Tíminn - 28.01.1981, Page 11

Tíminn - 28.01.1981, Page 11
Miövikudagur 28. janúar 1981 IÞROTTIR IÞROTTIR 15 Hilmar hefur valið 20 manna hóp i leikina gegn Frökkum • leiknir verða 3 landsleikir gegn Frökkum i handknattleik • fyrsti leikurinn verður i Laugardalshöll i kvöld kl. 20 AB — íslenska hand- knattleikslandsliðið mun leika þrjá lands- leiki við Frakka nú á næstu dögum, og verður sá fyrsti i kvöld í Laugardalshöllinni kl. 20. Hilmar Björnsson landsliðsþjálfari til- kynnti á blaðamanna- fundi i gær val sitt á 20 manna hóp sem mun leika þessa þrjá lands- leiki, en að þeim loknum mun Hilmar siðan velja 16 manna hópinn sem tekur þátt í B-heims- meistarakeppninni I Frakklandi. Tuttugumanna hópinn skipa: Markverðir: Kristján Sigmundsson Vikingi Einar Þorvarðarson HK Jens Einarsson 'T'ý Ólafur Benediktsson, Val. Aðrir leikmenn: Ólafur Jónsson, Vikingi Stefán Halldórsson Val. Brynjar Harðarson Val, Guðmundur Guðmundsson Vikingi. Bjarni Guðmundsson Val. Steindór Gunnarsson Val Ólafur H. Jónsson, Þrótti Þorbjörn Guðmundsson, Val Þorbergur Aðalsteinsson, Vikingi Axel Axelsson, Fram Atli Hilmarsson Fram Sigurður Sveinsson, Þrótti Páll Björgvinsson, Vikingi Steinar Birgisson, Vikingi Páll ólafsson, Þrótti. Eins og fyrr segir er fyrsti leik- urinn i kvöld kl. 20 i Laugardals- höll, og verður þá forleikur milli Unglingalandsliðs karla og IBK, sem hefstkl. 18.45. Miðasala hefst kl. 17.30. Annar leikurinn verður i nýja iþróttahúsinu i Keflavik á föstudag, og hefst hann kl. 20. Sömu aðilar og i fyrsta lands- leiknum leika forleik. Siðasti landsléikurinn við Frakka verður svo i Laugardalshöllinni á sunnu- dagskvöldið, 1. febrúar, en þá leika forleik A- og B-landslið kvenna. Forleikurinn hefst kl. 18.30, en landsleikurinn kl. 20. Dómarar i öllum landsleikjunum eru danskir. Miðaverð verður 50 krónur 1 sæti, 40 krónur i stæði og barna- miðar verða á 10 krónur. Nú kann marga að undra að landsliðið okkar skuli leika þrjá landsleiki við landslið F'rakka svo skömmu íyrir B-keppnina i Frakklandi, en eins og kunnugt er þá eru Islendingar og Frakkar saman i riðli á mótinu. Hilmar Björnsson skýrði þetta á blaða- mannafundi i gær með þeim orð- um að í fyrsta lagi, þá væri meira en eitt ár siðan samið hefði verið um þessa leiki við Frakkland, en þá hefði ekkert verið vitað um niðurröðun i riðla i B-keppninni, og i öðru lagi þá léku Islendingar ekki við Frakkland i B-keppninni fyrr en sinn fjórða leik, og þvi hefðu Frakkar alla möguleika á að njósna um leikaðferðir islenska liðsins i fyrstu þremur leikjunum. Það væri þvi alls ekkert um það að ræða að fela einhverjar leikaðferðir fyrir Frökkunum. Hilmar sagði jafn- framt að hann liti á þessa leiki við Frakka sem nokkurs konar loka- próf liðsins. Þá léku leikmennirn- ir undir þeirri pressu að sýna hvaði þeim býr og hvað þeir geta, þvi þarna væru 20 leikmenn að keppa um 16 landsliðssæti. Hilm- ar reiknaði með að tilkynna endanlega landsliðið sem fer til Frakklands mjög fljótlega eftir leikina við Frakka, en hafði þá þann fyrirvara á að hann hefði Alfreð Gislason KR, eins lengi inni i myndinni og hann gæti, svo framarlega sem hann hefði náð sér af meiðslum. Þeireinusem detta ú t úr lands- liðshópnum, eins og hann var i Þýskalandi og Danmörku eru þeir Jóhannes Stefánsson KR og Gunnar Einarsson, Haukum en hann gefur ekki kost á sér. Lokaundirbúningur islenska landsliðsins