Þessi ímynd er í takt við hugmyndir Hollywood um að gera Kínverja að illmennum.“ Klipptur út út í Kína Ein milljón eintaka seld
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.