verður svo þegar Austur-Þjóðverjar koma hingað til lands og leika við lslendingana tvo landsleiki, dagana 12. til 16. febrúar. Islenska landsliðið held- ur svo áleiðis til Frakklands þann 19. febrúar. Fram að þvi verður mjög stift æfingaprógramm i gangi hjá landsliðinu. Munu leikmennirnir æfa 4 til 5 sinnum i viku. Albert Guðmundsson alþingis- maður verður heiöursgestur á landsleiknum við Frakka i kvöld. Islenska landsliðið og það franska hafa keppt 8 landsleiki, og hafa Islendingar náð að sigra fjórum sinnum. Það er þvi jafn- ræði nokkuð með liðunum, og þvi óhætt að spá jöfnum og tvisýnum leikjum. Það er Handknattleiks- sambandinu mikil nauðsyn að leikir þessir verði vel sóttir, þvi mikill kostnaður sambandsins er framundan vegna fararinnar til Frakklands. Lætur nærri að sú för muni kosta sambandið 150.000 nýkrónur, eða 15 milljónir gamalla króna. Það er þvi nauð- synlegt að þeir sem vilja uppgang islensks handknattleiks sem mestan, sýni það i verki og mæti á landsleikina og hvetji Landann. Þá má einnig geta þess að H.S.l. mun nú i þessari viku senda um 1000 bréf til ýmissa fyrirtækja og stofnana viðsvegar um landið og fara fram á fjár- hagslegan stuðning. Vikingar voru vel hvattir af fjölmörgum tslendingum sem mættu á leikinn f Lundi f Svlþjóð á sunnudag- inn á myndinni sést hluti af hópnum. TlmamyndRöp. llilmar Björnsson landsliðsþjálfari I handknattleik. Timamynd Róbert. í Þjó ðverJilil "í i i i Breiðabliks kemur til íslands á föstudag II I I I //Þjálfaramálin hjá Hann hefur mjög gott þjálf- okkur viröast nú loksins fraP/óf °s hefur fen8*st viö vera aö komast á hreint. hLSA^«»ýs«ar",,di’ s Þjalfað þar 6 félog og fjogur Vlö hofum verið l sam- þeirra hafa orðið meistarar bandi viö v-þýskan þjálf- Sjáifur íék Kissing knatt- ara/ FritZ Kissing og spyrnu I Suður-Þýskalandi bg Ihann mun koma hingað til td- 1 'úr.vaf,sl“. Suöur- ■ ^ +;i Þyskalands. Ég hef ekki fengið ■ Islands a fostudaginn tll upplýsingar um það enn meö | að kynna ser aöstæöur hvaða félagi hann lék og hvaöa _ hjá okkur", sagði Jón félög hann hefur þjálfað en það ■ Ingi Ragnarsson, for- kemur > *jós þegar hann kemur ■ maður knattspyrnudeild- fil landsins á íöstVdaeinn ar Breiðabliks, í samtali I I ma lllMVWI IVIIU I I Jf/ J ■ IIVMVI IM' I I ar Breiðabliks, i samtali Kissing,semer33áragamall, ■ ■ við Tímann i gær. mun verða hérna hjá okkur i J/j I„Við komumst 1 samband við vikutlma og liki honum allar að- Kissing I gegnum umboðsmann- stæ6ur og okkur viö hann mun ■ inn Ranke og höfum fengiö verðó gengið frá samningum”, ^ miklarog góðarupplýsingar um sa8&> Jón InS>- BLhann. röp—. jm ■■ mm mm mmm mmmmmmm Borðtennis- hópur valinn til æfinga fyrir HM I Júgóslavlu Landsliðsnef nd Borð- tennissambandsins hefur valið eftirtalda leikmenn til æfinga fyrir Heims- meistaramótið í borðtenn- is, sem fram fer í Novi Sad í Júgóslavíu 14.-26. apríl nk. Karlar: Bjarni Kristjánsson UMFK Guðmundur Marlusson KR Gunnar Finnbjörnsson Orninn Hilmar Konráösson Vlkingur Hjálmar Aðalsteinsáon KR Hjálmtýr Hafsteinsson KR Jóhannes Hauksson KR Stefán Konráðsson Víkingur Tómas Sölvason KR Konur: Asta Urbancic Orninn Guöbjörg Stefánsdóttir Fram Guðrún Einarsdóttir Gerpla Kristin Njálsdóttir UMSB Ragnhildur Siguröardóttir UMSB tJr þessum hóp verða siðan valdir 4 eöa 5 karlar og 3 konur sem keppa munu I Novi Sad.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.